Tíminn - 16.01.1926, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.01.1926, Blaðsíða 2
10 TlMINN Baugabrot. Sig*rlð"U.r i Slszá.1. Gaddavirinn „Samband“ er sterkur og tiltölulega langódýrastur. Kaupfélögin annast um pantanir. i. Tíðai’gæði leika í lyndi, Leyning djúpum tæmdur snær. Illákudís á hverjum tindi Hörpu gullna knýr og slær. Vekur og glæðir auðnu’ og yndi ómur slíkur, hugum kær. — Ætla’ ég þó um allsárt bindi Æðimargur nær og fjær. Er nú bylja afltaug slöknuð, Ofsann mæðir logn og hik. Hefir Góa gæða klöknuð Gjört í vetrarreikning strik! „Mun að fullu vordís vöknuð"? Vonin mælir, þýð og kvik. Birtir kringum sorg og söknuð Svona fögur augnablik! Enn er háð í Austiirvegi Alla jafna, hörku stríð, Grimdin blind á láði’ og legi Líkn og mannást ristir níð. Sár og harmur, tár og tregi Tryllir, æsir, bugar lýð. því er valt þótt vonin segi Vetrar lokið spiltri tíð. Stynur moldin mett af dreyra. Myrk sig hnappa reiðiský. Ofsaveður grárra geira. Glögt þó vonar kall á ný. Hennar þykja orð í eyra Ofurgóð og mild og hlý. „Mælir eins og hver vill heyra“, Hún ér stundum löstuð því. Hún, in dýrsta góðra gjafa Guði sönnum komin frá. Merkust allra máttarstafa Mannsins heill er byggist á. Móður, föður, ömmu, afa, öllum stóð og vakt’ ’ún hjá Væri’ án hennar, vöggu og grafa Varla nokkum mun að sjá. Stöðugt er að fjara’ og flæða Fjörðu þrönga’ og víðan sjá, þannig harmsins þétta slæða þokast að og lyftist frá. Sífelt verið að særa’ og græða, Svæfa óskir, vekja þrá. Munu’ ei lengst af benjar blæða Bæði jörð og himni á? Menn eru’ æ að missa’ og græða, Miðla viðbót, taka frá. Einstig tæp og tvísýn þræða Til þess æðri stöðu’ að ná. Sig til lítils lýja’ og mæða Leysa’ á víxl og fjötrum þjá. Mikinn leggur mökk til hæða Mold og ösku jarðar frá! Hvað er mætast? Lönd og lóðir? Lén og metorð? Gull og stál ? Glæsimenska? Gildir sjóðir? Glaðar veigar? Banaskál? —Góða kona! Milda móðir! Mjúka, hlýja, trúa sál! Saltkjöt. Síðastliðið haust birtist grein með þessari fyrirsögn í einu viku- biaðinu hér í höfuðstaðnum. í grein þessari er því haldið fram, að íslenskt saltkjöt, sem flutt er til útlanda, sé hið mesta ómeti, og jafnframt er bændum ráðið til að gera tilraun með útflutning á lin- söltuðu dilkakjöti til Danmerkur. Fyrra atriðið er gersamlega rangt. Islenskt saltkjöt er svo vel verkað, og nýtur svo góðs álits neytenda erlendis, að fyllilega má jafna kjötverkuninni við fiskverk- un Islendinga, sem að maklegleik- um er rómuð. Að skemdir koma stundum fyrir í íslensku kjöti er- lendis, breytir ekki þessum dómi, því það kjöt, sem vart verður skemda í, er tekið og eyðilagt af opinberum kjötskoðunai’mönnum, svo skemdimar spilla ekki áliti kjötsins á markaðnum. Um mörg undanfarin ár mun láta nærri að nálægt a/10 hlutar af saltkjötsútflutningi landsins muni hafa verið seldir í Noregi, Ykkar langmest þarfnast þjóðir, það- er ekkert vafamál! Til þess böm á brjósti fæða Brekaminni en gerist nú. Til að leggja fyrstu fræða, Fastan grundvöll, trúrri en nú. Til þess alla góða að glæða Gneista’ í sálum, meira’ en nú. Til að lyfta heirn til hæða Hreinni’ og betri’ en þessum nú! Ef oss verður um ættlands