Tíminn - 23.05.1931, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.05.1931, Blaðsíða 1
©iaíbferi oij afgrciöslumaöur Cimans er K a u it r> e i <j jDorsteinsöóttir, Sarfjaraöíu 6 a. KcYfjaDÍf. XV. árg. ^/gteifcsía C í m a n s cr í €œf jargötu 6 a. 0pin öaijlega fl. *)—6 Simi 2353 Reykjavík, 23. maí 1931. 43. blað. Frambjóðendur Framsóknarflokksíns við kosningarnar 12. júni 1931 PállJZophoniasson ráðunautur í búfjárrækt. Páll Zophoniasson ei' fæddui' í Viðvík í Skagafirði 18. nóv. 1886. Foreldrar hans voru Jóhanna Jónsdóttir, Péturssonar háyfir- dómara og Zophonias Halldórsson prófastur í Viðvík. 16 ára fór Páll í Hólaskóla. Eftir það var hann lijá Rækt- unarfélagi Norðurlands, en sigldi síðan til Danmerkui', og stundaði þar nám, meðal annars við Land- búnaðarháskólann í Kaupmanna- höfn. Þaðan tók hann próf 1910. 1910 kom hann upp aftur, og gerðist þá þegar kennari á Hvann- eyri. Árið 1912 kvæntist hann Guðrúnu Hannesdóttur frá Deild- artungu. Fyrri ár sín á Plvann- eyri var Páll stöðugt á leiðbein- ingaferðalagi á sumrum, ýmist fyrir Búnaðarfélag Islands, Rækt- unarfélag Norðanlands, Búnaðar- samband Suðurlands eða Búnað- arsamband Borgarfjarðar. 1914 fóru þau hjón að búa á Kletti í Reykholtsdal, og þar bjuggu þau samhliða því, er hann kenndi á Hvanneyri, þar til 1920, að Páll tók að sér skólastjóm á Hólum eftir áeggjan Jóns fyrv. alþm. á Reynistað og Jóns sál. Magnússonar ráðherra. Á Hólum var Páll skólastjóri til 1928, að hann eftir ósk stjórnar Búnaðarfélags Islands, tók við ráðunautsstöðu í búfjárrækt hjá félaginu. Þrjú fyrstu árin á Hólum, hafði Páll búið á leigu. Fyrir missætti milli hans og ráðunevtisins, sagði hann búinu lausu 1923. Var það þá leigt öðrum. 1928 tók hann við því aftur eftir ítrekaðri ósk Magnúsar Guðmundssonar, sem þá var ráðherra. Jón Sigurðsson á Reynistað var alltaf eftirlits- maður búsins. Lofar hann mjög búskap Páls á Hólum, og kemur það berlegast fram 1 úttektar- gjörðum og bréfum hans til stjórnai'ráðsins. Þegar Páll fluttist alíarinn frá Hólum 1928, lögðu þeir Jón á Reynistað og Sigurður Björnsson á Veðramóti til að honum yrði greitt fyrir þær jarðabætur, sem hann hafði gert fram yfir það, er nam eftirgjaldi eftir jörð og bú, rúml. 3 þús., og bæta svo við meða) annars: „Því viðskilnaður hans er að okkar dómi mjög góð- ur“. V . . V . ■ V ,7T\ Um tíma var Páll ritstjóri og meðeigandi að mánaðarritinu Fi’ey, og eftir hann liggur mikið af ritgei'ðum, mest um búnað og búfræði, bæði í blöðurn og tíma- ritum. Nú oi' Páll Zophoniasson, ásarnt sr. Sveinbirni Högnasyni, fi’am- bj óðandi Fi’amsóknarf lokksins í Rangárvallasýslu. Þekking hans og áhugi á málum bændanna, og stöirf hans í þeirra þágu, eru trygging þess, að hann verði þeim góður fulltrúi á Alþingi. Steiagr. Steinþórsson skólastjóri. Hann er fæddur á Litlu Sti’önd í Mývatnssveit 12. febi’. 