Tíminn - 04.09.1920, Page 1
TIMINN
um sextíu blöð á ári
kostar tiu krónur ár-
gangurinn.
AFGREIÐSLA
blaðsins er hjá Gnð-
geiri Jónssyni, Hverfis-
götu 34-. Sími 286.
IV. &T
Reykjarík, 4. septomber 1920.
35. blað.
W Ný húslestrabók.
Ásmundur Guðmundsson: Frá heimi fagnaðarerindisins.
:: Kostar í bandi kr. 15. :.
Fæst hjá öllum bóksölum.
Bókaverslun SigfB Eymundssonar.
Bann í Sviþjóð.
Síðan árið 1911 hefir setið netnd
á röggstólum í Svíþjóð sem haft
hefir það verkefni, að taka áfengis-
málið í heild sinni til rannsóknar
og gera tillögur um það. Ur öllum
áttum hefir nefndin dregið að sér
efni, til upplýsingar málinu, safnað
skýrslum og gögnum um starf
annara þjóða um málið, meðal
annars t. d. sent fyrirspurnir hing-
að, til landsstjórnarinnar, um þá
reynslu sem hér er orðin um
bannlögin.
Nefndin var búin að starfa svo
lengi að það var orðið hljótt um
hana, hafa sumir ef til vili verið
farnir að gera sér í hugarlund að
lítið myndi koma frá henni. Fess-
vegna kemur mönnum það eilítið
kynlega fyrir að nefndin leggur
nú fram ákveðnar tillögur. En sam-
kvæmt símskeyti sem hingað kom
í vikunni eru tillögurnar þær: að
allsherjar vínbanni verði komið
á í Svíþjóð og nái til allra áfengra
drykkja, víntegunda og öls með
2s/w%. Vill neíndin leita þjóðar-
atkvæðis ura bannið tveim árum
eftir að ríkisþingið heflr samþykt
það.
Undanfarin ár hefir sérstakt
skipulag ríkt í Svíþjóð um áfengis-
málið. f*að hefir hvorki verið frjáls
sala né bann, heldur skömtun.
Hefir það verið nefnt »Bratts-
system« eftir þeim manni, Bratt,
er fyrir því gekst. Andstæðingar
vínbannsins hafa mjög oft haldið
því fram að þetta skömtulag Bratts
væri hin eina rétta lausn áfengis-
málsins. Dómur sænsku nefndar-
innar nú, og reynsla Svíanna, hefir
farið í þveröfuga átt. Reynslan
varð sem sé sú að það varð ekki
hægt að skamta. Úr því að vínið
var veitt á annað borð að opin-
berri ráðstöfun varð æ að stækka
skamtana. Og sjálfur Bratt hefir
nú játað að þetta skipulag sitt sér
óhæft. Fað sé ekki hægt að skamta.
Skamturinn verði að vera það sem
fólkið vill hafa o: enginu skamtur.
Skýrslur hafa verið gerðar öll
þau árin í Svíþjóð sem Bratts-sy-
stemið« hefir staðið, um afleiðing-
arnar af áfengisnautninni, í glæp-
um, sjúkdómum, slysum o. s. frv.
Fær hafa talað skýrum orðum.
Fað hefir haldist svo greinilega
í hendur að þá er skamturinn er
aukinn, kemur hitt óumflýjanlega
á eftir: fjölgun glæpa, slysa, sjúk-
dóma o. s. frv. sem beinar og
óbeinar afleiðingaT.
Fað er næsta mikilsvert að Sví-
ar hafa gert þessa tilraun um
skömtulagið, því að þeir eru bún-
ir að reyna það til þrautar og sjá:
skömtulagið er léttvægt fundið.
Sænska nefndin, sem dregið hefir
að alt það efni sem unt er að ná
í, dregur ályktanir af reynslunni,
reynslu Svía og annara. Og álykt-
anirnar eru þessar:
Engin önnur leið er til um að
legsa hið mikla og alvarlega áfeng-
ismál, en bannleiðin. Ef við viljum
gera skyldu okkar og taka afleið-
ingunum af samviskusamri rann-
sókn, þá veröum við að lögleiða
fullkomið bann á áfengi.
Fessi tíðindi frá Svíþjóð eru að
svo mörgu leyti gleðileg tíðindi.
Að visu er það svo, að það er
ekki búið að samþykkja bannið í
Svíþjóð, þótt þessi nefnd geri það
að tillögu sinni. En það eitt að
nefndin, og það einmitt slík nefnd
í Svíþjóð, landinu sem reynt hafði
skömtulagið, kemst að slíkri niður-
stöðu, er ærið gleðiefni eitt fyrir sig.
