Tíminn - 16.09.1922, Side 1

Tíminn - 16.09.1922, Side 1
©faíbferi og afLjreiðsIumaöur Cimans er 5 i 9 u r 9 e i r ^riðriísfon, 5amban6st)úsínu, JveYfjauíf. C í m a tt s er í Sambanðsfyúsinu. ©pin öagleya g—(2 f. I) Sími 49fi. r*— ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ flfbragðs fegund af hreinum Yirginiu sigarettum. Smásöluverð 65 aurar. Frægap fypip gæði. VI. ár. Stéttirnar og stjórmnálin. Einhver algengasta ásökunin sem mótstöðumennirnir beina að Tímanum, er þessi: þið eruð að búa til stéttaríg í landinu. Hin pólitisku samtök bænda sem að Tímanum standa eru stéttapólitík. þessar ásakanir eiga svo að tala sjálfar máli sínu. það er gefið í skyn að hér sé um einhverja al- óheyrilega óhæfu að i’æða á voi’u landi Islandi. Og kaupmennimir í Morgunblaðinu hrópa einum rómi: Bændur! Varið ykkur á stétta- rígnum og stéttapólitíkinni sem rekin er í Tímanum! jpetta mál skal nú athugað nán- ar. Og er þá rétt að virða fyrir sér nútíðai’ástandið í þjóðfélaginu íslenska. Verkamannahreyfingin er að komast í fastar skorður á íslandi, þótt ung sé. Langöflugust eru samtökin oi’ðin í Reykjavík. En greinar þeirra eru komnar um alt land. Verkamannahreyfingin er stétta barátta bæði í efnalegu og pólit- isku tilliti. Verkamannaíélögin hafa hafið baráttuna um verkakaupið, stytt- ing vinnutímans, um yfirvinnu o. s. frv. Alt eru þetta hagsmuna- mál stéttarinnar. Samhliða ex-u verkamannafélög- in orðin harðsnúin pólitisk félög, eins og utanlands. Stjónimálastarfsemi er sem sé ein aðalleiðin til að gæta lxags- muna stéttarinnar. það fer ekki hjá því að áhrif- in fari að koma þaðan á löggjöf íslands, eins og á löggjöf annai'a landa. Fyrsti vísirinn ei*u vöku- lögin á togurunum. Stéttabarátta blasir við í al- gleymingi í félagsskap hins fjöl- menna verkalýðs á Islandi. Á þetta við nú um verkamenn kaupstaðanna bæði þá er vinnu stunda á sjó og landi. — Fiskifélagið er stéttai-félag þeirra manna einkum, sem útgerð xeka í smáum stíl. J>að nær nú um alt land. því miður hefir sá félagsskapur ekki enn náð þeim þroska sem skyldi. Á Fiskiþingi í fyri’a segir svo í nefndaráliti með- al annars: „Eins og kunnugt er eru nú bændur ár frá ári að þjappa sér betur saman um hags- muni stéttarinnar, bæði hvað snertir verslun þeirra og áhrif á skattalöggjöf landsins og styrk- veitingaráð, og standa þeir nú sigri hrósandi yfir fiskimanna- stétt landsins sundraðri og for- ystulítilli og því nær með öllu áhrifalausri í hagsmunamálum sínum. Nefndin er á einu máli um það að þetta megi ekki lengur svo til ganga, heldur verði Fiski- félagið að' beita sér meira en það hefir gert fyrir því, að samtök myndist meðal fiskframleiðenda og fiskimanna þessa lands“. Ummæli þessi eru ljós vottur um hvert stefnir í þessu efni og er það vel farið. En því miður urðu mistök um val á forystu- manni á þessu ái*i, en það mun vonandi lagast. — Iíitt er alkunnugt, að stórút- gei’ðarmennimir eiga með sér öfl- ugan stéttarfélagsskap. Hafa þeir átt og eiga öfluga fulltrúa á al- þingi og hafa komið ár sinni þar vel fyrir borð (t. d. ríkisábyrgðin á togaralánunum). Um þátttöku stórútgerðarmannanna í pólitiskri blaðaútgáfu verður síðar rætt. — í hlutfalli við fólksfjölda er em- bættismannastéttin af arf j ölmenn á Islandi. En vitanlega er þessi stétt miklu fámennari en verka- menn, bændur og sjávarbændur. Engu