Tíminn - 19.01.1918, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.01.1918, Blaðsíða 1
TÍMINN kemur út einu sinni i viku og kostar 4 kr. árgangurinn. AFGREIÐSLA i Regkjavík Laugaveg 18, simi 286, út um land i Laufási, simi 91. II. ár. Reykjavílí, 19. janúar 1918. 3* blað. Sil lesenða Zírnans. LJt af hinni svæsnu persónulegu árás sem Gísli Sveinsson alþm. hefir gert á mig — og raunar marga aðra menn og stefnur — í síðasta blaði ísafoldar, skal það tekið fram sem hér fer á eftir. — Skilja menn það af því sem sagt verður, að fara verður fyrst dálítið aftur í tímann til þess að rök- styðja þá niðurstöðu sem að verð- ur komist. Þessi síðasta framkoma G. Sv. verður sem sé að skoðast i því ljósi sem fyrri frainkoma hans kastar. G. Sv. og ldrkjan. t>að sem eg fyrst vildi gera öllum Ijóst er það á hvern hátt G. Sv. berst fyrir áhugamál- um sínum. Og bezta dæmið er um G. Sv. og kirkjuna. Það er alkunnugt að G. Sv. er «inhver ákveðnasti andstæðingur hinnar íslenzku þjóðkirkju. Hann vill slíta öllu sambandi hennar við ríkið. Hann vill skóinn niður af kirkjunni hvað sem það kogtar og með hvaða meðölum Sem er. Það virtist vera á góðum vegi, að sambandi ríkis og kirkju yrði slitið. AUnent var kvartað um deyfð í kirkjunni. Töluverður flokkur virtist hallast á þá sveif að það svaraði ekki kostnaði að halda í kirkjuna. En svo keinur nokkuð i veg- inn sem hindraði áframhaldandi skilnaðaróskir milli ríkis og kirkju. Nýjar hreiíingar vakna innan ltirkjunnar: meiri safnaðastarf- semi, nýguðfræðin, »spírítisminn« o. 11. Margir sem áður stóðu and- vígir kirkjunni hnigu nú nær henni. Nýjar vonir glæðast um andlegt líf í kirkjunni. Um leið og óánægjan minkar yfir aðgerðar- leysi og deyfð kirkjunnar, um leið fæklca raddirnar sem heimta skiln- að rikis og kirkju. Hinn æsli skilnaðarmaður G. Sv. sér fram á þelta, að þetta mikla áhugamál hans — niður- rif þjóðkirkjunnar — mætir nú meiri mótslöðu. Hvaða meðöl not- ar hann til þess að spyrna á móti? Það er einmitt það sem eftir- tektarverðast er í þeSsu máli. Og það er þjóðkunnugt. Aðferðin sem hann notaði til þess að vinna að þessu göfuga áhugamáli sinu var viðlíka göfug: Hann hóf svsesna persónulega árás á einn mikils- virtasta og áhrifamesta kennimann landsins, Harald prófessor Níels- son. Prófessor Haraldur Níelsson -sameinaði alt sern G. Sv. þurfti með. Hann var sem sé bæði ný- guðfræðingur og spírítisti — fylgj- andi báðum stefnunum sem voru að blása lífi í þjóðkirkjuna — og einna áhrifamestur. Þess vegna var skeytunum beint að honum. Það þarf ekki að lýsa þeirri deilu, hún er alþjóð í fersku minni. Það er einhver svæsnasta persónulega árás sem gerð hefir verið á mann sem ekki liefir unnið annað til salcar en að berj- ast fyrir lielgasta áhugamáli sínu. Þá hafði ísafold ekki rúm fyrir ofstæki G. Sv. Alþjóð mat að verðleikum fram- komu G. Sv. Prófessor H. N. er og verður alveg jafn mikilsvirtur maður, þrátt fyrir allar vammirnar og slcammirnar sem G. Sv. bar á hann og málefni hans. En endurminningin lifir um það á hvern hátt G. Sv. vinnur að á- hugamálum sínum. Aðferðin er þessi: að gera persónulega árás á einhvern í þeim flokki sem í móti stendur. Fleiri dæmi verða ekld nefnd frá liðinni tíð, um framkomu G. Sv. En það mætti nefna mörg, sem eru þjóðkunn, og alt ber að sama brunni um bardagaaðferð hans. G. Sv. og Tíminn. Þótt G. Sv. sé ekki gamall er all-langt síðan hann fór að gefa sig við stjórnmálum. Og það hefir alt vérið á einn veg. í innanlandsmálunum hefir hans verið að engu getið. Enginn veit neitt um, að hann hafi nokkurn- tíma sýnt lit á því sviði. Aftur á móti hefir hann lengi verið í flokki þeirra sem hæst hafa hrópað í utanríkismálunum. Og alt sem hann hefir sagt á því sviði hefir verið neilegs eðlis. Það hefir verið fum út í loftið, lögfræðis- legar útlistanir ineira og minna á huldu. Tilgangurinn sá að íljóta ofan á fjöldanum og teljast leið- togi, með því að stagast á því sem er ofan og ulan við skilning fjöldans. Hann hefir lifað — póli- tiskt — á utanríkismálunum. Hann sér það fyrir að fáist þjóðin til að varpa frá sér því þarflausa þjarki, sem hefir orðið því valdandi að vanrækt hafa verið miklu hrýnni mál inn á við, að um leið er hann pólitiskt dauður. Því að fimbul- fambið um utanríkismálin hefir verið eins og dúkur sem hefir átt að hylja vilja, stefnu og áhuga- leysið urn fratnfarir þjóðarinnar inn á við. Lengi hefir það tekist — alt of lengi — að glepja þjóðinni sýn og fá hana til