Tíminn - 11.06.1931, Page 1

Tíminn - 11.06.1931, Page 1
^fgreifcsía C í nt a n s er i £cef jarijötu 6 a. ©piu öagleija fi. 9—6 Simi 2353 Ofaíbfeci ocj afgrci6siuma6ur limans er H a n n d e i g porsteinsióttir, Ccefjarijötu 6 a. Seyfjaníf. XV. árg, Reykjavík, 11. júní 1931. 47. blað. Kosningaskrifstofa C-listans verður á morgun í Búnaðarfélagshúsinu Simar 1101 496 ög 2132 ^ar ^eía kjósenduv fengið alla aðsíoð ...... " -* oj? upplýsingar um kosninguna Þegar hringt er á miðstöd nægir að bidja um C-listauu „ii Itlli simr tlirf Fyrir nokkru kom út í Ame- ríku bók aem hét: „Er þetta sonur j7ðai’?“ Það var lýsing á hinu vaxandi glæpa- og skríl- veldi í Ameríku. Höfundurinn spyr þjóðina blátt áfram þeirrar samvizku spumingar, hvort sögu- hetjan, eins og henni er lýst, sé sonur Ameríku, hvort landið vilji kannast við að þar sé eitt af börnum þess. Nokkrir atburðir hafa komið fyrir í Reykjavík á hinum síð- ustu tímum, sem vekja upp hina sömu spurningu. Reykjavík er að eignast nýja tegund af fólki, sem eldri kynslóðin ekki kannast við. Það er að vaxa upp skríll í Reykjavík. Hann er ekki sérlega margmennur, en hann er að byrja að láta sín gæta í bæjar- lífinu. Það er svo komið að ekki verður komist hjá að spyrja höf- uðstaðinn í sambandi við þessa afvegaleiddu gi-ein af kynstofn- inum, að þessari spumingu: Er þetta sonur yðar? Dagana milli 14. og 21. apríl s. 1. fór þessi lýður flest kvöld með ópum og illum látum um bæinn eftir að dimmt var orðið. Æs- ingamar byrjuðu nálega ætíð í og við íhaldshúsið. Síðan var ó- látunum haldið áfram við Þing- húsið, við bústað forsætisráð- herra, á Lækjartorgi, við líkn- eskju Jóns Sigurðssonar og að lokum eina nóttina hjá erlendum sendiherra. Þangað átti að stefna liðinu aðra nótt, en þá bar einn af leiðtogum íhaldsins vit fyrir þessum fáráðlingum, og afstýrði í það sinn að annað brot yrði gert á velsæmi þjóð- réttarins. Eftir upphlaupsvikuna duttu æsingarnar um stund í dá. Það fólk, sem þar hafði mest að starfað, var lamað og þreytt. Síð- an komu útifundimir í bama- skólaportinu. Þeir voru þrír. Á hinum fyrsta gerði skríllinn vart við sig með hávaða og ólátum, þegar efsti maður á lista Fram- sóknar, Helgi Briem bankastjóri, hélt ræður sínar. En vegna há- talarans heyrðust ræður hans nokkumveginn. En það var sýnt þá þegar, að hið nýja úrkast var að vakna til lífsins aftur. Á næsta fundi hélt Helgi Briem og sá, sem þetta ritar, sínar tvær ræðurnar hvor, vegna Framsóknarflokksins. Auðséð var að íhaldsfélagið Heimdallur hafði undirbúið óhljóð og læti í því skyni að varna okkur máls, en það fór eins og fyrri daginn, að hin sterka rödd hátalarans vai’ð máttarmeiri orgum og ó- látum þeirra sem ekki þoldu að heyra þung og alvarleg rök. En á þeim fundi gerði fund- arstjórinn Sigurður Jónsson skólastjóri sig sekan í vítaverðu athæfi tvisvar sinnum, sem fundarstjóri, og sem ábyrgðai’- maður fyrir uppeldi mörg þús- und barna í Reykjavík. Sigurður er rammur íhalds- maður, en hefir verið talinn hversdagsgæfur og álitið að hann kynni að stilla í hóf um bardaga- aðferð. Svo reyadist þó ekki. Meðan Helgi bankastjóri var að tala, og óhljóð og hávaði heyrð- ist frá börnum og unglingum úr ílialdsherbúðunum, stendur Sig- urður upp og þykist vera að hasta á þá, sem brutu almennar velsæmisreglur á fundinum. En hann gerði það á þann hátt, að eggja þá sem átti að sefa. Hann segii’ nokkur orð í kesknistón um að fundarmenn megi ekki fara þannig að, því að þeir geti fipað suma ræðumenn — þ. e. þá, sem væru viðvaningar. Kunn- ugir skilja hve hér var hlægi- lega að farið. Sigurður barna- skólastjóri talar um að ekki megi fipa Helga Briem! Sigurði er sennilega ekki ljóst, að maður- inn sem hann heldur að