Alþýðublaðið - 17.11.1939, Qupperneq 4
írf
FöSTUDAGUR 17. NÓV. 1939.
GAMLA BfÓ
Maria Antolnette.
Heimsfræg og hrífandi
fögur Metro Goldwyn
Mayer stórmynd, að
nokkru leyti g*rð samkv.
æfisögu drottningarinnar
eftir Stefan Zwcig. Aðal-
hlutverk:
M«rie Antoinette
NORMA SHEARER
Axel Ftersen greifl
TYRONE POWER
Lúðvík XV.
JOHN BARRYMORE
Lúðvik XVI.
ROBERT MARLEY
FINNAR
Frh. af 1. síðu.
landi eftir nokkra mánuði,
vegna hinna miklu byrða, sem
þjóðin yrði að bera vegna út-
gjal'danna af Jlandvörnunum.
Kvað bankastjórinn Rússa gera
allt of mikið úr þeim útgjöld-
um, sem leitt hefði af hervæð-
ingunni, og engin ástæða væri
til að óttast verðbólgu. Enn sem
komið væri hefði ríkið ekki
fengið einn eyri að láni frá
bankanum, og þrátt fyrir her-
væðinguna hefði reynst gerlegt
að viðhalda venjulegri fram-
leiðslu til heimanotkunar og
útflutnings-
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Vegna áskorana syngnr
M. A. kvaríettinn
í GAMLA BÍÓ sunnudaginn 19. þ. m. klukkan 3 síðdegis.
Ðjami Þés*ðai*s@ie aéstóéar*
Aðgðngumiðar seldir í Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju
og Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar eftir hádegi í dag.
Pantaðir aðgöngumiðar sækist fyrir klukkan 2 á laugardag.
Nýjar v#j
Ullartan í skólakjéla, margar teg. Kápn
eVni, Náttfataflánel. Riflað flanei,
Sloppaefni o. m. fi. Einnifj iarna-
kjélar, og kvennœrfatnaðnr.
Verzlunin Snót
Vestnrgðtn 17.
ISLENZK FÆÐA 06 ERLEND
Frh. af 3. síðH.
drepa því í góð ílát myndi það
geymast betur, og tækjum við
þá upp sömu aðferð og ófriðar-
þjóðirnar hafa, er þær birgja
hermenn sína upp að feiti, og
mættum við vel við una að
hlíta sömu kjörum og þeir að
þessu leyti, svo mjög sem okk-
ar hlutskipti er betra á öðrum
sviðum.
Einhvérjir kunna að segja, að
þetta borgi sig ekki, graslömb-
in yrðu það rýrari og kjötminni
en dilkar. En ég svara, að það
væri bara gott. Við erum í
vandræðum með allt okkar kjöt
og það má gjarnan minnka. Við
höfum þurft að borga með öllu
kjöti, sem flutt hefir verið út
undanfarin ár. Á hvert kjöt-
pund, sem neytt er innanlands,
er lagður neytendaskattur, til
þéss að jafna upp tapið á kjöt-
sölunni til útlanda, og Norð-
mönnum verðum við að greiða
þóknun fyrir að taka við kjöti
af okkur undir framleiðsluverði
með því að veita þeim fríðindi
hér við land.
Árið 1934 voru flutt út 2285
og hálft tonn af kjöti og fyrir
það fengust tæpar tvær millj-
ónir króna. En smjörtekjurnar
einar af % hlutum ánna gætu
numið rúmum 3 milljónum á
70 dögum.
Næringarmagn það, sem 1 ær
gæfi af sér á 70 dögum í mjólk,
samsvaraði næringargildum í
77 kg. af kindakjöti, eða 4
lambsskrokkum á 19 kg., og
mætti kalla þetta góða uppbót
á graslambið.
