Alþýðublaðið - 27.11.1939, Side 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
KX. ÁRGANGUR
MÁNUDAGUR 27. NóV. 1939.
277. TÖLUBLAÐ
Deila Rússa og Finna tekur
ná nýja og alvarlega stefnu
Riissar bera FIwnna» á brýn
izt á rássnesba bermenn inssan
neskn landamærim, drepið
Finnar segja ásakanir Rússa tilhæfnlausar
Fiytir Filhjðifflir
fyrv. Þýzkalands-
keisarí tii Noregs?
KHÖFN í gærkv. FÚ.
BLAÐ eitt í London
skýrir frá því, að
Vilhjálmur fyrrverandi
Þýzkalandskeisari hafi nú
í kyggju, að flytja sig
frá Hollandi og setjast að
í Noregi. Fylgir það fregn-
inni, að hann sé búinn að
taka á leigu land í nánd
við Oslo.
Fyrirspurnir hafa verið
gerðar um þetta til yfir-
valda í Noregi og vita þau
ekki til að hinn fyrrver-
andi keisari ætli að
flytja sig til Noregs. •
Frá
D
fréítaritara Aiþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
EILAN milli Rússa og Finna er nú komin á nýtt og
mjög alvarlegt stig. Eússneska herstjórnin sakar
Finna um það í tilkynningu, sem gefin var út í gær, að þeir
hafi skotið sjö fallbyssuskotum á rússneska hermenn innan
við landamæri Rússlands og drepið fjóra þeirra, en sært
níu.
Óstaðfest frétt hermir, að Molotov forsætisráðherra
sovétstjórnarinnar, hafi krafizt þess í samhandi við þessa
tilkynningu rússnesku herstjórnarinnar, að Finnar hverfi
með lið sitt frá landamærunum 25 km. inn í land.
Finnar neita algerlega, að ásakanir rússnesku her-
stjórnarinnar hafi við nokkuð að styðjast og í Helsingfors
er því haldið fram, að þær séu eingöngu settar fram í því
skyni að skapa Rússum átyllu til þess að koma með nýjar
kröfur á hendur Finnum eða jafnvel til þess að ráðast á
land þeirra.
Pravða heimtar nýja
stjórn á Finnlandi!
LONDON í gærkveldi. FÚ.
Blaðið „Pravda“, aðalblað
Yfir 20 Mjóöfæri brunnn
aðfaranótt snnnndagslns.
-----o—---
Alls voru þau vátryggð fyrir 30 þús.
krónur en verkfæri voru óvátryggð.
^ ÐFARANÓTT sunnudags-
ins laust fyrir kl. 3 kom
tilkynning til Slökkviliðsins um
að eldur væri kominn upp í hús-
inu nr. 8 við Óðinsgötu. Það
eru þrjú hús, sem standa sam-
an þarna, sem Öll eru nr. 8, en
eldurinn var í útbyggingu, —
bakhúsi, en þar var hljóðfæra-
verkstæði Pálmars ísólfssonar.
Pálmar ísólfsson hefir þar
gert við hljóðfæri og smíðað ný
og var þarna allmikið af ýmis-
konar hljóðfærum, aðallega þó
orgelum, efnivið og verkfær-
um.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang virtist eldurinn vera orð-
inn allmagnaður, en hann var
hægur. Var reykur ákaflega
mikill.
Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á skammri
stundu, en þá var mikið eyði-
lagt af því, sem þarna var og er
talið að þarna hafi eyðilagst að
fullu eða einhverju leyti yfir
20 hljóðfæri.
Var það, sem þarna var, vá-
tryggt fyrir 30 þúsund krónur,
hins vegar voru verkfæri ekki
vátryggð og er talið að Fálmar
ísólfsson verði fyrir állmiklu
tjóni, þar sem þarna var all-
mikið af hljóðfærum, sem aðrir
áttu, til viðgerðar.
Talið er, að eldurinn hafi upp
komið í lítilli skonsu við sót-
lúgu. Orgel, sem stóð við þessa
lúgu, var brunnið til ösku, —
eldurinn flögraði víða, en var
hinsvegar ekki magnaður.