læri- sveinar hans muni fipa, getur að málinu til haldið betri ræður á fjórum erlendum tungum, heldur en iSigurður Jónsson á sínu eig- in máli. Sigurði er heldur ekki ljóst, að hann er að menntun til eins og bekkjarlalli í skóla hans í samanburði við þroskaðan gáfumann, ef mæla skyldi þroska Sigurðar á við menntun hins fjölmenntaðasta gáfumanns með- al yngri íslendinga. Hlutdrægni Sigurðar og vönt- un á þeim drengskap og manna- siðum, sem einkennrr réttláta fundarstj óra, var hér komin í Ijós. En þó átti meira að bætast við. í fundarlokin heldur hann hvatningarorð til „Reykjavíkur- valdsins“ að duga nú vel á kjör- degi. Enginn góður fundarstjóri levfir sér að halda æsingaræðu í lok fundar, eftir að keppinaut- arnir eru hættir að geta tekið til máls. Góður fundarstjóri á að breyta eins og réttlátur dómari. Tveim dögum síðar átti að sannast að hér var ekki um neina tilviljun að ræða. Það var leyniþráður í milli Sigurðar Jóns- sonar fundarstjóra og manns með sama nafni sem stýrir barnaskóla Reykjavíkur, og hins uppvaxandi skríls, sem setti blæ vanmenningar og þrælslundar á vissar hliðar bæjarlífsins. Á þriðja fundinum er poi-tið enn sem fyr fullt, sennilega 2—3000 áheyrendur. - Flestallir eru þessir áheyrendur ráðsettir menn, eldri og yngri. Þeir koma eins og góðir borgarar til að hlýða á rökin fyrir átökum flokkanna. En í hópnum eru á að gizka 5—7 % af uppvaxandi skríl, töluvert börn úr barnaskól- anum, nokkuð af unglingum, og lítið eitt af eldri mönnum, eink- um dæmdir sakamenn, sem ekki hafa tekið betrun. Þegar ræðumenn Framsóknar, Helgi Briem, Gísli Guðmunds- son ritstjóri og sá, sem þetta ritar, héldu ræður fyrir hönd Framsóknarflokksins um vamir gegn dýrtíðinni í Reykjavík og um Sogsmálið, sem landsmál, þá gerði áðurnefndur skríll óp og háreisti sem hindraði það að mál þeirra heyrðist nema að nokkru leyti, þrátt fyrir hátalarana. Til- ganguriim var eingöngu sá, að varna þeim máls., Og ólætin höfðu verið undirbúin. Hér skulu aðeins nefndir tveir af þeim, sem sérílagi stjómuðu þessu nýstárlega framferði. Annar hét Leifur, sonur Þorleifs Bjamason- ar, kennara við Menntaskólann, hinn var Einar Ásmundsson járningamaður íhaldsins. — Á fyrsta fundinum hafði Páll Stef- ánsson, fyrverandi vörubjóður og Lúter nokkur dyravörður við barnaskólann haft mannaforráð við að leika villimennskuna. Seint á fundi þessum þykist íundarstjórinn vera að hasta á þennan lýð, meðan Helgi Briem er að tala, snýr sér að þeim sem ekki kunnu mannasiði og segir að þeir skuli hætta óhljóðunum, það sé engin hætta á að ræðu- maður geti talið þeim hughvarf! Það er erfitt að hugsa sér hvemig fundarstjórinn getur óllu meira misbeitt valdi sínu en á þennan hátt, þar sem hann leyfir sér að taka í strenginn með þeim, sem valda mestum spjöll- um, og gefa fyllilega í skyn, að rétt hefði verið að varna ræðu- manni máls með siðleysi, ef hætta hefði verið á að rök hans hefðu sannfært andstæðingana. 1 stuttu máli: Af því flokki fundarstjór- ans var ekki að þessu sinni hætta búin af rökum fundarmanns, þá var ástæða til að láta óhljóð og arg þagna. En þá er um leið ját- að, að ef hætta var á ferðum um að samherjar fundarstjórans beygðu sig fyrir rökum ræðu- manns, þá var réttlætanlegt, að leyfa siðleysinu að njóta sín! Einn af helztu borgurum þessa bæjar stóð hjá fundarstjóra, er hann framdi þetta síðasta hneyksli. Hann tók Sigurð Jóns- son sterkum tökum eins og seka smásál, og lét hann finna hvílíka lítilsvirðingu hann hefði aflað sér með framkomu sinni. Sú áminn- ing var fyrsta aðvörun til Sigurð- ar um að bærinn og þjóðin myndi fara að athuga, hvemig skríls- eðlið vex og dafnar í höfuðstaðn- um. Það verður ekki komizt hjá því að athuga það, að sá