Tíminn - 04.09.1920, Side 4
140
TlMINN
IfiitagsHffi.
Skóverslun. Hafnarstræti 15.
Seltir landsins bestu gúmmí-
stigvél, fyrir fullorna og börn,
— ásamt alskonar leðui'skó-
fatnaði. Fyrir lægst verð.
Greið og ábyggileg viðskifti.
sé ekki hægt; minnist ekki á þingið
og þesskonar smáræði. Fér verðið
að koma! Eg skipa! Ef þér komið
ekki, er eg saunfærð um, að því
veldur einhver ill kona, sem held-
ur í yður.
í alvöru að tala: Eg bý yfir
miklum ráðum um að bjarga yður
úr mikluin óþægindum og koma
öllu vel fyrir. Pað er leyndarmál
mitt og eg þori ekki einu sinni að
hvísla um það. En þá er eg hugsa
um það og afleiðingarnar, þá segi
eg við sjálfa mig: Róma, þú ert
dásamleg stúlka og heimurinn væri
allur annai’, hefði sú ógæfa að
hönduxh borið, að þú hefðir ekki
fæðst.
En alt er undir þvi komið, að
þér komið, og þess vegna verðið
þér að hlýða raér, þegar í stað,
eins og góður drengur.
R. V.«
Það var fyrsta bféfið, sem Davíð
Rossí hafði fengið frá Rómu. Rað
var eins og loftið væri þrungið af
hinni skæru rödd hennar er hann
las það. Ilmurinn af því barst að
vitum hans og ósjálfrátt bar hann
það að vörum sínum. Hann tók
eftir því um leið, að Brúnó var
enn inni í stofunni. Rossí sá það
á honum, að hann bjó yíir ein-
hverju.
»Var það eitthvað, sem þér
vilduð, hr. Rossí?«
»Ekki í kvöld, Brúnó. Yður er
óhætt að hátta«,
»Er það alveg víst, að það sé
ekkert?«
Davíð Rossi stóð upp og gekk
hægt um gólfið.
Það er eitthvað sem þér vilduð
segja mér, er ekki svo, Brúnó?«
»Jú! Fyrst þér spyrjið mig, þá
vildi ég segja nokkuð«.
»Hvað er það?«
Brúnó klóraði sér í úfnum koll-
inum og skimaði eftir hjálp Hann
leit loks á bréfið.
»t*að var um þetta sem ég vildi
tala. Ég veit hvaðan það er«.
»Hvað svo?«
Brúnó var hræddur að sjá, en
hann náði sér aftur og orðin hrutu
af vörum hans eins og vatn úr
flösku.
stjórn á liði sínu. Höfðu Frakkar
sent til Varsjá marga af sínum
frægustu görpum, gáfaða menn og
þaulreynda úr heimsstyrjöldinni.
Beitlu þeir sömu aðferðum eins og
Joffre marskálkur 1913, er hann
sneri á flótta aðsóknarher Þjóð-
verja eftir orustuna við Marnefljót-
ið. Bolchewickar höfðu sótt fram
margar vikur voru þreyttir og
höfðu ekki bak við sig þanp járn-
brautarkost, sem nauðsynlegur var
til að geta staðist gagnáhlaup ó-
þreyttra hersveita, sem höfðu öll
hin bestu hergögn og ágæta forustu.
