Alþýðublaðið - 27.11.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 27.11.1939, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN KX. ÁRGANGUR MÁNUDAGUR 27. NóV. 1939. 277. TÖLUBLAÐ Deila Rússa og Finna tekur ná nýja og alvarlega stefnu Riissar bera FIwnna» á brýn izt á rássnesba bermenn inssan neskn landamærim, drepið Finnar segja ásakanir Rússa tilhæfnlausar Fiytir Filhjðifflir fyrv. Þýzkalands- keisarí tii Noregs? KHÖFN í gærkv. FÚ. BLAÐ eitt í London skýrir frá því, að Vilhjálmur fyrrverandi Þýzkalandskeisari hafi nú í kyggju, að flytja sig frá Hollandi og setjast að í Noregi. Fylgir það fregn- inni, að hann sé búinn að taka á leigu land í nánd við Oslo. Fyrirspurnir hafa verið gerðar um þetta til yfir- valda í Noregi og vita þau ekki til að hinn fyrrver- andi keisari ætli að flytja sig til Noregs. • Frá D fréítaritara Aiþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. EILAN milli Rússa og Finna er nú komin á nýtt og mjög alvarlegt stig. Eússneska herstjórnin sakar Finna um það í tilkynningu, sem gefin var út í gær, að þeir hafi skotið sjö fallbyssuskotum á rússneska hermenn innan við landamæri Rússlands og drepið fjóra þeirra, en sært níu. Óstaðfest frétt hermir, að Molotov forsætisráðherra sovétstjórnarinnar, hafi krafizt þess í samhandi við þessa tilkynningu rússnesku herstjórnarinnar, að Finnar hverfi með lið sitt frá landamærunum 25 km. inn í land. Finnar neita algerlega, að ásakanir rússnesku her- stjórnarinnar hafi við nokkuð að styðjast og í Helsingfors er því haldið fram, að þær séu eingöngu settar fram í því skyni að skapa Rússum átyllu til þess að koma með nýjar kröfur á hendur Finnum eða jafnvel til þess að ráðast á land þeirra. Pravða heimtar nýja stjórn á Finnlandi! LONDON í gærkveldi. FÚ. Blaðið „Pravda“, aðalblað Yfir 20 Mjóöfæri brunnn aðfaranótt snnnndagslns. -----o—--- Alls voru þau vátryggð fyrir 30 þús. krónur en verkfæri voru óvátryggð. ^ ÐFARANÓTT sunnudags- ins laust fyrir kl. 3 kom tilkynning til Slökkviliðsins um að eldur væri kominn upp í hús- inu nr. 8 við Óðinsgötu. Það eru þrjú hús, sem standa sam- an þarna, sem Öll eru nr. 8, en eldurinn var í útbyggingu, — bakhúsi, en þar var hljóðfæra- verkstæði Pálmars ísólfssonar. Pálmar ísólfsson hefir þar gert við hljóðfæri og smíðað ný og var þarna allmikið af ýmis- konar hljóðfærum, aðallega þó orgelum, efnivið og verkfær- um. Þegar slökkviliðið kom á vett- vang virtist eldurinn vera orð- inn allmagnaður, en hann var hægur. Var reykur ákaflega mikill. Slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á skammri stundu, en þá var mikið eyði- lagt af því, sem þarna var og er talið að þarna hafi eyðilagst að fullu eða einhverju leyti yfir 20 hljóðfæri. Var það, sem þarna var, vá- tryggt fyrir 30 þúsund krónur, hins vegar voru verkfæri ekki vátryggð og er talið að Fálmar ísólfsson verði fyrir állmiklu tjóni, þar sem þarna var all- mikið af hljóðfærum, sem aðrir áttu, til viðgerðar. Talið er, að eldurinn hafi upp komið í lítilli skonsu við sót- lúgu. Orgel, sem stóð við þessa lúgu, var brunnið til ösku, — eldurinn flögraði víða, en var hinsvegar ekki magnaður. Slökkviliðið varð að rífa nokkuð innan úr húsinu áður en tókst að ráða niðurlögum elds- ins. Finnskur hermaður á verði í Viborg, annarri stærstu borg Finnlands, sem liggur nyrzt á Kyr- jálanesinu, Sandpokum hefir verið hlaðið upp til að geta í flýti reist götuvígi, 'ef Rússar ráðast á borgina. Er kornið að eyði- leggjast í Bertba Fisser? Skipið er nú að færast i kaf. HORMAFIRÐI var á laugardag og í gær norðaustan hvassviðri. Þó tókst að hjarga um 60 sekkj- um úr Berta Fisser. í fyrri- nótt var suðaustan stórsjór, og er framliluti skiþsins nú oltinn út af skerinu, svo að aðeins lítill hluti hans er upp úr sjó. Afturhlutinn hefir Frh, á 3. síðu. rússneska kommúnistaflokks- ins, sem í dag birti hvassa árás- argrein í garð Finna og einkum veittist að Cajander forsætis- ráðherra og fór um hann óvirð- ingarorðum, segir að engin lausn sé væntanleg á deilumál- um Finnlands og Sovét-Rúss- lands, nema Cajander-stjórnin fari frá og önnur stjórn komi í hennar stað, stjórn, s'em taki vinsamlegri afstöðu gagnvart Sovét-Rússlandi. Þýzka stjórnin er sogð hafa gefið finnsku stjórninni vin- samlega bendingu um, að semja við rússnesku stjórnina. Cajander, forsætisráðherra Finna, sagði í gær, að Finnar