Tíminn - 22.12.1917, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.12.1917, Blaðsíða 2
166 TIMINN inn nema með sláttuvélum, hest- hrífum og öðrum nútímavélum. Öll framíaraviðleitni í búnaði og jarðyrkju verður því að stefna að þvi, að gjöra landið hæft fyrir notkun slíkra véla. En það ber þá að sama brunni eins og með sjáv- arútveginn, að þetta útheimtir langtum meiri höfuðstól en gömlu aðferðirnar. Það þarf að verja miklu fé til þess að bæta jarðirn- ar og mér dettur ekki í hug, hversu mikil og góð viðleitni sem verður sýnd, að slíkt verði gert á fáum árum, en hitt er afaráríðandi að menn nú þegar skilji tákn timans og hagi svo framkvæmdum eftir því. Eg skal t. d. nefna það, að þeg- ar bóndinn sléttar blett í túninu sínu, þá er ekki nóg að ganga þannig frá að hægt sé að slá það með ljáspík, heldur þannig að hægt sé að slá það með sláttuvél. Og sé hægt að slá með vél, er einnig hægt að nota öll önnur hestaáhöld. Tún á meöalkoti verður að kom- ast upp i 50 dagsláttur að stærð, en mest af engjareitunum verður gert að umgirtum bithaga. Þá get- ur bóndinn sjálfur með einum ungling og fjórum hestum og öll- um nauðsynlegum vélum og áhöld- um gert allan heyskapinn á 4 vik- um. Eg tala nú ekki um ef helm- inguripn af heyinu væri settur í súrheyshlöðu. Heyskapurinn yrði þá ekki þrældómur lengur eins og nú á sér stað, því að auðsær er munurinn á því að standa við orf- ið, dag út og dag inn, eða að sitja í sætinu á sláttuvélinni og stýra hestunum. Enn fremur ynnist þá langtum meiri timi til jarðabóta á ári hverju. Það er ekki mikið í lagt þótt ráð sé fyrir gert að 600 hestar (200 pd.) af töðu fengjust af þessum 50 dagsl. og á því má framfleyta laglegum bústofni, þótt ekki sé stór. Meðalfjölskylda myndi getá lifað á því sældarlífi. Þar sem vatnsveitingum verður við komið er þetta miklu auðteknara; en jörð- in verður þá að vera svo slétt að vélum verði við komið. — — »Hvíta her8veitin«. Sakleysingjar úr öllum flokkum drífa nú að sögn undir fána þeirra þrístjóranna nýju, B. Kr., Sv. B. og J. Þorlákssonar. Allir þeir »vönd- uðu« og »>ærlegu« eiga heima í þessari hersveit, sem að sögn Lögréttu þorði þó ekki nú í svip- inn að sigla hærri vind en það, að stofna »bæjarmálafélag«. B. Kr. kvað hafa framselt sig með einu skilyrði, því, að einhver honum undirgefinn og auðmjúkur fái nýja embættið í Landsbankanum. En í hendur Sveini mun hann vilja láta falla samningagerð fyrir landsins hönd við Breta, en fela Jóni járn- brautarlagningar allar og gatgerð- ina á Hellisheiði. X. Foringinn og flokksblaðið. Orð heflr farið af því hversu heimastjórnarflokkurinn væri orð- inn sjálfum sér sundurþykkur. Al- þjóð veit að sjálfur foringi flokksins Jón Magnússon skipar forsæti í landsstjórninni. Hinsvegar tóku menn eftir því að flokksblað heima- stjórnarmanna, Lögrétta, stóð hjá og hafðist ekki að, þótt að ósekju væri á foringjann hallað af valda- gírugum öfundarmönnum, sem inn- hlaup áttu í hinum og þessum blöðum. Grunur þessi staðfestist að fullu skömmu fyrir þing í sumar, þegar blaðið flutli árásargrein á stjórnina og heimtaði að skift yrði um atvinnumálaráðherrann — krafa sem ekki átti fylgi eins ein- asta heimastjórnarmanns á þingi. Kom það þá berlega í ljós að kaupmannavaldið hér í höfuðstaðn- um hafði verið búið að tryggja sér svo eignaraðstöðuna við