En það er mikil og góð von um
að sænska þjóðin fari eftir tillög-
um nefndarinnar. Sænska þjóðin
er um marga hluti best menta og
heilbrigðasta Norðurlandaþjóðin,
bæði í andlegu og líkamlegu til-
liti. Bindindis og bannhreyfingin
hefir fest þar djúpar rætur meðal
almennings og meðal Svía hafa
verið sumir allra áhrifamestu bann-
menn heimsins. Og síðast en ekki
síst má í þessu sambandi minna á
sænsku kirkjuna, víðsýnustu, glæsi-
legustu og mest lifandi kirkjuna, á
Norðurlöndum a. m. k. Sænska
kirkjan hefir, nálega sem heild,
tekið bannmálið upp á sína arma
og þaðan mun málið eiga von
hins allra mesta stuðnings.
Einlægar blessunaróskir séu
sænsku bannmönnunum hér með
sendar frá samherjum þeirra á
íslandi.
Nauðungarsala?
Því lengur sem það stendur yfir
það hörmungarástand sem ríkir á
viðskiftasviðinu, því alvarlegri af-
Ieiðingar hlýtur það að hafa. Því
lengur sem það stendur, að bank-
arnir íslensku gela ekki »yfirfært«
fé til útlanda, og íslendingar þar
af leiðandi ekki staðið í skilum
með greiðslur sínar til erlendra
viðskiftamanna, því meiri verður
sá álitshnekkir sem landið býður
og einstaklingar og því alvarlegri
verða eftirköstin um viðskifti í
framtíðinni.
Yið viljum hugga okkur við að
það standi ekki Iengi úr þessu. Að
tilhlutun stjórnarinnar hsfir farið
fram virðing á þeim afurðum sem
tilbúnar eru, eða verða, á markað-
inn. Árangurinn af þeirri rann-
sókn er injög góður. Hæfilega metið
mun verð þeirra afurða nema jafn-
vel tugum miljójia króna fram yfir
skuldir landsins. Með öðrum orð-
um: Ef það tekst að selja þessar
afurðir vel, þá mun rakna úr vand-
ræðunum.
En það þarf ekki einungis að
selja þessar afurðir vel, það þarf
og að selja þær fijólt, til þess að
losa okkur úr kreppunni og það
vita allir kaupsýslumenn að það
er oft hið allra erfiðasta að eiga
bæði að selja vel og þurfa líka
að flýta sér að selja.
Og þeir eru margir sem eru
hræddir um að þarna sé versti
erfiðleikinn. Það sé enginn vafi á
að vörurnar seljist, en það sé
mjög óvíst að hægt sé að selja
þær fljótt, svo sæmilegt sé. Kaup-
endur varanna, sumir a. m. k.,
muni sem sé ætla sér að »spekú-
lera« í því að fá þær ódýrari, af
því að við þurfum að selja þær
fljótt. Þarf ekki orðum að því að
eyða hvað þetta liggur beint við.
Það er óþægilegasta aðstaða sem
seljandinn getur komist í, að verða
að selja, nálega þegar í stað, hvað
sem fyrir fæst.
Á seinni stríðsárunum skipaði
landsstjórnin úlflutningsnefnd lil
þess að sjá um sölu á afurðum
landsins. Enginn vafi er á því að
það varð til hinnar mestu bless-
unar. Tíminn vill ekki beinlínis
gera það að tillögu sinni að ný
útflutningsnefnd verði nú skipuð
— eins og einn af bankastjórum
Landsbankans hefir gert — en
hann vill halda hinu fram, að á
landsstjórninni nú hvili ekki siður,
heldur enn meir en á stríðsárun-
um, skylda um að gera alt sem í
hennar valdi stendur til þess að
greiða fyrir sölu íslenskra afurða,
og ekki síst að koma í veg fyrir að
satan, vegna ástandsins sem ríkir,
verði að einhverju leyti nauðungar-
sala á óhentugasta tíma.
Það er fullyrt af kunnugum að
í vor og sumar hefði verið hægt
að útvega landinu sæmileg lán,
sem hefðu forðað okkur frá nú-
verandi öngþveiti og gert okkur
það fært að þurfa ekki að flýta
nú svo mjög vörusölunni, að af
leiddi mikil verðlækkun. Það er
ennfremur kunnugt að einstakar
stofnanir hafa alt fram að þessu
getað fengið erlend lán, með að-
gengilegum kjörnm og fengið við
það frjálsari hendur.