að síður hefir þessi stétt bundist í hai’ðsnúinn félagsskap til þess að gæta hagsmuna sinna. Mun öllum það í fersku minni er embættismannastéttin þvingaði gegnum þingið stórkostlegri launahækkun sér til handa með vei’kfallshótun. Mikill hluti embættismanna- stéttai’innax’, einkum hinir hæst- launuðu, standa eins og múr að hinum pólitisku samtökum sem gefa út Morgunblaðið og fleiri blöð. Engin stétt hefir átt hlutfalls- lega jafnmai’ga fulltrúa á þingi. það er mjög áberandi hve þeir fullrúar hafa bai’ist fyrir hags- munum stéttar sinnar (t. (J. Magnús Pétursson fyrir lækna- stéttinni). Jafnvel sumir bændur hafa í’aunverulega fyi’st og fi’emst stutt hagsmuni þeirrar stéttar (t. d. einkum Jón á Hvanná). — Stéttabaráttan í hinu íslenska þjóðfélagi kemur hvergi eins ber- lega í ljós og í framkomu kaup- mannastéttarinnar. Annarsvegar er hinn eiginlegi stéttarfélags- skapur kaupmannanna og er verslunai’i’áðið þar á oddinum. Ilinsvegar eru hin pólitisku sam- tök kaupmannanna. Nokkur hluti embættismannastéttarinnar og stórútgei’ðarmannanna hefir og bundist í þann félagsskap. Félagsskapur þessi ræður yfir langflestum hinna pólitisku blaða sem gefin eru út á íslandi: Morg- unblaðinu og Lögréttu í Reykja- vík, Fram á Siglufirði, Islending á Akureyi’i og Austanfara á Seyð- isfirði. Bardagaaðferð og hags- munabarátta þessarar og þessara stétta á stjórnmálasviðinu er svo alkunn, áð ekki þarf orðum að því að eyða. Síðasta tegundin þeirrar baráttu er laumupési kaupmanna- öldungsins Björns Kristjánssonar, sem settur er til höfuðs bænda- stéttinni og verslunarsamtökum bænda: samvinnufélögunum. þessar myndir af íslenska þjóð- félaginu munu nægja. það er Ijóst af þeim að hags- munabai-átta stéttanna er í al- gleymingi í hinu íslenska þjóðfé- lagi, ekki síður en í öllum þjóð- félögum í Norðurálfunni. þennan sannleika vill Morgun- blaðið reyna að fela fyrir alþjóð. Ásakanir þeirra um að bænda- stéttin íslenska, eða Tíminn af hennar hálfu, sé sérstaklega að stofna til sjéttarígs í lanind eru gjörsamlega rangar. Stjórnmálastarfsemi er beina leiðin til þess að gæta hagsmuna atvinnuveganna og þeirra stétta sem þá stunda. þessvegna hafa verkamennirnir, útgerðarmennirn- ir, embættismennimir og kaup- mennirnir, stofnað til þess félags- skapar, hagsmunalegs og stjórn- málalegs, sem nú hefir vei’ið lýst. Bændastéttin hlýtur að gera hið sama og á að gei’a hið sama. það ei’u bein ósannindi að bændurnir íslensku eða Tíminn af þeirra hálfu, stofni til stéttarígs eða stéttabaráttu fremur öðrum stétt- um hins íslenska þjóðfélags. það er af langflestum viður- kendur sannleikur að landbúnað- Reykjavík 16. september 1922 urinn er og verður að vera undir- staðan undir hinu íslenska þjóð- félagi. Blómlegur landbúnaður er eina tx-yggingin sem til er fyrir öi’uggri afkomu þj óðai’innai’, fyrir andlegri, siðferðilegri og líkam- legri hreysti þjóðarinnax’. Hinsvegar er það og viðui’kent af langflestum að landbúnaðurinn hefir verið hornreka á íslenska þj'óðai’búinu á undanfömum ár- um. Hann hefir dregist aftur úr í lífsbaráttunni vegna þess að lög- gjafar og fjárveitingai’valdið hefir ekki haft fullan skilning á þýðing landbúnaðai’ins, t. d. eru peninga- búðirnar nálega lokaðar fyrir bændastéttinni. En öllum era ljósar afleiðingar slíks skipulags. Af þessu ástandi stendur