Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.11.1917, Blaðsíða 1
TÍMINN kemur út einu sinni i viku og kostar 4 kr. frá upphafi til áramóta. TÍMINN AFGREIÐSIA Bókbandið á Laugav. 18 (Björn Björnsson). Par tekið móti áskrifendum. I. ár. ReykjaYÍk, 17. nóvember 1917. 36. blað. Ritstjóraskijti. Með þessu blaði lætur Guðbrand- ur Magnússon af ritstjórn þessa blaðs, en við tekur Tryggvi Þór- hallsson. Með ritstjóraskiftunum verður engin breyting á stefnu blaðsins. Landsverzlunin. Syknrstríðið. Sykurstriðinu er lokið. Pað verð- ur a. m. k. ekki háð lengur i binni sömu mynd og áður. Því lauk í gær þegar stjórnin lækkaði sykurverðið niður í sama verð og áður var. Nú má dæma um syk- urstríðið eins og hverja aðra sögu- lega staðreynd. Mál sem kemur að verðhækkun á nauðsynjavöru hlýtur ávalt að verða tilfinningamál og getur hæg- lega orðið beint æsingamál. Syk- urmálið varð eitthvert mesta æs- ingamál sem verið hefir á dagskrá þjóðarinnar í seinni tíð. Tveir að- iljar hafa gert málið að æsinga- máli. Pað eru kaupmenn og blöð »Iangsum«manna, o: ísafold og dagblöðin í Reykjavík, einkum Vísir. í»ess var getið í síðasta blaði hvaða hvatir byggju undir hjá kaupmönnum, er þeir nú gerð- ust forystumenn um verðlækkun og lýstu sinni »megnu óánægju« yfir aðferðinni að hækka sykurinn. Þeir viidu drepa landsverslunina og sitja einir að versluninni. Þeg- ar búið var að benda á þennan tilgang þeirra og þeir sáu að sókn- in snerist á hendur þeim og al- menningur vildi ekki hlíta forystu þeirra, létu þeir staðar numið, þögnuðu, opinberlega a. m. k. — og eru úr sögunni. En »langsum«blöðin tóku þá við og hafa haldið stríðinu áfram. Þau hafa notað stór orð og feitar yfir- skriftir og sist sparað að hella oliu í eldinn. En tilgangur þeirra er annar en kaupmanna. Þau vilja nota sykurhækkunina sem vopn á stjórnina. Þau vilja fella stjórnina á sykurhækkuninni. Þannig var stríðið háð af þess- «m tveim sækjendum. Annar vildi drepa landsversluna með málinu. Hinn vildi fella stjórnina. Eitt dæmi af átján, um að Heródes og Pílatus verða vinir. Það var á orði haft, meðal hinna gætnari manna, að í engu landi Norðurálfunnar hefði svo ófyrir- leitin blaðamenska getað átt sér stað, á þessum alvörutímum, nema á íslandi. Bardagaaðferðin var slík, að þessi ummæli eru fullkomlega réttmæt. Pað sem er allra vítaverðast í framkomu blaðanna er það, að ekkert er gert annað en að rífa niður. Það er reynt til að æsa fólkið, með hinum mestu gífur- yrðum. Stjórn landsins er gerð sem allra tortryggilegust. Satt og ósatt flýtur hvað innan um annað — og ekkert kemur fram, sem eigi að koma í staðinn. Bara þetta: niður með stjórnina. Slík aðferð er ávalt ill. En á þeim alvörutimum sem nú eru, er slík aðferð með öllu óþolandi og beinlínis hættuleg. í nágrannalöndum okkar er al- menningsálitið svo þroskuð nú að það líður alls ekki slíka aðferð. Pað hvílir mikil áhyrgð á þeim mönnum sem heimta stjórnarskifti á þessum tímum. Peir menn verða að gera annað og meira en að rífa niður. Eitt einstakl atriði má benda á, sem sýnir ljóstega hvað bardaga- aðferðin var bíræfin og gat orðið hættuleg. ísafold nefnir hvað hækk- unin hefði numið miklu á birgð- um þeim sem landssjóður ætti af sykri. Blaðið nefnir upphæðina. Par sem það er á allra vitorði að nálega allur sykurinn er högginn sykur, og verðhækkunin á honum er kunn, má hæglega út frá þessu reikna hve birgðir landssjóðs séu miklar. En þessi upphæð er a. m. k. helmingi of há, og gerir því ráð fyrir helmingi meiri sykur- birgðum í landinu en til eru. Auk þess sem hér er farið með bein ósannindi, getur það valdið stórtjóni, um að útvega þessa vöru- tegund til landsins, reki t. d. að því að Bandaríkin fari að skamta landinu nauðsynjavöru, að segja birgðarnar helmingi meiri en þær eru. Pað er sorglegt tákn um alvöru- og ábyrgðarleysi blaðanna á þessum tímum, að nota slíka bardagaað- ferð. Og er þess að vænta að al- menningur meti að verðleikum slíka framkomu. Það er sitthvað að heimta að sykurverðið verði lækkað aftur og færa skynsamleg rök fyrir því að verðhækkunin hafi ekki verið heppi- leg, síst undir þessum kringum- stæðum og að gera svo átakanlega úlfalda úr mýflugu og nota slíka bardaga-aðferð. Pað er fróðlegur samanburður að bera saman »langs- um«blöðin og Lögrjettu, sem út kom núna í vikunni. Andstæður sjást varla greinilegri. Sykurstríðið verður í endur- minningunni sagan um ábyrgðar- leysi sumra blaða, sagan um það að þau reyndu á mjög sorglegan hátt að misbeita valdi sínu og stofna