Tíminn - 18.03.1922, Qupperneq 1
©jaíbferx
©mans cr 51 a, u r a, e i r g r i i>
r i f s f o n, 5aniban6sl7Ústnu,
HeYfjauíf.
^.fgreibsía
ílímans cr bjd © u t g c i r i
3 ó n s f y n i, l^ucrfisgöíu 54-
Sími 286.
TI. ár.
Reykjavík 18. mars 1922
11. blað
Tíl Alþinéis íslendinéa!
Af hálfu Góðtemplarastúknanna í Reykjavík og ná-
grenni, og Umdæmisstúkunnar nr. 1, og í fullu umboði
leyfum vér undirritaðir oss að bera fram íyrir hið háa
Alþingi eftirl'arandi erindi um frumvarp það, sem hin
íráfarandi landsstjórn hefir b'orið fram um stórkostlegar
breytingar á lögunum um aðflutningsbann á áfengi,
vegna kröfu Spánverja.
1. Ekki verður um það deilt, að af hálfu fráfarandi
landsstjórnar hefir undirbúningur verið í mesta máta
ónógur. Viljum vér í því efni benda á:
a) Að ekki er það kunnugt, að landsstjórnin hafi
gert neitt til að útvega markað annarstaðar fyrir
fiskinn, hvorki á tímabilinu áður en samningunum
var sagt upp — sem talið var víst löngu áður að
gert yrði — né á þeim langa tíma, sem liðinn er
síðan samningunum var sagt upp, og full vissa var
fengin um, að um alvarlegan ágreining væri að ræða.
b) Að fráfarandi stjórn hefir dregið málið óhæfi-
lega lengi og haldið málsatriðum leyndum fyrir ís-
lenskii alþjóð, þvert á móti vilja utanríkisstjórnar-
innar dönsku, að því er oss er kunnugt.
c) Að fráfarandi stjórn hefir algerlega lagst undir
höfuð að leita styrks og atfylgis hjá stórþjóðunum,
bæði siðferðilega og efnalega, en nú er kunnugt orð-
ið, að slíkur styrkur hefði verið auðfenginn.
d) Að fráfarandi stjórn hefir, að því er oss er frek-
ast kunnugt, ekkert gei*t til þess að leita samvinnu
við frændþjóð vora, Norðmenn, sem hefir sömu að-
stöðu og vér í þessu, og virðast þó hafa komið fram
bendingar í þá átt, að slík samvinna hefði mátt
takast.
e) Að fráfarandi stjórn hefir notað aðstoð þess Is-
lendingsins við samningana á Spáni, sem kunnur
var að því að vera einn ákaíasti andstæðingur bann-
laganna og ber að fjandskap við þau frá upphafi
vegar. En vér lítum svo á, að fyrir þessa sök sé
þjóðinni skylt að tortryggja hann, þó að vér hins-
vegar viljum ekki fella neinn dóm um gjörðir hans.
2. a) Hinsvegar er alkunnur árangurinn af ferð Einars
H. Kvaran, af hálfu Islands og Stórstúku íslands,
bæði á alþjóðafund bindindislöggjafar í Sviss og á
fund enskra bindindisvina, og voru meðal þeirra
margir enskir þingmenn og aðrir áhrifamenn. Hefir
risið mjög sterk alda á Englandi gegn þessari kúg-
unartilraun Spánverja og má telja mjög líklegt, að
árangur þeirrar ferðar hefði þó orðið enn meiri, ef
Einar hefði fengið þá aðstoð af hálfu íslensku stjórn-
arinnar, sem hann æskti eftir og sjálfsögð átti að
vera.
S « -.......
'WWSPy, ... ..* ^.. ..... ,
Fyrir hönd st. Verðandi nr. 9, sem hefir 649 félaga.
Árni Jóhannstson, Bjarni Þórarinsson, Gisli Jónasson,
bankaritari. præp. hon. kennari,
Haraldur Níelsson, Sigurður Gunnarsson,
prófessor. præp. hon. .
Sigurður Þorsteinsson, Tryggvi Þórhallsson,
sildarmatsmaður. ritstjóri.
Fyrir hönd st. Einingin nr. 14, sem hefir 231 félaga.
Borgþór Jósefsson, Iíelgi Helgason, Jónatan Þorsteinsson,
bæjargjaldkeri. verslunarmaður. kaupmaður.
Páll Jónsson, Sigurður Sigurðsson,
verslunarstjóri. ráðunautur.
Fyrir hönd st. Víkingur nr. 104, sem hefir 82 félaga.
