Alþýðublaðið - 07.12.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 07.12.1939, Page 1
Alþýðnflekksfélagið fræðslu og skemmti kvöld á laugardags kvöld. RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 7. DES. 1939 286. TÖLUBLAÐ I Rússar reyna að brjótast pvert yfir Finnland par sem pað er mjósl ---—» Þeir hafa hafið ný|a sókn með stefnu á landamæri Svipjóðar og Finnlands fyrlr botni Botneska flóans. Eafitau Breta að kyrkja ntanríkisverzlaa Þjððverja. -- ------ Oreint í Maði Görlngs, sem vekur nsikla athygli um allan heim. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. íyf EIRA en hálf milljón rússneskra hermanna, sumir segja 700 þúsundir, sækja nú fram á fjórum stöðum innan við landamæri Finnlands gegn þeim 300 þúsundum, sem Finnar hafa á að skipa. Hafa Rússar hafið nýja sókn norðaríega við austur- landamærin, með því markmiði að því er virðist, að brjót- ast vestur að landamærum Svíþjóðar og Finnlands fyrir botni Botneska flóans, þar sem landið er mjóst og minnst af vötnum til tafar, kljúfa landið þannig í tvennt og gera Norður-Finnland viðskila við Suður-Finnland. Hafa Rússar tekið bæinn Kuolajarvi, sem liggur um 45 km. fyrir. innan landamæri Finnlands á þessari Ieið. Talið er, að hinir skyndilegu herflutningar Svía norð- ur til finnsku landamæranna standi í sambandi við þessa nýju sókn Rússa og vilji Svíar vera við því búnir, ef rúss- neskur her skyldi komast vestur að landamærum Svíþjóð- ar þar. Arás á Mannerheim- linuna á Kyrjálanesi nú etnnlg haiin? Rússar tilkynna í morgun, að þeir hafi nú einnig hafið árás- ina á Mannerheimlínuna, víg- girðingar Finna, á Kyrjálanesi, og brotizt í gegnum hana. En sú frétt hefir enga staðfestingu fengið úr öðrum áttum. Þvert á móti er því haldið fram af fréttariturum erl'endra þjóða í Finnlandi, að Finnar verjist frækilega á öllum vígstöðvum og valdi Rússum miklu tjóni bæði á mönnum og hergögnum. Talið er, að um 20 þúsundir Rússa hafi þegar fallið eða særst síðan stríðið byrjaði, og Finnar segjast hafa hertekið eða eyðilagt um 80 rússneska skriðdreka. Gengur Rússum illa að koma skriðdrekunum við sökum fannfergi, og sitja þeir fastir í snjónum. Um loftárásir er ekki mikið af hálfu Rússa og eru veður- skilyrði talin vera þeim til fyr- irstöðu. Finnar fá flngvélar frá ítalin og Englanði. Samúðin með Finnum fer stöðugt vaxandi úti um allan heim, og eru margar þjóðir þeg- ar farnar að sýna hana í verki með hergagnasendingum til Finnlands. Eru það fyrst og fremst Bretar, ítalir og Banda- ríkjamenn, sem forgöngu hafa um slíkan stuðning, en sjálf- boðaliðar í finnska herinn láta nú óðum skrá sig í Svíþjóð, Noregi og víðar og er talið, að um 3000 sænskir sjálfboðalið- ar séu þegar komnir til Finn- lands. Vissa er fengin fyrir því, að ítalir hafa þegar sent 50—60 flugvélar til Finnlands, en brezkar flugvélar eru einnig komnar þangað. Kunnugt er enn fremur að brezk fyrirtæki eru að undirbúa töluverðar vopnasendingar þangað og er það talið Finnum mjög mikils virði, þar sem vafasamt þykir, # hve lengi þýzka stjórnin leyfir, að ítölsk hergögn séu flutt þangað yfir Þýzkaland. Bandaríkjastjórnin er sögð