slóðir Auðnuleiðin myrk og hál. Ef að hverfa Urðar sjóðir Eins.og dropi’ í Skuldarbál. Ef vér köstum heimsku hljóðir Ilinsta eyri’ í glys og prjál: þú hefir kviksett konu, móðir, Köllun þína’ og hjartans mál! Hvar sem telst af hólmi renna Helgrar skyldu, lítilsvert Svo og hitt, að sviða’ og brenna Sérhvern ræktar gróður snert, Ef að látið er inni fenna Æskuskjólin leynt og bert: Hefir þar ein úr hópi kvenna Heilögu nafni fyrirgert! II. Sit eg ennþá undir minnar Æsku fjalli’ og dreg til stafs. Lít eg Hágöng Köldukinnar Hvessa brúnir, alt til hafs; Saman trausta þræði þrinnar: þýðu, hörku’ og ofurkapps. Systrabygðum, sveitin innar, Svip og gerfi’ á meir til jafns. Oft mun kalt þar ytra’ á vorin, Ylur skyldi’ í hjarta manns. þu-ng og örðug þrautasporin, þolgóð vera raunin hans. þangað fátíð fregn er borin, Frjósöm innri vitund hans, Lítilþæg, ef skamtur skorinn, Skemtifýsnum veitist hans. Vakir þungur, þögull tregi þrátt við landsins ystu naust. Láta hátt á dauðans degi Djúpsinskvein ogfjallsin-s raust. Byljir geysa’ á láði’ og legi, Lundin þyrfti föst og traust Tjón og háski’ á tæpum vegi, Traust á drotni efalaust. þarna léstu langa æfi Ljós þitt fáum skína, snót, Glatt og stilt þótt garð af sæfi, Gerði landsins byljum mót. Segði menn, að gull hér græfi Gálaus öld, og træði’ und fót, Teldi eg held’r að guð þar gæfi Gæða skörðum hlutar bót. þín in hlýju hjartagæðin Harkan fékk ei bugað ströng. þín ei uppgafst þolinmæðin, en hitt í Danmörku, og sum árin að litlu leyti í Svíþjóð. það get- ur því engum blandast hugur um, hverjir séu færastir að dæma um gæði íslenska saltkjötsins. Vitan- lega eru það Norðmenn, mennim- ir, sem neyta því nær alls þess kjöts, sem flutt er út úr landinu, enda eru þeir vanir saltmeti frá ómunatíð, eins og Islendingar, og salta árlega sjálfir mikið af kinda- kjöti til vetrarforða. Eitt af mikil- vægustu skilyrðum fyrir góðri sölu á afurðum okkar er að vanda þær sem best og haga verkun þeirra og meðferð eftir óskum neytendanna, Sambandið hefir gert sér mikið far um að leitast eftir óskum Norðmanna um kjöt- verkunina. Snemma á árinu 1921 skrifaði það umboðsmönnum sín- um í Noregi bréf, þar sem spurst var ítarlega fyrir um, hvemig kjötið líkaði, hvort innflytjendur óskuðu breytinga á kjötflokkun- inni, hvort æskilegt væri að reyna léttari söltun, hvort reynandi væri að fá leyfi til að flytja inn spaðkjöt og ýmislegt fleira, sem að verkun kjötsins laut. Sam- þó að tíðin gerðist löng. Átti’, ef brast á bókleg fræðin, Brjóstvit þitt sín æmu föng. Lægðin dýpsta’ og hæsta hæðin Iíeillað geta ræðu og söng. þér var hlíft af hollum vættum Hér við landsins ystu naust, Namst’ og klið af æðri ættum Ofanjarðar kveini’ og raust, þótt sig stormur steytti’ í gættum. Stilling þín var föst og traust. Treystir á í háska’ og hættum Hjálpráð drottin-s endalaust. Aldrei götur tæpar tróðstu Til þess eins, að gnæfa hátt. Eigin lofköst aldrei hlóðstu, Annara reifst ei held’r í smátt Seyrinn veit eg afðrei óðstu Elg, er skaðar sjálfan þrótt En við skyldustörfin stóðstu Stilt og róleg fram á nótt. Fár mun orka fossa’ að stikla, Fer þó veg sinn, eins og þú. Ef þeir sáu í hábrún hnykla