* s
Guðm. Jónsson, Magnús V. Jóhanncsson, Ólafur Olafsson,
sjóm. sjóm, frikirkjuprestur.
Fyrir hönd st. Skjaldbreið nr. 117, sem hefir 200 félaga.
Einar Þórðarson, Felix Guðmundssun, Friðrik Björnsson,
skósmiður. verkstjóri. skipstjóri.
Guðgeir Jónsson, Þorsteinn J. Sigurðsson,
bókbindari. kaupmaður.
Fyrir hönd st. „Mínerva“ nr. 172, sem hefir 105 félaga.
Ami Sigurðsson, Andrés G. Þormar, Björn 0. Björnsson,
cand. theol. simritari cand. theol.
b) Enn fremur er alkunnugt orðið, hver tíðindi hafa
gerst undanfarið um málið í Noregi.
að við nýlega afstaðnar kosningar hafa bann-
menn unnið sigur þar,
að stjórn sú í Noregi, sem láta vildi undan,
hefir orðið að fara frá völdum,
að síðan hafa Spánverjar fallið frá fyrri kröf-
um sínum og boðið vægari kosti,
að síðustu fréttir benda til, og uminæli þeirra
manna sér, sem kunnastir eru norskum högum, hníga
í þá átt, að Norðmenn muni ekki einu sinni ganga
að þessum vægari kröfum Spánverja.
c) Enn fremur er það kunnugt af síðustu fregn-
um, hversu hinir mjög fjölmennu bannmenn í Banda-
ríkjunum og jafnvel þing Bandaríkjanna muni snú-
ast í málinu, að hafin eru frjáls samtök um öll
Bandaríkin um að kaupa ekki spánskar vörur, og að
legið geti við borð fullkomið tollstríð af hálfu Banda-
ríkjanna á hendur Spánverjum.
d) Loks eru nýkomnar fregnir um að nýtt ráðu-
neyti hefir tekið við völdum á Spáni, og því ekki
loku skotið fyrir, að sú stjórn líti öðru yísi á máíið,
því' fremur sem kunnugt er, að mikill þorri almenn-
ings á Spáni er andvígur þessari tollmálastefnu.
Enn er það frétt, að Spánarkonungi hafa borist
áskoranir frá merkum vísindamönnum og stjórnmála-
mönnum frá mörgum helstu menningarlöndum (Sví-
þjóð, Danmörku, Finnlandi, þýskalandi, Sviss, Ítalíu,
Tjekkó-Slóvakíu, Serbíu, Hollandi, Belgíu, Frakk-
landi, Englandi og Ameríku). Hefir þetta ávarp ver-
ið sent forsætisráðherra íslands.
3. þar sem nú eru svo sterkar líkur fyrir því, að Norð-
menn hefji fremur tollstríð við Spán en að láta und-
an kröfunum, en hitt er alkunnugt, að aðalmarkað-
ur fyrir íslenskt saltkjöt er í Noregi, verður það að
teljast mjög hættulegt vegna þess markaðs, að við
látum undan kröfum Spánverja. Undanlátssemi okk-
ar við Spánverja myndi verða þeim til mikils styrks
í tollstríðinu við Norðmenn. Liggur því nærri að
ætla, að Norðmenn svöruðu með svo háum tolli á
íslenskt saltkjöt o. fl. afurðum, að markaðurinn
væri sama sem lokaður.
4. þarf ekki nema að minna á afleiðingar þess' bæði í
efnalegu og siðferðilegu tilliti, að aftur væri heimil-
aður víninnflutningur til landsins. Samræmist það illa
þeirri stefnu, sem nú er þjóðinni íslensku lífsnauð-
syn, að neita sér um þann erlendan varning, sem er
með öllu ónauðsynlegur og í þessu tilliti beinlínis
skaðlegur. Beina og óbeina efnatjónið af víninn-
flutningi verður ekki með tölum talið. En þó verð-
ur efnatjónið lítið á móti hinni margvíslegu siðferði-
legu spillingu, sem áfengisnautninni fylgir, og þeirri
Virðingarfylst.
Fyrir hönd st. Framtíðin nr. 173, sem hefir 162 félaga.
Guðm. Gamalielsson, S. Á. Gíslason, Sigurjón Jónsson,
bóksali. eand. theol. bóksali.
Sveinn Jónsson, Þorhergur Ólafsson,
kaupmaður. rakari.
Fyrir hönd st. Daníelsher nr. 4 í Hafnarfirði, sem telur
89 félaga.
Bjarni Sigurðsson. Kr. F. Arndal. Sveinn Auðunnsson.
