Tíminn - 05.09.1931, Blaðsíða 3
TlMINN
•?.anfp
verður að heimta af bönkunum,
að þeir láni ekki fé þeim togara-
fyrirtækjum, sem greiða yfir-
mönnum skipanna heiinskulegt
kaup. Það verður að semja lúg
um hámarkstaxta á kaupgreiðsl-
til svokallaðra „sérfræðinga" og
sem ekki stilla í hóf kröfum sín-
um. Það verður að leggja skatt
á allt óhóf hverju nafni, sem
nefnist, til að afla fjár til að
halda hung-urvofunni burtu frá
’dyrum starfandi manna í landinu.
Það er vel hugsanlegt, að ríkið
verði um stundarsakir að setjainn-
og útflutningsnefnd eins og 1918,
bæði til að koma skipulagi á af-
urðasöluna, og til að forðast inn-
flutning og kaup á óþarfa, meðan
kaupgeta landsmanna er svo lítih
I Isiandsbankamálinu kom fram
stefnumunurinn á Alþingi, um
hversu ber að taka skakkaföllum
líkum þeim, sem nú bera að
höndum. Þegar bankann rak upp
á sker í fyrra og hann vantaði
margar miljónir til að eiga fyrir
skuldum, vildu Eggert Claessen
og Jón Þorláksson og láta landíð
ganga í ábyrgð fyrir allri súp-
unni. Allur skellurinn, allt sem
Sæm. Halldórsson, Copland og
aðrir þvílíkir fésýslumenn höfðu
sukkað frá bankanum hefði þá
orðið að vinna upp með sköttum
af almenningi í landinu. Þessu
var neitað. Nokkur málamiðlun
fékkst, nokkrar miljónir voru
sparaðar skattborgurum landsins
fyrir baráttu Framsóknarmanna
á þingi 1930 í íslandsbankamál-
inu. En a. m. k. hálfa miljón
króna verða skattborgarar lands-
ins samt að greiða árlega fyrir
óreiðumenn og fjársvikara, sem
íslandsbanki lánaði fé og tap-
aði á.
Saga íslandsbankamálsins á
þingi 1930 sýnir baráttuna, sem
framundan er um dýrtíðarmálin.
Annarsvegar mun íhaldsflokkur-
inn reyna að halda í dýrtíðina,
eins og hann hélt í íslandsbanka.
Því næst mun hann reyna að
láta allan kostnað við þær
ráðstafanir, sem af dýrtíðinni
leiða færast yfir á skattborgar-
ana gegnum nefskatta. Og í sam-
ræmi við þetta munu leiðtogar
íhaldsins reyna að hindra allar
meiraháttar ráðstafanir til að
koma á heilbrigðu verðlagi í land-
mu.
Fyrir borgara landsins og ekki
sízt fyrir ungu kynslóðina í land-
inu skiptir það miklu máli hvort
íhaldsstefnan eða Framsóknar-
stefnan sigrar í dýrtíðarmálinu.
Ef íhaldsstefnan sigrar verður
kreppan lengi, tekin eyðslulán
meðan til nær, og byrðar augna-
bliksins lagðar á ungu kynslóð-
ina, sem er að vaxa upp. Óhófs-
eyðslunni verður haldið áfram,
unz þjóðfélagið brotnar niður
eins og spilaborg undan þunga
fjölmennrar stéttar, sem heimtar
að mega eyða miklu, en vill vinna
lítið. Stefna Framsóknarmanna
er sýnd í verkinu. Lækkun á verði
húsa og húsaleigu, fatnaðar, mat-
væla, sjúkradvöl og skólanámi.
Lækkun á háum starfsmanna-
launum, lækkun á vinnutaxta
manna, sem ríkið hefir hjálpað
til að læra, en gleyma því, er
þeir fara að selja borgurum
landsins vinnu sína. Dýrtíðin
verður að bera sig sjálf. Þær
stéttir, sem hafa grætt á dýrtíð-
inni, verða að hjálpa mest til að
halda við lífi og þrótti þeirra
stétta, sem nú verða harðast úti,
meðan verið er að klifra niður
brekkuna frá glæframennsku
þeirra manna og stétta, sem
skapað hafa hina óeðlilegu dýr-
tíð hér á landi og mest í Reykja-
vík og niður á þann grundvöll,
sem verður að finna til þess að
þjóðin geti að nýju byrjað að
nýta fyllilega gæði landsins, og
hafið aftur alhliða umbótastarf
til að geta gert ísland að fyrir-
myndarheimili fyrir fyrirmyndar-
þjóð. J. J.
---o--
Fréttir
Sigurður Kristinsson forstjóri dvel-
ur nú erlendis um stundarsakir.
Lárus Bjamason kennari hefir ver-
ið settur skólastjói’i við Flensborgar-
skólann í Hafnarfirði.
porsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri
á Reyðarfirði var meðal farþega héð-
an austur á Esju síðast. Dvaldi hann
nokkra daga hér í bænum,
Norski söngvarinn Erling Krogh er
nýkominn til Reykjavikur og söng
hér í fyrsta sinn í Gamla Bíó á
þriðjudaginn var og aftur á fimmtu-
dag. Ilann er einn af beztu og vin-
sælustu söngmönnum Noregs. Söng
hans hér hefir verið mjög vel tekið.
