Alþýðublaðið - 09.12.1939, Síða 3
LAUGARDAGUR 9. DES. 1939.
ALÞÝÐÖBLAÐIÐ
Möggormurinii fékk kaldar
kveðjur á alpingi i gærdag.
; <• ——
Vflrlýsing formanns Alþýðnflokks*
ins ¥ið fyrstu nmræðn i gser.
ÞAÐ KOM BERLEGA fram í framsöguræðu Jónasar
Jónssonar í efri deild Alþingis í gær fyrir hinum svo-
kallaða ,,höggormi“, eða frumvarpinu, sem þeir flytja, Jón-
as Jónsson, Þorsteinn Þorsteinsson og Bernhard Stefánsson,
„um nokkrar ráðstafanir gegn núverandi styrjaldarástandi/'
að þeir höggormsmenn telja litlar eða engar líkur til að
frumvarpið verði samþykkt í þeirri mynd, sem það liggur
fyrir.
Samt sem áður gáfu formenn Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins engar yfirlýsingar um afstöðu flokk-
anna sem heilda til þessa frumvarps, enda munu þingmenn
þessara flokka beggja vera mjög ósammála í afstöðunni til
þess.
<s--------------------------------------—;-------------------------«
RITSTJÓRI:
i F. R. VALDEMARSSON.
í fjarveru hana:
STEFÁN PÉTURSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
i (Inngaagur frá Hverfisgötu).
SÍMAR:
14900: Afgreiösla, auglýsingar.
;4901: Ritstjórn (innl. fréítir).
Í4902: Ritstjóri.
'4S03: V. S. Vilhjólras (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4906: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
I ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
*>------------------------.
Kanpolaldsmálio
MARGIR bíða með mikilli
óþreyju eftir því hvað
alþingi gerir í kaupgjaldsmál-
unum. Þingmenn Alþýðuflokks-
ins báru fram, þegar í byrjun
þings, tillögur um það, að kaup-
gjald láglaunamanna skyldi
hækka frá næstu áramótum í
samræmi við dýrtíðina. Til
grundvallar við þann útreikn-
ing vildu þeir leggja dýrtíðar-
vísitöluna tvo síðustu mánuði
ársins. Þessar tillögur eru mjög
sanngjarnar og hafa þær feng-
ið stuðning mikils þorra verka-
lýðsfélaganna um allt land.
Svo að segja á hverjum degi
berast alþingi áskoranir frá ein-
hverju verkalýðsfélagi um að
samþykkja þær. Má því óhætt
telja að ekkert mál, sem nú
liggur fyrir alþingi, njóti neitt
hkt því eins mikils fylgis meðal
þjóðarinnar og þessar tillögur
Alþýðuflokksins.
Það er vitað mál, að dýrtíð
hefir verið mikil í landinu síð-
an í stríðsbyrjun. Einstakar
vörutegundir hafa hækkað
mjög mikið í verði. Sem dæmi
má nefna, að brauð hefir hækk-
að um 33% í októbermánuði,
sykur hefir hækkað um 74%,
en aðalvísitala matvara hefir
hækkað um 12%. Vísitala elds-
neytis hækkaði um 13% í októ-
ber og þar á ofan eru kol nú
hækkuð úr 77 krónum í 92
krónur tonnið.
Þessar fáu tölur nægja til
þess að sýna, að dýrtíðin hefir
aukizt mikið. Hins vegar er enn
eigi vitað hvað heildarfram-
færslukostnaður hefir hækkað.
Innlendri vöru, þ. e. a. s.
kjöti og mjólk, er haldið niðri
með gengisbreytingarlögunum
og húsaleigunni sömuleiðis.
Þetta eru tiltölulega háir út-
gjaldaliðir og meðan þeir
hækka ekki neitt, hækkar með-
altals frarnfærslukostnaður ekki
nærri því eins mikið og útlenda
varan. Þó er enginn vafi á því,
að nú er miklu dýrara að lifa
en áður en ófriðurinn hófst.