En það má gera fleira við
'sauðamjólkina en búa til úr
henni smjör. Hún er, sökum
hins háa fitumagns,*) mjög vel
fallin til ostagerðar. Einkum er
hún vel til þess fallin að gera
úr henni Roquefort-ost, en hann
er mjög eftirsótt vara, og all-
dýr. Hinn rétti franski Roque-
fort-ostur er gerður úr sauða-
mjólk, en Roquefort-ostur úr
kúamjólk er lítið meira en nafn-
ið, en þó selja Danir mikið af
honum. Nágrannalönd okkar
eru svo vel ræktuð, að sauðfjár-
rækt er þar hverfandi lítil og
höfum við því mjög góða að-
stöðu til þess að framleiða þessa
vöru og fá fyrir hana hátt verð.
Ég hygg, að vinna mætti ca-
5000 smálestir af osti úr því
magni sauðamjólkur, sem hér
er reiknað með, og ég tel það
litla dirfsku, að áætla verðmæt-
ið allt að 8—10 milljónir króna,
ef það seldist allt á erlendum
markaði. En þótt eigi tækizt að
selja allan ostinn erlendis, væri
hægt að framleiða hann fyrir
innlendan markað og nota tals-
vert af honum til þess að blanda
saman við smjör til helminga,
búa til svonefnt ostasmjör og
drýgja smjörið um helming.
Læt ég svo útrætt um frá-
færurnar, en dreg ekki dulur
á, að ég tel það mikla uppbót
fyrir sauðfjárræktina og at-
vinnulífið, ef horfið yrði að
ostagerð úr sauðamjólk, en vit-
*) Þjóðverjar telja að fitan
komist yfir 12% í sauðamjólk, en
hér er reiknað með rúmlega 6%
fitumagni.
anlega þarf þetta mál vandlega
athugun og undirbúning. Til-
gangur minn með þessum bolla-
leggingum er aðeins sá, að
vekja athygli á þessum frábær-
lega mikla fjársjóði hollrar
mannafæðu, sem fer í blessuð
lömbin, en þau skila aldrei aft-
ur.
Að lokum skal ég fara örfá-
um orðum um sjálfsbjargargetu
okkar hvað snertir kolvetnin.
Við getum ekki komizt af án
þess, að flytja inn talsvert af
kornvöru, en talsvert má þó
draga úr þessum innflutningi,
ef ræktun og neyzla garðá-
vaxta, einkum kartöflunnar,
væri aukin og skyrát kæmi í
stað grauta meira en nú. Það
ætti ekki að vera of mikið, þótt
hver fullorðinn maður neytti
sem svaraði Vz kg. af kartöflum
og öðru grænmeti á dag. Græn-
kál ætti að rækta á hverju
sveitaheimili og við hvert hús
og neyta þess vetur og sumar.
Grænkálið á að saxa hrátt
saman við skyr og geyma það
í skyri eða súr á vetrum. Hrátt
grænkál hefir svipað magn af
C-bætiefni og beztu ávextir,
það vex hvar sem það er látið
og stendur fram á vetur. Rófu-
kál á að hagnýta á sama hátt.
Berjaskyr á að koma í stað sæt-
súpu úr berjasaft. Krækiber eru
talin mjög auðug að C-bæti-
efni, og séu þau geymd í skyri
eins og þau koma fyrir, halda
þau vafalaust bætiefninu. Yfir-
leitt er ástæða til að hvetja til
stóraukinnar ræktunar á hvers
konar káli og grænmeti, sem
þrifizt getur í görðum, og tel
ég engan vafa á því, að við get-
um langsamlega fullnægt C-
bætiefnisþörfinni.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSBLÖÐIN
I GÖÐUM FÉLAGSSKAP
Frh. af 3. síðu.
langar lofræöur um frumvarp
Bjarna Snæbjörnssonar umverka-
lýðsfélögin samfara svívirðingum
um AlþýðuflOikkinn og foringja
hans fyrir það, að þeir skuli ekki
vilja fallast á að lögbjóða þær
skipulagsbreylingar á verkalýðs-
fél ögunum, sem þar er farið fram
á í þeim gegnsæja tilgangi að
eyðileggja þau.
