Tíminn - 12.06.1931, Page 1

Tíminn - 12.06.1931, Page 1
XV. ár. Reykjavík, 12. júní 1931. Aukablað 8. Andsíæðingar íhaldsins í Reykjavík! Til minnis 10 atriði af nokkmm hundruðum. Sameinisi um að koma Helga Briem inn í þingið í dag! Meiri fraihfarir! Eefir ihaldið heðid konung' ad „skakka leikinn“? Fyrir mannsaldri stóð ísland öllum nálægum löndum langt að baki um verklega menningu og framkvæmdir. Það, sem af er þessari öld, hefir bilið milli vor og granna vorra minnkað stórum. En aldrei höfum véi\ íslendingar gengið slíkum rísaskrefum á framfarabrautinni sem undanfar- in fjögur ár — stjórnartíð Fram- sóknarf lokksins. Hviar sem farið er um landið blasa við framfarir og fram- kvæmdir, tröllauknar á íslenzkan mælikvarða. Öll héröð landsins hafa af framkvæmdunum að segja, rneira eða miima. Ræktun landsins hefir aukizt stórlega fyrir margvíslegan at- beina Farmsóknarflokksins. Tímamót hafa orðíð í húsagerð sveitanna, með stofnun Bygg- ingar- og landnámssjóðs. Samgöngui’ hafa aukizt og greiðst að stórurn mun, með meiri vegagerð, brúasmíð og símalagn- ingu en nokkru sinni áður á jafn- skömmum tíma, og stórauknum strandferðum. Bankamál landsins hafa komizt í stórbætt horf. Hlynnt hefir verið að menntun landsmanna, meir og betur en nokkru sinni fyr. Barnafræðslan hefir verið umbætt, héraðsskólum komið upp í sveitunum, og end- urbættir þeir, sem fyrir voru, gagnfræðaskólai’ stofnaðir í kaup- stöðunum, húsmæðraskólar stofn- aðir, Norðlendingar fengu menntaskóla, Reykj avíkurskóli endurbættur, undirbúin framtíð- arbygging fyrir háskólann og vönduð útvarpsstöð reist. Enn má nefna Menntamálasjóð, sund- laugar víða um land o. m. fl. Löggæzla, landhelgisvamir og tollvarzla hafa gerbreyzt til batn- aðar, og fangelsin komizt í nú- tímahorf. Bókhald ríkisins hefir verið umbætt og eftirliti komið á með embættisrekstri starfsmanna rík- isins. Margt hefir verið gerf til sparnaðar og hagræðis í ríkis- búskapnum (Arnarhvoll, ríkis- prentsmiðjan, skipaútgerðin, Landssmiðjan o. m. fl.). Framfarir þær og umbætur, smáar og stórar, sem þjóðin á að þakka Framsóknarflokknum og Framsóknarstjórninni, verða ekki tölum taldar. En „þeir, sem augu hafa, þeir sjárf. Margvísleg og merk framfara- mál eru undirbúin, að meira leyti eða minna. Kosningarnar í dág skera úr því, hvort framfaraflokkur og framfarastj órn eiga að fara með völd áfram í þessu framfaraþurf- andi landi. Þær skera úr um það, hvort hér verða áframhaldandi umbæt- ur á hag, aðbúnaði og nrenningu þjóðarinnar, eða ríkja skuli nú um stund dauðamók íhalds- mennsku og einstaklingssér- drægni. Þú svarar að þínum hluta, kjósandi, með atkvæði þínu í dag. Kj örlisti Framsóknarf lokksins, listi athafnamannanna í verkleg- um og menningarlegum framför- um, er C-Usti. „S j álf stæ ðis“-herinn Ihaldsnafnið reyndist miður vinsælt. Þess vegna tóku íhalds- foringjarnir upp á því, að skipta um nafn. Þeir gátu ekkert nafn notað, er rétt lýsti ginkennum flokksins og málum. Þá tóku þeir nafn, sem verið hafði vinsælt með þjóðinni og vonuðust eftir að geta ginnt að sér eitthvað af æskulýð á því. Ihaldsmenn urðu að „sjálf- stæðismömium“. Og nú er fróð- legt að líta á „sjálfstæðis“-ijóma þeirra, er fremst ganga í hjörð- inni. Jón Þorláksson var uppkasts- maður 1908 og andstæðingur fánamálsins 1906—1915. Magnús Guðmundsson beygði sig fyrir útlendingnum í Krossa- nesi og gerðist leppur útlendra auðmanna í Shell. Ólafur Thors er hálfur danskur maður að ætt og eðli. Einar Arnórsson gegndi utan- stefnu Danakonungs, samdi um- boðslaus við hann um mál lands síns