1893. Foreldrar: Sigi’ún Jónsdóttir skálds Hinrikssonar og Steinþór Bjömsson bóndi á Litlu Sti’önd. Hann lauk prófi við bændaskól- ann á Hvanneyi'i voiið 1919. Fór þvínæst utan og stundaði nám við landbúnaðai'háskólann í Kaup- mannahöfn og lauk prófi þaðan 1924. Sama ár vai'ð hann kennari við bændaskólann á Hvanneyri og gegndi því starfi til 1928. Það ár var hann settur skólastjóri við bændaskólann á Hólum, er Páll Zophoníasson ráðunautur lét af því starfi. Það væi’i án efa mikill feng- ur skagfirzkum bændum að eign- ast bændaskólastjói’ann á Hólum sem fulltrúa á Alþingi. Enginn myndi málum bændanna hollari en hann, eða, sökurn þekkingar og áhuga, betur til þess fallinn að gæta hagsmuna landbúnaðai'ins. I þjóðmálunum hefir hann jafn- an fylgst vel með tíðindum, og verið framarlega í flolcki sínum í héraði. Með komu hans á Alþingi myndi hinurn gætnu, víðsýnu um- bótamönnum bætast góður liðs- auki. Ræðumaður er hann ágæt- ur. Hann er kvæntur Theodóru Sigurðardóttur úr Reykjavík. Tveir af bi'æðrum fi’á Litlu Sti’önd eru nú í kjöri við þessar kosningar: Steingrímur skóla- stjóri, í Skagafjarðarsýslu, og Þórir bóndi á Litlu Strönd, í Borgarfjarðai’sýslu. Báðir eru þeir glæsilegir til forystu, báðir Framsóknarmenn. Þríðji bróðii'- inn, Sigurður, veitir forstöðu stærsta samvinnufélaginu við Breiðafjörð. Sveinbj. Högnason prestur á Breiðabólstað. Síi'a Sveinbjöi-n Högnason er fæddur 6. apríl 1898. Voru for- eldi’ar hans Högni Jónsson bóndi á Eystri-Sólheimum í Vestux'- Skaftafellssýslu og kona hans, Ragnhildur Sigurðardóttir. Lauk hann gagnfi'æðaprófi við Menntaskólann í Reykjavík vorið 1916, sat í 4. bekk veturinn eftir, en las tvo efstu bekkina á einurn vetri, og lauk stúdentspi'ófi vor- ið 1918. Las síðan guðfræði við Hafnarháskóla og lauk þar burt- fararprófi með einni hæstu eink- unn, sem þar hefir verið tekin af íslenzkum nxönnum. Að því búnu dvaldi Sveinbjörn um tírna í Þýzkalandi við framhaldsnám og lagði þá einkurn stund á fornmál. Eftir það kom hann alkominn heinx og varð prestur í Laufási, en sótti þaðan um Breiðabólstað, var kosinn þar með yfirgnæfanda meira hluta atkvæða og fluttist þangað árið 1928 og hefir verið þar prestur síðan. Síðastliðinn vetur var hann settur skólastjóri Flensborgarskólans, en gegnir þó áfrarn prestsstörfum. Síra Sveinbjörn er tvímæla- laust einhver lærðasti guðfræð- ingur þessa lands. Ræðumaður er hann ágætur og vinsæll að því skapi. En séi’a iSveinbjöi'n einangi-ar sig ekki við prests- stai’fið. Jöi’ð sína situr hann prýðilega. Og köllun hans nær víðar en brauðið. Hann er víð- sýnn áhugamaður í þjóðmálum og því engin tilviljun, að hann hefii’ skipast í flokk þeirra rnanna, er stuðla vilja að alhliða umbótum í landinu. Mun möi'g- um þykja aukast vegur Rangæ- inga, ef þeir bei'a giftu til að eiga slíkan fulltrúa á þingi. Kæntur er sr. Sveinbjörn Þór- hildi Þoi’steinsdóttur frá Lauf- ási í Vestmannaeyjum. Sveinn Ólafsson lyrv. 1. þm. S.-MúL Sveinn ólafsson er fæddur i Firði í Mjóafii’ði 11. febr. 1863. Er hann elzti fi’ambjóðandinn nú við kosningarnar. Foreldrar hans voi'u Katrín Sveinsdóttii’ skálds á Kirkjubóli í Norðfirði og Ólafur Guðmundsson óðalsbóndi í Firði. Á unga aldri fór Sveinn utan og dvaldi um 11140 á lýðháskóla í Noregi. Árið 1884 lauk hann prófi við Möðruvallaskóla. 