Tíminn - 15.08.1925, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.08.1925, Blaðsíða 2
144 TIMIft N Smásöluverð má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir: KeyikitótjeLls:: Moss Rose frá Br. American Co. Kr. 8.05 pr. 1 lbs. Ocean Mixt. — sama -- 9.50 — 1 — Richmond V4 — sama — 12.10 — 1 — do. V8 — sama — 12.65 — 1 — Glasgow V4 — sama — 14.95 — 1 ’— do. '/« — sama — 15.55 — 1 — Waverley V4 — sama - 14.95 — 1 — Garriek >/* — sama — 22.45 — 1 — Utan Reykjavíkur má verðiö vera því hærra, sem nemur flutn- ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki vfir 2°/0. Landsverslun íslands. Að fara yfir lækinn til þess að sækja vatn hefir aldrei verið tal- in hagsýni — og að kaupa er- lendar þvottasápur, þegar að hægt er að fá jafngóða íslenska er eng- in hagsýni. — Reynslan hefir sýnt að Hreins Stangasápa jafn- ast fullkomlega við erlenda, hvað verð og gæði snertir, en hefir það fram yfir að hún er íslensk. — Fæst hjá öllum kaupmönnum og kaupfélögum. Engin alveg eins góð. Til kaupfélaga! H.f. SmjÖPlíkisgerðin í Reykjavík er stofnuð í þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega jafnaet á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir. Ellið íslenskan iðnað. Biðjið um ,Smára‘-smjörlíkið. Slcólarnir og Reglan. Eg geng að því vísu, að aðal- hlutverk Reglunnar sé uppeldis- starfið. það hefir verið, er og á að vera verk Reglunnar að kenna mönnum, og þessi kensla er fólgin í því að sýna fram á, að áfengi sé eitur, og að það eigi að vera við hlið annara eiturtegunda í sikápum lyfjabúða og hvergi ann- arsstaðar. þetta er aðalatriðið, og ef allir fengjust til að viðurkenna það, mundi veröldin brátt losna við alt það böl, er leiðir af nautn áfengis. Nú á það langt í land, að þessi viðurkenning alþjóða fáist, og jafnvel læknar spilla heilsu heilla herskara með því að byrla þeim áfengisblöndur. það sem veldur þessum býsnum er vaninn. Reglan hefir verið, er og mun enn lun langa hríð verða að berjast við ljótan vana, reyna að fá menn og konur ofan af því að drelcka áfengi. En besta ráðið í þessari baráttu er að stemma á að ósi, að fá börnunum forðað frá því að venjast á nautn áfengra drykkja, og tryggja það, að þau haldi áfram, er þau ná fullorðinsaldri, að halda sér frá áfengi. Á þenna hátt verður óvananum öruggast bygt út. það liggur í hlutarins eðli, að Reglan verður að sinna æskulýðnum í öllum löndum, beit- ast fyrir starfinu meðal hans, því að yfirleitt er það regla, að „það sem ungur nemur gamall temur“. Spá mín er sú, að ef Reglan fengi fylgi allra kennara t. d. hér á landi í lið með sér og presta, mundi sigurinn brátt vís í þessu máli. Ef kennarar allra skóla og prestar um land alt legði kapp á að halda æskulýðnum undir merki Reglunnar, mundi innan skamms upp rísa voldug og sterk kynslóð í þessu landi, fjandsamleg áfengi, og í öllum stéttum gæti að líta bindindismenn á áfengi og tóbak. Jeg fæ eigi skilið, að þeir foreldr- ar séu til í þessu landi, sem mundu spyrna á móti því, að börn þeirra yrði bindindismenn og kon- ur, ef kennarar og prestar sam- huga, skóli og kirkja í einingu andans og guðmóði, skildu köllun sína í þessu efni, og teldu það einhverja sína æðstu skyldu að gerast foringjar Reglunnar og safna börnunum undir vængi hennar. það er aðalatriðið, sem Stór- stúkan verður að leggja áherslu á, regluboðun framtíðarinnar, að vinna skóla og kirkju til fulls fylgis máli voru. Á þessu, og engu öðru en þessu, veltur fram- tíð Reglunnar og bannlaganna hér á landi. Ef það tekst, að fá ein- huga fylgi þessara tveggja stofn- ana — og ekiki einungis fylgi með vörunum, heldur í vel unnu verki —, þá blasir við oss í náinni fram- tíð þurt land, bygt vonsælli at- orkuþjóð, er þakkar leiðtogum sínum og blessar þá fyrir, að þeir leystu hana úr álögum, forðuðu henri frá að fylgja illu dæmi for- tíðarinnar, að spilla heilsunni með áfengi og tóbaki, eyða tíma í drykkjuslark og sóa fé sér til 1 óþurftar á alla lund. j Forvígismenn Regluhnar á landi I voru hafa hingað til verið alt of áhugalitlir um þessi mál. — Vér skulum atliuga, hvernig ástandið er og hvað hefir verið gert. Barnakennararnir eru yfirleitt fylgjandi bindindi og banni, en þó fáir með verulegum áhuga, og til eru menn í þessari stétt, sem eru drykkfeldir, en þora þó ekki, þeg- ar við þá er talað af forvígis- mönnum Reglunnar, annað en láta svo sem þeir séu hlyntir því, að börain gangi í stúku. — Kennar- ar við æðri skóla eru yfirleitt and- vígir banni, en sumir eða flestdr, að minsta kosti ofan á, hlyntir bindindi, eftir því sem þeir segja. En við þetta er alls eigi unandi. það ei- landskunnugt, að talsverð- ur drykkjuskapur hefir, að minsta kosti öðru hvoru, ef ekki altaf, átt sér stað meðal lærisveina hins alm. Mentaskóla í Reykjavík, og veit jeg eigi til, að rektor skól- ans og kennarar hafi tekið á því hörðum höndum eða þá reynt að fá piltana með góðu, til þess að ganga í Regluna. Hefir jafnan andað kalt til Reglunnar úr Mentaskólanum. Drykkjuskapur pilta er óþolandi, en það fer að verða skiljanlegt, að þeir telji lít- ið athugavert við, að fá sér neðan í því, ef kennarar skólans drekka líka, og það svo mjög, að þess gætir í kenslustundum. En það er opinbert leyndarmál, að þetta hef- ir átt sér stað í Reykjavíkur abn. Mentaskóla, og það ekki fyrir löngu. þetta hefir eigi komið í blöðun- um, en einmitt þesskonar fréttir eiga að koma í blöðunum. Ef eg fer hér með rangt mál, verður það vafalaust leiðrétt. Er nú að furða, þó að seigt og fast gangi Reglunni og bannlið- inu í landinu að ná takmarkinu, Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi. Fyrirlestur er Páll Zóphóníasson skólastjóri flutti 1. mars 1925 á bændanámskeiðinu á Hóliun.*) þegar skáldið góðkunna sagði þessi alkunnu orð sem jeg hef valið að umræðuefni mínu í dag, þá var viðhorf okkar íslensku bændanna annað en nú. þá voru landsstólparnir einu stoðirnar, sem báru þjóðarþungann, því þá var vart að ræða um annan at- vinnuveg en landbúnað. En nú eru aðrar stoðir, og þær engu máttarminni, sem standa undir þjóðarþunganum, með landsstólp- unum. þessar stoðir eru útgerðar- stoðirnar eða sjóstoðirnar. Og hendurnar sem styðja þær stoðir, eru álíka margar og hinar er styðja landstólpana. þjóðarþung- inn hvílir á báðum, og svo á líka að vera. það væri ebki gott ef aðrar stoðirnar biluðu snögglega, þá er hætt við að hinar mundi vanta burðarafl, þyngslin verða of mikil, og þær kikna eða ef til vill brotna alveg. það er heldur ekki gott, ef þyngslin hvíla ekki nokkurnveginn jafnt á báðum stólpum, eftir burðarmagni. I þessu þarf að vera samræmi, og því mega þeir ekki gleyma, sem ’) „Bændablaðið" Freyr neitaði að birta þetta erindi. Ástæðan mun vera sú að talað er af samúð og skiiningi um samvinnufjelög bænda. Ritstj. mest vinna að opinberum málum. En bæði lands og sjávarstólp- arnir geta verið missterkir. Sum- ir ei*u renglur, sem ekkert þola, en aðrir reglulegir máttarstólpar, sem þola mikið án þess að kikna, og' enn meira án þess að brotna. Á því byggist máttur þjóðfjelags- ins, að sem flestir stólparnir sjeu traustir, og því traustari, því betra. Við getum hugsað okkur