Hræddust sumir meir en þú. Engar báru aukalykla Ofláts kvenna, síður en þú. Fáar lögðu’ í mökkinn mikla Minni skerf og hlut en þú. Geymdir þú á efri árum Æskuvarma, gljúpa lund. Grænni torfu, bláum bárum, Báðum galstu skattinn, sprund. Engan léstu særðan sárum, Sviðann drógstu’ úr margri und. bandið hefir um 90 viðskiftamenn í Noregi, sem flestir skifta við það ár eftir ár. Álit alls þorra þessara manna var leitað og sömuleiðis hinna opinberu eftirlitsmanna (dýralækna), sem rann-saka kjöt- ið við móttöku í Noregi. Ennfrem- ur var bréfið lagt fyrir landsfund norskra kjötinnflytjenda, sem haldinn var í Osló í maímánuði sama ár, og var bréfið tekið sem sérstakur liður á dagskrána. Álit norskra kjötinnflytjenda kom greinilegast í ljós á fundinum, en auk þess bárust einnig skrifleg og munnleg ummæli frá mörgum, sem ekki voru þar mættir. Hinir opinberu kjötskoðunarmenn í Osló og Stavanger sendu mjög ítarleg svör við bréfinu. Og svörin voru yfirleitt algerlega samhljóða og á þá leið: 1. að kjötið líkaði ágæt- lega, væri langbest verkaða salt- kjötið, sem selt væri á norskum markaði. 2. að engar óskir væru um breytingu á flokkuninni. Reyndar gerði almenningur aðeins mun á rosknu kjöti og dilkakjöti, og væri því ef til vill nægilegt að hafa aðeins tvo flokka, sérstak- Hefir fráleitt fjölgað tárum Fyr en nú á bana-stund. Hæfir vart að hér eg nefni Harmasverðið þungt og beitt. Sá þó heim úr stríði stefni Stundarhlé er fékk sér veitt. Enda frekar fagnaðs efni, Fyrir sjálfan þetta eitt, Er við hinsta sofnum svefni Södd á lífi, vökuþreytt. Vart má skynja hugur hnýsinn Huldra valda tenginskast, Brestur löngum leiðarvísinn. Ljós, er þoli élið hvast. Vélað hefir vonardísin: Vetrai*ríkið stendur fast, Traustur klæðir elfi ísinn Aftur fyrir þann, sem brast. Ein er fallin af þeim stoðum Auðnu manna’ er þörfust var, Enn þú synjar griða gnoðum Græðis kulda heiftar svar; Sveipast köldum hvítavoðum Kinnar Hágöng niðrí mar, Lætur hátt í heljarboðum Hafsins trylta norður þar. Stirðnar fold er fyr var klöknuð, Flótta vorsins bylur rak, þyngir manni sorg og söknuð Sigur hans og vopnabrak. þér eru bönd af þeli röknuð þú hefir slíku séð á bak, Munt til æsku endui'vöknuð Eftir dauðans handartak. Fennir senn í farnar slóðir, lega væri ástæðulaust að hafa dilkakjötsflokkana fleiri en einn. Verður nánar vikið að þessu síð- ar. 3. að ekki kæmi til mála létt- ari söltun, ef nokkuð væri um þann lið að athuga, mætti segja, að kjötið væri stundum heldur lít- ið saltað. Einkum lögðu dýralækn- arnir mikla áherslu á þetta atriði, töldu mikla söltun bestu vörnina gegn súrskemdunum. 4. að ekki væri nein ástæða til að ætla að spaðkjöt gæti selst í Noregi. I fyrsta lagi væri almenningur orð- inn vanur íslenska kjötinu, eins og það nú væri verkað, og í öðru lagi væri efasamt að leyfi fengist fyrir innflutningi á spaðhöggnu kjöti, kjöt en það, að stykkin vegi minst því, eins og kunnugt er, má ekki flytja inn í Noregi -smáhöggnara 2 kg. Síðan umrætt bréf var skrifað, hefir stöðugt verið haft vakandi auga á kröfum norskra saltkjöts- neytenda, en ekkert komið í Ijós, sem breytir því heildaráliti, sem kjötinnflytjendur létu