Tíminn - 23.05.1931, Page 1

Tíminn - 23.05.1931, Page 1
®)aíbferi oo, afgrcibslumaður Cimans er 2? ú n n d e i g þ o r s t e i n s b ó 111 r, €a;fjargötu 6 a. XcYfjuciíf. ^Ajgteifcsla íímans cr í £cefjargötu 6 a. 0pin baglega fl. 9—6 Simi 2353 XV. árg. Reykjavík, 23. maí 1931. 42. blað. Frambjóðendur Framsóknarflokksins við kosníngarnar 12. júní 1931 r / Asgeir Aséeírsson fyrv. þm. V.-ísaf. Ásgeir er fæddur 13. maí 1894 og er yngstur allra, er sátu á þingi síðasta kjörtímabil. Hann tók stúdentspróf 1912 og em- bættispróf í guðfræði 1915. Síðan dvaldi hann um hi'íð utanlands, en vann svo í Landsbankanum, en 1918 varð hann kennari við Kennaraskólann, settur fræðslu- málastjóri 1926 og og skipaður í það embætti næsta ár. Ritstjóri og útgefandi „Menntamála“ frá 1924. Ásgeir var kosinn á þing 1923 í Vestur-lsafjarðarsýslu og end- urkosinn 1927. Hefir hann verið einn hinn mesti atkvæðamaður á Alþingi, og einkum hefir hann gefið sig við fjármálum og menntamálum, enda hefir hann átt sæti í fjárhagsnefnd og menntamálanefnd. Árið 1925 var hann kosinn í milliþinganefnd í bankamálum, og fór þá utan í er- indum þeirrar nefndar, en var jafnframt fulltrúi íslands á nor- rænum kennarafundi og á fundi norrænna þingmaima í Pinnlandi. Árið 1930 var Ásgeir kosinn for- seti sameinaðs Alþingis og varð það hans hlutskipti, að hafa aðal- stjórnina á Alþingishátíðinni. Mun flestum vera kunnugt hve prýðilega honum fórst það úr hendi, enda er hann hið mesta glæsimenni. Ásgeir er kvæntur Dóru Þór- hallsdóttur biskups. Kosning Ásgeirs í Vestur-Isa- fjarðarsýslu er alveg viss eins og áður, enda þótt báðir andstæð- ingaflokkarnir leggi allt kapp á að fella hann. Mun Ásgeir njóta trausts og vináttu kjósenda sinna flestum þingmönnum fremur. Benedíkt Sveinsson fyrv. þingm. N.-ping. Benedikt Sveinsson er fæddur í Húsavík 2. des. 1877. Hann tók stúdentspróf 1901 og fór þá þeg- ar að gefa sig við stjómmálum. Hann var einn af aðalstofnendum Landvarnai-flokksins 1903, og síð- an jafnan einn hinn ákveðnasti og ötulasti af foringjum Sjálf- stæðisflokksins, en er sá flokkur leystist upp, gekk Benedikt í Framsóknarflokkinn. Benedikt hefir einkum fengizt við blaðamennsku, ritstörf og bókaútgáfu. Hann var ritstjóri „Ingólfs“ 1905—1909 og aftur 1913—1915, „Fjallkonunnar“ 1910—1911, hefir gefið út Sturl- ungu og margar íslendingasögur. Var forseti Þjóðvinafélagsins 1918—1920. Hann var aðstoðai’- vörður við Landsbókasafnið 1915 —1916 og aftur 1931. Settur bankast j óri við Landsbankann 1918—1921. Auk þessa hefir hann gegnt fjöldamörgum öðrum jpinberum s-törfum. í utanríkis- nálanefnd á hann sæti og er þar [ormaður. Benedikt var kosinn á þing L908 og heíir jafnan verið endur- cosinn síðan. Hefir enginn núver- mdi frambjóðanda setið jafnlengi i þingi, nema Þorleifur Jónsson. :lann var forseti neðri deildar 1920-—1930, en annars hefir aðal- starf hans á þingi verið