Alþýðublaðið - 20.12.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 20.12.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1939 297. TÖLUBLAÐ Rfissnesk áiás ð Moreg eða Svíþjóð þ$ðir strið við England. Ðmmæli Duff Coop- ers f Amerikn. BERLÍN í morgun. FÚ. DUFF COOPER fyrr- verandi flotamála- ráðherra Breta er nú á fyrirlestraferð í Norður- Ameríku til þess að vinna fyrir málefni bandamanna. í ræðu, stem hann hélt nýlega, sagði hann, að Bretar gerðu allt, sem mögulegt væri til þess að hjálpa Finnum. En ef svo skyldi fara, að Finnar biðu ósigur og Rússar réð- ust á Skandinavíu, þá myndi England þegar í stað segja Sovét-Rúss- landi stríð á hendur. Innbrot i nótt hjá Johnson & Kaaber. ¥ NÓTT var framið innbrot hjá Johnson & Kaaber í Hafnarstræti. Höfðu verið sprengdar upp tvílæstar dyr portmegin og komizt þar inn í kjallarann. Því næst hafði verið farið upp í vörugeymslurnar og skrif- stofurnar. Mjög litlu hafði verið stolið, en öllu umturnað. Hafði ber- sýnilega verið leitað að pen- ingaskápum, en ekki fundist. Meðal þess, sem saknað var, voru tveir vindlingapakkar, einn whisky-peli, karlmanna- sokkar og rakvélablöð. Finnar sðkktn „Oktéberbylt~ inf|unni“, einu stærsta orustu skipi SovéMtússlands, í gær. ----» . Skotið í kai af strandvamavirkjum á Kyrjálanesi Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun. F REGN FRÁ HELSINGFORS í gærkveldi hermir, að strandvarnarvirki Finna á Kyrjálanesi hafi sökkt einu stærsta orustuskipi Rússa, „Oktjabrskaja Revoluzia“ <Októberbyltingin) í gær. Skipið var 23 000 smálestir að stærð og var byggt fyrir heimsstyrjöldina 1914 og hét þá „Gangut,“ en var skírt upp eftir bolsévíkabyltinguna 1917 og gefið það nafn, sem hún gengur undir á Rússlandi. Skipið hafði 12 fallbyssur af 12 þumlunga hlaupvídd og fór með 18 mílna hraða á vöku. Frá Rússlandi hefir engin stað- festing fengizt á þessari frétt. Rússar senda ógrynni liðs á ný til Finnlands. --.■■■■-.----- Vötnin að verða held fyrir skriðdreka. KHÖFN í gærkveldi. FÚ. Fréttaritari Reuters á austur- vígstöðvunum í Finnlandi seg- ir í skeyti í dag, að Rússar flytji stórkostlega aukinn herafla á allar vígstöðvar. Eru nú vötn öll að verða held, svo hægt er að fara með þung hernaðartæki yfir þau. Liðsforingjum þeim, sem undanfarið hafa stjórnað rúss- neska hernum, hefir unnvörp- um verið vikið frá og aðrir sett- ir í staðinn, og fylgir það fregn- inni, að hinir nýju foringjar hafi lofað Stalin að styrjöldinni í Finnlandi skuli vera lokið í febrúarmánuði. Sami fréttaritari telur einn- ig, að rússneska herstjórnin hafi ákveðið að senda 200 þús- Tveiair dönskua skipua enn sökkt í Norðursjðnna Menn éffasf, aé 24 menn af 35, sem á skipunum voru, hafi farizf. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. ANSKI verzlunarflot- inn hefir enn á ný orðið fyrir tveimur mjög alvarleg- um áföllum við það, að tvö dönsk kaupför hafa farizt síðustu dagana, annaðhvort á tundurduflum eða af völd- um kafbáta, við austurströnd Englands. Annað skipið var eimskip- ið „Bogö“, eign eimskipafé- lagsins Baltic, en hitt eim- skipið „Jytte“, eign Ove Skous útgerðarmanns. Brezkir togarar eru sagðir hafa bjargað 11 manns af skips- höfnunum, sem voru samtals 35 manns, 3 af „Bogö“ og 8 af „Jytte“, en menn óttast að 24 hafi farizt. Þessir 11 menn, sem þegar er vitað. að hafi verið bjargað, voru settir á 'land í enskri höfn. Fréttirnar um þetta voru þó enn mjög ógreinilega í gær- kveldi. „Bogö“ var á leið frá Skot- landi til Svíþjóðar með kola- farm, sem átti að fara til danskr ar hafnar. ,,Jytte“ var á leiðinni frá Skotlandi með kolafarm, sem átti að fara til Svíþjóðar. opnar 12 i til hl. VERZLANIRNAR hénna í hæn- um verÖa opnar til kl. 12 í kvöld og ennfremur til mið- nættis á Þorláksmessukvöld- und manna úrvalslið á vígstöðv- arnar á Kyrjálanesi þar sem víggirðingar Finna 'eru traust- astar. Þetta og margt fleira bendir til þess að Rússar muni nú ætla að láta til skara skríða. Þessi fréttaritari Reuters áætlar, að manntjón Rússa í styrjöldinni muni vera orðið um 4$ þúsund manns. Norskur fréttaritari á Petsa- movígstöðvunum skýrir frá því, að einnig þar bæti Rússar stór- lega við lið sitt og haldi uppi sókn, en með stórkostlegu tapi. í nótt hefir þó lítið verið bar- izt á nyrztu vígstöðvunum, enda er þar nú 30 stiga frost, en um þetta leyti árs getur orð- ið miklu kaldara þar norður frá eða allt að 40 til 50 stig. Liðsafla eru Finnar nú að senda til norðurvígstöðvanna, þar sem liðsmunur er svo mik- ill, að Rússar eru tíu á móti einum. í Berlínarfregn er það haft eftir fréttum frá Stokkhólmi, að aðstaða finnska hersins í Norður-Finnlandi sé að verða mjög alvarleg. Rússneskar her- sveitir sækja þar fram með þunga skriðdreka, og eru þær sagðar komnar hálfa leið vest- ur að sænsku landamærunum. Stefna Rússar til borgarinnar Kemijárvi. Þá hafa Rússar farið yfir varnarlínu Finna við landa- mæri Noregs, en Finnar hörfa undan með skipulegum hætti. Rússar hafa nú náð á vald sitt finnsku landsvæði, sem nær 175 km. suður með landamær um Noregs. Dr. phil Sigfús Blöndal, bókavörður í Kaupmaninahöfn lætur af starfi sínu við kónung- legu bókhlöðuna 1. jan n. k. vegna þess að liann er nýlega orðinn 65 ára. Hann byrjaði sem laðstoðarmaður í konlunglegu bók- hlöðunfni árið 1901, en hefir síðan 1914 verið yfarbókavörður. F. O. Ekki mannlegs eðiis heidur af gaðlegam upprunai! KHÖFN í gærkveldi. FÚ. STALIN verður 60 ára 21. des., og er mikill viðbún- aður í Rússlandi um að halda afmælið hátíðlegt á sem glæsi- legastan hátt. Flytur rússneska útvarpið daglega ræður um Stalin og skýrir frá' tilhögun væntanlegra hátíðahalda. Einn ræðumaður í rússneska útvarpinu komst svo að orði í gær um Stalin, að hann væri ekki mannlegs eðlis, heldur bæri miklu fremur að telja hann af guðlegum uppruna. Á afmælisdaginn verður rúss- neska útvarpið að miklu leyti helgað Stalin, og verða ræður fluttar um hann á 11 helztu tungumálum Sovétríkjanna. Stormsveipor veldur í Grímsey. A MÁNUDAGSMORGUN ■**■ fór óvenjulega snöggur stormsveipur yfir Sandvík í Grímsey. Sjónarvottur, Jakob Helgason, skýrir þannig frá: Um sjöleytið á mánudags- morgun hvessti skyndilega. Var vindhraðinn með þeim fádæm- um, að ekki varð við neitt ráð- ið. Á nýlegu timburhúsi féll inn hliðin og tók af þak allt. Við stafn