stoð- irnai' ferkantaðar. Og á ferkant- aðri stoð er burðaraflið komið undir fjarlægðinni milli hliðanna, ~ gildleikanum. Jeg ætla ekkert að tala um sjóstólpana. En hvað lándstólpana snertir, þá er það fernt, sem þar hefir aðaláhrif á styrkleikann. Og við skulum setja það í stað hliðanna. Ef við get- um látið hliðarnar fjarlægjast hverja aðra, þá gildna stólparnir og ef við getum víkkað, aukið eitthvað af því fernu sem jeg vil kalla hliðar landstólpans, þá vex þróttur lians. Á eina hliðina vil jeg letra: ódýrari framleiðsla. það liggur öllum í augum uppi, að þeim mun ódýrari sem hún er, þeim mun betri verður fjárhagskoma búsins. En búið á að vera landstólpi leng- ur en eitt ár eða tvö, það á að vera það meðan landið okkar ei' bygt, og þessvegna má aldrei fá ódýra framleiðslu á kostnað komandi ára. þetta er mjög mik- ilsvert atriði, sem enginn má gleyma. Við skulum líta ofurlítið á hvernig framleiðslan verður gerð ódýrari. Aðalframleiðslan er gras — taða og úthey —. Bundnu ork- unni í fóðrinu, látum við svo bú- íjeð okkar breyta í aðrar orku- lindii', sem okkur eru hagkvæm- ari. því ódýrara sem grasið verð- ur okkur, því traustari verður landstólpinn. Leiðirnar til þess að fá það sem ódýrast eru margar Með breyttum verkfærum vinst inikið. Orfum er víða ábótavant. þau eru ek’ki úr nógu góðu efni — ask — og lengd þeirra ekki sniðin eftir hæð sláttumannsins. liann lýist að óþörfu, og afkastai' minna verki. Og ljáirnir eru mis- jafiíir. Bakkarnir ekki nógu stælt- ir. Og þá er sláttu lagið misjafnt; einn slær sinn mjóa skára, með tíðu, breiðu ljáförunum, annar reiðir orfið jafnt sjálfum sjer, en er ekki með það í grasinu nema brot af þeim tíma, sem hann eyð- ir í höggið, og þá þriðji leggur undir sig breiða skárann, og snýr sig- allan í mjöðmuriurn, til að fylgja eftir. Af .þessu öllu kemur lrinn mikli munur, sem er á sláttu- mönnunum, en hann er svo mikill að við rannsóknir á því sviði, hef- ir það komið í ljós, að einn slæi' 5 sinnum meira en annar. þó fá flestir sama kaup. Og við gerum sáralítið til þess að auka dugnað skussanna, t. d. með því að sýna þeim á sláttumótum muninn og koma þeim á sláttunámskeið, sem réttir handtökin. En þetta þarf að gera. Við þurfum að gera flesta jafna, ekki með því að gera þá betri verri, heldur með því að auka gildi þeirra rýrari. Með því hækkar notkunargildi meðal- mannsins, og þá verður fram- leiðslan ódýrari, og landsstólpinn traustari. þó jeg geti ekki sagt, hver sé munur á dugnaði stúlknanna við rakstur. þá veit jeg að hann er mikill, líklega engu minni en á ökkur karlmönnunum. Valda hrífurnar og rakstrarlagið því mikið, og má án efa bæta það ekki síður en sláttinn. Við höfum gef- ið þessu oflítinn gaum. En er þetta ekki þess vert, að eftir því sé tekið? Allir skilja að fram- leiðslan verður ódýrari hjá þeim, sem slær og rakar 5 sinnum meira á dag en hinn, því jafnvel þó hann fengi 5 sinnum hærra kaup en hinn, sem er réttmætt, þá borð- ar hann þó ekki 5 sinnum meira. Gefum þessu því gaum! Gerum meiri kaupmismun, og vinnum að því, með sláttumótum, að auka réttmætt kapp í slættinum, að kenna mönnum réttarí sláttuað- ferðir. þá er það engum efa undirorp- ið, að víða má koma við stórvirk- ari og afkastameiri verkfærum en nú eru notuð. Koma þar eink- um til greina ýms hestaverkfæri. Sláttuvélar má nota á sléttlendi, líka á flest slétt tún, og eftir því verði sem nú er á þeim, annars vegar, en vinna manna hinsvegar dýr, borgar sig að kaupa þær, sé hægt að nota þær í 10 daga af sumrinu. Við samantekning borg- ar sig víða að nota