í ljós 1921. Eg vil ekki ráðg til neinna stór- breytinga á kjötflokkuninni. En Fyllir tæmda hlíðar skál. Fyrnast minj ar, fölskvast glóðir, Fersk í staðinn spor og bál. Góða kona, milda móðir, Mæta, hlýja, trúa sál, þér við flytjum hyggju hljóðir Hjartans klökka þakkarmál. Indriði í Fjalli Póststjórnin hefir í Mogga reynt að sanna að Kirkjubæjar- klaustur væri óhæfilegt setur fyrir bréfhirðingu Síðumanna. Grein þessari fylgir uppdráttur af póstleiðinni um Kirkjubæjar- hrepp. Segir Moggi uppdrátt þennan vera gerðan eftir herfor- ingjaráðskortinu yfir Skaftafells- sýslu. Af því að uppdráttur þessi er rangur, getum við ekki látið hjá líða að gera nokkrar athugasemd- ir við hann. Aðalvillan í þessu póstleiðar- korti Mogga er sú, að krókurinn á veginum fyrir sunnan Skaftár- brú er þar gerður alt of mikill, og yfirleitt er vegurinn sýndur mun sunnar en hann er, á bilinu frá Skaftárbrú og út að Hólmi — hinum nýja bréfhirðingarstað hreppsins. Frá Kirkjubæjar- klaustri er eitthvað um V4 klst. lestaferð austur að Skaftárbrú. Frá Skaftárbrú liggur vegurinn um stund til suðurs, á móts við bæinn í Hæðargarði, eða tæplega það; síðan liggur hann til vest- urs og -kemst næstum því fast að Skaftá fram undan bænum á Kirkjubæjarklaustri, beygir síðan nokkuð til suðvesturs fyrir aust- an túnið í Nýjabæ. þaðan beint út að Hólmi. þessi vitlausi uppdráttur Mogga af póstleiðinni um Kirkju- bæjarhrepp á víst að vera til sönnunar því, sem blaðið hefir þrástagast á, — nefnilega krókin- um heim að Klaustri. Rétt hjá bænum á Klaustri er vað yfir Skaftá, sem alloftast er fært, a. m. k. að vor- og sumar- lagi, 0g mjög oft að vetrarlagi. Fer pósturinn þar jafnan þegar fært er. Hjá Hólmi var líka vað yfir ána, en nú er það sjaldan fært. Verður því að fara suður á veginn aftur, og síðan þjóðveginn austur um Landbrot, og annað- hvort yfir ána hjá Klaustri eða fara austur á brúna. Er þá vega- lengdin nærri alveg hin sama. Hvað póstinum sjálfum viðvík- ur, er sama hvort bréfhirðing hreppsins er á Klaustri eða í Hólmi; svo litlu munar það á veg- arlengdinni. En óþægindi þau, sem hreppsbúar líða við það, að hafa eg held það væri til bóta, ef hætt væri við að skifta dilkakjötinu í tvo flokka. Norðmönnum fellur best í geð kjöt af miðlungs stór- um dilkum, ef skrokkarnir eru vöðvamiklir, en lakar minstu og stærstu skrokkamii'. þegar -smá- salarnir selja kjötið út í búðum sínum, opna þeir að jafnaði ekki nema eina tunnu. þeim verður kjötið því ekki eins útgengilegt. ef í sumum tunnunum er ein- göngu smátt kjöt, og í öðrum stórt. Best væri þvi að hafa aðeins einn flokk af dilkakjöti og jafna saman í tunnur stórvöxnu og smá- vöxnu kjöti eftir því, sem föng eru á, en vitanlega verður að gæta þess vandlega, að salta ekki magra (vöðvalitla) skrokka til út- flutnings. þeir útlendingar (Norð- menn, Danir og Englendingar), sem keypt hafa íslenskt kjöt, kæra sig ekki um að það sé sér- lega feitt, en leggja mikla áherslu á, að það sé vöðvamikið. þegar núgildandi erindisbréf yfirkjötmatsmanna var gefið út, hefir þess ekki verið gætt, að taka tillit til lagaákvæða Norðmanna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.