Hefir landsstjórnin rannsakað
það til hlítar hvort enn er of seint
að bæta aðstöðuna á slíkan hátt?
Landsstjórnin hefir um marga
hluti betri aðstöðu en einstakl-
ingar. Txl hins ítrasta verður lands-
stjórnin að beita sér nú og leita
samvinnu við seljendur, eða taka
beint að sér að vinna sumt eða
eða mikið fyrir þá. Fremur en
nokkru sinni áður verður ísland
að krefjast þess »að hver maður
geri skyldu sína«. Samvinnuleysi
þeirra sem nú geta mestu um
þokað um afkomuna er háskalegt
og ekki síður hitt að einn varpi
ábyrgðinni yfir á annan og þannig
verði undanfelt að gera það sem
unt er að gera um að komast út
úr vandræðunum.
Er ekki vafi á því að væri nú
hér á landi samstæð Iandsstjórn,
sem treysta mætti fylgi samstæðs
meiri hluta á þingi, um allar fram-
kvæmdir til alþjóðarheilla, þá hefði
hún þegar komið í framkvæmd
ráðslöfunum um að bæta áslandið.
Dýr vani.
Það eldir lengi eftir af þeirri
gömlu, skoðun, að ekki sé fyr
vissa um greiðslu fyrir seldan hlut,
en peningarnir eru komnir í hend-
ina. Víða um land er það svo enn,
að menn fást vart til að taka
gildar ávísanir á banka og kaup-
félög. Menn vilja hafa peningana
og ekkert annað en peningana.v
Það má til að gera gangskör að
því að útrýma þessum hugsunar-
hætti.
Nú í sumar, eins og endranær,
þurfa þeir menn t. d. sem kaupa
hrossin fyrir einkasölunefnd lands-
stjórnarinnar, að reiða með sér
tugi þúsunda og jafnvel hundruð
þúsunda króna í seðlum, út urn
allar sveitir landsins. Menn fást
sem sé miklu síður til að selja
hrossin, ef ekki er borgað með
peningum út í hönd, selja ef til
vill alls ekki að öðrum kosti.
Þetta er dýr vani og óhæfilegur.
Liggur það í augum uppi að af
þessu leiðir mikið vaxtatap, sem
vitanlega kemur niður á þeim sem
selja liestana. Það eru fyrstu af-
leiðingar þessa vana.
í annan stað er það auðsætt að
þelta eykur eyðsluna í landinu og
það ef til vill að miklum mun til-
tölulega.
í þriðja lagi er þetta, eins og nú
er ástatt, óþægilegt fyrir bankana,
að þurfa að auka peningaumferð-
ina svo stórkostlega.
Það ættij að mega komast af
með a. m. k. þrefalt minna af
reiðum peningum til þessarar versl-
unar. Reglan ætli að geta verið sú
að í mesta Iagi væri þriðjungur
liestverðsins borgaður í peningum
en hitt með ávísun á banka.
Langsamlega rnest af því fé sem
hestaeigendur fá fyrir hesta sína
gengur hvort sem er til þess að
greiða verslunarskuldir, ekki síst í
ár. Það er öllum einfaldara og svo
miklu ódýrara, að greiða þær með
ávísunum á banka. Verslunum er
það ekki síður þægilegra en selj-
endunum.
Þeir tímar eru löngu liðnir sem
réttlættu þann hugsunarhátt sem
heldur við þessum dýra vana og
þeir tímar lcoma aldrei aftur.
Það er merki um óþroska að ala
þennan hugsunarhátt lengur, og
líða af fjárhagslegt tjón, gera sjálf-
um sér og öðrum óþægindi og
auka á eyðsluna.
Þess vegna eiga allir góðir menn
að taka höndum saman um að
útrýma með öllu þessum leifum
verslunarkúgunarinnar og þeirrar
tortrygni sem henni var samfara.
Ætti þetta að vera í síðasta sinni
sem úreltur liugsunarhátlur knýr
hestakaupmennina til að reiða meö
sér nálega heila hestburði af pen-
ingum, sem af veröur að gjalda
rándýra vexti.