Frakkar hafa nú um stund kom-
ið tafli sínu á Póllandi í sæmilegt
horf, en vanséð er hve lengi það
stendur, því að Bolchewickar hafa
enn mikinn liðsafla og munu hvergi
nærri uppgefnir. Segja síðustufréttir
að þeir dragi saman ógrynni liðs
á vígstöðvarnar pólsku og sé aftur
sókn af þeirra hálfu. En sigur
Frakka við Varsjá eyddi öllum
friðarvonum í ár. Stríðið, hungrið
og taugaveikin munu halda áfram
morðverkunum í Austur-Evrópu
einn veturinn enn. Og kornbirgðir
Rússlands og steinolíulindir verða
enn eitt .árið lokaðar fyrir kaup-
fúsum Vesturlanda-búum. Og vafa-
samt er hvort franska þjóðin stend-
ur nær með skuldheimtuna, heldur
en áður yar, A *
Lífsátiyr|Oarfélaoii DANMARK
-= Stofnað 1871. =-
Sljórnendur: A. V. Falbe Hansen dr. jur„ konferensráð,
landsþingsmaður og cand. polyt. P. Lönborg.
Skutdlausar eignir ca. 30 milj. kr. Tryggingarupphæð 135 milj. kr.
Pessi 30 miljóna eign er sameiginleg eign þeirra sem líftrj'gð-
ir eru í félaginu. — Alíslensk læknisskoðun sem fyr, og polísa »
frá skoðunardegi hér. — Félagið hefir keypt fyrir yflr 50
• púsund krónur i bankavaxtabréfum Landsbanka íslands. — Fé-
lagið hefir lánað bæjarsjóði Reykjavikur 150 þúsund krónur.
Hár bónus. Lág iðgjöld.
Aðalumboðsmaður:
Porvaldur Pálsson, læknir
BauUastræti ÍO.
Ritstjórum blaðanna er kunnugt um að lífsábyrgðarfélagið Daumark tekur og
hefir tekið íslenska læknisskoðun full-gilda og heimilað umboðsmanni sinum
hér að afhenda skírteini pegar að læknisskoðun afstaðinni.
Nýjar bækur:
Um áburð eftir Sig. Sigurðsson, formann Búnaðarfélags íslands. Með
mörgum myndum. Verð 6.00, innb. 9.00.
Vígslóðl, styrjaldarkvæði eftir Stephan G. Stephansson. Upplag að eins
tæp 700 eintök. Verð 3.50, innb. 6.00. — Bíðið eliki eftir þvi að
hún þrjóti.
Tímarit Pjóðræknisfélftgs íslendinga í Vesturheimi. I. ár. Verð 6.00. —
Enn er nokkuð eftir af þessu slórmerkilega og vandaða riti og æltu
fslendingar hérna megin hafsins að sjá sóma sinn í að kaupa ritið
upp og það sem fyrst. Að eins 400 eintök komu til landsins.
Þurheysgerð eftir Metúsalem Stefánsson. Verð 1.25.
Kaldavermsl, kvæði eftir Jak. Jóh. Smára. Innb. í alsilki, gylt snið,
hylki. Verð 20.00. — Bezta tækifærisgjöfin!
Ljóðfórnir eftir R. Tagore. Innb. í silki 10.00.
\
Söngvar förumannsins eftir Stefán frá Hvítadal. Innb. í silki 12.00
Svartar fjaðrir eftir Davið Stefánsson. Verð 8.00, innb. 12.00, með
skinnhylki 13.50.
Fóstbræður eftir Gunnar Gunnarssoni Verö 8.50, innb. 13.50. — Tví-
mælalaust langbesta bók Gunnars!
• •
Bækur þessar fást hjá öllum bóksölum á landinu eða beint frá
Bókaverslnn jitsxh ^rnasoaar, Keykjavik.
»Blátt áfram það, að fólk er
farið að tala um yður«. ,
»Hvað segir það?«
»Hvað það segir . . I Ég barði
einn rétt áðan, svo að haun rauk
um koll, fyrir það! Hann var full-
ur — en maður beyrir einmitt
sannleikann hjá því fólki; og hvað
skal segja ef það er satt«.
»Ef hvað er satt?«
»Að eitthvað hafi komist upp á
milli yðar og fólksins!«
»Segja menn það?«
»Já, hr. Rossí. Og lítur ekki svo
út. Þér- verðið að játa að það lítur
ekki vel út. Fólkið festi von sina
á yður þá er þér hófuð máls um
lýðveldið. Nú er mánuður liðinn
og þér hafið engu komið í verk«.
