Tíminn - 24.01.1931, Side 1

Tíminn - 24.01.1931, Side 1
(öjaíbferi 09 afarci&slumafcur Cimans cr Hattnuei9 þorsteinsbóttir, Sœfjargötu 6 a. Seyfjauíf. 2^fðteií>sía C t nt a n s er t Ccefjargötu 6 a. ®pin öaglega fl. 9—6 Stmt 2353 XV. ár. Erlent veitufé á Islandi 1. Árið 1874 fékk íslenzka þjóðin löggjafarvald og fjárforræði. Hún fékk umráð síns eigin lands og frelsi til að búa um sig í landinu eftir eigin geðþótta og möguleikum. Margar undan- gengnar aldir hafði hún búið við leiguliðakjör á óðali feðra sinna. ÍJtlendingamir, sem töldu sig hafa umráðarétt landsins, höfðu farið með það eins og fégjam en fyrirhyggjulítill jarðeigandi fer með jörð sína. Landið var nið- urnítt, illa byggt og illa hagnýtt. Auðsuppsprettur jarðar og sjáv- ar lágu ónotaðar fyrir fótum í- búanna. Og þannig hafði ástand- dð verið að mestu leyti síðan á þjóðveldistímanum. Islenzka þjóðin hafði aldrei verið auðug og því fátækari sem lengra leið. Hún átti hvorki peninga eða varanleg verðmæti, sem neinu næmi, annað en landið sjálft, ó- ræktað og lítt notað. Þrátt fyrir vinnusemi og ítr- ustu sparsemi, hafði almenningi á íslandi ekki tekizt að safna fé til framkvæmda. í upphafi sjálf- stæðisins stóð þjóðin því uppi með tvær hendur tómar, og gat ekki hagnýtt sér landið. Fram- leiðsluvörum hennar var mjög á- bótavant og því eigi samkeppnis- færar á erlendum markaði. Verzl- unin var almenningi óhagstæð. Ef þjóðin hefði átt að búa við þau iífsskilyrði, sem þá voru fyrir hendi, hefði sjálfstæðið ver- ið hefndargjöf og orðið sjálfu sér að bana. En við þessi lífs- skilyrði eða svipuð bjó hún þó næstu tvo áratugina. Reynsla þessara áratuga sýndi það á- þreifanlega, hver framtíð beið hennar, að lífsskilyrðum ó- breyttum. Þegar harðindin miklu skullu yfir landið laust eftir 1880, flykktist fólkið úr landi, þúsundum saman, líklega nál. V5 hluti þjóðarinnar, og hóf nýja lífsbaráttu í nýrri heimsálfu. I'egar svo var ástatt, var um tvo möguleika að ræða fyrir íslenzku ]»jóðina. Að sætta sig við lífs- skilyrðin eins og þau voru, og bíða átekta, láta framkvæmdir og frekari hagnýting landsins bíða eftir því, að þjóðinni sjálfri tækist að draga saman fé og láta svo skeika að sköpuðu, hvort fljótar gengi, söfnun veltufjár innanlands eða tortíming þjóðar- innar í óbyggilegh landi. Hinn möguleikinn var sá, að útvega þjóðinni erlent fé að láni, og verja því til að bæta lífsskilyrð- ipt^á skömmum tíma, í von um að slík breyting myndi hér eins og annarsstaðar auka framleiðsl- una nægilega til þess að standa straum að vöxtum og afborgun- um lánanna. Síðari kosturinn var tekinn. Erlenda fénu var veitt inn í landið, með stofnun Islands- banka stuttu eftir aldamótin. Og hvað, sem um þær ráðstafanir má segja, þá er þó óhrekjanleg sú staðreynd, að aldrei hefir það hent síðan, að fólk hafi flúið land vegna harðinda. Þegar að því kom að taka að láni erlent fé og nota til umbóta og^framleiðslu á íslandi, var um tvær leiðir að velja. Hin fyrri var sú, að þjóðin sjálf tæki féð að láni gegn ríkisábyrgð og hefði yfir því umráðarétt. Síðari kost- urinn var sá að leyfa erlendum mönnum að flytja fé irm í land- ið, veita því íslenzka lagavernd, en leyfa útlendingunum sjálfum að hafa umráð fjárins. Þessi kosturinn var tekinn, þegar ts- iandsbanki var stofnaður. Islands- banki var algjörlega útlent fyrir- tæki undir yfirráðum erlendra manna. En Alþingi veitti bank- anum mikilsverð hlunnindi, m. a. rétt til seðlaútgáfu, sem tekin var af þjóðbankanum. Jafnframt gjörði þingið það óheyrilega glappaskot að ganga inn á það, að sjálfur ráðherra landsins (síð- ar forsætisráðherra) skyldi vera fonnaður í bankaráðinu. Með því, og nafninu, sem bankinn illu heilli fékk að taka upp, var þessu útlenda fyrirtæki gefin aðstaða til að skáka í skjóli íslenzka rík- isins út á við. Stofnun Islandsbanka er tal- andi vottur um það, hvemig sú þjóð getur stundum farið að ráði sínu, sem fákunnandi er og óreynd í fjármálum. Sennilegt er, að þessi aðferð til að útvega er- lent vðeltufé hafi verið betri en að útvega ekkert, en hún var versta aðferðin, af þeim, sem fyr- ir hendj voru. Vegna þess eins, að sú aðferðin var tekin, hefir landið orðið að taka á sig mil- jónabyrðar síðasta áratuginn. Hjá ýmsum þessum óþægindum hefði að vísu verið hægt að kom- ast, ef þjóðin hefði ekki goldið óviturlegrar fjármálastjómar. Á óframsýni íslenzku löggjafanna, sem þessu óheillaráði fylgdu, hafa íslendingar miklu tapað og mikið lært. II. Eftir að heimsófriðurinn skall á, varð það þegar ljóst, að hver hefði nóg með sjálfan sig. Danir höfðu ekki aðstöðu nema að mjög takmörkuðu leyti til þess að birgja Island að vörum eða að annast samgöngur landsins. Af- leiðingin af þessu verður sú, að íslenzka ríkið verður að miklu leyti að airnast um verzlun og samgöngur. Landsverzlunin er stofnuð og ríkisskipaútgerðin. Auðvitað hefir þjóðin ekkert handbært fé til þess að kaupa fyrir vörur eða skip. 1917 0g ár- in þar á eftir er hvert lánið tek- ið af öðra til skipakaupa og handa Landsverzluninni. Það varð að lána þetta fé, að öðrum kosti fullkomin einangrun og sultur. Hér skal ekki dæmt um lands- veralunina eða skipaútgerð ríkis- ins á þeim árum. Aðeins skal á það bent, að á þessum fyrirtækj- um mun það hafa sannast á stundum, „að neyðin er enginn kaupmaður". Landsverzlunin gat ekki að öllu leyti sneitt hjá verzl- un við heiídsala og aðra verzlun- armenn í Reykj avík og varð því að sætta sig við að greiða milli- liðagjald, sem stundum var ríf- legt mjög og ríkið varð að kaupa skip eins og Borg af milliliðum (Kveldúlfi), sem hækkuðu það í verði um 300 þús. kr. eftir að hafa átt það í nokkrar vikur. En hið alvarlegasta óhapp í öllu þessu máli var hin afar- slæma fjármálastjóm. Á þessum Reykjavík, 24. janúar 1931. árum voru þeir Bjöm Kristjáns- son, Sig. Eggerz og síðast og lengst Magnús Guðm. fjármála- ráðheiTar. Fóru þessir meim með fjármál landsins frá 1916 til síð- ast á þingi 1922. öll þessi ár nema eitt árið, 1919, var stór- felldur tekjuhalli 2—2V2 miljón árs árlega. Til þess að greiða þennan tekjuhalla var svo notað það fé, sem landsvezlunin endur- borgaði ríkissjóði af þeim lánum, sem upphaflega voru stofnuð til verzlunarreksturs, en sem smátt og smátt losnaði úr veltunni. Hin- ar upprunalegu skuldir ríkisins — vegna landsveralunarinnar urðu því að föstum skuldum ríkissjóðs og á þennan hátt safnaði ríkis- sjóður nýjum skuldum á árunum frá 1917 til 1923, sem námu frek- lega 16 milj. Þetta var eyðslufé — algjörlega tapað fé — engin varanleg verðmæti höfðu verið sköpuð fyrir það, sem í framtíð gætu létt lífsbaráttu þjóðarinnar. M. G. og fyrirrennarar hans í fjármálaráðherrasessi höfðu sum- part eytt of miklu fé og sum- part látið undir höfuð leggjast að sjá ríkisssjóði fyrir nægilegum tekjum í góðærinu frá 1916— 1920. Með fyrirhyggjuleysi sinu hafa þeir M. G. og félagar hans því alið upp heila hjörð af mögr- um, kúm, sem væru tilbúnar til þess að éta feitu kýrnar í góðær- um seinni tíma. Þetta er sagan um fyrsta verulega erlenda veltuféð sem ríkið tók að láni. Hún er sorgleg en lærdómsrík. III. I annað skipti er ríkinu aflað veltufjár 1921. Lánið var að upp- hæð 500 