Fyrir hönd st. Framför nr. 6 í Garði, sem hefir 60 félaga.
Einar Magnússon, Gisli Sighvatsson, Guðm. Jónsson,
kennari.
sjom
sjom.
Fyrir hönd st. Morgunstj arnan nr. 11 í Hafnarfirði, er
hefir 207 félaga.
Guðrún Einarsdóttir. Jensína Árnadóttir. Jón Mathiesen.
Fétur V. Snœland. Sigurgeir Gislason.
Fyrir hönd st. Keflavík nr. 114 í Keflavík, sem hefir
72 félaga.
Einar Einarsson, Guðjón Egilsson, Guðm. Hannesson,
smiður. sjóin. oddvíti.
hnignun og úrættun kynslóðarnnar, sem henni er
. ávalt samfara.
5. Mai'grætt er það orðið og hlýtur að vera öllum hugs-
andi mönnum ljóst, hversu hættulegt það er að
stíga fyrsta sporið í þá átt að þola það, að erlend
þjóð segi íslensku þjóðinni fyrir um löggjöf í al-
innlendu máli og það í máli, sem varðar svo mjög
mannúð og siðferði. Verður ekki séð fyrir afleiðing-
arnar af því spori. Verður ekki annað sagt, en að
með slíku hljóti þjóðinni að minka virðing á sjálfri
sér. Og hitt er vitanlegt, að stígi þjóðin slíkt spor,
hlýtur vegur hennar mjög að þverra í augum ann-
ara þjóða, það því fremur, sem þær þakka okkur
það fordæmi, sem vér höfum gefið þeim,og þær fær-
ast óðum nær því takmarki, sem vér þegar höfum
náð, enda veita þær oss nú mikinn styrk í þessari
baráttu.
6. Loks leyfum vér oss að minna á, að fundasamþyktir
hér á landi, hvaðanæfa að, benda ótvírætt í þá átt,
enda er það alkunnugt, að allur þorri íslensku þjóð-
arinnar vill berjast til þrautar til þess að fá sigur
í þessu máli.
Vér ljúkum þá máli voru með eftirfarandi
ÁSKORUNUM:
I. að hið háa Alþingi samþykki ekki frumvarp hinn-
ar fráfarandi stjórnar um breytingar þessar á
bannlögunum, sem eru í raun og veru ekki annað
en afnám þeirra,
II. að hið háa Alþingi feli núverandi landsstjórn að
hefja nýja sanminga við Spánverja á þeim grund-
velli, að ekki verði samið um hina íslensku áfengis-
löggjöf.
JII. Að senda þá sendimenn til Spánar til aðstoðar við
nýja samninga, sem þjóðin getur borið fult traust til,
IV. að athuga hvort ekki sé rétt að taka höndum sam-
an við Norðmenn í þessari sameig'inlegu baráttu
okkar og þeirra við Spánverja,
V. að athuga hvort ekki sé rétt að senda menn til
Bandaríkjanna til þess að leita þar frekara fulltingis,
VI. að láta einskis ófreistað um að útvega markað fyrir
íslenskan fisk annarstaðar en á Spáni, ef til kemur,og
VII. að breyta í engu áfengislöggjöfinni til hins verra, án
þess að þjóðin fái að neyta þess réttar, sem hún á
tvímælalaust: að greiða um það þjóðaratkvæði, þar
eð lögin voru í öndverðu sett samkvæmt slíkri alþjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Fyrir hönd st. Dagrenning nr. 175 í Sandgerði, sem hefir
35 félaga.
Björn IlaUgrimsson, Jarþrúður Bernharðsdóttir,
útvegsbóndi.
Sigurður Kjartansson,
verslúnavmaður.
Fyrir hönd st. þörf nr. 182 í Grindavík, sem hefir
70 félaga.
Guðsteinn Einarsson, Ingv. Einarsdóttir, Ólafur Amason,
sjom.
útv.b.
Fyrir hönd Umdæmisstúkunnar nr. 1, er nær yfir Reykja-
vík, Gullbringu- og Kjósar og Borgarfjarðarsýslur.
Bjarni Pétursson, Flosi Sigurðsson, G. Sigurgeirsson,
verkstjóri. trésmiður., verkstj.
Ingóifur Jónsson, Isleifur Jónsson, Kristj. Ó. Benediktsd.
stud. jur. skólastj.
Ottó N. Þorláksson, Pétur Zóphóníasson,
skipstjóri. fulltrúi.
Róhert Þorbjörnsson, Sigvaldi Bjarnason,
bakari. trésmiður.