1885— 1886 stundaði hann kennaranám í Kaupmannahöfn. Af opinberuni trúnaðarstörfum, sem Sveinn hefir haft með hönd- um, má nefna: Sveitarstjórnar- störfum ýmsum hefir hann gegnt um 40 ára skeið. Hann átti sæti í amtsráði Austurlands. Umboðs- maðuj’ þjóðjarða í Múlaþingi hef- ir hann verið siðan 1909. Þá hef- ir hann átt sæti í jarðamats- nefnd. Árið 1928 var hann kosinn í Landsbankanefndina og er formaður hennar. I sjávarút- vegsnefnd neðri deildar hefir liann löngum átt sæti og leyst þar af hendi mikið og farsælt starf. Hann átti sæti í milli- þinganefndinni í vatnamálum, sem þjóðkunnugt er fyrir löngu. F ormaður Framsóknarflokksins var hann á árunum 1920—’21. Sunnmýlingar kusu Svein á þing í fyrsta sinn árið 1916. Hefir hann jafnan síðan verið fyrri þingmaður þess kjördæmis, og er af öllum talið víst, að svo muni verða einnig eftir þessar kosningar. Það mun allra manna mál, að hjá þessum silfurhára héraðs- höfðingja Austfirðinga fari sam- an í óvenju ríkum mæli fágætir hæfileikar, farsæl memitun og löng lífsreynsla. Sveinn er tvíkvæntur. Fyrri kona hans, Kristbjörg Sigurðar- dóttir, lézt 1895. Seinni konan, Anna Þórsteinsdóttir prests á Hofi í Álftafirði, er emi á lífi. Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra, fyrv. þm. Strand. Hann er fæddur í Rvik 9. febr. 1888. Foreldrar: Valgerður Jóns- dóttir bónda Halldórssonar á Bjarnastöðum í Bárðardal, fóst- urdóttir Tryggva Gunnarssonar og Þórhallur biskup Bjarnarson. Tr. Þ. lauk stúdentsprófi 1908, heimspekisprófi við Hafn- arháskóla 1909 og embættisprófi í guðfræði við háskólann hér 1912. Árið 1913 varð hann prest- ur í Hestþingum í Borgarfirði og bjó á Hesti til 1917. Var þá um stund settur dósent í guðfræði við háskólann. Tók við ritstjórn Tímans haustið 1917 og annað- ist hana þangað til í ágústmán- uði 1927. Á Búnaðarþingi hefir í hahn átt sæti síðan 1919, í stjórn Búnaðarfélagsins síðan 1924, og formaður félagsins hefir hann verið síðan 1925. I st-jórn Fram- sóknarflokksins hefir hann átt sæti síðan 1919, síðustu tvö árin sem formaður miðstjóniarinnar. Af öðrum opinberum störfum sem Tr. Þ. gegndi, fyrir stjórnar- skiptin 1927 má nefna störf hans í milliþinganefndinni í kæliskips- málinu, gengisnefnd og við end- urskoðun Landsbankans. Árið 1923 var Tr. Þ. kosinn þingmaður iStrandamanna og end- | urkosinn 1927. Eftir kosningam- I ar það ár fól Framsóknarflokkur- inn honum að mynda ráðuneyti það, sem við tók af stjórn íhalds- manna. Jafnframt forsætisráð- herraembættinu hefir hann verið atvinnu- og samgöngTimálaráð- herra lengst af. Við lát Magnúsar Kristjánssonar seint á árinu 1928 var Tr. Þ. settur fjáimálaráðh. og gegndi því starfi fram á þing 1929. Við breytingu þá, sem varð á ráðuneytinu í s. 1. mánuði var gjörð ný starfaskipting milli ráðherranna, og veitir Tr. Þ. nú forstöðu dóms- og kirkjumála- deild og fjármáladeild ráðuneytis- ins. Það yrði of langt mál að rekja hér hin mörgu og áhrifaríku af- skipti, sem Tr. Þ. hefir haft af þjóðmálum liin síðustu árin. En kærasta viðfangsefni hans hafa landbúnaðarmálin jafnan verið. Tr. Þ. er kvæntur önnu Klem- enzdóttur, fyrverandi ráðherra. Enginn efast um, að hann verði enn endurkosinn Þorleifur Jónsson fyrv. þm. A.-Skapt. Þorleifur Jónsson er fæddur í I-Iólum í Hornafirði 21. ágúst 1864. Foreldrar hans voru Þórunn Þorleifsdóttir bónda í Hólum og Jón hreppstjóri Jónsson prests á Hofi í Álftafirði. Þorleifur dvaldi við nám í Möðruvallaskóla 1881—82. En

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.