til innanlandsófriðar út af tiltölulega litlu tilefni, á hinum mestu hættutímum, En, ef alt fer að vonum, fær sagan annað og betra til frásagn- ar, um góða óbeina afleiðing syk- urstríðsins. Bót í máli. Fátt er svo ilt að einugi dugi. Pað á heima um sykurmálið. Pví að þótt flest verði ilt um það sagt, þá hefir það þó leitt eitt gott af sér. Pað hefir vakið menn alment til alvarlegrar umhugsunar um landsverslunina. Öll ný fyrirtæki sem til er stofn- að,' eiga það sammerkt, að þau eiga eftir að læra af reynslunni. Fyrsti smíðisgripurirm sem smíð- aður er í hverri grein á það fyrir höndum, að hinn næsti sem smíð- aður er af sama tagi verði betri og fullkomnari af því að notkunin hefir gert breyting æskilega. Landsverslun, undir slíkum kringumstæðum, er ný stofnun. i íslensku þjóðlífi. Pað er ofureðli- legt að hún sé ófullkomin í fyrstu og að ýmsir gallar séu á henni. En þótt gallar séu á skipulaginu leiðir ekki af því, að hana eigi að leggja niður, heldur á fyrst að at- huga hvort ekki megi læra af reynslunni og bæta gallana. Margir hafa orðið til þess að benda á gallana á landsversluninni og það skal fyllilega viðurkent að þeir eru margir. Færri hafa orðið til hins að koma fram með ráð til umbóta. Og þótt þau hafi kom- ið fram hefir þeim lítill gaumur verið gefinn. Sykurmáfið hefir mjög skýrt fyrir mönnum gallana. Sykurmál- ið er bein afleiðing gallanna á skipulagi landsverslunarinnar. Pað hefir fært mönnum heim sanninn um að ekki er nema tvent fyrir hendi. Annaðhvort að leggja alveg niður landsverslunina, því að fyr irkomulagið er orðið óhæft. Eða að breyta til í verulegum atriðum. Sykurmálið neyðir menn til að gera annaðhvort. Héðan af er ó- mögulegt að standa í stað. Annað hvort verður að ganga aftur á bak, eða áfram. Pað er enginn vafi á því, að margfaldur meiri hluti þjóðarinnar vill heldur ganga á- fram en aftur á bak. Þjóðin vill ekki að landsverslunin sé lögð niður. Hún vill að landsverslunin sé bætt. Pví að þjóðin skilur það, að á þessum tímum er landsverslunin þjóðarnauðsyn. Höfaðagnúarnir. Pað eru mörg einstök atriðijsem telja má upp, sem galla á lands- verzluninni, en öll koma þau sam- an í fáum höfuðatriðum, sem ná- lega óhjákvæmilega leiða af sér alla gallana. Hið fyrsta og helsta sem þar ber að geta, er hin óeðlilega og óskinsamlega tvískifting á störf- unum í landsverzluninni. Stjórn- arráðið annast um öll innkaup á vörum til landsverzlunarinnar. Pað á að skera-úr hvaða tilboðum um vörukaup eigi að taka, hversu mikið eigi að kaupa af hverri vöru o. s. frv. Öll stjórn verzlunarinnar inn á við liggur aftur á móti undir skrif- stofu landsverzlunarinnar. Þaðan er vörunum úthlutað. Paðan koma tillögur um vöruverðið innanlands o. s. frv. Pað liggur í augum uppi, að þótt gert sé ráð fyrir góðri sam- vinnu milli skrifstofunnar og stjórn- arráðsins, þá er þetta fyrirkomu- lag sérlega óheppilegt. Það kemur í veg fyrir að fullkomin festa og samræmi geti verið í stjórn verzl- unarinnar. Ofan á bætist það, að stjórnar- ráðið er ofhlaðið störfum sem eru gjörólík þessum innkaupum og verður afleiðingin óhjákvæmilega sú, að hvorug störfin eiga hugann óskiftan og vandamálin verða því ekki krufin svo ítarlega til mergjar sem vera þyrfti. Petta leiðir og annað af sér. Þar sem störfunum að landsverzluninni er þannig tvískift, kemur ábyrgðin á fleiri herðar og ábyrgðartilfinn- ingin verður ekki eins rík í hvor- um málsaðila fyrir sig. Og er þetta ekki sagt í þeim tilgangi að lasta neinn, heldur til þess að benda á að svona hlýtur það að vera. Loks er það knýjandi þörf að um þessi mál fjalli þeir menn sem reynslu og sérstaka þekkingu hafa til brunns að bera og verður þessi þörf því augljósari sem meir af verzlunarumsetningunni færist i hendur landsverzlunarinnar og þar af leiðandi umsvifin vaxa, bæði innávið og útávið, um alla fram- kvæmd. Þá er þess að geta að skipakaup og allur rekstur landssjóðsskipanna er rekinn samhliða verzluninni og útveginum nálega öllum stjórnað af stjórnarráðinu. Þetta gat gengiðíí fyrstu, meðan um lítið var að ræða. En nú eru þessi mál vaxin stjórnarráðinu yfir höfuð. Má um þau segja mjög hið sama og sagt var um innkaupin, að stjórnarráðið er of störfum hlaðið til þess að geta rekið þau svo vel sé. Enda er ómögulegt til þess að ætl- ast að skipaútgerð, í svo stórum stíl sem nújjer orðin, sé rekin i hjáverkum af þeim mönnum sem enga sérþekkingu og reynslu hafa í þessum efnum. Pað er rás viðburðanna sem því

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.