land- búnaðinum og hinu íslenska þjóð- félagi svo mikil hætta, að það er skylda bændastéttai’innai’, ekki eingöngu við sjálfa sig, heldur og við íöðurlandið, að bindast í öfl- ugan félagsskap til þess að bæta þetta ástand. Sá félagsskapur verður fyrst og fremst að vera pólitiskur félagsskapiu’. þessvegna hafa bændurnir ís- lensku stofnað Tímann í Reykja- vík og Dag á Akureyi’i. Og hvað sem líður ásökunum Morgunblaðsins og fylgihnatta þess, hvað sem líður blekkingun- um og rykinu sem blöð þau þyrla í augu almennings, skal þeim fé- lagsskap haldið áfram, í þeirri trú að vei’ið sé að vinna að því að efla og tryggja farsæla fi-amtíð til handa hinni íslensku þjóð. Steinolían. I. I hverju eintaki af stuðnings- blaði Jóns Magnússonar koma árásai’greinar á landsverslun fyr- ir að bjarga fiskimönnunum frá einveldi ameríska hringsins. þessi læti era sorglegur vitnisburður um hnignun nokkurs hluta þjóð- arinnar. Ekkert mál hefir fengið betri undirbúning en landsvei’sl- un með steinolíu. Síðan löngu fyr- ir sti’íð hefir þjóðin óskað eftir að losna- alveg . úr skiftum við Standard Oil. þingið hefir tvisvar samþykt lög um einkasölu. I þing- inu mælti enginn bót álagningu hi’ingsins. Fiskifélagið reyndi að keppa, með styrk úr landssjóði, en beið ósigur. Meðal þeirra sem sam- þyktu 1917 að landið tæki einka- sölu á steinolíu, voru þeir J. M, og M. G., núverandi forkólfar kaupmanna. þingið vildi að land- ið byi’jaði með einkasölu undir eins og hægt væri eftir að stríð- inu lyki. Á stríðsárunum keyrði um þvei’t bak með óánægjuna með ameríska hringinn. Lands- ^vei’slun byrjar að keppa og lækk- ar verðið stói’kostlega. Hringur- inn sjaldan minna en 15 kr. ofan við landsvei’slun. Án landsversl- unar hefði vélbátaútvegurinn leg- ið ósjálfbjai’ga við fætur hins er- lenda félags. Ai’ðui’inn af striti möi’g þúsund sjómanna runnið í vasa ei’lendi’a auðmanna og nokk- urra aðstoðarmanna þeiri-a hér á landi. 1 sumar er alt undirbúið fyrir einkasöluna. Landsverslun tekst að tryggja Islandi lægsta vei’ð á olíuheimsmai’kaðinum, á hvei’jum tíma. Var hægt að komast lengi-a? Átti samkepni vesalla pi-angai’a á íslandi að þi’ýsta olíunni ofan fyr- ir frumverð heimsmarkaðar ? Síð- an sparar landið tugi þúsunda, ef til vill hundi’uð, með því að flytja í stáltunnum, og spara rýmun. Frh. J. J. ----o---- Tvisvar verður gamall maður barn. B. Kr. hefir frá því hann byrj- aði vei’slunarprang sitt, haft beig af samvinnustefnunni. Hann reyndi á blómatíð sauðaútflutn- ingsins að keppa við félögin, fékk sauði hjá bændum í Árnessýslu og sendi út. En allur sá leiðangur fór í hundana. Verslunarþekking- ingin, sem B. Klr. er alt af að guma af, var ekki meiri en svo, að hann varð að gjalti er til Eng- lands kom. Hafði hann bæði skömm og skaða af þessari gróða- tilraun sinni. En gamlir bændur í Árnessýslu vita hvað mikið þeir græddu á kaupum B. Kr. Á gamals aldri vill B. Kr. reyna á nýjan leik. Rétt áður en land- póstar fóru, varð skipsferð í Borgarnes. B. Kr. vii’ðist þá hafa sent gríðarmikið af laumupésan- um til bænda í Borgarfirði. Skip- ið kom snemma dags upp eftir, og sýslumaður Borgfirðinga sást með blíðu brosi vex-a að útbýta þessu „stutta og digra“ launbarni B. Kr. meðal bænda. Skipið fór til Rvík- ur um kvöldið, og pésinn kom til eins af eigendum Tímans það sama kvöld. B. Kr. hafði