Sú fregn gengur um bæinn, að
eitt af allra stærstu verslunarhús-
unum í Kaupmannahöfn, »Magasin
du Nord«, hafi keypt eina af aðal-
vefnaðarvöru-verslununum hér í
bænum: Vöruhúsið, sem hr. Jen-
sen-Bjerg hefir átt. Forstjóri Maga-
sin du Nord, var hér á ferð í
sumar, og er talið, að verið hafi
þessara erinda meðal annars.
Sbólastjóri við barnaskólann á
Akureyri hefir Steinþór Guðmunds-
son guðfræðingur verið skipaður
á ný. Þorsteinn M. Jónsson alþm.
frá Borgarfirði eystra sótti á móti
honum og mátti ekki á milli sjá
hvor hlyti, en fyrir tilmæli Slein-
þórs tók Þorsteinn umsókn sína
aftur,
Látinn er á Hlöðum við Eyja-
fjörð, Halldór bóndi Guðmunds-
son, eiginmaður Ólafar skáldkonu,
Síning flíkarðs Jónssonar
í Barnaskólanum.
I.
Ein af teikningum Rikarðs á
sýningunni heitir y>Fjölkyngismað-
ur«. Er það karl einn feikna glúr-
inn og galdralegur. — Ætti eg að
einkenna Ríkarð Jónsson í einu
orði, myndi eg kjósa: Fjölkyngis-
maður!
Með þessu vil eg eigi hafa sagt
að Ríkarður sé beinlínis göldrótt-
ur. En margvitur og fjölkunnugur
er hann með afbrigðum. Um það
getur enginn efast, er kemur á
sýningu hans. En það ætti allir
að gera, ungir sem gamlir. Þar er
ótal margt sem augað gleður. —
Auk þessa er Ríkarður afreks-
og afkaslamaður mikill. Gengíir
maður brátt úr skugga um það,
er maður sér alla þá muni, skraut-
gripi, mótaðar myndir og teikn-
ingar, sem samankomnar eru á
sýningu hans. Eru það tvær stofur
sæmilega fullar. Er þetta þó eigi
nema liðlega tveggja ára starf Rík-
arðs, og mun þó vanta all margt
sem dreift er fyrir öllum vindum
víðsvegar um Iand.
Fjölhœfni Ríkarðs vekur fyrst af
öllu eftirtekt manns. Mótaðar
myndir hans, vangamyndir og
brjóstlíkan eru þegar alkunnar um
land alt, enda eru sumar þeirra
framúrskarandi góðar og sannar.
Skrautlist hans er frumleg og
fjölbreytileg. Ríkarður mun t. d.
fyrstur hérlendra snillinga — og
ef til vill víðar — hafa notað hinar
áhrifamiklu andstæður »skjalli
hvítara og tinnu svartara«: fíls-
beins-loftverk á svartgljáandi íben-
viði eða dökkgljáuðu mahogní.
Einnig hefir hann skreytt ýmsa
íbenviðarmuni mjög fagurlega með
litlum fílsbeins-nöglum og tönnum
á brúninni. Eru margir þessir
munir, skrín og hylki, afar falleg
og frumlega skreytt.
Auðséð er á ýmsum skornum
munum, að Ríkarður hefir tekið
sér gamlan * islenskan tréskurð
til fyrinnyndar. Hefir hann þar
víða »skáldað í eyðurnar«, aukið
og bætt og fegrað á ýmsa vegu.
Enn er einn þáttur listar Rík-
arðs, sérkennilegur og ramíslensk-
ur. Það er fyndni og kýmni. Hann
hefir næmt auga fyrir kostum og
kynjum náungans og er oft mein-
hnittinn á markið. Eru allmargar
teikningar og »fljótaskriftir« á sýn-
ingu hans, er bera þess ótviræðan
vott. Sumar þeirra verða manni
minnisstæðar eins og smellin og
meinfyndin islensk alþýðuvísa.
Nokkurar rauðkrítarteikningar af
höfninni í Reykjavík o. fl. sýna
Ijóslega að Ríkarður hefir næmt
auga fyrir öðrum línum en and-
litsdráttum. Og myndir af allmörg-
um íslenskum bændum og gamal-
mennum bera þess glöggan vott að
Ríkarði er sýnt úm að finna og
varðveita það sem sérkennilegt er
og íslenskt í »þjóðarandliti« voru.
Enda er þar enn um all auðugan
garð að gresja, þótt flestir drættir
þess máist nú óðum. Frh.
Helgi Valtýsson,
Að gefnu tilefni skal þess getið,
að Tíminn birtir alls ekki greinar,
hversu góðar sem þær annars eru,
ef höfundur segir ekki ritstjóra til
hver hann er.