Tíminn - 24.03.1917, Side 3
T í MI N N
7
€nn um skipakaupin.
Langþýðingannesta málið sem
fyrir landsstjórninni liggur, eru
skipakaupin. Þingið heimtaði að
keypt yrði skip til strandferða og
það lagði mikla áherzlu á að keypt
yrði stórt millilandaskip. I3að er
auðséð á þingtíðindunum, að þing-
menn bjuggust eins vel við því,
að það yrði tap á þessum skipum,
þau mundu verða í mun lægra
verði eftir stríðið. En þeir litu svo
á að í það mætti ekki horfa, það
væri meira enn tilvinnandi, til þess
að geta haldið uppi nokkurnveg-
inn óslitnum siglingum milli ís-
lands og Ameríku og með strönd-
um fram.
Vafalaust eru miklir örðugleikar
á því að fá skip á þessum tímum.
En samt tekst ýmsum kaupsýslu-
mönnum þetta. Einir fjórir eða
fimm kaupmenn í Reykjavik hafa
keypt flutningaskip nú í vetur. Þeir
gera það af því að þeim er það
lífsnauðsyn til þess ad geta grœtt.
En þjóðinni er nauðsyn að eignast
skip til þess að geta lifað.
Eitthvað hefir bólað á þeim
hugsunarhætti að skilja mætti uud-
irbúning þingsins þannig, að land-
ið mætti styrkja einstaka menn til
að kaupa skip og leigja þau síð-
an landinu. En sú skoðun er bæði
röng, og þar að auki hættuleg. Ef
landið bindur fé sitt eða lánstraust
i skipum, þá verður þjóðin að
hafa vonina um gróðann — ekki
eingöngu óttan við skaðann.
Skip borga sig nú stundum á
5—6 mánuðum, meðan farmgjöld
eru eins há og nú á sér stað. í
leigu fyrir Bisp er landssjóður
búinn afi borga meira en verð
skipsins.
Þjóðfélagið er lika sá eini aðili
sem þolað gæti verðfall 2—3 skipa.
Því hélt þingið fram. En óbeini
gróðinn af því að landið eignist
skip sem allra, allra fyrst, verður
ekki tölum talinn.
Fréttir.
Ehlsvoði. Snemma i vikunni
brann heyhlaða með um 1000
hestum af heyi og fjárhús sem
tóku 4—500 fjár í Glerárskógum
i Dalasýslu. Brann þetta alt til
öskú, og tjónið því tilfinnanlegt
sem bóndinn, Sigurbjörn Maguús-
son, hefir orðið fyrir, þar eð hvor-
ugt var vátrygt, húsið né heyið.
Vildi til happs, að um fótaferðar-
tima þegar eldsins varð vart, var
hann eigi orðinn magnaðri en það,
að hægt var að bjarga fénu úr
húsunum. — Um upptök eldsins
vita menn ekki, en gizkað er á að
kviknað hafi í moði, sem borið
hafði verið í hlöðuna.
Sigurbjörn Magnússon er sagður
með efnuðuslu bændum i Dölum,
heyfyrningamaður og búhöldur
hinn inesti. Sýslungar hans kváðu
farnir að skifta á sig fénu til
fóðurs.
Expedit hét skip, sem kom
hingað með kolafarm í febrúar-
mánuði, fór norður um land og
tók þar síldarfarm til Englands.
Mun skipið hafa verið á vegum
Zöllners stórkaupmans. Símuð
höfðu verið tilmæli um það, að
skipið yrði leigt til flutninga hing-
að að nýju, en þeim svarað með
því, að skipið væri sokkið. Er
sennilegt að kafbátarnir hafi orðið
því að grandi.
Harry, mótorskip sem Natan &
Olsen eiga rakst á klett við Vest-
mannaeyjar og sökk þar á höfn-
inni. Var sltipið með kolafarm til
Eeyja, en hingað átti það af flytja
talsvert af mjöli, er fengið var
austur á Seyðisfirði fyrir milligöngu
landsstjórnarinnar. Geir fór austur
í Eyjar til þess að ná skipinu upp
og er nú kornin með það hingað.
Goðafoss-strandið. Nú kvað vera
búið að hjarga öllum vörunum úr
Goðafossi, sem Geir eigi náði þeg-
ar í stað, og voru þær seldar á
uppboði í Aðalvík fyrir skemstu.