látið prenta pésann í Actaprentsmiðju, þar sem Tíminn er prentaður. En svo mikinn vamað mun höf. hafa boðið á að leyna þessum óburði, að enginn af aðstandendum Tím- ans hafði hugmynd um myi’kra- verk B. Kr. Litlu síðar kom frétt af ísafirði, að pésinn væri kominn 38. blað þar á land úr einhveri’i skútu. Er auðséð á öllu þessu, að B. Kr. hefir farið með pésann eins og mannsmoi’ð, bæði í pi’entsmiðjunni og við að koma honum út um land. Daginn eftir að pésans varð fyrst vai-t í Borgamesi, fékk und- irritaður eitt eintak sent, ef til vill fi-á höf. En þá var komið að kvöldi og seinni landpóstui’inn á förum í býti morguninn eftir. Um leið og fi’éttin kom úr Borgamesi um þetta ófrægilega myrkraverk B. Kr., brá Tíminn við og sendi út aukablað. Sama blýið í setjaravél Actaprent- smiðju, sem var að kólna úr pésa Bjöms, tók nú á sig nýja mynd, og vai’ð að fyrstu tilkynningu um laumuspilið. Og í sömu póstunum, sem B. Kr. hafði ætlað að flytja ósannindin og dylgjurnar um kaupfélögin, fóru nokkur þúsund bréfa með skýi’ingum á athæfi mannsins, hvötum hans og foi’tíð. þó að pési B. Kr. sé j afnómei’ki- legur og raun ber vitni urn, gæti skeð að hann hefði blekt einhvei’ja fáfi’óða sál, ef ekki hefði verið þetta ódæma pukur við smíði hans og dreifing.B.Kr. mætti rnuna eftir „gula sneplinum“ sem einn samhei’ji hans sendi út um land með leynd hér á áranum. Pukrið eyðilagði þá sendingu. það var eiginlega aldi’ei minst á gula snep- ilinn nema fyi’ir það að með hon- um var gerð mishepnuð tilraun til að komast aftan að andstæð- ingi, af því kjai’kinn vantaði til að ganga beint undir vopnin. I pésanum segir B. Kr. að kaup- menn séu gáfuðustu menn land- anna. En því eru þeir þá manna gáfnatregastir og mentunarminst- ir hér? Hann segir að samvinn- an, með því að forða almenningi frá féflettingu, sé brot á „kæi’- leikslögmálinu“! Hann fer lítils- vii’ðandi oi’ðum um Jakob Hálf- dánai’son og Benedikt á Auðnum, án þess að nefna nöfnin. Karltetr- ið finnur einhvei’n öfundai’hi’oll, þegar hann minnist manna sem verða frægir fyrir að hafa rutt braut þjóðbætandi nýungum. þar finnur hann fátækt sína. Hann virðist ekki vita að dönsku kaup- félögin hafa samábyrgð. Heldur e'kki um samvinnuheildsölur ann- ara þjóða. Hann segir að enskum kaupfélagsstjórum sé bannað að taka þátt í pólitík. Veit ekki frem- ur en nýfætt bam, að blöð og að- alfundir enskra samvinnufélaga berj ast fyrir pólitisku samhaldi fé- laganna. Kaupfélag Skagfirðinga yngir hann um 21 ár. Sambandið um 14—15 ár. Dylgjur um að Sambandið muni hafa eða geti falsað reikninga sína. Heldur fast frarn að íslenskir bændur séu sameignarmenn og öreigar. En á hverju varð hann „öreigi“? Var það á því, sem Landsbankinn lán- aði í hans tíð gjaldþi’ota kaup- mönnum? Að síðustu vill hann láta drepa öll kaupfélög og Sam- bandið. Bændur eiga að koma í smáhópum með tólgarböggla og smjörpinkla til þeirra feðga Björns og Jóns og annara því líkra kaupmanna, svo að unt sé að framkvæma á þeim ,,kærleiksboð- orð“ sanni’ar kaupmensku. þann- ig er allur pésinn. Laumuspil, endurskin af lítilli gi’eind og tak- mai’kalausri fáfræði. Gamall mað- ur, sem á að baki sér eyðilegar rústir, er brjóstumkennanlegur fyrir að bæta svona „kaupmanns- striki“ seinast í viðskiftareikn- inginn. J. J.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.