Rossí gekk álútur fram og aftur
um gólfið.
»Þolinmæði!« segi ég, »sá verð-
ur drýgstur sem fer hægt«, segi
ég. Svo er nú það. En stjórnin, hr.
Rossi, hún heldur hiklaust sinni
stefnu. 40,000 hermönnum er stefnt
samau til þess að halda í hemil-
inn á fólkinu. Enginn veit hvað að
höndum ber, þá er brauðskatturinn
gengur í gildi, binu fyrsta næsta
mánaðar. Það er ekki verra að
deyja af skoti, en úr hungri«.
Davíð Rossí svaraði ekki og í
angist sinni hélt Brúnó áfram.
»Fólkið festi von sína á yður,
en heill mánuður er liðinn . . . «
»Hvað segir fólkið um ástæð-
una?«
»Ástæðuna? Hafið þér ekki heyrt
þetta; Sólin í augun, orustan töp-
uð. Það er ástæðan. Sólin í augun
— þér skiljið hvað ég á við. Ann-
að kvöld á fyrsti fundurinn að
vera í forstöðunefndinni. Þér hafið
sjálfur boðað hann, en þó halda
flestir að þér munuð ekki koma.
Og hvar eruð þér þá? í húsi vondr-
ar konu!«
»Brúnó!«, hróppði Rossí i ströng-
um róm, »hvaða rétt hafið þér til
að segja þetta?«
Brúnó var agndofa yfir dirfsku
sinni, en hann reyndi að bjargast
með þvi að hleypa skapi i sig.
»Rétt! Eg hefi vinarréttinn. Eg
get ekki horft á það, án þess að
hafast að, að þér séuð svikinn!
Fyrirætlunin er sú að yfirbuga
þjóðina með því að veikja foringj-
ann. Konunni er att af stað til að
afvegaleiða manninn. Sú saga er
jafngömul Metúsala. Hafið þér ekki
heyrt orðtækið: Maðurinn er eldur,
konan er tundur, svo kemur djöf-
ullinn þeim saman«.
Brúnó hafði talað sig heitan, en
reyndi nú að brosa beisklega.
Davið Rossí stóð beint andspænis
honum.
»Eg veit hvað eg fer með. Ráð-
herrann stendur á bak við. Bon-
ellí baróni er all af gert aðvart
um það, er Davíð Rossí heimsækir
Donnu Rómu. Þau skrifast á á
hverjum einasta degi. Eghefisjálf-*
ur sett bréfin í póstkassann. Hús
hennar, er hús hans. Hvaðan ætti
hún að fá vagna, hesta, þjóna og
einkennisbúninga ?«
Brúnó varð æ órórri og þó hélt
hann áfram.
»Hún dregur yður á tálar, hr.
Rossí! Það er alveg greinilegt!
Þér hittuð hana í hjartastað og
gömlu blóðsuguna líka, þá er þér
tölúðuð á torginu um daginri. Nú
ætlar hún að hefna sín og hans«.
»Nú er nóg komið, Brúnó«.
»ÓI1 borgin veit það. Og allir
munu hlægja að yður!«
»Eg hefi sagt, að nú er nóg
komið! Farið að hátta!«
»Sei, sei já. Hjarlað segir lil sín
og tekur ekki sönsum!«
»Farið að hátta, segi eg«, hróp-
aði Rossí og þá þagnaði Brúnó,
því að liann heyrði, að nú var
alvara á ferðum.
»Það hefði átt að vera nóg, að
það var kjaftæði yðar að kenna>
að eg gerði konu þessari rangt
til«.
»Mér að kenna?«
»Já, yður!«
»Alls ekki!«
»Jú, ef eg hefði ekki hlýtt á það
sem þér sögðuð um hana, áður
en eg þekii og sá hana sjálfur,
þá hefði eg aldrei sagt það, sem
eg sagði«.
