Tíminn - 18.07.1931, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.07.1931, Blaðsíða 4
176 TÍMINN SMÁRA-BLAÐIÐ I!sí •S&. ■»•■' W Mýtt met hjá Þýzkum smjðrlíkismeistara tekst að gera hár smjðrlíki, sem skapar byltinp í smjörlíkisiðnaði. Stórkostleg"ar sparnaðnr fyrir kvert einasta heimili. H.f. Smjörlíkisgerðin Smári hefir fyrir nokkuru fengið þýzkan sérfræðing í smjör- likisgerð, sem hefir unnið sem fagmaður yfir 20 ár hjá stærstu smjörlíkisverksmiðjum -Ev- rópu. Með nýjum vélum og efnum hefir honum tekist að gera hér smjörlíki, sem tekur fram öllu því, sem hér þekkist á því sviði. Smjörlíki þetta er nú að komast á markaðinn, svo allir geta sjálfir af eigin reynslu dæmt um, að hér er um verulega framför að ræða. Smjörlíki þetta er algerlega ólíkt öllu því smjörlíki, sem hér hefir þekst. Vegna þess að það er eingöngu gert úr hreinni feiti og sýrðri mjólk (í því er sáralítið vatn), fær það ilm þann og bragð, sem þekkist einungis í rjóma- bússmjöri, gerðu úr sýrðum rjóma. Finnið ilminn af rjómabússmjöri. — Berið saman við „Smára“. Finnið bragðið af rjómabússmjöri. Berið saman við „Smára“. Reynið yfirleitt „Smára“ samhliða smjöri — en ekki smjörlíki. Lesið álit sérfræðinga í matargerð um nýja smjörlíkið. Af ótal mikilsverðum meðmælum með nýja „Smára“ birtum við eftirfarandi. Þau eru frá svo viðurkenndum sérfræðingum í matargerð, að álit þeirra hlýtur að verða einnig álit flestra annara. Landsspítalinn: Frk. Kristbjörg Þorbergsdóttir, ráðskona Landsspítalans, segir: Nýja „Smára“-smjör- iíkið tekur að öllu ieyti fram öðru smjörlíki. Kvennaskólinn: Frk. Elísabet Jónasdóttir, prófuð hússtjórn- arkennslukona, segir: „Smjörlíki yðar, „Smári“ nr. 1, er líkara smjöri en annað smjörlíki, sem ég hefi hingað til reynt, og gef ég því mín beztu meðmæli“. Guðjón Jónsson, hinn góðkunni bryti á E.s. „Dettifossi“: Ég nota „Smára“-smjörlíki. Mér finnst það af- bragðsgott. Heinrich Möstel frá Kontinental Hotel í Berlín, nú yfirmat- reiðslumaður á Hótel Borg, viðurkenndur sér- fræðingur í matai’tilbúningi, lætur Jmnnig í ljósi álit sitt á nýja Smára: „Sýnishom af „Smára“-smjörlíki hefi ég reynt vandlega við allskonar matreiðslu og niðurstaðan er þessi: 1) Smári snarkar ekki á pönnunni og freyðir og brúnar eins og bezta smjör. 2) Kökur og tertur, sem gerðar eru með Smára, eru fullkomlega jafn bragðgóðar og bakstur, sem smjör er notað í. 3) Við tilbúning á smjörkremi er Smári hrein- asta fyrirtak. 4) í sósur og mat er ekki hægt að finna neinn mun hvort notaður er Smári eða smjör. Bræddum út á fisk er ekkert, sem tekur Smára fram, þar sem undir hann sezt enginn sori. 5) Ofan á brauð kemst Smári til jafns við smjör, þar sem bragð og ilmur er hið sama og í rjómabússmjöri. Að öllu samanlögðu er það álit mitt, að „Smára“-smjörlíkið sé langsamlega fremra öðrum smjörlíkistegundum að gæðum“. Frú Paula Messel, sem fræg er um öll Norðurlönd fyrir mat- reiðslu, segir, út af sýnishomi af nýja Smára, sem var gerður sérstaklega handa henni, þeg- ar hún var hér á ferð: Áður en byrjað er að matreiða verðum við að hafa „Smára“-smjörlíki fyrir framan okk- ur. Smára-smjörlíkið er svo fínt og lostætt borðsmjörlíki, að það er vanþekkt frá rjóma- bússmjöri. Og það er mitt álit, að þegar við getum náð sama árangri með ódýrari vörur, þá sé sjálfsagt að nota sér það. 1 hverju landi þar sem ég kem, er það mitt fyrsta verk að reyna allar smjörlíkistegundir, því að það er mikilsvert fyrir mig, að ég fái aðeins fyrsta flokks smjörlíki til notkunar á matreiðslu- námsskeiðum mínum. Á Islandi mun ég nota nýja Smára. Yfirlýsing frá hr. Emst Rath smjörgerðar- manni: Verksmiðjur Smára í Reykjavík eru í raun og veru smækkuð útgáfa af nýtízku smjör- líkisverksmiðjum erlendis. Allar vélar og áhöld eru þar af nýjustu tízku. Mér er kunnugt um, að það er eina verksmiðjan í Reykjavík, sem hefir kælivélar og kælitromlu-útbúnað, sem eru riin fullkomnustu tæki, sem fáanleg eru til framleiðslu á fyrsta flokks smjörlíki. Er það eina aðferðin, sem gerir mögulegt að fram- leiða vatnslaust smjörlíki. Hráefnin, sem verksmiðjan notar, eru ein- ungis hin allra beztu, sem unnt er að fá, og framleiðslan öll þannig, að hreinlæti er svo sem mest má vera á öllum sviðum. I smjörlík- ið eru ekki notaðir neinir „essensar“ til þess að framleiða smjörbragð, heldur einungis hreinræktuð mjólkursýra. Með því móti er trygg-t, að smjörlíkið inniheldur engin skaðleg efni, og er jafn heilnæmt og frískt og rjóma- bússmjör. íslendingar geta verið mjög ánægðir með iðnaðarfyrirtæki sín, ef framleiðsla þeirra á oðrum sviðum jafnast á við framleiðslu Smára. E. Rath, sérfræðingur í smjörlíkisframleiðslu. Bændur! Smári geymist betur en ennað smjöriíki, hann er því sjálfkjörinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.