þús. pund sterling eða nálægt 11 milj. kr. eftir núver- anda gengi. Lán þetta tók M. G. sem þá var enn fjármálaráð- herra. Var það hið mesta „ó- skapalán" eins og Jakob Möller komst að orði um lántökuna, þótt tvennt bæri af um ósköpin: veðsetning tollteknanna og með- ferð lánsins. Hinir erlendu eigendur og um- ráðamenn Islandsbanka voru á stríðsárunum og eftir stríð haldnir af sömu gróðasýkinni og gripið hafði marga einstaklinga og þjóðir um þær mundir. A þessum tíma starfaði seðlapressa bankans svo að segja nótt með degi. Bankinn hafði traustan rneira hluta í þinginu og veittist því létt að fá leyfi þingsins til stöðugt aukinnar seðlaútgáfu. Lánsféð jókst, ný og fjárvana fyrirtæki voru sett á stofn og dýrtíðin náði hámarki sínu, en 1920—21 kom verðfallið. Dýrtíð- in velti um hverju glæfrafyrir- tækinu á fætur öðru og Islands- banki gat ekki fengið endur- greitt fé frá sæmilegum skuldu- nautum sínum og sumpart hi’undu þau fyrirtæki er hann hafði lánað fé til, til grunna. Af- leiðingin af verðfallinu og greiðslutregðunni varð sú, að bankinn gat ekki staðið í skilum við lánardrottna sína erlendis. Annaðhvort varð því íslands- banki að fara á höfuðið eða að ríkið varð að hlaupa undir bagga með honum og hinum erlendu eigendum hans. Þingmeirihlutinn með M. G. í broddi fylkingar á- kvað svo að hjálpa bankanum og taka enska lánið. Meira en helming af þessu 11 miljóna láni lánaði svo M. G. Utan nr heimi. Hverjar eru orsakir kreppunnar? Það er ekki ætlun mín með lín- um þessum, að gefa neitt tæm- anda svar við þessari spurningu. En mér datt ýmislegt í hug útfrá orðum, sem maður nokkur sagði við mig um daginn, er við hitt- umst á götunni. „Þetta er ljóta bölvuð kreppan, sem við erufn komnir í hér“, segir hann, „nú er stjórnin að fara með allt á hausinn". Nánari skýringar fékk ég ekki. En það er gott að vera fljótur að finna skýringar á hlut- unum og ennþá betra að hafa ein- hvern, sem hægt er að kenna um það, sem aflaga fer í landinu eða í heiminum. Hver er þá úrlausn- in? „Ég fer bara úr landi, ég er „cívilseraður" maður og kemst áfram hvar sem er“, heldur kunn- ingi vor áfram. Þetta er úrlausn sem dugir! Og þvílíkar úrlausnir eru ekki óvenjulegar hjá mönn- um, sem óánægðir eru með allt, sem aðrir gera, en geta ekkert sjálfir. En sá góði maður getur farið úr landi í land og hann mun víðasthvar reka sig á það sama, deyfð yfir öllum framkvæmdum, atvinnuleysi, — kreppu. En hvem- ig stendur á þessari kreppu? Ekki hefir verið misæri, uppskeru- brestur eða fiskleysi, þvert á móti ágæt uppskera og afli góð- uv. Framleiðsla einstaka vöruteg- unda hefir verið óvenjumikil, eins og t. d. hveitis. Undanfarin ár hefir eftirspum eftir hveiti aukizt mjög mikið, fólk minnk- aði rúgbrauðsnotkun sína og jók í stað þess hveitineyzluna. Verð hveitis varð hátt samanborið við rúgmjölsverð, þá hættu bændur auðvitað við rúgræktun og fóru að framleiða hveiti í stærra stíl og aðallega að leggja stund á hana. Með margra ára ýtarlegum tilraunum hefir líka tekizt að fá harðgerðari hveititegund, sem hægt er að rækta í norðlægari löndum en hægt var áður. Breyt- ingar þessar hafa því valdið því, að hveitiframleiðslan hefir orðið svo mikil að framboðið hefir orð- ið miklu meira en eftirspurnin, bændur sitja með nokkuð af sínu hveiti óseldu, og það sem þeir geta selt af því, borgar ekki íramleiðslukostnaðinn. Það sem mestum erfiðleikum veldur fyrir Evrópubænduma er hið ódýra ameríska hveiti, sem flæðir yfir Evrópu.' Evrópubændumir geta ekki framleitt jafnódýrt og þeir amerísku, sem hafa miklu meira landrými hver um sig, sem