En það er rétt að vekja athygli
á því, að frumvarp Bjarna Snæ-
björnssonar hefir einnig heiður-
inn af því að hafa stuðning
Þjóðviljans, blaðs Kommúnista-
fiokksins, sem í gær varð að játa
það, að það starfaði hér með
rússnesku fé. „Fmmvarp þetta,“
sagði Þfpðviljinn þ. 8. nóvem-
ber siðast liðinn, „er í meginat-
riðum í samræmi við þær skoð-
anir, sem Þjöðviljinn hefir haldið
fram um þetta mál.“
Finnst mönnum ekki Sjálf-
stæðisflokksblöðm vera í góðum
félagsskap í þessu máli? Halda
menn ekki að það væri hollt
fyrir verkalýðshreyfinguna og
þjióðina í lieiid, að samþykkt yrði
af alþingi fmmvarp til Iaga um
verkalýðsfélögin, sem „er í Vneg-
inatriðum í samræmi við þær
skoðanir, sem Þjóðviljinn hefir
haldið fram“?!
Það er að sjálfsögðu gott og
blessað, að blöðum Sjálfstæðis-
ftokksins skuli œnna blóðið til
skyldunnar, þegar þeim er sýnt
það svart á hvítu, hvernig kom-
múnistar reka hér áróður fyrir
Rússland með stórkostiegum fjár-
framlögum þaðan- En hvenær
æt!a þau að hætta samvinnu sinni
við hina rússnesku erindreka?
Það vill þjóðin fá að vita í dag.
f DA6
Næturlæknir er Kristín ólafs-
dóttir, Ingólfsstræti 14, sími 2161.
Næturvörðúr er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
Næturvarzla bifreiða: Bifreiða-
stöð Steindórs, sími 1580.
ÚTVARPIÐ:
20,15 Vegna striðsins: Erindi/
20,30 Útvarpssagan: „Ljósi'ð, sem
hvarf“, eftir Kipling.
21,00 Hljómplötur: Létt lög.
21,05 Æskulýðsþáttur (Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli)
21,25 Píanókvartett útvarpsins:
Píanókvartett nr. 20, eftir
Mozart.
HÁSKÓLINN
Frh. af 1. síðu.
Ef þessum undirbúnings-
deildum yrði komið á, yrði
stúdentafjöldinn í þessum nýju
deildum að 2 árum liðnum:
30 í viðskiptadeild,
18—20 í verkfræði,
6—8 í náttúrufræði,
8 í hagfræði
eða samtals nál. 65 stúdentar,
og væri þá auðveldara að tak-
marka tölu stúdenta í lagadeild
og læknadeild allverulega.
Hagnaður við þetta fyrir-
komulag væri:
1- Sparnaður á erlendum gjald-
eyri nál. 130 000 kr. árlega.
2. Efling háskólans, en það
verður að telja skyldu hvers
þjóðfélags, er hefir sinn eig-
in háskóla, að veita stúdent-
unum kennslu í öllum þeim
greinum, er þjóðfélaginu
megi að gagni verða, ef þess
er nokkur kostur.
3. Margbreytni í námi, sem
beinir nýjum stúdentum inn
á fleiri brautir en nú er
kostur á.
Árlega útskrifast um 80 nýir
stúdentar og leita margir
þeirra til erlendra háskóla, þótt
engan utanfararstyrk fái, ef
aðstandendur þeirra eru þess
megnugir, og er því engin leið
að hindra framhaldsnám þeirra
við háskóla, enda verður það
að teljast ógerlegt að stöðva
framalöngun ungra og efnilegra
stúdenta.
Til þess að standast kostnað
við hinar nýju deildir mætti
verja þeim 20 000,00 kr., sem
nú eru á fjárlögum til viðskipta
háskóla, en gera má ráð fyrir,
að háskólinn gæti sjálfur lagt
fram 4 000,00 kr- úr almanaks-
sjóði til kennslu í eðlisfræði og
stærðfræði.