55 krónur voru boðnar í steinolíu-
fölin, en 4—5 kr. í mjölsekkinn,
en vitanlega hafa kornvörur allar
verið mikið skemdar.
Skipið stendur enn á réttum kjöl,
og óbrotið annarstaðar en í botn-
inn. Er því enn eigi alveg vonlaust
um að takast mætti að ná því út
með vorinu.
Hverabrauð. Bæjarstjórn Reykja-
vikur veitti nýlega Guttormi Jóns-
syni smið hér í bænum, þúsund
kr. til þess að gera tilraunir um
brauðbakstur við gufuhitann hér
i laugunum. Golt ef augnabliks
kolaleysi yrði til þess að hiti þessi
yrði hér eftir að notum.
Veðráttan er altaf sama blessuð
blíðan, frostleysur með engri úr-
komu sem teljandi sé. Mun hafa
náð til haga um alt land mestan
hluta Þorra og Góu, og er það
óvanalegt.
Afli er góður í öllum veiðistöðv-
um, og ágætur á Vestfjörðum. Enda
eru vélbátar þaðan sem héðnan
hafa stundað veiðar að flytjast
vestur, en hér hafa þeir verið
fengsælastir línuveiðaskipa, svo að
sunnlenzkir sjómenn munu hugsa
sér að geta af þeim lært. — Síld-
arvart hefir orðið á Akureyri, og
hrognkelsaveiði að byrja þar og
hér. Þá koma botnvörpungarnir af
og til ineð ágætan afla.
Bannlagabrotið. Próf hafa verið
haldin i Þórs-málunum og skip-
verjar játað á sig sakir. En ekki
mun þeitn tnálum lokið, sökunum
vísað til dóms.
Fyrirlestur flutti Árni Pálsson að-
stoðarbókavörður um aðflutnings-
bannið í Bárubúð á mánudags-
kvöldið. Er Arni andbanningur.
Húsfyllir hafði verið, og kostaði
aðgangur þó 75 aura. Gott þegar
hjartansmálin gefa góðan arð.
Aukaútsvör Reykjavíkur nema
nú um 372 þús. kr. Fer hér á
eftir skrá yfir alla þá er hafa þús-
und króna útsvar eða meira:
Alliance fiiskiveiðafél. . . kr. 6000
Bragi — . . — 12500
Bræðingur h.f...........— 2500
P. O. Christensen lyfsali — 2000
G. Copland.............— 6000
Defensor fiskveiðafél. . . — 2500
H. P. Duus.............— 16000
Eggert Ólafsson fiskv.fél. — 11000
Eimskipafélag íslands . . — 5000
Magnús Einarsson .... — 2000
Elías Stefánsson........— 6500
Garðar Gíslason.........— 5500
Gísli Þorsteinsson skipstj. — 1300
A. Guðmundss. umboðsv. — 3000
Guðm. Guðnason skipstj. — 1500
Guðm. Jónsson skipstj. . — 1350
Halldór Kr. Þorsteinsson — 6500
Hallgrímur Benediktsson — 2000
Haukur fiskiveiðafél. . . — 9000
Hákon jarl íiskveiðafél. . — 2500
Hið ísl. steinolíufélag . . — 6000
Cliff. Hobbs............— 2600
Carl Höepfner...........— 4000
Höydal & Co. lifrarbr. . — 1000
Jón Jóhannesson skipstj. — 1650
L. E. Kaaber stórkpm. . — 2750
Ól. Johnson — . — 2750
Kol og salt.............— 8000
Kolb. Þorsteinss. skipstj. — 1800
Kristján Bergsson & Co. — 1000
Kveldúlfur h.f..........— 22000
L. G. Lúðvígsson verzl. — 1500
Nathan & Olsen..........— 5000
Njörður fiskveiðafél.... — 6500
Ó. G. Eyjólfsson stórkpm. — 1200
P. Þ. Matthíasson skipstj. — 1400
Pétur Ólafsson konsúll . — 1800
Emil Rokstad............— 2000
Sigurjón Ólafsson .... — 1100
Sláturfélag Suðurlands . — 3500
P. J. Thorsteinsson ... — 1800
Th. Thorsteinsson .... — 9000
Trolle & Rothe .'.......— 1000
Völundurtrésmíðaverksm. — 1500
Jes Zimsen..............— 6500
Geir Zoéga kaupm. ... — 2500
Helgi Zoéga — ... — 1500
Þorst. Þorsteinsson skpstj. — 1700
Ægir fiskveiðafélag ... — 4500
Tveun tíðindi eru nýkomin til
sögunnar, sem áhrif hafa á sigl-
ingarnar.