Almennt hefir alþýða manna
tekið á sig byrðar gengisbreyt-
ingarinnar með skilningi og
möglunarlaust, en þegar styrj-
öldin hófst, kom vöruhækkun
af hennar völdum til sögunn-
ar. Þeirri hækkun var ekki
gert ráð fyrir þegar genginu
var breytt. Þar kemur fram ný
dýrtíð og langsamlega miklu
meiri en sú, sem gengisbreyt-
ingin gat valdið. Atvinna
margra var rýr í sumar. Síld-
veiðarnar misheppnuðust, bygg
ingarvinna var með minna
móti, atvinna við saltfiskverk-
Yflrlýsing formaQos II-
pýðnflokkslns
Stefán Jóh. Stefánsson for-
maður Alþýðuflokksins gaf
hinsvegar mjög ákveðna yfir-
lýsingu mn afstöðu Alþýðu-
flokksins til frumvarpsins. Hann
sagði meðal annars:
Frumvarpið er alveg einstakt
í sinni röð. Með því 'er farið
fram á breytingar á fjölda
mörgum lögum og yfirleitt
myndi löggjöf vor fá mikið
annan svip, ef þetta frum-
varp næði fram að ganga.
Þetta sjá menn á því að það
gerir tillögur um breytingar á
iöggjöf um framfærslumál og
sveitarstjórnarmál, um löggjöf
um atvinnu við siglingar, iðn-
löggjöfinni, . . rannsóknarstofu
háskólans, ferðaskrifstofu ríkis-
ins, ríkisútvarþinu. launalögun-
un lítil eins og undanfarin ár
og öll afkoma láglaunamanna
hin lélegasta eftir sumarið og
haustið. Allt þetta verður að
taka til athugunar, þegar þetta
mál fær afgreiðslu. Alþingi hef-
ir nú staðið nær því tvo mán-
uði og af því fjöldi fólks á af-
komu sína undir því, hvernig
því reiðir af, er von að margur
sé orðinn óþolinmóður og kvíð-
andi um sinn hag.
Nokkrar raddir hafa komið
fram um að alþingi bæri að lög-
festa svipaða dýrtíðaruppbót á
hin lægri laun stéttarfélagá óg
þau, er verkamenn sömdu um
við atvinnurekendur í Dan-
mörku. Ekki er neitt hægt að
segja um hvort þetta fengi
nokkurn byr og af ýmsum á-
stæðum væri æskilegast að
samningar gætu tekizt milli
verkamanna og atvinnurek-
enda um þessi mál. Þeim samn-
ingum gæti þó aldrei verið lokið
áður en alþingi hætti störfum
og kemur því til þess kasta að
ráða fram úr málinu þann tíma,
sem gengisskráningarlögin
gilda, eða sennilega til 1. apríl
næsta ár. Er því mikið undir
komið fyrir alla alþýðu manna,
að tekið verði af hálfu alþingis
á máli þessu með fullri sann-
girni og réttlæti í garð láglauna
fólksins. Má því telja fullvíst
að almenningur fylgi með at-
hygli þeim tillögum, er þing-
menn og þingflokkar bera fram
í kaupgjaldsmálunum.
um, löggjöf um menntaskólann
og háskólann og um margskon-
ar aðra löggjöf framkvæmda-
legs eðlis auk breytinga á vinnu-
samningum milli stéttarsam-
taka og mörgu fleiru. Alþýðu-
flokkurinn telur þetta mjög ó-
heppil'ega aðferð og óhafandi.
Þess vegna mun hann alls ekki
geta fylgt frumvarpinu. Hins
vegar eru í þessu frumvarpi ýms
atriði, sem flokkurihn er sam-
mála og sem hann mun styðja,
en á þessu stigi málsins mun ég
eklti fara nánar út í það. Það er
höfuðatriðið, þegar rætt er um
þetta frumvarp, að efni þess er
þannig úr garði g'ert, að Al-
þýðuflokkurinn telur ekki þing-
iegt að afgreiða það.“
Jónas Jónsson talaði á víð og
dreif um frumvarpið í fram-
söguræðu sinni. Hann sagði, að
það væri fram komið vegna
þess* óhæfa ástands, sem væri í
landinu, vaxandi sveitarfram-
færis, vaxandi iðjuleysis og
þeirrar keppni, sem væri í fólki
að því að komast úr dreifbýl-
inu í þéttbýlið, að fá störf í
• skrifstofum og forðast útivinn-
una, yfirleitt flótta fólksins og
þó sérstaklega yngri kynslóðar-
innar frá framleiðslustritinu og
að hinum léttari störfum í þétt-
býlinu. Hann lýsti áhrifum
alís þessa og taláði um' það,
hvaða áhrif þetta hlyti að hafa
fyrir okkar litlu þjóð, ef áfram
væri haldið á sömu braut. Það
er vitað mál, að menn hugsa nú
mikið um þessi mál og öllum er
það ljóst, að nauðsynlegt er að
breyta til, en aðferð sú, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir, t.
d. að fara að draga úr barna-
og alþýðufræðslunni er alveg
óhæf auk ýmislegs annars, sem
felst í frumvarpinu. Raunveru-
lega stefnir frumvarpið að því
að afnema eða gera einskis nýta
ýmsa þá umbótalöggjöf, sem
orðið hefir til á undanförnum
10 árum, og að því verki mun
Alþýðuflokkurinn ekki leggja
hönd.