þess stóð þó annað hærra hús og sakaði ekki. Tveir bátar voru í fjörunni og tókst annar á loft, og hvolfdi honum yfir hinn. Ramgerður hjallur úr gildum viðum slitnaði upp og kastaðist 20 metra. Þak tók af hlöðu og áburðargryfju og fleiri skemmd ir urðu á þessum stað. Kort af Kyrjálanesi. Mannerheimlínan, sem barizt er um, liggur þvert yfir nesið, eða eiðið, þar se mmest er um vötn, frá Koi- visto við Kyrjálabotn austur að Ladogavatni. Á kortinu sést Kronstadt. herskipalægi Rússa iiti fyrir Leningrad, innst í Kyrj- álabotni. Enn fr'emur Terijoki, járnbrautarstöðin innan víð finnsku landamærin, þar sem kommúnistastjórn Kuusinens er . sögð hafa aðsetur sitt. Colnmbns, priðja stærsta kanpfari Þýzkalands sðkkt Skipshöfnin sökkti pví sjálf, til þess að það félli ekki í hendur Bretum. Þ1 LONDON í morgun. FÚ. RIÐJA MESTA KAUPFARI Þýzkalands, „Columbus", 33 000 smálesta skipi, hefir verið sökkt. Áhöfn skips- ins sökkti skipinu og var henni bjargað af ameríska skip- inu „Tuskaloosa“, um 400 mílum undan ströndum Amer- íku. „Columhus“ hafði notið fylgdar amerískra skipa meðan það fór um ameríska landhelgi. Skipið var eign Norddeutscher Lloyd, ón sama félag á ,.Bre- men“. Leitaði skipið hælis í höfn í Mexíkó í byrjun stríðsins og var þar þangað til fyrir fáum dögum, og var sagt, að það hefði mikla olíu og vistabirgðir. Stephen Early, einkaritari Roosevelts forseta, hefir til- kynnt, að skipshöfnin hafi gef- ið þær upplýsingar, að hún hafi sökkt skipinu til þess að koma í veg fyrir, að það yrði tekið af brezku herskipi, enda þótt eng- ar íregnir hafi borizt um, að Samninoamennirair komn- ir heim frá Englandi. ,\ —---------- Þelr komu með iogara í nétt. Camninganefndin, ^ sem fór til Englands til þess að gera viðskiptasamn- ing við brezku stjórnina, kom með togara heim í nótt, að undanteknum Sveini Björnssyni. Nefndin fór héðan 7. okt. í nefndinni voru Haraldur Guð- mundsson alþingismaður, Jón Árnason framkvæmdastjóri, Magnús Sigurðsson bankastjóri, Björn Ólafsson stórkaupmaður, Richard Thors framkvæmda- stjóri og Sveinn Björnsson sendiherra. Með sama togara og samn- ingamennirnir kom Þórarinn Sigurjónsson, sonur Sigurjóns Á. Ólafssonar alþingismanns, eftir tveggja og hálfs árs dvöl á brezkum flutningaskipum. brezkt herskip hefði gert neina tilraun til þess. Yfirmenn á skrifstofum Nord- deutscher Lloyd í New York voru mjög undrandi yfir fregn- inni og kom hún yfir þá eins og reiðarslag og einn þeirra sagði: „Eitt áfallið kemur á fætur öðru.“ Þetta er tuttugasta ogþriðja þýzka farþega- og flutninga- skipið, sem Þjóðverjar sökkva sjálfir. Smálestatala allra þess- ara skipa var næstum því 140 þús. smálestir. Hjónabanid. Nýlega voru gefin saman í band af lögmanni ungfnl Lísa Jaoobsen frá Thorshavn og Lúð- vík Sigurjónsson kaupfélagsstjóri Finnsk blöð birfa með stórum fyrirsögnum fréttirnar af þeirri samúð, sem íslendingar hafi sýnt málsstað Finna og hvemig hjálparstarf- semin gangi á íslandi, og fara þau stórkostlegum viðurkenning- arorðum um þessa minnstu þjóð á Norðurliö'ndum, sem ekki só eftirbátur annlara í drengskap.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.