í þágu jjálfstæðismálsins. Er hér ekki i'úm til þess að rekja liina löngu ringsögu hans. Hann er kvæntur Guðrúnu Pét- .usdóttur úr Reykjavík. Bergur Jónsson sýslumaður. og heimspekisprófi við háskólann. Árið 1923 lauk hann embættis- prófi í lögfræði við háskólann. Sama ár varð hann fulltrúi hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Gegndi hann því staifi til 1927, og stundaði seinni árin málaflutn- ingsstörf jafnfiamt. Ilausi'ið 19-.7 var hann settur sýslumaður í Barðastrandarsýslu. og hefir gegnt embætti þar síðan. 1 Við kosningarnar, sem fram : eiga að fram 12. júní n. k„ er Bergur sýslumaður frambjóðandi Framsóknarflokksins í Barða- strandarsýslu. Fylgi hans í kjör- dæminu er mikið og kosning hans I af flestum talin viss. Umbætur I þær, sem hann hefir gjört á em- bættisfærslunni í sýslunni og samvizkusemi hans og dugn- aður í hvívetna hafa þegar aflað honum almennrar virðingar og vinsælda í héraðinu. En það er margra manna mál, að eins og Barðstrendingum þótti mjög skipta um til hins betra um yfir- vald, er Bergur kom þar í hérað- ið, svo muni þeim og þykja góð fulltrúaskiptin á Alþingi eftir kosningamar. : Bergur sýslumaður er annar I yngsti frambjóðandi Framsóknar- ! flokksins nú, en jafnframt ec | hann einn þeirra ailra álitlegustu. | líann er írjálslyndur maður í j skoðunum, ræðumaður góður og | menntur í bezta lagi. Beri Barð- j strendingar gæfu til að fela hon- j um umboð sitt, sem víst er talið, ! mun eigi þeirra hlutur eftir j liggja á löggjafarþingi þjóðar- innar, fyrst um sinn. Bernh. wStefánsson fyrv. 2. þm. Eyf. Hann er fæddur 24. sept. 1898. Foreldrar: Sigríður Hjaltaaóttir og Jón Jensson háyfirdómari í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi við menntaskólann í Reykj avík 1919 Iíann er fæddur á Þverá í Öxna- dal 8. jan. 1899. Foreldrar: Þor- | björg Friðriksdóttir frá Syðra- i Gili í Skagafirði og Stefán Bergs- j son bóndi á Rauðalæk á Þelamörk Bernhaið lauk prófi við Flens- borgarskólann vorið 1908. Eftir það var hann í 14 ár kennari í öxnadalshreppi. Oddviti Öxna- dalshrepps varð hann 1915, sýslu- nefndarmaður 1922, og kjörinn var hann í stjórn Kaupfélags Ey- firðinga árið 1921. Árið 1923 kusu Eyfirðingar Bemharð á þing ásamt Einari Ámasyni. 1927 var hann endur- kosinn með miklum meirahluta, cg nú er þeim frambjóðendum Framsóknarflokksins talin kosn- ingin vís í Eyjafirði. A Alþingi hefir Bemliarð eink- um látið landbúnaðarmálin til sín taka og átt sæti í landbúnaðar- nefnd neðri deildar. Þá hefir hann átt sæti í milliþinganefnd- inni í landbúnaðannálum, og hef- ir sú nefnd unnið mikið starf og merkilegt. En þó að áhugamál hans séu fyrst og fremst á því sviði hefir hann jafnan haft vak- anda auga á umbótaþörf sjávar- síðunnar í kjördæmi sínu og borið slík mál fram með því harðfylgi, sem honum er lagið. Sumarið 1930, þegar útbú Bún- aðarbankans var stofnað á Akur- eyri