maður, sem fremur hér hina brotlegu fundar- stjóm er skólastjóri fyrir stærsta skóla landsins. Og það er ekki vert að gleyma því, að meðal þús- unda af vel siðuðum börnum úr heimilum góðra foreldra í bænum, hefir líka komið nokkuð mikið úr skóla Sigurðar Jónssonar af því botnfalli að siðgæði og mann- dómi, sem nú hefir verið lýst. í upphlaupinu út af þingrofinu í vor, og í skrílslátum stjórnmála- fundanna hefir borið allt of mik- ið á lærisveinum úr skóla þessa manns. Og það er ekki sýnilegt, að þjóðfélagið geti búist við nægilegu aðhaldi frá þessum manni sem skólastjóra, úr því hann kann ekki betur til þeirra hluta, sem tilheyra drengilegri fundai’stjórn, heldur en dæmi þessi sýna. Eftir þingrofið barst mér í hendur ritgerð úr einum skóla hér í bænum, sem lýsir betur en noldaið annað þeirri siðferðislegu hættu, sem vofir yfir bænum í þessu efni. Ritgerðin tekur fram öllu, sem áður þekkist um siðleysi og ruddaskap í stílæfingum ung- linga. Hún virðist benda á að aðalandstæðingar Framsóknar láti viðgangast að unglingar skrifi hatursfuliar æsingaritgerðir undir eftirliti kennara í skólum. Ritgerð þessi virðist vera eftir unga stúlku, liðlega fermda, uppvaxna í þröngsýnu, en almennt talið vel metnu og heiðarlegu embættis- mannsheimili í Reykjavík. Ofsinn og hatrið er svo taumiaust í rit- gerð þessari, að hún mun á ókomnum öldum verða álitin bezta og sannasta augnabliks- myndin af þeim tryllingi, sem fyllti brjóst íhaldsins í Reykja- vík fyrstu dagana eftir að Einar Arnórsson hafði gefið íhaldinu inn- tálrökin um að þing, sem var uppleyst gæti haldið áfram störf- um, ef Gunnar á Selalæk legði blessun sína yfir vitleysuna. Ég hafði búizt við að koma þessari ritgerð hinnar ungu höfuðstaðarstúlku í skjalasafn landsins til þess að rithöfundar seinni alda gætu -betur metið at- burðina. Ég fann að fólk út um land myndi ekki skilja svona æsku. En eftir að komið er í ljós, að hér er um uppeldislega hættu að ræða, og að maður í hinni mestu trúnaðarstöðu við uppeldi barna í bænum tekur á þessum málum eins og nú hefir verið sýnt, þá er ekki hægt að breiða yfir söxmunina fyrir þeirri meinsemd, sem hér er að gegn- sýi’a vissan hluta þjóðlíkamans. Ritgerðin er sem hér segir: A. Ó. II. bekk. C. íslenzkur stíll. Alþiugi íslands. þriðjudaginn 14. apríl 1931, kl. 2 eftir liádegi, var iesið upp á Alþingi bréf írú Kristjáni konungi X., þar sem liann skipar að rjúfa Alþingi íslands. Ástæðan var sú, að Sjálf- stæðisflokkurinn og kommúnistar komu sér saman um að lýsa van- trausti á núverandi stjórn landsins, sem auðvitað var alveg sjálfsagt, því enginn maður í stjórninni e.r með fullu viti, svo sem ráðherrarnir Tryggvi þórhallsson forsætisráðherra og Jónas Jónsson dómsmálaráðherra (fyrverandi). þegar bréf þetta var lesið upp, var margt manna á þingi, einkum skólafólk. Til dæmis tók 2. bekkur B sér einkaleyfi í stærðfræð- istíma lcl. 2—3. Eins og von var, varð æsingur mikill út af þessu. Fyrst kenndu menn aðallega Jónasi dómsmálaráðherra um þetta, en nu er það komið upp um Tryggva þór- liallsson, að hann hefir svikið Is- lendinga, með því að senda Stjána tíkall (konungi) skeyti um að rjúfa Alþingi. Ef til vill hefir Tryggvi haldið, að aimenningur tæki þessu stillilega og að hann fengi, á eftir þessu öllu saman, að ráða lögum og lofum í landinu, en þar skjátlaðist lionum algjörlega, því Sjálfstæðis- menn eru ekki svo heimskir. Jónas, hetjan mikla, varð eins og gefur að skilja, mjög hræddur, þegar æsing- urinn varð svona mikill, og fór út úr bænum, eins og hann er vanur ef eitthvað gengur á. Hann hélt í bíl upp að Laugarvatni, og var lokaður þar inni á salemi í tvo daga, eftir

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.