Tíminn - 27.10.1917, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.10.1917, Blaðsíða 7
T I MI N N 135 Sambanðið viB jffmeríku. Á það var minst í grein í síð- asta blaði, hversu gæla þyrfti allr- ar varúðar um sambandið við Ameríku, hversu varlega þyrfti að fara til þess að þessari einu bjargar- leið yrði ekki lokað, og hversu forðast yrði alt það er orsakað gæti tafir skipanna sem þangað sækja héðan að heiman. Tilefnið til grein- ar þessarar var fregn um það að tekið hefði verið talsvert af áfengi úr Lagarfossi í Halifax, en í seinni tíð hefir einna mest borið á smygl- unarfreislingunum þar sem sú vöru- tegundin var annarsvegar. Tíminn vill enn víkja að þessu alvörumáli, ekki fyrir það, að blað eitt hér í bænum, Morgunblaðið, hefir gert umrædda grein að um- talsefni og gjört lítið úr þörf slíkra ritsmíða. Slík skrif hefir Tíminn, að engu. Og sá skilningur þessa blaðs að Timinn brigslaði skipstjór- um Gullfoss og Lagarfoss um smygl- un er svo gjörsamlega ástæðulaus og ógáfulegur að engum manni með heilbrigðri skynsemi kemur til hug- ar að fallast á hann. Ritsljóri þessa blaðs hefir ált við- ræður við skipstjórana á Gullfossi og Lagarfossi um þetta mál, og við það komist að þeirri niðurstöðu hversu afar gætilega verður að fara til þess að Ameríkusiglingunum hljólist eigi hnekkir af. Allar regiur sem lúta að útflutn- ingi eru afarstrangar, og hegningin hörð ef út af er brngðið, hvers smámunar sem á skip flyzt verð- ur að geta á farmskjölum, hver máiningarkrús sem keypt er handa skipinu sjálfu, og hvern málning- arkúst verður að telja fram, hvað þá annað. Skipstjórarnir létu þess getið að jþeir gengju svo hart að skipshöfn- unum um að gera sig ekki seka um undanbrögð frá þessum ströngu reglum í einu eða neinu, að frekar yrði það ekki gjört, þeir gætu ekki bannað þeim að kaupa sér föt, en þar mætti ekki ganga lengra en svo, að hver maður um sig gæti forsvarað það hvenær sem væri, að hann þyrfti fatanna með sjálf- ur. Og til þess að varpa enn skýr- ara Ijósi yfir þá nákvæmni sem þarna er þörf sagði annar skip- stjórinn frá því, að hann hefði keypt tvenna barnaskó til þess að gefa börnunum sínum þegar heim kæmi, og um þessa skó hefði hann gjört sérstaka athugasemd á farm- skírteinin. Skipstjórinn á Lagarfossi gaf þá skýrslu um áfengið sem tekið var úr skipinu í Halifax, að um það leyti sem brytinn keypti það var að ganga í gildi algjört sölu- og útflutningsbann á áfengi frá Banda- ríkjunum, brytinn hefði náð þessu á síðustu stundu og viljað birgja sig sem bezt af þessum föngum, þar eð vonlaust var um að áfengi fengist fyrst um sinn. Alls þessa áfengis hefði verið getið á matvæla- skrá skipsins og hún fest við farm- skjölin þegar yfirvöldin í New York samþyktu útflutning þess er komið var á skipsfjöl á Lagarfossi. En þeg- ar til Halifax kom, var áfengið tek- ið samkvæmt fyrirmælum frá hærri stöðurn að sagt var. Fyrirspurn skipstjóra um það, hvort brytinn fengi áfengið ekki endurgoldið var svarað játandi, og kvað liann það hafa bjargast á þvi, að þess hefði verið getið á matvælaskránni og hún látin fylgja öðrum farmskír- teinum. Um áfengistöku þessa úr Lagar- fossi hefir stjórUarráðinu borist eft- irfarandi skýrsla frá Árna Eggerts- syni: y>Eg fékk i morgun bréf frá um- boðsmönnum gðar I. H. Mathers & Sön, sem hljóðar þannig: S.s. »Lagarfoss«. Oss þgkir