var B. St. falin forstaða þess. Bernharð er kvæntur Hrefnu Guðmundsdóttur, hreppstjóra á Þúfnavöllum. Bjarni Asgeirsson fyrv. þm. Mýramanna. Hann er fæddur á Knararnesi á Mýrum 1. ágúst 1891. Foreldr- ar: Ragnheiður Helgadóttir, bónda í Vogi á Mýrum og Ásgeir Bjarnason bóndi í Knararnesi. Bjarni lauk prófi í Verzlunar- skólanum í Reykjavík 1910 og í bændaskólanum á Ilvanneyri 1913. Itak hann búskap í Knarar- nesi 1915—’'21. Árin 1916—’17 dvaldist hann við landbúnaðar- nám í Noregi og Danmörku. Árið 1921 fór hann að búa á Reykjum í Mosfellssveit og hefir búið þar síðan. Er búskapurinu þar einn hixm myndarlegasti á landinu. Hafa þar verið reist gróður- hús mikil með hverahita og eru þar ræktuð blóm og ýmsar mat- jurtir, sem eigi þrífast hér á landi við venjuleg skilyrði. Á ræktunin á Reykjum ekki sinn líka annarsstaðar á landinu. Árið 1927 kusu Mýramenn Bjama á þing. Hefir hann á þingi einkum beitt sér fyrir- landbúnaðarmálum og átt sæti bæði í landbúnaðamefnd og fjár- veitinganefnd neðri deildar. í ut- am’íkismálanefnd hefir hann átt sæti, síðan hún var stofnuð. 1928 var hann á Alþingi kosinn í bankaráð Landsbankans. I ársbyrjun 1930 var hann skipaður bankastjóri við hinn ný- stofnaða búnaðarbanka og hefir gegnt því starfi síðan. Ýms fleiri trúnaðarstörf hefir Bjarni haft með höndum. I stjóm Búnaðai félags íslands hefir hann átt sæti og á enn, tvívegis endur- kosinn af Búnaðarþingi. Héima fyrir hefir hann einnig haft opin- ber stöiri með höndum, t. d. í stjórn Mjólkurfélags Reykjavík- ui' og sveitarstjórn í Mosfells- sveit. Bjarni er einn af glæsilegustu fulltrúum á Alþingi. Ræðumaður er hann góður og skáldmæltur vel. Hann er kvæntur Ástu Jóns- dóttur, skipstjóra í Reykjavík. Björn H. Jónsson skólastjóri. Björn H. Jónsson skólastjóri, frambj óðandi Framsóknarflokks- ins í Norður-Isafjarðarsýslu, er fæddur á Torfustöðum í Miðfirði 24. júní árið 1888. Foreldrar hans eru Jón bóndi Jónsson og Ólöf Jónasdóttir á Torfustöðum, búa þar enn. Björn ólst upp með foreldrum sínum. Þegar hann var 16 ára gamall inmitaðist hann í Flensborgarskólann og lauk þar námi. Tvítugur fór hann til Dan- merkur, dvaldi þar í 6 ár og lengst af við nám. Stundaði hann nám í Askov og á Friðriksborgar- lýðháskóla. Árin 1914—20 var h.ann skólastjóri við barnaskólann í Vestmannaeyjum. Fluttist þá að Hjarðarholti í Dölum og veitti ]?ar forstöðu unglingaskóla um nokkur ár. Þaðan fluttist hann til ísafjarðar, varð kennari við bamaskólann á ísafirði, en skólastjóri við þann skóla varð hann á síðastliðnu ári. Tvímælalaust er Björn H. Jóns- son lang álitlegasti frambjóðand- inn í Norður-ísafjarðarsýslu nú við kosningarnar. Hann er glæsi- lega máli farinn og djarfmann- legur í framgöngu, bjai*tsýnn hugsjónamaður og frjálslyndur í skoðunum. Kvæntur er hann Jónínu Þór- hallsdóttur frá Bakka á Sel- tjarnamesi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.