flokks- blaðið, að á þess valdi var að ráða því hverjum stjórnmálaskoðunum þar var haldið fram. Árás þessi var sjálfri sér til háð- ungar sem kunnugt er, og bólaði nú ekki á neinu því er sýndi af- stöðu blaðsins til stjórnmálanna og foringjans — nema þögninni. Hinsvegar stóð mörgum mætum heimastjórnarmönnum beygur af þessari þögn, og einkum eftir þetta fyrsta áhlaup á stjórnina. Fanst þeim sem veiðibræðin lúrði þar og biði eftir tækifæri. Og IoJís var biðlund lokið. Flokksforinginn hafði verið í konungsgarði og barist fyrir því þar, að íslendingar fengju löggiltan fullveldisfána. Fáninn fékkst ekki; þrátt fyrir það skorti ekkert á skörulega framkomu forsætisráð- herra um að það mætti takast. Hvað gerir Lögrétta þá? Hún gengur í berhögg við for- ingja sinn eins og fyrri daginn. Segir fánann hafa minna fylgi hér heima en hann hafði skýrt frá í konungsgarði, telur óviturlegt að hafa nokkurntíma fitjað upp á þessaii fullveldiskröfu eins og alt sé í pottinn búið, og hvetur til af- sláttar og undanhalds þar sem flokksforinginn hyggur til öruggrar sóknar. Verður ekki annað sagt, en að slík árásargrein á ílokksfoiingjann í sjálfu flokksblaði hans sé eins og skrifuð af þeim sem valdið hefir, og hefði ekki þurft að auglýsa neitt til þess að menn vissu hver það væri. Heimastjórnarllokknum í heild sinni má vera það mikið hrygðar- efni að foringi hans skuli svona grátt leikinn í sínu eigin málgagni. Það er ekki nóg þótt islenzlcu þjóð- inni sé það kunnugt, að það er valdagirni höfundar sem veldur því, að svona er bakbitið við- kvæmasta sjálfstæðismál þjóðar- innar, og fjármunaleg yfirtök hans á Lögréttu í félagi við nokkra inenn (sem aðrar eigingjarnar hvatir ráða fyrir) geri honum þetta mögulegt, — Danir þurfa að fá að vita þetta líka. Danir þurfa að fá að vita það, að hinn eiginlegi heimastjórnar- flokkur á hér enga sök, vita það strax, að enginn heimastjórnarþing- manna mun slaka til á fánakröf- unni, vita að þeim er andstygð að framkomu blaðsins og þess vegna séu þetta orð, orð innantóm. Samsærið. Áður liefir verið getið hér í blað- inu samsæris þess gegn stjórninni, sem upp komst um hér á dögun- um. Skal það nú skýrt nánar. Nokkrir landskunnir, en ekki alveg valdalystarlausir menn stóðu fyrir því. Neyðin hafði sameinað þá. Óslöktur eldur eftir valdi knúði þá áfram til stórræða, sem tæplega gátu leilt forkólfana annað en í hegningarhúsið. Þeir hófu æsingar um bæinn, efldu flokk með allmörgum fáfróð- um en ósvifnum mönnum. Gert var ráð fyrir að alt að því hundr- að menn yrðu í hópnum. Það talið nógu mikið til þess, að lögin ekki næðu til þeirra að afstöðnu verki. Enda búist við, að þeir sem völdin tækju yrðu mildir í dómum. Til að koma þessu í verk höfðu samsærismenn fjölda leiguþjóna út- um allan bæ til að æsa fátæka og ríka gegn stjórninni. Sitt var sagt við hvern. Sjómenn, verkamenn, embættismenn, útgerðarmenn.kaup- menn, fengu hver sína skýringu. Öllum var lofað því sem bezt var til beitu: afnámi landsverzlun- ar, landssjóðsslyrk til útgerðar, dýrtíðaruppbót og aukinni atvinnu. Alt sem aflaga þótti fara, að frá- sögn umrenninganna, var kent stjórninni. Þessi rógburður var svo ferlegur að kunnungir menn full- yrða, að sjaldan hafi betur verið sungið í höfuðstaðnum fyrir þing- kosningar. Loks lóku samsærismenn að halda leynifundi, og voru þeir eigi