hestahrífu, og heysleða má nota miklu víðar og oftar en gert er. Á honum má flytja blautt hey á þurkvöll, af þýfi á slétt og þurt hey að tóft eða hlöðu. Votaband, sem talið þegar svo er ástatt í næst-æðstu mentastofnun landsins, og enginn hreyfir hönd né fót, til þess að ía þessu hneyksli afstýrt? Hve lengi ætlar kenslumálastjórnin að þola það, að piltar og kennarar í skólum ríkisins drekki? — Eg veit, að það svíður einhverjum undan þeim sannleika, sem hér er sagður afdráttarlaust, en fúasár og kaun á þjóðfélagslíkamanum veröa ekki læknuð, án sársauka, ifér er að ræða um að fá fram komið máli til heilla alþjóð, og ber á það að líta, hvað heildinni er fyrir bestu, en hér vill svo vel til, að það sem heimtað er, bindindis- semi á áfengi, kemui' eigi í bága við hagsmuni nokkms heiðarlegs manns, heldur stefnir miklu frem- ur til hagsbóta og blessunar, bæði hverjum einstaklingi og heildinni. Eg kem að því, hvað Reglan liefir gert í þessu eíni. Mér er eigi kunnugt um, að starfandi séu nema tvær skóla- stúkur í landinu, st. „Mínerva“ m'. 172 (upphafl. stúka einkum l'yi'iii' nemendur Mentaskólans og stúdenta) og st. „Sigurfáninn" nr. 196 í Gagnfræðaskólanum á Akureyri. Eg hygg að fremur fáir nemendut Mentaskólans í Rvík sjeu nú í st. „Minerva“. það hefii' líka lítið verið gert, til þess að fá nemendur í stúkuna, og er það að kenna bæði sljóleika og skiln- ingsleysi á þessu máli. Barnastúkur eru aftur á móti margar starfandi undir vernd og gæslu barnakennara, en bindindis- semin vill oft fara út um þúfur, þegar böi'nin eru fermd, hvort sem það er af því, að kennararn- ir og aðrir gæslumenn missa þá tök á þeim eða að þeir leiðbeina þeim eigi nægilega og hvetja þau, til þess að fara í undirstúkur og halda fram góðri stefnu. Prestarnir hafa yfirleitt verið okkur fylgjandi, en til eru þó enn préstar og háklerkar, sem tala með fyríríitni'ngu um Regl- una. Jeg ætla ekki að fara hörðum orðum um þessa menn, en spyrja þá í bróðerni, hvort þeir telji út- rýmingu áfengis ókristilegt at- hæfi, eða — eiga þeir ef til vill vini af þessum heimi, sem þeir meta fult svo mikils sem meist- ara sinn og drottin? Kirkjan, skólinn og Good-Templ- er með réttu eitt versta vei'kið við heyskapinn, þarf mjög óvíða að binda, ef sleði er notaður. Hér gerum við alt of lítið af því, að bera okkur saman við aðra og ræða reynslu okkar, og það er nú eitt helsta hlutverk þessara námsskeiða að þar eigum við af reynslu annai'a. það er engin skömm að herma eftir. Síður er svo. Á því byggist framför bams- • ins, að það hermir eftir þeim fuU- orðnu, og allir erum við altaf börn, sem altaf erum að læra. þá er ekki sama hvernig verk- inu er fyrir komið. Með sama fólkinu, á sama hátt og með sömu tækjunum getur verkið gengið misjafnlega eftir því hvernig verkinu er stjórnað. Yið skuluni t. d. nefna það, að einn bóndinij lætur stúlkumar sínar fara inn ef rignir, annar lætur þær halda áfram að raka, en sá þriðji læt- ur þær fara að slá. Jeg þori að fullyrða, að þeir hafa ekki alUr þrír sama arð af heyskapnum, einmitt vegna þessa. Sumir raka mýrarteyginn, sem sina er í, ætíð í föng ef það er slegið í þurru % og rakað í þurru, og binda beint úr föngunum. Aðrir flekkja það altaf og láta snúa hvemig sem viðrar, og telja sig ekki fá það „lyskulaust“ á annan hátt. En heyskapurínn verður misdýr hjá þeim, eftir því hverja aðferðina þeir notuðu. En þó gera megi framleiðsluna ódýrari á þennan hátt, þá munar hitt þó meiru sem auka má liana með því að breyta land'inu og stað- háttum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.