VERKAMENN I HAFN ARFIRÐI
Frh. af 1. síðu.
fundurinn svo á, að kaupupp-
bót beri að miða við fram-
færslukostnað tvo síðustu mán-
uði ársins, því á þeim mánuð-
um hefir og mun dýrtíð helzt
aukast, en Ihinsvegar ekki
gefist rétt yfirlit yfir hina
auknu dýrtíð, ef tteknir verða
til g rundvallar sex síðustu
mánuðir ársins eins og nefnd
lög ákveða, og skorar því fund-
urinn á Alþingi að samþykkja
framkomið frumvarp Alþýðu-
flokksins . um .breytingar .á
framangreindum lögum, enda
er þ að í fullu samræmi við
kröfur verkamanna þar um.“
Að lokum voru umræður um
atvinnumál og var samþykkt
áskorun á ríkisstjórnina um
fjárframlög til aukningar at-
vinnu fyrir hafnfirzka verka-
menn.
Boomps -a-Daisy
r
'lf
\
„Lagarfoss“
fer héðan anna'ð kvöld vestar
og norður Ism land til útlanda.
FORNVERZLUNIN
Grettisgötu 45 A. — Allt er keypt.
Enski sandikenniarinn,
dr. J. Mc Kenzie, fiytur fram-
haldsfyririestur í kvöld kl. 8 um
„Castles, mansions and oottages".
Niokkrar skuggamyndir verða
sýndar.
NTIA BIO
Njósnari
kardináians
Spennandi og viðburðarík
amerísk kvikmynd frá Fox
um hneysti og hetjudáðir,
er gerist í Frakklandi á
dögum Richelien kardinála.
Aðalhlutverkin leika:
Annabe'ia og
Conrad Veidt.
AUKAMYND:
RÖNTGENGEISLAR
Stórmerkileg mynd um
töframátt röntgengeislanna.
SKEMMTIFÉLAGIÐ GÖMLU DANSARNIR.
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu laugardaginn 18. nóv. kl.
10 e. h. Áskriftarlisti og aðgöngumiðar frá kl. 2,' sími
4900. Á föstudag sími 4727.
Harmonikuhlj ómsveit (4 manna). Eingöngu gömlu dansarair.
heldur Félag harmonikuleikara í Oddfellowhusinu sunnu-
daginn 19. þ. m. kl. 10 síðdegis.
Nýju dansarnir niðri.
Eldri dansarnir uppi.
Harmonikuhljómsveitir og
hljómsveit Aage Lorange leika.
Aðgöngumiðaslan hefst kl. 6 s. d.
Mýjar bœkur
HAGNÝT BARNASÁLARFRÆÐI eftir Charlotte Buhler pró-
fessor í barnasálarfræði- íslenzk þýðing eftir Ármann Hall-
dórsson. — Bókin lýsir í aðalatriðum undirstöðustaðreynd-
um þróunarinnar á bernsku- og unglingsárunum og tekur
jafnframt til mðferðar fjölmörg, hagnýt uppeldisvandamál.
FEGRUN OG SNYRTING eftir norska lækninn dr. Alf Lorentz
Örbeck í íslenzkri þýðingu eftir frú Kristínu Ólafsdóttur
lækni- Þetta er stórmerkileg bók, sem leysir úr ótal vanda-
málum varðandi fegrun og snyrtingu líkamans. — 64 myndir
eru í bókinni.
MANNKYNSSAGA. Ágrip, eftir Ólaf Hansson menntaskólakenn-
ara, sem framvegis verður notað til inntökuprófs í Mennta-
skólann í Reykjavík, en auk þess hentug kennslubók í efstu
bekkjum barnaskólanna o. fl. skólum-
BARNABÆKUR. Hans og Gréta með litmyndum- Rauðhetta með
litmyndum. Mjallhvíí og Öskubuska með teikningum eftir
frú Barbara W. Árnason. Kóngsdóttirin, sem svaf í 100 ár
(Þyrnirós) með teikningum eftir Tryggva Magnússon.
BÆKURNAR FÁST HJÁ NÆSTA BÓKSALA.
DANSLEIIDR1D BðTEL BORfi
SKEMTIATKIÐI: 1 Akroiaffik: Inga Slfs, 2 EinsDngur:
Ævar Kvarais, 3. Stappdanzs dalla Pdrariass, 4. EEá-
stakkar syagja, S. Övœni, anglýst síðar.
Aðgðognmlðar verða seldlr frá M. 4—7 í dag og á aorpn.