leitt að þurfa að skýra gður frá þvi að ftotamálastjórnar- völdin hafa lagt hald á 66 kassa af áfengi úr gufuskipi þessu og lagt það fgrir skipatökudóminn hér. Með því að farmur þessi stendur ekki á farmskránni, þá gjörum vér ráð fgrir að þetta hafi verið skipsforði og vér óskum að þér vinsamlegast vilduð láta oss vita hvernig þér óskið að vér liögum oss i þessu máli, og hvort vér eigum að leita til lögfræðings með mál þeita. Yðar (andirritað I. H. Mathers & SönJ. P. S. Síðan við rituðum það sem á undan fer, höfam vér hegrt að kassarnir hafi að eins verið 60, og segir skipstjórinn að þeir tilhegri brglanum, sem sjálfur birgir skipið að vistum, og að hann hefði áfengi þetta til að selja farþegum. Eg œtla að taka mál þetta upp seinna í dag og ákveða hvaða leið sé bezt að fara í sambandi við lög- hald þetta. Eg œtla að sima til Ottawa til þess að fá upplgsingar i þessu efnie. Samkvæmt þessari skýrslu virð- ist mál þelta eigi hafa verið út- kljáð, þegar Lagarfoss fór frá Hali- fax. Samkvæmt skýrslu skipstjóra virðist hinsvegar hafa verið var- lega farið, en alt um það hrekkur varfærnin eltki til. Vonandi er að þetta atvik verði á engan hátt til að hnekkja sambandinu við Ame- ríku, en óneitanlega bendir það til þess að gætilega þurfi að fara. Skipstjórarnir töldu báðir freist- ingarnar til áfengissmyglunar ekki einu hættuna, þeir ættu við ffeira að stríða en hana. Fyrst og fremst væri reynt að rjúfa bréfabannið. Síðan væri teflt á það í bréfunum að biðja rnenn að kaupa hitt og þetta og koma á einhvern af skips- höfninni. Kváðust skipstjórarnir ganga fast að skipverjum um að neita um slíkan bréfaflutning, og komið hefði það fyrir við rann- sókn er þeir hefðu gjört, að slík bréf hafi fundist og hafi þau þá verið rifin og þeim fleygt fyrir borð. Af þessu sem nú hefir verið sagt geta menn ráðið það, að skipstjór- ar Eiinskipafélagsskipanna eru sér þeirrar ábyrgðar meðvitandi sem á þeim hvílir, og er þeim ljós voð- inn sem sambandinu við Ameríku er húinn, ef brotið er í nokkru við settar reglur um flutningana. Og vonandi er því á sama veg farið um skipstjórana á hinum íslenzku millilandaskipunum. En hinsvegar varpar þetta ekki síður Ijósi yfir það hver þörf var slíkrar ádeilu og þeirrar sem birt var í síðasta blaði Timans. Menn- irnir eru til, sem tilhneigingar hafa til undanbragðanna, og þá eink- um um áfengið. Þessum mönnum þarf að verða það ljóst hver voði gæti af þeim stafað ef þeir hefðu sig í frammi, og ættu fleiri blöð að sjá sóma sinn í því að hlaupa undir baggann með skipstjórunum um að alt fari vel en varast hins- vegar alt það er miðar í gagnstæða átt. Hinsvegar má láta þess getið að ef tilefnið til yfirlýsingar skipstjór- anna sem auglýst er á öðrum stað hér í blaðinu er umgetin grein í síðasta blaðí Tímans, þá skýtur hún talsvert yfir markið þar sem talað er um vínsmyglun á land úr skipunum í Ameríku. í greininni var ekki á þá hluti minst einu orði. Kjötsalan. Blaðið íslendingur á Akur- eyri minnist á ráðstafanir lands- sljórnarinnar um kjötsölumálið, og gerir blaðið það með furðulegum hætti. í stuttu rnáfi virðist blaðinu miður gefið að skilja en misskilja þelta mál. Pað er nú ekki að sjá, að það sé fyrir áhuga á því hvernig salan hepnast á þessari annari aðal fram- leiðslu landsmanna, kjötinu, að blaðið tekur að ræða þetta mál, líklega er það