og gerðist ráðherra „af kóngsins náð“, án vitundar og vilja Alþingis. Guðrún Lárusdóttir lifir og starfar á fé því, er Danir greiða til heintatrúboðs. Þetta fólk gengur fremst í „sjálfstæðinu“. Og aðalmálgagn flokksins, Morgunblaðið, er stofnað fyrir danskt fé. Fyrir fáum árum var formaður útgáfufélags þess al- danskur. Og skammt er síðan, að allverulegur partur hlutafjárins var eign danskra manna, búsettra í Danmörku*). Ef þetta er ekki „danskur mál- staður“, þá er hann hvergi til á Islandi. D-listi = Danski listinn. *) Fyndinn maður nefndi Mbl. eitt sinn „gamanblað Dana á íslandi". C-listiim er Framsóknarlistimi. Ivjósið C-listann. Grein, sem út kom í danska | blaðinu „Finanstidende" rétt e£t>- j ir þingrofið, vakti talsverða at- hygli og umtal hér heima og það að vonum. Þar var nefnilega að því vikið, að í raun og veru væri þörf á því, að konungur færi þá þegar til Islands í þeim erindum að binda enda á þá deilu, sem nú ætti sér stað milli stjórnmála- flokkanna íslenzku. Flestir álitu þá, að þessi fárán- legu ummæli stöfuðu af ókunn- leik um afskifti konungs eins og þau hafa tíðkast, af íslenzkum málum. En skýring þessa fyrirbrigðis er nú fengin. Hún er fengin með íregnum, sem hingað hafa bor- ist frá Kaupmannahöfn allra síð- ustu daga. Þessar fregnir herma, að frum- kvæðið um för konungs hingað til að „skakka leikinn“ sé kom- in héðan af Islandi. Fregnimar herma, að einn nafnkenndur borgari búsettur hér í Reykjavík, sem er hirðmaður konungs, hafi af íhaldsins hálfu haft í frammi slíka málaleitun við konung sjálfan. Ihaldsmennimir hafa þá eftir þessu ekki látið sér nægja, a.3 fara fram á það við Konungs- valdið, að virða að vettugi ráð- stöfun íslenzkrar þingræðisstjóm ar og setja hér konungkjörið þing. Þeir hafa þá líka farið fram á það við konunginn, að hann kæmi hingað í eigin persónu til að setja „hina konungkjömu“ inn í umboðin. Þetta eru hinir íslenzku „sjálf- stæðismenn", mennimir, sem í dag flagga með íslenzka fánan- um á kosningabílum og fremstu síðu í Morgunblaðinu. Slíkum mönnum geldur þjóð- in í dag verðskuldaða fyrirlitn- | ingu. A að vera skríll í Reykjavík? Forsprakkar íhaldsflokksins segja að Framsóknannenn tali um skríl í Reykjavík. En það eru einmitt andstæðing- ar Framsóknarflokksins, sem frek ast hafa gengið fram í því, að sanna að Reykjavík eigi skríl. Þeir sönnuðu það vikuna eftir þingrofið 14. apríl s.l. og þeir sönnuðu það með vinnubrögðum sínum í barnaskólaporfinu á kjós- endafundunum síðastliðna daga. Að undirlagi Jakobs Möllers og Magnúsar Jónssonar var safnað saman illa vöndum drengjum við ræðupallinn, til þess að æpa að ræðumönnum Framsóknarflokks- ins og vama áheyrendum að heyra mál þeirra. Ihaldsmennirnir þorðu ekki að láta kjósendur í Reykjavík heyra þau rök, sem ræðumenn Fram- sóknarflokksins höfðu fram að bera. Þeir þorðu því ekki af því, að þeir voru búnir að skrökva því að fólkinu, að Framsóknarmenn- imir væru óvinir Reykjavíkur. En geta kjósendur Reykjavík- ur þolað það, að þeim sé varnað að heyra rök stjómmálaflokkanna sem þeir eiga að velja um við kjörborðið ? Er það ekki frekleg móðgun við reykvíska kjósendur, að hóa saman æpandi götudrengjum til þess að taka frá þeim tækifærið til að dæma milli flokkanna? Er það ekki skylda kjósendanna að koma í veg fyrir að slík ó- svinna verði oftar höfð í frammi? Er það ekki skylda kjósend- anna að refsa þeim, sem þannlg vnna að því, að setja skrílssvip á höfuðstaðinn? Reykvískir kjósendur eiga að gefa upphafsmönnum ófagnaðar- ins áminning-u, sem dugir. Þá áminningu er auðveldast