Innræti höggormsins.
Vegna þess að marga mun
fýsa að kynnast því, hvernig
þetta frumvarp sé, skal hér
birtur útdráttur úr því:
„Ríkisstjórnin skal skipa
þriggja manna bjargráðanefnd
til eins árs í senn til að hafa á
hendi framkvæmdir til fram-
leiðslubóta og bjargráða undir
yfirstjórn ráðherra.
Nefndin gerir tillögur um og
hefir á hendi:
Ráðstöfun á fé því, sem veitt
er í fjárlögum til framleiðslu-
bóta og bjargráða í erfiðu ár-
ferði.
Og ráðstöfun atvinnulausra
verkfærra framfærsluþurfa, er
sveitarstjórn hefir ekki komið
í vinnu. Heimilt er að ráðstafa
slíkum mönnum til starfs hvar
sem er á landinu, á heimili, til
atvinnufyrirtækja og í vinnu-
flokka undir opinberri stjórn
eða með öðrum hætti. Nefndin
semur um starfskjör þeirra,
sem á þennan hátt er ráðstafað,
og hefir fullnaðarúrskurðarvald
um vinnuskyldu allra þeirra,
sem hún eða sveitarstjórn ráð-
stafar til vinnu.
Heimilt er ríkisstjórninni að
skipa svo fyrir, að á íslenzkum
skipum megi vera færri skip-
stjórnarmenn og vélamenn en
skylt er samkvæmt lögum um
atvinnu við siglingar á íslenzk-
um skipum.
Óheimilt er að setja skorður
við tölu iðnnema. í nokkurri
grein, nema með samþykki rík-
ísstjórnarinnar.
Ákvæði 12. og 13. gr. laga nr.
97 3. maí 1935, um rannsókar-
stofu í þágu atvinnuveganna við
Háskóla íslands, falla úr gildi.
þar til öðruvísi verður ákveð-
ið.
Hreinar tekjur ríkisstofnana,
anarra en síldarverksmiðja,
skulu mánaðarlega greiddar til
ríkisféhirðis, en þó skulu laun
fastra starfsmanna þeirra öll
vera greidd af ríkisféhirði,
Kennslumálaráðherra skipar
útvarpsstjóra. Skal honum falið
að annast daglega stjórn og
fjárreiður útvarpsins.
Ráðherra er heimilt að gera
fréttastofu útvarpsins að sér-
stakri deild, undir stjórn út-
varpsráðs. Ennfremur er ráð-
herra heimilt að semja við blöð
lýðræðisflokkanna um þátttöku
í starfrækslu fréttastofunnar,
eftir nánari fyrirmælum í reglu-
gerð, er ráðherra settur.
Óheimilt er forstjórum ríkis-
stofnana að ráða nokkurn til
starfs við þær til annars en
venjulegrar daglaunavinnu,
nema með samþykki ráðherra.
Svo skal þeim og óheimilt að
greiða nokkrum starfsmanni
aukaþóknun, hvort sem um er
að ræða hreina launaviðbót eða
greiðslu fyrir aukavinnu, né á
annan hátt breyta launakjör-
um án samþykkis ráðherra.
Fresta skal að prenta um-
ræðupart þingtíðindanna fyrir
árið 1940.
í skrifstofum ríkisins og í
ríkisfyrirtækjum skal daglegur
vinnutími vera a. m. k. frá kl.
9 árdegis til kl. 6 síðdegis, að
frádregnum IV2 klukkutíma. Þó
getur forstjóri látið vinna á öðr-
um tíma dags, þar sem vakta-
skipti eru höfð við vinnuna. Á
tímabilinu frá 15. júní til 15.
sept. skal virhutími á laugar-
dögum a. m. k. vera 4 stundir.
Meðan n,úveran|di ófriður í
Norðurálfu varir, skal kennslu-
málaráðherra heimilt: a) Að
stytta hinn árlega kennslutíma
í barnaskólum landsins og
draga þannig úr útgjöldum við
skólahaldið. b) Að sameina fá-
menn fræðsluhéruð um einn og
sama kennara.
Ríkisstjórninni er heimilt að
ákveða, hve margir nýir nem-
endur skuli á ári hverju fá inn-
töku í Háskóla íslands. Ákvörð-
un þessi skal miðuð við það,
að árlega útskrifist svo margir
sérfróðir menn í þeim fræði-
greinum, sem þar eru kenndar
að fullnægt sé þörfum þjóðar-
innar.