Slökkviliðið varð að rífa
nokkuð innan úr húsinu áður en
tókst að ráða niðurlögum elds-
ins.
Finnskur hermaður á verði í Viborg, annarri stærstu borg Finnlands, sem liggur nyrzt á Kyr-
jálanesinu, Sandpokum hefir verið hlaðið upp til að geta í flýti reist götuvígi, 'ef Rússar
ráðast á borgina.
Er kornið að eyði-
leggjast í Bertba
Fisser?
Skipið er nú að færast i kaf.
HORMAFIRÐI var á
laugardag og í gær
norðaustan hvassviðri. Þó
tókst að hjarga um 60 sekkj-
um úr Berta Fisser. í fyrri-
nótt var suðaustan stórsjór,
og er framliluti skiþsins nú
oltinn út af skerinu, svo að
aðeins lítill hluti hans er upp
úr sjó. Afturhlutinn hefir
Frh, á 3. síðu.
rússneska kommúnistaflokks-
ins, sem í dag birti hvassa árás-
argrein í garð Finna og einkum
veittist að Cajander forsætis-
ráðherra og fór um hann óvirð-
ingarorðum, segir að engin
lausn sé væntanleg á deilumál-
um Finnlands og Sovét-Rúss-
lands, nema Cajander-stjórnin
fari frá og önnur stjórn komi í
hennar stað, stjórn, s'em taki
vinsamlegri afstöðu gagnvart
Sovét-Rússlandi.
Þýzka stjórnin er sogð hafa
gefið finnsku stjórninni vin-
samlega bendingu um, að semja
við rússnesku stjórnina.
Cajander, forsætisráðherra
Finna, sagði í gær, að Finnar
ættu ekki upptökin að árekstrin
um, og utanríkismálaráðuneyt-
ið í Helsingfors tilkynnir í
morgun, að aflokinni ítarlegri
rannsókn, að fullyrða megi, að
engir finnskir hermenn hafi
skotið á rússneska h'ermenn.
r
1
singfors fyrir
manns.
*
KHÖFN í gærkveldi. FÚ.
Yfirvöldin í Helsingfors hafa
ákveðið að láta byggja sprengju
held skýli þar í borginni, sem
rúmað geti 20 þúsund manns.
Kostnaður við þetta er talinn
muni verða 30 milljónir
finnskra marka.
Samkvæmt fregn frá Hels-
ingfors hafa Þjóðverjar tekið og
flutt til hafnar finnskt skip,
sem var á leiðinni til Gauta-
borgar með trjáviðarefni o. fl.
Á hátíö íslendingafélagsins
í Kaupmannahöfn þann 1. dez-
ember mun séra Fribrik Frið-
rikgson halda ræðu. María Mark-
an óperusöngkona mun syngja,
en Johanne Stockmarr hirðpíanó-
leikari mun leika undir. (FO.)
ino „Pilsndski“
pýzkaa kafbát
Stóru vopnuðu brezku kaupfari, „Raw-
alplucM44, var einnig sðkkt í gær.
LONDON í morgun. FÚ.*"
| GÆRKVELDI var til-
kynnt í London. að tveim
ur stórum hafskipum hefði
verið sökkt, annað þeirra var
brezkt, vopnað kaupfar, „Ra-
walpinchi“, 16 700 smálestir,
og hitt pólska hafskipið „Pil-
sudski“, 14 000 smálestir að
stærð, sem áður var í far-
þega- og vöruflutningum
milli Evrópu og Ameríku,
en brezka flotamálaráðu-
neytið hefir haft á leigu frá
því styrjöldin hyrjaði.
Aðeins 17 menn komust af,
er „Rawalpinchi“ fórst, af um
300 manns, en 170 nienn af á-
höfn „Pilsudski“ hafa verið
setíir á land í brezkri hafnar-
borg. Flutti brezkt herskip og
togari þá, sem af komust, til
hafnar. 7 manna af „Pilsudski“
er saknað. ,
í fyrstu var tilkynnt, að „Pil-
sudski“ hefði rekizt á tundur-
dufl og sokkið, en síðar að kaf-
bátur hefði skotið á skipið tund-
urskeyti.