að gefa við kjörborðið og þar verð- ur hún eftirminnilegust. Löghlýðnir og friðsamr borg- arar, sem ekki vilja að Reykja- vík sé skrílbær, eiga ekki að láta atkvæði sín falla á Jakob Möller og Magnús Jónsson. Áminning kjósendanna við kjör borðið er það eina, sem getur komið í veg fyrir, að óhlutvandir ofstopamenn leyfi sér að gjöra ráðstafanir til að spilla fundafriði og koma óorði á höfuðstaðinn. Meiðyrðamál hefir Helgi Briem bankastjóri höfðað gegn ritstjófa Vísis fyrir ósæmilegar aðdróttanir, sem í blaðinu hafa birzt nú í kosninga- baráttuimi. Dróttaði blaðið því að Helga Briem, að hann hefði farið með falskar tölur viðvíkjandi verzlanafjölda hér í bænum í sam- bandi við dýrtíðina. En tölur þær sem H. Br. nefndi, voru teknar upp úr Árbók Hagstofunnar. Togarastöðvunin. Ný skýring. Andinn kemur yfir Jón Ólafs- son með seinheppilegum hætti í Þylíkvabæ.Á fundi þar í fyrradag gaf haim þá skýringu, að togar- arnir hefðu verið bundnir við hafnargarðana hér í Reykjavík á hávertíð í vetur af ótta við það að sjómennii’nir mundu fá inflú- enzul Allir kjósi C-listann. C-listinn er Framsóknai'Iistinn. Við kjörborðið er nauðsynlegt að muna þetta: 1. Það var fyrir íhaldsflokkinn, sem atkvæðin voru fölsuð í Hnífs- dal 1927, og það voru íhaldsblöð- in, sem vörðu fölsunina. 2. Það voru íhaldsmenn, sem frömdu mesta ódrengskap, sem ltunnur er í stjómmálum, er þeir reyndu að fá Jónas Jónsson úrskurðaðan geðveikan. 3. Það voru íhaldsmenn, sem sáu ekki ólagið hjá Einari Barðastrandaryfii-valdi, breiddu yfir sjóðþurðina í Brunabótafé- laginu og vörðu vaxtatöku Jó- hannesar. 4. Það eru íhaldsmenn, sem sólundað hafa 33 miljónum af fé bankanna — fé almennings — og orsakað með því háa vexti og al- menna fjárþröng. 5. Það voru blöð íhaldsins, sem báru út róg um hag og láns- traust landsins s. 1. sumar og reyndu með því að hindra það, að ríkislán fengist. 6. íhaldsblöðin, sem kenna sig við „sjálfstæði“, hafa dróttað glæpum að æðstu mönnum lands- ins og sett með því skrílsmark á þjóðina í augum erlendra manna. 7. fhaldið reynir að breiða yf- ir hugsjónaleysi sitt og viljaskort til framfara — reynir að fela hagsmunastreitu sína fyrir fá- menna auðborgaraklíku, — með því að segjast heita „sj álfstæðis- flokkur". Með þessu reynir það að vekja deilur um mál, sem all- ir íslendingar eru einhuga um og hafið er yfir flokkadeilm*. 8. íhaldið hefir gerzt svo ó- heyrilega ósvífið að nota helg- ustu mál manna, trúmálin, sem beitu til að veiða sér á kjörfylgi. 9. Það var íhaldslýður (— ,,sjálfstæðismenn“), sem gerði aðför að bústað sendiherra er- lends ríkis að náttarþeli, landi og þjóð til uppiverandi skammai’. 10. Ihaldsmenn höfðu í frammi skrílslæti í barnaskólaportinu að kvöldi 9. þ. m., Reykjavíkurbæ til stórhneisu. Svona mætti telja óendanlega. Enginn samvizkusamiu' íslending- ur getur kosið íhaldsmenn á þing. Listi íhaldsins er D-listi, en A-lista-menn eru bandamenn þess. Einu andstæðingar íhaldsins eru Framsóknarmenn. Listi -þeirra er X C-listi. Kjósið hann! -----o---- Ein sönnunin enn. Ólafur Thórs og Guðbrandur Jónsson héldu fund í Keflavík á sunnudaginn. Fundur þessi stóð í tvær klukkustundir, og hafa viðstaddir jafnaðarmenn sagt frá því, að framsöguræða Guðbrands Jónssonai’ hefði verið afsaltan- leg lokai’æða á þingmálafundi, sem staðið hefði í 10 klukku- stundir. Framsóknarmenn sendu engan ræðumann á fund þennan og þá höfðu þessir fullhugai* íhaldsins og jafnaðarmanna ekk- ert til að deila um. Ekki er óværð- in í flatsænginni þarna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.