ættu ekki upptökin að árekstrin um, og utanríkismálaráðuneyt- ið í Helsingfors tilkynnir í morgun, að aflokinni ítarlegri rannsókn, að fullyrða megi, að engir finnskir hermenn hafi skotið á rússneska h'ermenn. r 1 singfors fyrir manns. * KHÖFN í gærkveldi. FÚ. Yfirvöldin í Helsingfors hafa ákveðið að láta byggja sprengju held skýli þar í borginni, sem rúmað geti 20 þúsund manns. Kostnaður við þetta er talinn muni verða 30 milljónir finnskra marka. Samkvæmt fregn frá Hels- ingfors hafa Þjóðverjar tekið og flutt til hafnar finnskt skip, sem var á leiðinni til Gauta- borgar með trjáviðarefni o. fl. Á hátíö íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn þann 1. dez- ember mun séra Fribrik Frið- rikgson halda ræðu. María Mark- an óperusöngkona mun syngja, en Johanne Stockmarr hirðpíanó- leikari mun leika undir. (FO.) ino „Pilsndski“ pýzkaa kafbát Stóru vopnuðu brezku kaupfari, „Raw- alplucM44, var einnig sðkkt í gær. LONDON í morgun. FÚ.*" | GÆRKVELDI var til- kynnt í London. að tveim ur stórum hafskipum hefði verið sökkt, annað þeirra var brezkt, vopnað kaupfar, „Ra- walpinchi“, 16 700 smálestir, og hitt pólska hafskipið „Pil- sudski“, 14 000 smálestir að stærð, sem áður var í far- þega- og vöruflutningum milli Evrópu og Ameríku, en brezka flotamálaráðu- neytið hefir haft á leigu frá því styrjöldin hyrjaði. Aðeins 17 menn komust af, er „Rawalpinchi“ fórst, af um 300 manns, en 170 nienn af á- höfn „Pilsudski“ hafa verið setíir á land í brezkri hafnar- borg. Flutti brezkt herskip og togari þá, sem af komust, til hafnar. 7 manna af „Pilsudski“ er saknað. , í fyrstu var tilkynnt, að „Pil- sudski“ hefði rekizt á tundur- dufl og sokkið, en síðar að kaf- bátur hefði skotið á skipið tund- urskeyti. Þá hefir 'enn eitt skip hlut- lausrár þjóðar, þ. e. sænska skipið „Gustav Reuter“, farizt á tundurdufli við austurströnd Breílands. Brezkur togari bjargaði 10 mönnum af áhöfn- inni, en margra er saknað. Byggíngi hins nýja eiiskips er frestað Bnrmeister & Wain sagði upp samBligaa við 0;FJQRN Eimskipafélags ís- ^ lands sendi blöðunum á laugardaginn eftirfarandi til- kynningu: „Vér leyfum oss hér rfteð að beiðast þess, að þér birtið í blaði yðar, að skipasmíðastöð Bur- meister & Wain í Kaupmanna- höfn hefir nú, af ástæðum, sem ófriðurinn hefir valdið, sagt upp samningi þeim við oss um Frh. á 4■ síðu. I| pólitísk íélagsstofnun. NÝ PÓLITÍSK félags- stófnun fer fram í Varðarhúsinu í kvöld kl. 8%. — Hefir félagsskapur þessi verið undirbúinn undanfarnar vikur og eru aðahnennirnir í honum Gísli Jónsson vélstjóri, Ja- koh A. Jónsson bílstjóri, Einar Guðmundsson heild- sali, Friðrik Magnússon heildsali, Dagbjartur Sig- urðsson kaupmaður, Guð- mundur Þorkelsson fast- eignasali og ýmsir fleiri, sem talið er að staðið hafi nærri nazistum. Félagsskapur þessi á fyrst um sinn, að ætlan forgöngumannanna að vera deild úr Sjálfstæðis- flokknum, þar eð þeir munu ekki treysta sér að svo komnu að kljúfa sig alveg út úr og taka á móti andstöðu frá forkólfum Sjálfstæðisflokksins. Br-SUafltshafi. LONDON í gærkveldi. 'FO. Þýzka útvarpið í dag viður- kemiir, að Jiýzka skipið „Adolf Wurman“ sé sokkið í Suður- Atlantshafi. Segir í tilkynningum útvarps- ins, að skipshöfnin hafi opnað botnhlerana og sökkt skipinu, til þess að koma í veg fyrir að brezkt herskip flytti það til hafnar.. D|úp lægð veldur fár~ viðri í Vestanannaeý|um —----■».. Nú gengnr það yflr snðvestnr Mnta Noregs og Norðursjðinn. JÚP LÆGÐ gekk yfir Suðvesíurland síðari hluta laugardags og aðfara- nótt sunnudags. Var veður allmikið á þessum slóðum, 10—12 vindstig og var veðr- ið mest í Vestmannaeyjum. Þar var ekki stætt á götum úti og urðu almennar bilan- ir á rafmagnskerfi hæjarins. Berklaskoðun á börnum átti að fara fram í Vestmanna- eyjum á laugardag, en vegna veðurofsans var hætt við það, því að ekki var fært um göturnar. Með veðrinu kom mikil snjókoma víða um land, en vegna stormsins hlóð snjón- um víðastlivar í skafla. Snjóþyngsli eru þó hvergi mæld yfir 15 cm. nema á Loft- sölum í Mýrdal, Grimsstöðum á Fjöllum og í Grímsey. Það er óvenjulegt, að í slíkum veðrum sé snjólétt á Hornströndum, en þannig er það nú. Úrkoman hér á Suðvesturlandi var blaut og gerði það að verkum, að 10 símastaurar brotnuðu skammt frá Skrauthólum á Kjalarnesi. Frh. á 4- síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.