að gleyma hinu meira yfir hinu minna. En nú bendir ýmislegt í þá átt að þjóðin sé orðin leið á hinu lítilsvirta hjali G. Sv. og annara um utanríkis- málin, en muni ætla að snúa sér með festu að hinum innri málum. G. Sv. veit að um leið getur hann eklci lengur flotið ofan á. G. Sv. veit ennfremur að það er fyrst og fremst stefna Tímans að fá þjóðina til þessa. Stefna Tím- ans kemur því þvert í veg G. Sv. Hann þarf því að ríða þá stefnu niður. Og aðferðin sem hann beitir er nákvæmlega §ama og sú sem hann beitti til þess að ríða niður stefnurnar sem komu í veg fyrir hitt áhugamálið hans, að eyði- leggja þjóðkirkjuna. Nú byrjar hann persónulega árás á mig sem ritstjóra Tímans. Greinin í síðustu ísafold er skrifuð náltvæmlega í sama tón og árásin á prófessor H. N. Og undirrótin er hin sama. Líkingin er alveg fullkomin. Persónuleg atvik úr lífi mínu koma þar mjög til greina. — Um starf mitt sem sóknarprestur og sóknarbörn mín er farið viðeig- andi niðrandi orðum. — Það kemur og mjög við mál hvaða embætti eg hefi sótt um en ekki fengið. — Rétt og rangt er notað jöfnum höndum og margt fært í stýlinn. — Af því að Tíminn hefir fundið að óreglu í reikningsfærslu, segir G. Sv. hiklaust að blaðið hafi dróttað þjófnaði að þeim sem hlut eiga að máli og hefir þó eng- um komið til hugar að gera slíkt og aldrei staðið orð í þá átt í blaðinu. — Tengdaföður mínum vill hann blanda inn í málið — hvaða hvatir liggja þar á bak við hjá G. Sv.? — en veit þó vel að aldrei hefir liann verið við mál þetta bendlaður. Og vel má G. Sv. og aðrir vita að aldrei hefir neinn sem að Tímanum heíir staðið beint neinu skeyti að honum, enda er það alkunnugt að hann skilaði þeim fjármálum sem undir hann heyrðu — sem voru á aðra miljón — með sárfárra daga fyrirvara svo að ekkert varð að fundið. — Ungmennafélögin fá viðeigandi spark. — Samvinnufélögin sömu- leiðin. — B. Kr. er gerður að ráð- herra Tímans o. s. frv. Mýmargt mætti enn telja, því að greinin er löng og mætti fylla mörg blöð af Tímanum ætti að fara að svara þeim öllum út í ystu æsar. Hvernig á að haga sér? Það er spurningin sem eg vildi svara: hvernig á að haga sér, þeg- ar slíkur maður fer af stað i þess- um tón? Um að svara spurningunni, kemur það einkum til greina sem hér fer á eftir: 1. Fyrri framkoma G. Sv. sem dæmi hefir verið tekið af hér að framan, sýnir það ljóslega, að bar- dagaaðferð hans er, að hefja per- sónulega árás á einhvern fylgjanda þeirrar stefnu sem er honum til fyrirstöðu. ísafoldargreinin er skil- getin systir hinna fyrri af sama tagi. 2. í annan stað má ganga út frá því sem öldungis vissu — og er það bygt á fyrri reynslu — að sé reynt að rökræða við liann um mál, fæst ekkert upp úr því. Það er tilviljun ef G. Sv. kemur að málefninu. Rökræða við hann verð- ur ekki til að skýra neitt mál. 3. Á hinn bóginn er það öld- ungis víst — og er sömuleiðis bygt á fyrri reynslu — að ef lagt er út í deilu við hann, í von um að málefnið skýrist, þá verða allir ættingjar, lífs og liðnir, dregnir fram á sjónarsviðið með viðeig- andi svívirðingarorðum, lif sjálfs manns og störf afflutt í líkum mæli, og sparkað í alt og alla sem hægt er á einhvern hátt að blanda inn i umræðurnar. Hvernig á að haga sér gagnvart slíkum manni? Manni sem hefir þennan megineiginleika að hefja persónulega árás, þegar hann verð- ur reiður einhverri stefnu. Manni sem svífist einskis, um að svivirða æltingja og »prívat« líf þess, sem hann kýs lii að beina skeytum að. Eg lcveð upp dóminn fyrir minn hluta: Slíkan mann lítilsvirði eg fullkomlega, um leið og geri sjálf- um mér og öðrum grein fyrir hvers vegna eg geri það. Og eg lýsi þvi hér með yfir — algerlega reiðilaust og að vel hugsuðu máli — að þess vegna á eg ekki i rit- deilum við G. Sv. Eg skoða það sem ósagt sem hann segir. Eg lít svo á að það sé fyrir neðan það sem nokkur maður þurfi að taka tillit til. Það er sagt í eitt skifti fyrir öll og svo verður það. Það eru til velsæmistakmörk og það liefir sínar afleiðingar að yfirstíga þau. Þetta sem hér hefir verið sagt að framan hefir nógsamlega sann- að það með hvaða hætli G. Sv. berst. Á þeim gögnum er þessi dómur reistur, að eg tala ekki við hann. Ögranir og fúkyrði sem hann kann að kasta til mín út af því, þær heyri eg ekki. Eg mun ekki þreyta lesendur blaðsins með því að taka tillit lil þess. Málefnisins vegna, velsæinis vegna, lesendanna vegna og sjálfs min vegna, lýsi eg

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.