»Hún átti það alt skilið, sem
þér sögðuð«.
»Hún átti ekkert af því skilið,
og það voru lygar yðar sem því
ollu, að eg baktalaði hana«.
Brúnó drap titlinga eins og hon-
um hefði verið -rekinn löðrungur.
Svo reyndi hann að hlægja.
»Látið mig bara hafa það. Asn-
inn er keyrinu vanur. En, farið
ekki of langt, Davíð Rossí!«
»Þá ættuð þér ekki að henda á
lofti ósannindi og lygifregnir«.
»Lygifregnir! Heilög guðsmóðir!
Er það lygifregn, að hún tældi
ýður á vinnustofuna sina til þess,
að skemta vinkonum sínum. —
Er það lygifregn?«
Og Brúnó misti alveg stjórn á
sér og rak upp hlátur, svo að tók
undir í stofunni.
»Haldið bara áfram, finnist yður
það við eiga!«
»Hvað eiga við?«
»Að eta brauð hennar, og tala
illa um hana!«
»Það er lygi, Davið Rossí, og
það er yður vel lcunnugt! Það er
mitt eigið brauð, sem eg et, en
ekki hennar. Yinna mín, er mín
eigin eign, og eg get selt hana
hverjum sem er. En samvisku mína
getur hún ekki keypt!«
Andlitið á Davíð Rossí bráðnaði
eins og snjór fyrir sólu.
»Það var órétt af mér að segja
þettta, Brúnó. Eg bið yður fyrir-
gefningar«.
»Segið þér þetta og það eftir að
eg hefi móðgað yður?«
Davíð Rossi rétti honum hend-
ina og Brúnó tók fast i hana.
»Eg hefi engan rétt til þess, að
vera yður reiður, Brúnó. En j'ður
skjátlast um Donnu Rómu. Trúið
mér, kæri gamli vin. Þér gerið
henni hörmulega og hræðilega
rangt til«.
»Þér haldið þá, að hún sé góð
og heiðarleg kona?«
»Eg veit að hún er það«.
»Væri betur að eg gæti trúað
henni eins og þér. En eg hefi þekt
hana í tvö ár«.
»Og eg hefi þekt hana í tuttugu!«
Það mátti lesa hina mestu undr-
un í andliti Brúnós.
»Viljið þér vita hver hún er?
Hún er dóttir vinar míns gamla
á Englandi«.
»Hans, sem dó á EIbu?«
»Já«.
»Hans, sem fann yður og ól
upp, þá er þér voruð fátækur
drengur í London«.
»Hann var faðir Donnu Rómu«.
»Hann var þá af Volonna-
ættinni«.
»Já og mér var sagt ósatt — að
hún væri dáin og grafin«.
Brúnó þagði andartak og svo
sagði hann klökkur.
»líversvegna drápuð þér mig
ekki, þá er eg sagði, að hún myndi
svíkja yður? Fyrirgefið mérl«
»Eg fyrirgef yður Brúnó, í henn-
ar nafni en elcki í mínu«.
Brúnó sneri sér undan. Ljósið
féll á grammófóninn þá er hann
opnaði dyrnar, hann benti á hann
og sagði:
»Var það hann, sem sagði yður
það?«
Rossí kinkaði kolli.
»Voru það boðin, sem liann
flutti?«
Rossí kinkaði aftur kolli:
»Það voru síðustu orð vinar
míns gamla til mín. Á banasæng-
inni sagði hann mér frá því, hvar
dóttir sín væri, hvílíkum hæltum
hún væri i, og Jtíl mér að gæta
hennar og bjarga henni«.
»Það var ef til vill þess vegna,
að þér .... fóruð lil hennar . . . «.