Bðkariregn:
Fegrnn og SDjrrting.
Eftir Alf Lorentz Ör-
beck. íslenzkað hefir Kristín
ólafsdóttir læknir. Oígef-
andi h. f. Leiftur. Reykja-
vík 1939.
Það er ekki um að villast, að
það vei'ður að vera eitthvað vit í
öllu, en jafnvel skynisamlegustu
ráðstafanir geta snúist í hreinustu
villu, ef ranglega er á haldið.
Nú er svo komið á þessu landi,
sem flestum öðmrn, að naumast
er til sú kona, er ekki beri á sig
andlitsfarða, varalit, liti á sér
neglur og grenni sig í bak og
fyrir, þvert og endilamgt, en hið
síðara auðvitað í. dulísm'áli, og má
enginn af frétta. Það liggur i
augum uppi, að slíkar og því lík-
ar athafnir þurfi að gera af skyn-
samlegu viti, því þær geta, ef
ranglega er með farið, orðið til
hins stakasta tjóns. Það má því
siegja, að það sé hið mesta nauð-
synjaverk að leiðbeina Tnönnum
um rétta handhöfn sliikra tiltækja,
svo að þau feomí að réttum not-
um, en verði efeki að tjóni. —
Þessi bók verður því að teljast
bráðnauðsynleg orð í tíma töluð.
Höf. talar um öll þessi mál af
hinni mestu skynsemi og segir,
eins og satt er, að auðvitað skifti
afarmíklu máli fyrir menn borg-
arálega, hvemig útgangurfim á
þéim sé, en hann bæði aðvarar
og ráðieggur, og það er einniitt
það, sem þarf. Þýðingin er á
góðri og lipurri íslenzku, og virö-
ist .því vera prýðdlega gerð. Bók-
inni fylgir gnægð mynda, og er
auðvitað alltaf stórbót að slífcu.
G.
Leiksýaingar skðta.
SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudags-
kviöld höfðu skátar frurn-
sýningu í Iðnö á æfintýraleikn-
um „Hlini kong&son“ eftir Öskar
Kjartansson. Sýning þessi tókst
ágætlega og vakti mikla gleði
og hrifningu áhorfenda.
Leikurinn hefir verið sýndur
hér nokkmm sinnum áður, af
öðmm leikendum og náði þá
vinsældum, og má vænta, að svo
verði einnig í þetta sinn.
Allir leikendurnir em skátar, og
með því að leiksýningar þessar
munu fyrst og fremst vera ætl-
aðar fyrir böm og unglmga,
verður að sjálfsögðu eigi lagður
dómur á meðferð ldkendanna á
einstökum hlutverkum, enda um
byrjendur á leifesviðinu að ræða,
en heildarsvdpurinn er góður,
leiiksviðsútbúnaðUT allur hinn á-
kjiósanlegasti, fögur leiktjöld,
skrautlegir búningar og má fuil-
yrða, að leikurinn vekur gleði
jafnt meðal eldri sem yngri og er
hin bezta b arnaskemmtun, sem
völ er á.
Skátar em öllum landsmönnum
að góðu kunnir. Gefst bæjarbú-
um hér einfcar gott tækifæri að
isýna þáð í vehki, að þeir kunni
að meta starf þeirra, hjálpfýsi
og dugnað, með þvi að fylla Iðnó
í hvert sfnn, sem skátarnir sýna
sig á leiksviðinu.
Næsta leiksýnáing verður á
sunnUdaginn kemur kl. 3^/g.
........,"T"..1 ' " '
Athygli
bama skal vakin á því, að
bamaguðsþjónUstan í dómkirkj-
unni á sunnudaginn, sem átti að
verða kl. 2, verður kl. 3.
Jólatréslaoiaöir.
Þeir, sem kynnu að hafa í huga að halda jólatrésfagnað í
Iðnó um n. k. jól, eru vinsamlegast beðnir að athuga, að
nú fer að verða hver síðastur að gera ráðstafanir þessu við-
víkjandi.
fslenzk úrvalsl|éð
Nýtt blndl
Steingrimnr Torsteinsson
Bókaverzlun tsafoldarprentsmiðjn.
Útsðlumenn
AlÞýðublaðslnst
Munið að ársskýrslu um útsölu blaðsins árið 1939 ber
að senda afgreiðslunni í Reykjavík í síðasta lagi með
fyrstu póstferð eftir áramótin.