Þá hefir 'enn eitt skip hlut-
lausrár þjóðar, þ. e. sænska
skipið „Gustav Reuter“, farizt á
tundurdufli við austurströnd
Breílands. Brezkur togari
bjargaði 10 mönnum af áhöfn-
inni, en margra er saknað.
Byggíngi hins nýja
eiiskips er frestað
Bnrmeister & Wain sagði
upp samBligaa við
0;FJQRN Eimskipafélags ís-
^ lands sendi blöðunum á
laugardaginn eftirfarandi til-
kynningu:
„Vér leyfum oss hér rfteð að
beiðast þess, að þér birtið í blaði
yðar, að skipasmíðastöð Bur-
meister & Wain í Kaupmanna-
höfn hefir nú, af ástæðum, sem
ófriðurinn hefir valdið, sagt
upp samningi þeim við oss um
Frh. á 4■ síðu.
I| pólitísk
íélagsstofnun.
NÝ PÓLITÍSK félags-
stófnun fer fram í
Varðarhúsinu í kvöld kl.
8%. — Hefir félagsskapur
þessi verið undirbúinn
undanfarnar vikur og eru
aðahnennirnir í honum
Gísli Jónsson vélstjóri, Ja-
koh A. Jónsson bílstjóri,
Einar Guðmundsson heild-
sali, Friðrik Magnússon
heildsali, Dagbjartur Sig-
urðsson kaupmaður, Guð-
mundur Þorkelsson fast-
eignasali og ýmsir fleiri,
sem talið er að staðið hafi
nærri nazistum.
Félagsskapur þessi á
fyrst um sinn, að ætlan
forgöngumannanna að
vera deild úr Sjálfstæðis-
flokknum, þar eð þeir
munu ekki treysta sér að
svo komnu að kljúfa sig
alveg út úr og taka á móti
andstöðu frá forkólfum
Sjálfstæðisflokksins.
Br-SUafltshafi.
LONDON í gærkveldi. 'FO.
Þýzka útvarpið í dag viður-
kemiir, að Jiýzka skipið „Adolf
Wurman“ sé sokkið í Suður-
Atlantshafi.
Segir í tilkynningum útvarps-
ins, að skipshöfnin hafi opnað
botnhlerana og sökkt skipinu, til
þess að koma í veg fyrir að
brezkt herskip flytti það til
hafnar..
D|úp lægð veldur fár~
viðri í Vestanannaeý|um
—----■»..
Nú gengnr það yflr snðvestnr
Mnta Noregs og Norðursjðinn.
JÚP LÆGÐ gekk yfir
Suðvesíurland síðari
hluta laugardags og aðfara-
nótt sunnudags. Var veður
allmikið á þessum slóðum,
10—12 vindstig og var veðr-
ið mest í Vestmannaeyjum.
Þar var ekki stætt á götum
úti og urðu almennar bilan-
ir á rafmagnskerfi hæjarins.
Berklaskoðun á börnum átti
að fara fram í Vestmanna-
eyjum á laugardag, en
vegna veðurofsans var hætt
við það, því að ekki var fært
um göturnar.
Með veðrinu kom mikil
snjókoma víða um land, en
vegna stormsins hlóð snjón-
um víðastlivar í skafla.
Snjóþyngsli eru þó hvergi
mæld yfir 15 cm. nema á Loft-
sölum í Mýrdal, Grimsstöðum
á Fjöllum og í Grímsey. Það er
óvenjulegt, að í slíkum veðrum
sé snjólétt á Hornströndum, en
þannig er það nú. Úrkoman hér
á Suðvesturlandi var blaut og
gerði það að verkum, að 10
símastaurar brotnuðu skammt
frá Skrauthólum á Kjalarnesi.
Frh. á 4- síðu.