heldur ekki gert til þess að slá um sig með dönskum málsháttum, og ekki mun það heldur vilja kannast við að það fari svona að sakir persónulegrar óvildar til tillögumanna né hlutað- eigandi stjórnarvalda. Og kemst maður þá helzt að þeirri niður- stöðu, að blaðið verði vart sömu kendarinnar og þingmaðurinn sem lagðist á móti kjölþurkuninni á þinginu í sumar fyrir þá sök, að hann óttaðist að af því kynni að hljótast hærra kjötverð í framtíð- inni. Blaðinu skilst að reglugerð stjórn- arinnar beri það með sér, að stjórnin hugsi um alla meir en íslenzka kjötkaupendur, þeir eigi að sitja á hakanum fyrir erlendum þjóðum. Fetta sé hrein og bein alvara sljórnarinnar. ResS má láta getið í þessu sam- bandi að íslendingi hefir hlotnast sá vafasami heiður, að eitt höfuð- staðarblaðið, Vísir, hefir prentað umrædda grein otðrétla og athuga- semdalaust i dálkum sínum, blað sem hefir haft það til að draga dár að ritsmiðum með þessum hætti. Annars eru kjötsöluráðstafanir stjórnarinnar langt yfir það hafnar, eins og sakir standa að eiga það skilið að vera hafðar í flimtingi, og ætti engin grunnfærni í lands- málum að getað afsakað slíkt. Dýrtíðin hefir komið við kaunin, hún kreppir að sveitafólkinu eigi síðum en öðrum. En sá er mun- urinn að eigi er annað fyrirsjáan- legt en að ofan á verðhækkunina sem orðið hefir síðastliðið ár á öllum aðfluttum vörum, bætist verð- fall á kjöti svo verulegu nemi. Undanþága um kjötsölu til Norð- urlanda í fyrra hækkaði kjötverðið þá að miklum mun, brezka verðið var 100 kr. tunnan en á Norður- löndum fengust 135—150 kr. fyrir tunnuna. En sá ljóður var á þess- ari verzlun, að verðið sem lands- menn fengu fyrir kjötið var mjög misjafnt. Nú vita allir það, að brezku samningarnir í vetur hækkuðu kjötverðið miklu minna en verð- hækkun nemur á því, sem til kjöt- framleiðslu þarf. Við endurnýjaða málaleitun fekst svo útflutningsleyfi til Noregs á 15 þúsund tunnum. Til þess nú að verðhækkun sú á kjöti sem við þetta ynnist kæmi réttlátlega niður, valdi stjórnin þá leið að fallast í öllum aðalatriðum á tillögur þeirra Hallgríms Kristins- sonar og Péturs Jónssonar um kjötsöluna eftir þó að hafa borið þær undir verzlunarráð íslands, tillögur sem einar gátu tryggt það, að enginu yrði misrétti beittur. Andvirði íslenzkrar kjötfram- Ieiðslu hefði komið mjög misjafnt niður ef stjórnin hefði eigi valið þessa leið, og það sem átakanleg- ast hefði verið, að drjúgur skild- ingur af væntanlegum verðmismun í Bretlandi og Noregi liefði óhjá- kvæmilega hlotið að lenda þar sem hann allra síst mátti lenda í slíkri óáran sem nú er, hjá milliliðunum. Hvernig sem fer um kjötsöluna að þessu sinni, þá hefir hvert stjórnmálablað sem er, óvirðing af því að amast við því, hvernig henni er nú komið fyrir, og það mun íslendingur sanna. Slíkt er nú engin nýlunda á ís- landi, og er bágt til að vita, að stjórnmálamenn og stjórnmálablöð freistist til þess að hugsa um of um stundarhagnaðinn. Stefnuleysið er þar oft svo mikið að gott þykir að grípa tækifærið til þess að slá »sér upp« lijá einhverjum flokki manna, þótt ekki geti verið nema um stundar sakir, og er þá jafnvel ekki horft í það að beita góðan málstað útúrsnúningi. íslendingur mun komast að raun um það áður en lýkur, að eitthvað þessu líkt hefir hent hann um þetta mál.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.