allfáir. Framan af komu að eins óbreyttir dátar og leiguforingjar. En á síðasta fundinn kom sjálfur meistarinn. Hann sem átti að hljóta völdin að afloknum róstun- um. Hann kom og talaði eins og hann var maðurinn til. Eggjaði ekki beinlínis. Ráðlagði að fara lævíslega að, geyma vel leyndar- málið, efla æsingar i bænum. Sér- staklega væri nauðsynlegt að öll blöðin heltu sér yfir stjórnina með óbotnandi skönnnum. Kunnugir munu gizka á, hvað hann kann að hafa fyrirmælt í þvi efni fyr og síðar — í eyru tryggra þjóna. En hér var hámarkinu náð. Daginn eftir sást að flóðgarðurinn hafði biláð. Leyndarmálið var orðið almanna eign. Samsærið hafði komist upp og forkólfarnir voru orðnir að almennu hlátursefni. Sagan um hneikslið byrjaði að breiðast út til annara héraða. Stóru ráðin urðu að engu. Hundrað manna flokkurinn fór aldrei upp í stjórnarráð. Enginn af ráðherrunum hefir enn þá verið barinn eða limlestur, eins og til var stofaað. Samsærisforingjarnir hafa ekki nálgast ráðherrastólinn. Sigurlaunin hafa fjarlægst þá. Vald- ið yfir verzluninni, valdið yfir láns- stofnunum hefir ekki enn haft vistaskifti, eins og til var ætlast. Sannast löngum hið fornkveðna að því verra þykir semfleiriheimskra manna ráð koma saman. (Frh.) XJr bréíi. Þingeyjarsýsln 24. nóv 1917. Veðurátta á þessu hausti hefir verið með einsdæmum. Mun allvíða eiga sér stað þar sem til heiða dregur eða afdala, að snjó hafi ekki leyst af jörð síðan í Téttum (22. sept.), en í lægri bygðarlögum festi ekki snjó að staðaldri fyr en með októberhyrjun, en þá með slíkri heift og kyngi, að við algerðri jarðbönn hélt sumsstaðar. Hey var þá víða úti og sumt illa statt: á slægju og i flekkjum, því að gæflir voru litlar til að sinna heyjum eftir réttir. Það hey hefir algerlega tapast og ætti að vera mönnum eftirminnileg aðvörun um, að láta ekki þannig statt hey safnast fyrir um haust. Hey það sem uppsett var í byrjun hríðanna — þótt hrált væri sumt — náðist víðast hvar um 20. okt., því að þá hlánaði nokkuð, o.en skamm- vinnur reyndist sá bati. Síðan hefir verið hörkutíð: skiftst á hríðar- byljir og spilliblotar, svo þröngt er um beit. Má því óhætt segja að veðuráttan láti skamt höggva í milli á okkur Norðlendinga, þvi að engin tvímæli eru um það meðal elstu manna, að þeir myndu ekki slíkt vor sem 1916 og nú eru ekki liðin 3 misseri, þegar önnur árstíð kemur sem að sínu leyti jafnast við hina. Væri gott til þess að vita ef annálar frá þessum tímum þyrftu ekki að fræða kom- andi kynslóðir um felli og »óáran i landsfólkinu«. Víst er um það, að mörg ár síðan utn aldamót hefðu orðið fellisár fyr á öldum. Þessi umjæddu ár bjargaði útlent matfóður búpeningi manna, en nú reynir algerlega á framleiðslu lands- ins sjálfs í því efni, et í harðbakka slæst. Og eilt er víst: ef við verðum áttræðir þykir mikils um vert að heyra okkur segja frá aldarfarinu þennan áratug, þegar styrjöld geis- aði um heim allan og harðæri innanlands, því að óskandi er að okkar bíði ekki önnur tíðindi meiri á þessu sviði sem þurki út endur- minningu þessara ára. En vissu- lega er þelta þjóðinni þarfur skóli, því að hún var á því gelgjuskeiði í atvinnumálum sínum og sjálf- stæðismálum, að hún þurfti ærleg- an prófstein til að komast að raun um, hvort hún stæði á sínum eigin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.