»JáI«
»Það var til þess, að hlýða síð-
ustu orðum vinarins, að þér léluð
þessa heimskingja og iðjuleysingja
hæða yður pg móðga?«
»Já!«
Nú komu tár fram í augun á
Brúnó:
»Gleymið því sem eg sagði um
heimsókn yðar til hennar«.
1 »Nei, eg get ekki gleymt þvi og
eg vil ekki gleyma því, og eg ætla
ekki að heimsækja hana oftar«.
»Þér eruð þá búnir að uppfylla
bæn vinar yðar«.
»Guð einn veit. En eg hefi gert
það sem eg hefi getað, og nú er
það búið«.
»Ætlið þér að hætta kynnum
við hana?«-
Rossí svaraði ekki.
»Hví skylduð þér ekki tala við
dóttur gamla vinar yðar?«
»Hafið þér gleymt því, Brúnó,
sem eg sagði einu sinni: Fari mér
að þykja of vænt um konu, mun
eg flýja hana?«
»En hvers vegna, .sé hún góð?«
»Munið þér heimsókn Carls Ming-
liellís ?«
»Já«.
»Hann ætlaði, af persónulegum
ástæðum, að fremja verk, sem
virtist folkinu í liag. Eg rak hann
út. — Haldi eg áfram, er eg ekki
hóti betri«.
Brúnó þagði andartak og sagði
svo:
»Eg skil þaðl Guð hjálpi yður,
Davíð Rossíl Einmunaleg er leiðin,
sem fyrir yður liggur«.
Rossí dró þungt andann og bjóst
til að skrifa.
»Eg kem á fundinn annað kvöld,
Brúnó«.
»Góða nólt«, sagði sá gamli góði
maður og þurkaði sér um augun.
Fréttir.
Horíar eru orðnar afleitar hér
syðra um fiskþurk og heys. Eru
þeir teljandi sólskinsdagarnir á
suðurlandi síðan sláttur byrjaði
og nú eru liðnar margar vikur
þurklausar. .
Knattspyrnumóí stendur enn
yfir í bænum og tekur knatt-
spyrnufélag Vestmanneyínga þált
í því auk Reykjavíkur-félaganna
Þriggja.
„ísland“ kom frá Kaupmanna-
höfn um síðustu helgi. Meðal far-
þega voru Jónas Jónsson skóla-
stjóri samvinnuskólans, ásamt með
konu sinni og Sveinn Björnsson
sendiherra. Skipið fór aftur um
miðja vikuna og flulti út um 200
besta.
Yísi-Gísli. Alþýðufyrirlestur um
hann, eftir Brynleif Tobíasson rit-
sljóra, hefir blaðinu borist, skemti-
legt erindi og fróðlegt, útgefið á
Akureyri af Oddi Björnssyni. —
Sömuleiðis erindi sama höfundar
um Grím Thomsen skáld.
Einn og yfirgefinn stendur Vísir
uppi með sínar fáránlegu kenn-
íngar um gengi íslenskrar krónu.
Hefir gengið maður undir manns
hönd, að koma vitinu fyrir rit-
stjórann, en hann ber höfðinu við
steininn og segir alt vitleysu, sem
allir aðrir segja, eftir reglunni:
»vér einir vitum«. Stefna Vísis er
í fæstum orðum þessi: að skamma
Dani hlóðugum skömmum fyrir
fjárdrátt og biðja þá um leið um
ölmusu.
Úr ferðalagi. Margir Reykvík-
ingar eru að koma heim úr sumar-
ferðalagi. — Forsætisráðherra og
fræðslumálastjóri eru nýkomnir úr
ferðalagi um Norðurland og Einar
Helgason garðyrkjustjóri úr ferða-
lagi um Austur- og Norðurland,
Síldveiðaskipia eru nú að koma
að norðan hvert af öðru.
Ritstjóri:
Tryggri Þórhallsaoa
Laufási. Simi 91,
Prentsmiðjaa Guleabe rg,