Alþýðublaðið - 05.12.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 05.12.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON ÚTGIFANDI: ALÞÝÐUFLOKKUB3NN KX. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 5. DES. 1939. 284. TÖLUBLAÐ Russar neita að seoja við Finna. Þeir nelta eiinii að mæta á fundi Þjððabandalagsins! Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. ‘*'3 MOLOTOV tilkynnti sænska sendiherranum í Moskva í gær, að sovétsíjórnin myndi ekki taka upp neinar samningaumleitanir við finnsku stjórnina, sem nú væri flúin frá Helsingfors, enda hefði hún þgar viðurkennt stjórn kommúnista í Terijoki og gert við hana vináttusamning og aðstoðarsáttmála. j í sambandi við þessa frétt er því lýst yfir í Helsing-4 fors, að það sé tilhæfulaust að finnska stjórin sé farin fra Helsingfors. Hún hafi þar aðsetur sitt eftir sem áður og’ haldi fundi sína í sprengjuheldum kjallara í borginni. Moloíov tilkynnti einnig Avenol, aðalritara Þjóðabandalags- ins, í gær, að Rússland myndi ekki taka neinn þátt í ráðsfundi bandaiagsins, sem byrjar á Jaugardaginn og á að taka fyrir kæru Finna út af árás Rússa. Voru í sambandi við fréttina um þetta viðhöfð þau orð í útvarpinu í Moskva, að ástæðulaust væri fyrir Þjóðabandalagið að taka kæru Finna til meðferðar, þar eð Rúss- ar ættu ekki í neinni styrjöld við Finna og hefðu ekki ráðizt á þá!! Var talað um það sem virðingarleysi við Rússland að kalla saman þennan ráðsfund. ♦ Utanríkisráðherra Argentínu hefir í sambandi við ráðs- fund Þjóðabandalagsins símað' aðalritara þess, að Argentína telji það réttast, að Sovét-Rússland verði rekið úr Þjóða- bandalaginu fyrir árás þess á Finnland, sem einnig sé með- limur bandalagsins. Annað Suður-Amerikuríki, Uruguay, hefir hótað því að segja sig úr Þjóðabandalaginu, ef ekki verði gripið til röggsamlegra ráðstafana gágnvart Rússum. Fiaoar byrja að víg- girða Álandseyjar. Finnska stjórnin hefir til- kynnt Þjóðabandalaginu, að hún sé byrjuð að víggirða Á- landseyjar og hafi sent þangað her til þ'ess að hindra, að Rúss- ar setji þar her á land. Eins og kunnugt er vildu Finnar byrja á því að víggirða Álandseyjar, þessar þýðingar- miklu eyjar, sem verja sigl- ingaleiðina til hafnarbæjanna í Norður-Svíþjóð og á vestur- strönd Finnlands, strax í vor og höfðu til þess eindregið sam- þykki sænsku stjórriarinnar. En þeir urðu að hætta við það þá fyrir mótmæli Rússa. Engar loftárásir voru gerðar á Helsingfors í gær, enda. er fannkoma nú mikil á Finnlandi og erfitt um flug. Um fimm MráUBMiIl Ný neðanmálssaga. St ÐASTLIÐINN lauigardag' var lo'kið í blaðinu neðanmáls- sögunni Upprieisnin á Bounty, og kemur hún bráðum út sérprentuð. I dag hefst í blaðinu ný me'ðanmálssagn. Morðin í vlax- myndasafninu. Er paö leynilög- regiusaga, sem gerist í neðan- jarðarhvelfingum Parísarborgar. Sagan er afar spennandi frá upp- hafi til enda. Finnskar hjúkrunarkonur og finnskur hermaður úti fyrir sjúkra- lest rauða krossins í Viborg. sjöttu hlutar borgarbúa hafa nú verið fluttir þaðan til þess að forða þeim undan loftárásum. Aðeins 50 þúsundir manna eru sagðar eftir í borginni, Á vígstöðvunum við landa- mærin hefir öllum árásum Rússa enn verið hrundið og Rússar víða orðið fyrir miklu manntjóni, einkum á Kyrjála- nesi, af jarðsprengjum Finna. í Kyrjálum, norðan við Ladoga- vatn, hafa Finnar enn tekið 1500 Rússa til fanga, og vekur það mikla eftirtekt úti um heim, hve marga fanga þeir hafa tekið strax fyrstu daga ó- friðarins. Það þykir ekki bera vott um mikinn baráttuhug eða ága 1 rauða hernum. Á vígstöðvunum norður við íshaf er barizt harðast, og stendur viðureignin enn um Petsamo. Finnar halda bænum þrátt fyrir allar árásir og mik- inn liðsmun. En fjöldi fólks, sem búið hefir þar í nágrenn- inu, strymir yfir landamærin til Norður-Noregs og smábær- inn Samajeva, skammt frá Petsamo, þar sem hinar þkktu nikkelnámur Finna eru, er inu, streymir yfir landamærin Fullyrt er að Finnar muni eyði- leggja námurnar, ef þeir geti ekki haldið þeim fyrir Rússum. Mssat að aalirbia eiturgasstríð? Finnar óttast mjög, að Rúss- ar séu að búa sig undir það að Frh. á 4. síðu. Ný hermdarverk í aðsigi á sjónum? —-- --- Norsk frétf iim oýjusfu fyriiv æfianlr Þjéðverja á sjénum. LONDON 1 gærkveldi. FÚ. "O ERLÍNARFRÉTTARIT- ARI norska blaðsins „Dagbladet“ segir, að þýzka stjórnin hafi til íhugunar að lýsa yfir, að á tilteknum svæðum