Hið fyrra er það, að Bretar liafa
nú sett hámarkstakmök um skips-
leigu, um 44 kr. fyrir smálestina,
en skip hafa undanfarið verið leigð
mun hærra verði. Þelta virðist í
sjálfu sér gott og blessað, en vís-
ast er að það dragi þann dilk á
eftir sér, að ilt verði að fá skip á
leigu, eigendunum þyki borga sig
betur að hafa sjálfir skipin í för-
um, meðan ekki er ákveðið áþekt
hámark á farmgjöldum.
Hin tiðindin eru þau, að vá-
tryggingargjöld á sjóleiðum milli
íslands og Ameríku hafa hækkað
úr l°/o upp í 5°/o, en komi skipin
inn fyrir hafnbannssvæðið er gjald-
ið 15°/o. Er fyrri hækkunin ill aft-
urför, sem ef til vill er fyrirboði
enn meiri siglingavandræða, en
Peir Reykvíkingar sem
gerast vilja fastir áskrifendur
Tímans segi til sín i sima
444.
þegar eru orðin. Aftur á móti er
siðara gjaldið framför, þótt hátt
sé, því að dönsk félög hafa ekki
fengist til þess að vátryggja þarna
síðan hafnbannið komst á.
Réttur. Fyrsta hefti 2. árs er ný-
komið út. í því eru þessar rit-
gerðir: Henry George (æfiágrip)
eftir Þórólf Sigurðsson. Skattamál
eftir Áskel Snorrason. Sendibréf til
Þorsteins Þorsteinssonar eftir Beni-
dikt Jónsson. Henry George og
jafnaðarstefnan eftir Jónas Jónsson.
Guðjón • Baldvinsson eftir Sigurð
Nordal. Uppi í óbygðum eftir Þor-
gils Gjallanda. Neistar eftir Þórólf
Sigurðsson. Auðsjafnaðarkenningin
eftir sama.
Guðm. Björnsson landlæknir
flutti fyrirlestur fyrir alþýðufræðslu
stúdentafélagsins siðastliðinn sunnu-
dag um frakkneska vísindamann-
inn fræga, Louis Pasteur. Verður
fyrirlesturinn prentaður.
Strandlerðaskip. Landssljórnin
kvað hafa veitt E. Nielsen fram-
kvæmdarstjóra umboð til þess að
kaupa Sterling fyrir alt að þús.-
kr. og er þá séð fyrir strandferðk
unum fyrsta sprettinn, verði úr
kaupunum. Sterling er góðkunnugt
skip hér heima, hefir það lengi
verið hér í förum. Viðgerð kvað
skipið nýlega hafa fengið fyrir 200
þús. krónur.
Siglingar. Bisp er kominn til
New-York, kom þangað fyrst 20.
þ. m., enda var mönnum orðið'ó-
rótt út af honum. Á útvegurinn
mikið undir því, að hann komist
hingað heilu og höldnu með stein-
olíuna, þvi að hana fer að skorta
tilfinnanlega hvað af hverju. —
Skeyti hefir borist um það að Glgg
hafi lagt af stað frá Englandi með
kolafarm til Hinna sameinuðu Is-
lenzku verzlana. — Are og Acliv
komin heilu og höldnu til Englands.
— Kora fer til Breiðafjarðar, Vest-
mannaeyja og Austfjarða og þaðan
beina leið til Noregs. — Þá kom
skip til ísafjarðar nýlega með salt
og tunnur til Karls Olgeirssonar,
kom skipið frá Englandi og fór
þangað um hæl aftur, til þess að
sækja söinu vöru. — Ingólfur fór
til Borgarness með norðanpóst i
gær, degi á eftir áætlun. — Escon-
dito annað leiguskip landsstjórn-
arinnar, inun liafa komið til New-
York frá Halifax í gær, og verður
þegar tekið að hlaða skipið mjöl-
vöru, sykri og smjörlíki er flytjast
eiga hingað heim. Gangi alt vel,
getur skipið komið hingað fyrir
miðjan næsta mánuð.
Nýdáin er á Vífilstöðum Guð-
björg Björnsdóttir frá Smáhömrum