beita sér fyrir því, að Finnum verði veitt fjárhagsleg aðstoð frá Ameríku og send matvæli 1 stórum stíl. Fjársöfnun til rauða krossins í Finnlandi fer nú fram í Sví- þjóð, Noregi og Danmörku og hefir þegar verið safnað um IV2 milljón króna. Finnska stjérnin fæðlr’ jrllr helming hjééarinnar Tuttugu og tveggja ára afmæti sjálfstæöisins var haldið hátíðlegt 1 Finnlandi í gær þrátt fyrir stríð ið og hörmungarnar. Finnski fán- inn var allsstaðar við hún íborg- unum, þar sem fólk er ekki flúið hurt úr þeini. Fmnska stjiórnin og Kallio forseti, tóku á móti sendiherrum og ræðismönnum er- lendra ríkjá í Helsin;gfors á ein- hverjum stað í borginni, sem halídið var leyndum af ótta við loftárás. Öll umboðsstjóm hefir nú ver- ið flutt burt úr höfuöborginni, en sjálf stjórnin ætlar að vera þar um kyrrt, svo lengi, sem unnt er. Hún heldur fund á hverju kvölidi í sprengjuheldum kjállara og allir ráðherrarnir borða á einum og sama stað. Yfir 1 milljön manna hefir ver- ið flutt b'urt úr borgunum vegna hættunnar á loftárásUm og verð- ur nú daglega að sjá um 2 millj- jónum af þeim 31/2 milljón, sem í landinu búa, fyrir mat. Stjómin telur engar líkur til þess lengur, að nokkru samkomu- lagi verði náð við Rússa. Hún ætlar því áð birta síðustu sam- komulagstillögur sínai' um leið og íkæra hennar verður lögð fyr- ir ráðsfund Þjóðabandalagsins í G^nf á laugardaginn. Tveir hermenn úr rauða hernum á stríðsæsingafundi gegn Finnum í Leningrad FlársHfMiin er bafin til hjálpar Finnlandí :---»----- Norræia félaglð ®g Hauði kross^ inn gangasf fyrlr fJársiifnnninni. A LLAR Norðurlandaþjóð- irnar hafa hafizt handa um fjársöfnun handa Finn- um vegna þeirra hörmunga, sem þeir -eiga við að stríða um þessar mundir, og verður hafin fjársöfnun hér á landi næstkomandi sunnudag. Er það Norræna félagið og Rauði kross íslands, sem gang- ast fyrir fjársöfnuninni á Finn- landsdaginn, og hefir verið sam- in eftirfarandi dagskrá: Klukkan 1,45 flytur biskup- inn, Sigurgeir Sigurðsson, á- varp af svölum alþingis, en lúðrasveit leikur þjóðsöngva Finnlands og íslands á Austur- velli. En á meðan selja Mennta- skólanemendur merki dagsins. Klukkan 3 flytur form. Nor- ræna félagsins, Stefán Jóh. Stefánsson, ávarp í Gamla Bíó, Karlakór Reykjavíkur syngur og Björn Ólafsson leikur á fiðlu, en Árni Kristjánsson leik- ur undir. Klukkan 4 syngja Pétur Jónsson og Árni Jónsson frá Múla tvísöng á Hótel Borg, en Jakob Hafstein og Ágúst Bjarnason syngja Gluntarne á Hótel ísland. Á báðum stöðun- um verða seld merki. Þá verður skemmtun í Nýja Bíó. Formaður Rauða kross ís- lands, Gunnlaugur Einarsson, flytur ávarp, Guðmundur G. Hagalín rithöfundur les upp af- burðasnjallt kvæði, sem hann hefir ort í tilefni af atburðun- um í Finnlandi, Karlakórinn Fóstbræður syngur og Björn Ólafsson leikur á fiðlu. Allir Reykvíkingar, sem auraráð hafa, ættu að bregðast vel við og styðja þessa starf- semi. QAMKVÆMT bráðabirgða ^ yfirliti Hagstofunnar hefir verzlunarjöfnuðurinn orðið hagstæður um 4,8 milljónir í nóvembermánuði. Útflutningurinn nam 10,5 milljónum króna, en inn- flutningurinn 5,7 milljónum. Þessa 11 mánuði ársins, sem liðnir eru, hefir útflutningur- inn numið 63,1 milljón króna, en innflutningurinn 55,9 millj- ónum. Var verzlunarjöfnuðurinn því orðinn hagstæður um 7,2 milljónir króna 1. desember. Til samanburðar má geta þess, að 1. des. í fyrra var verzl- unarjöfnuðurinn hagstæður um 6,1 milljón, Þá hafði útflutning- urinn numið 51,9.millj., en inn- flutningurinn 45,8 millj. Enn Vaxandl fyrirlitning á konisAnlstiin um öll Norðnriðnd. Danskir og sænskir ging- menn talnsta ekki á pá. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. ÍFURLEG og vaxandi and- úð er á kommúnistum um öil Norðurlönd. Fregnin um yf- Frh. á 4. síðu. eru ýmsar útflutningsafurðir til í landinu, en allt er í óvissu um það hvað fæst fyrir þær. Dýrtiðiu vex. Dýrtíðin jókst mjög í október mánuði Sykur hefir hækkað' um 74»/o og brauð um 33»/o. Aðalvísitiala matvaranna hækkáði í október um 12 0/0. Var hún 1,96 1. okt. en 2,19 1. nov. Vísitalan fyrir eldsneyti hækk- aði í október um 13°/o. Þá hefir kolaverð nú hækkað úr kr. 77,00 smálesíin upp í kr. 92,00 smálest. Leikfélagið sýnir Sherlook Holmes í kvöld kl. 8. tafnæti ntflnttra vara nam 1. des. 63 millj. kr. -----»----- Verzlumarjofnuðwrfstai bagstæð^ ur mm iuliljéiiir lcréiia. LONDON í morgun. FÚ. ^lREIN, sm birzt hefir í blaði Görings undir fyrirsögninni „Fjögurra ára áætlunin“ hefir vakið hina mestu furðu í Þýzkalandi. í grein þessari er játað að sigl- ingaeftirlit Breta sé að „kyrkja verzlun Þýzka- lands“, eins og blaðið orðar það. Greinin er skrifuð af Emil Helfferich, einhverjum kunn asta viðskiptasérfræðingi Þýzkalands. í grein sinni segir hann: „Vér verðum að horfast í augu við staðreyndirnar. Eins og 1914—1918 hefir veldi Eng- lands á sjónum stöðvað utanrík- isverzlun Þýzkalands. Skip Þýzkalands eru í hundruðum hafna úti um allan heim og sum hafa verið gerð upptæk. Vörur liggja í stórum stöflum í vöru- skemmum. Enda þótt allir þeir, sem að utanríkisverzluninni standa, hafi gert allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að framfylgja því, sem Hitler sagði: „Vér verðum að flytja út vörur eða líða undir lok“, horf- um vér nú upp á það, að algert hrun vofir yfir hafnarborgum eins og Bremen, Hamhorg og Liibeck.“ Helfferich segir einnig, aS fjárhagsleg aðstaða kaupsýslu- manna sé mjög alvarleg, og leggur til: 1. Að ríkisstjórnin leggi fram nauðsynlegt fé til stuðnings þýzkri útflutningsverzlun og’ leyfi, að mönnum sé sagt upp vinnu. 2. Að greitt verði fyrir því, að kaupsýslumenn fái fjárhags- lega aðstoð vegna leigu á hús- næði undir vörur, sem ekki er hægt að flytja út. Grein þessi virðist staðfesta það, sem sagt hefir verið, að ágreiningur sé milli Görings og leiðtoga þýzka ríkisbankans, sem ekki vill styðja utanríkis- verzlunina eins og sakir standa. Segir Héðinn sig í dag nr tmm- únisíafiokknum? fj EGAR Alþýðublaðið var að fara í pressuna barst því sú frétt, að Héðinn Valdi- marsson og nokkrir helztu fylgifiskar hans myndu í dag segja sig úr kommúnista- flokknum. Þar með er sameiningin á enda. Olían var í hættu vegna afstöðunnar með Stal- in og Hitler. Svo fór um sjó- ferð þá.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.