við Bretland verði framvegis öllum skipum sökkt fyrirvaralaust, hverr- ar þjóðar sem þau eru. Samkvæmt skýrslum brezka flotamálaráðuneytisins verður brezka flotanum vel ágengt að hrekja þýzk herskip og kaup- skip af höfunum. Stöðugt fleiri kafbátum er sökkt. Búið er að setja á land í Bretlandi 144 kaf- , bátsmenn, sem handteknir voru. og flytja til brezkra hafna eða sökkva 33 þýzkum skipum. Samanlögð smálestatala þeirra var 173 390. Skipatjón Breta s.l. viku var 6 skip, smálestatala samtals 23 231, en einnig fórust af völd- um stríðsins 6 skip hlutlausra þjóða, samanlögð smálestatala 30 939. Skipatjón Breta í nóv- ember var Vs hluti þess, sem það var í október. Fyrstu þrjá mánuði styrjaldarinnar nemur skipatjón Breta 4% miðað við smálestatölu skipastólsins, sem er um 31 milljón. 29 skipverjar af brezka skip- inu „Eskdene“, 7000 smál., voru settir á land í dag 1 skozkri höfn. Skip þeirra fórst á tund- urdufli. Franska skipið ,.Florida“, 7000 smál., rakst á tundurdufl í gær. Tveir menn biðu bana. Hinum tókst að renna skipinu upp í fjöru nálægt franskri hafnarborg. Sænskt skip hefir einnig far- izt á tundurdufli. Var það flutningaskip, sem ,,Rudolf“ nefndist, og var á leið til Sví- þjóðar með kolafarm frá Eng- landi. Á skipinu voru 33 menn og fóru þeir í björgunarbátana. Brezkur togari bjargaði einum bátnum og voru í honum 8 menn, en önnur skip leita hinna bátanna. JUmeniir fnndnr i Eyjnm skorar á pingmenn koi ánista að segia af sér. Stofnun nýs verkalýðsfélags í aðsigi? Alþýðuflokkurinn ♦ boðaði til almenns fundar í Nýja Bíó í Vestmannaeyjum í gærkveldi. .Á .dagskrá .voru verkalýðsmál. . Finnlandsmálin og kommúnistar. í fundarboðinu voru til- greindir sem ræðumenn Páll Þorbjarnarson, séra Sigurjón Árnason, Jón Sigurðsson erind- reki og Jónas Lúðvígsson. Ennfremur tóku til máls- Kristján Linnet bæjarfógeti, Stefán Árnason lögregluþjónn, Guðlaugur Gíslason fram- kvæmdastjóri, Loftur Guð- mundsson kennari, Guðlaugur Gíslason verzlunarmaður, Guð- mundur Helgason form. Sjó- mannafélagsins og nokkrir kommúnistar. Fundarsókn var með af- brigðum mikil. Var húsið troð- fullt. Er álitið að um 500 manns hafi komizt í húsið en annað eins varð frá að hverfa. Var mannsöfnuður í dyrunum og úti fyrir dyrunum. Fundurinn fór hið bezta fram, nema hvað hinar örfáu kom- múnistahræður, sem slæddust að, reyndu að grípa fram í fyrir ræðumönnum, en voru hrópað- ir niður. Eftirfarandi tillaga, borin fram af Jóni Sigurðssyni fyrir hönd Alþýðuflokksins var sam- þykkt með upp undir 500 at- kvæðum gegn 14. „Fundur haldinn í Nýja Bíó í Vestmannaeyjum 4. des. 1939 að tilhlutun Alþýðuflokksins lýsir yfir fyllstu samúð með finnsku þjóðinni, sem nú á í harðri baráttu fyrir frelsi, friði og tilveru. Fundurinn dáist að þeirri þrautseigju og hetjudáð, er finnska þjóðin hefir sýnt í þessari baráttu sinni ög for- dæmir og fyrirlítur hina villi- mannalegu ofbeldisárás Sovét- Rússlands á þessa friðsömu og Enskt Ameríkufar skotið í kaf snð- or af Yestmanna- eyjnm ! gær? ALITIÐ er, að enskt Amer- íkufar hafi verið skotið niður um '20—30 mílur suður af Vestmannaeyjum í gær. Bæjarfógetinn 1 Vestmanna- eyjum fékk fregnir af þessu og spurðist fyrir um það, hvort senda ætti báta til hjálpar, en fékk það svar, að skipshöfnin væri komin í bátana, og arinað enskt skip væri að nálgast. frelsisunnandi menningarþjóð — og þó sérstaklga lýsir fund- urinn fyrirlitningu sinni á þeim íslenzkum mönnum, sem svo lágt hafa lagst að mæla slíkum hermdarverkum bót. Enn þar sem það hefir sýnt sig, að kommúnistaflokkurinn hefir æt- íð reynt með áróðri og ósönnum fréttaburði að æsa útlend stór- veldi gegn íslandi og þiggur og hefir þegið stórfé til þeirrar starfsemi flokksins, skorar fund- urinn eindregið á ríkisstjórnina að hafa strangar gætur á allri starfsemi flokksins og gera þeg- ar í stað röggsamlegar ráðstaf- anir er komi í veg fyrir frekari þjóðskaðlegar aðgerðir af hendi þessara manna. * Af framansögðum ástæðum og fyrir þær sakir, að þessi flokkur hefir bæði fyrr og nú reynt á allan hátt að sundra hagsmunasamtökum íslenzkrar alþýðu. skorar fundurinn einnig á allt vinnandi fólk hér í Vest- mannaeyjum og annars staðar Frh. á 4. siðu. Ein af hinum mörgu fórnum þýzka kafbátahernaðarins: Franska hafskipið „Bretagne“ að sökkva, eftir að tundurskeyti hafði Verið skotið á það.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.