ekki 'liefir heldur verið jafnlengi ræktað og þar af leiðanda feifc- ara og ríkara af þeim efnum, sem jurtirnar þurfa, og þarf þá ekki eins mikinn áburð. Þar sem akrarnir eru miklu stærri borgar sig líka að hafa dýrari, stærri og fljótvirkari vélar. Flutningurinn yfir til Evrópu er tiltölulega ó- dýr með hinum feikna stóru flutningaskipum, svo verðið get- íslandsbanka. Afgangurinn fór til Landsbankans og til þess að greiða með tekjuhalla ríkissjóðs. Enska lánið fór því sömu leið- ina og fé það, sem ríkissjóður tók að láni til Landsverzlunar- innar — það fór til þess að greiða með töp bankanna og tekjuhallann — engin ný verð- 4. blaS. ur orðið mun lægra en Evrópu- bændur standast við að selja sitt hveiti. Bændumir vilja leggja iimflutningstoll á ameríska hveit- ið, en neytendumir neita því, þeir vilja ekki borga meira fyrir vöruna en þeir þurfa. Stefnan í heiminum er sú, að hvert land framleiði þá vömtegimd, sem það er bezt fallið til og getur framleitt ódýrast, og þá verður útkoman bezt fyrir heildina. Og þá ætti að vera ástæðulaust að amast við þessu ódýra ameríska hveiti. En márgir spá því, að þessi ódýra framleiðsla Ameríku sé ekki til frambúðar. Þegar jörðin sé útsogin af frjóefnum, þurfi að bæta henni þau með dýr- um áburði, og altaf verða fleiri og fleiri um hvem akurblett, og þetta hljóti smámsaman að auka framleiðslukostnaðinn. Ef Ev- rópubændur t. d. hættu nú við hveitirækt og fæm að framleiða smjör og kjöt í stórum stfl, yrði ef til vill ekki langt að bíða að skortur yrði aftur á hveiti eða það hækkaði í verði, svo að þeir þyrftu aftur að breyta um. En það eru breytingarnar, sem valda kreppunum eða þessi offram- leiðsla á einstökum vömtegund- um. Það er skiljanlegt, að það fé sem lagt hefir verið í táeki til framleiðslu einnar vömtegundar, getur ekki komið að notum við framleiðslu annarar. Ef ég hefi lagt mikið fé í bátaútgerð og hún allt í einu borgar sig ekki af því að það er lítið verð á fisk- inum, fer auðvitað mikið af þessu fé til ónýtis og ég hefi ekkert gagn af því við rekstur á sveitajörð, sem ég fer að búa á. — Þessi offramleiðsla á hveiti veldur þó sjálfsagt ekki einsöm- ul kreppu þeirri sem nú er. Allir muna sjálfsagt að eftir stríðslokin voru Þjóðverjar skyld- aðir til þess að greiða banda- mönnum háar skaðabætur. Eftir Dawes-sanmingnum, sem kendur er við mann þann, er mest vann að þessum samningi, áttu Þjóð- \ærjar að borga rúmlega 1000 til 1250 milj. la’óna á ári fyrstu 4 árin, og úr því 2500 milj. króna á ári, þar til skaðabæturnar væru að fullu greiddar. Fé þetta var svo mikið, að Þjóðverjar gátu ekki staðið í skilum og var skaðabótasamningi þessum breytt 1929 og kom þá hinn svokallaði Youngsamningur í staðinn, sem einnig er kenndur við þann mann, sem formaður var í nefnd þeirri, sem útbjó samninginn. Eftir samningi þessum eiga Þjóð- verjar að borga rúml. 2000 milj- c.nir króna á ári þangað til 1988. Þessi sanmingur er því nokkuð betri en sá fyrri, en eigi að síður er það gífurleg upphæð, sem Þjóðverjar verða að borga og er miklum erfiðleikum bundið fyrir þá að standa við samninginn. Getur kreppa sú, er nú gengur yfir, að nokkru leyti stafað af þessum skaðabótagreiðslum Þjóð- verja? Hinn þekkti hagfræðing- Frh. á 4. síðu. mæti sköpuð. Aðstaða þjóðarinn- ar í lifsbaráttunni versnaði að sama skapi og skuldimar jukust. Og þegar íslandsbanki fór á höfuðið í fyrra komst ríkið að raun um, að bankinn mundi aldrei geta greitt 3 milj. af þessu lánaða fé. Ríkissjóður tók því hluti fyrir þetta tapaða fé.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.