Emil Thoroddsen lék á hljóðfærið.
J
Et þig vantar:
a) orgel í heimahús, skóla eða
kirkju,
b) píano eða flygel,
c) innra verk í orgel eða ein-
hverja hluta í það,
d) kassa (Gehause) utan um org-
elverk eða
Kynningarsölu á ostum °«smjöri
heldur Mjólkursamlag K. E. A., Akureyrí,
næstu daga á Skólavst. 5, kl. 1-7 daglega.
Til að kynna sem flestum gæði varanna verða þær seldar
meðan á sýningunni stendur með eftirfaranda verði:
Mysuostur kr. 0.90
Merkurostur • 20% — 1.40
Do. 30% — 1.70
Gaudaostur 20% — 1.80
Do. 30% — 1.60
Do. 45% — 2.20
Smjör í 1 kg. stk. — 3.50
Do. í 50.8 kg. kvart. — 3.40
Gaudaostar verða aðeins seldir í %, V2 og V* atykkjum.
Merkurostar — — — - Vi og V* stykkjum.
e) einhvern aunan hlut, sem til-
heyrir orgeli eða píanói,
■— þá skaltu reyna að leita til mín.
Ofangreinda muni hefi eg allt-
af til sölu — annað ekki.
SUá-lliolt II.
Mala domestica . . .
eftir Guðmund Kamban (framhaldið af Jómfrú Ragnheiði) er nýkomið
í flestar bókaverzlanir á landinu.
Fisksölusamlag Reykjavíkur
sem er sölusamlag vélbátasjómanna í Reykjavík og v/s. Þórs,
byrjar fisksölu innan fárra daga á Klapparstíg 8 (þar sem Þórs-
fiskurinn var seldur í fyrra). Verður þar eins og áður seldur ó-
dýr fiskur, nýr-, saltaður, kældur og reyktur, sömuleiðis síld í
smásölu. Lögð verður áherzla á vöruvöndun. Utanbæjarmenn fá
fisk keyptan eins og áður. Sími 820.
Tónlistarskólinn liyrjar 1. okt. og
starfar í vetur með svipuðu fyrir-
komulagi og síðasta vetur. Sjá augl.
um skólann í næsta blaði.
Bílslys og manntjón. Aðfaranótt
þriðjudags sl. vildi til liörmuiegt hif-
reiðarslys í Sogamýri rétt austan
við Reykjavík. Bifreið með fjórum
mönnum var þar á leið til bæjarins
og lenti út af veginum á mikium
liraða. í bifreiðinni voru Guðmund-
ur .Tóhannsson bæjarfulltrúi, piltur
og tvær stúlkur úr Rvík. Bifreiðar-
stjóri, sem um veginn fór i’étt á eft-
ir, fann bifreiðina brotna og
fólkið ósjálfbjarga við veginn.
Gjörði hann aðvart lögreglunni
og næturlækni. Var fólkið þegar
flutt á Landsspítalann, og reynd-
ist það allt skaddað meira og minna,
og rétt um leið og komið var á spít-
aiann, andaðist Guðmundur Jóhanns-
son. Hafði hann áverka á höfði.
—■ Guðmundur heitinn var maður á
bezta aldri, 38 ára gamall, sonur
Jóhanns Eyjólfssonar fyrv. alþm. í
Brautarholti. Hann tók sæti í bæjar-
stjórn s. 1. vetur eftir lát Péturs
sál. Hafsteins, sem fórst á togaran-
um Apríl. -— Annað bifreiðaslys
vildi til austur í þjórsárdai tveim
dögum áður. Vöruflutningabifreið
var þar á ferð með 16 manns, starfs-
fólk úr Efnagerð Reykjavíkur.
Sprakk stykki úr vegarbrún, og valt
bifreiðin niður brekku. Tvennt af
fólkinu meiddist, stúlka sein hand-
leggssbrotnaði og gekk úr axlarlið og
karlmaður síðubrotnaði, en til læknis
varð eigi náð í svip, af því að sími
er þarna fjarri. En ekki hefir hlot-
ist dauðsfall af slysi þessu, og
þeir, sem meiddust á batavegi, eftir
því sem blaðið hefir frétt.
Sigurður Guðmundssou skóiameist-
ari á Akureyri og kona hans hafa
dvalið hér í bænum mánaðartima.
Páll E. Ólason bankastjóri fór utan
nýlega í fjánnálaerindum.
Móttöku sumargesta i Laugarvatns-
skólanum var hætt á mánudaginn
var. Aðsókn að gistihúsinu hefir ver-
ið ákaflega mikil í sumar og full-
víst að svo verður framvegis, enda
fer þar saman náttúrufegurð og ágæt
húsakynni, svo að eigi er á slíku völ
annarsstaðar hér á landi.
Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir er af
kennslumálastjórninni skipuð for-
maður skólanefndarinnar í Reykja-
vík. Af bæjarstjóm hafa verið kosn-
ir í nefndina: Páll Eggert Ólason,
Ólafur Friðriksson, Pétur Halldórs-
son og Guðm. Áshjörnsson.
Útflutningur á kæidum fiski frá
Norður- og Austurlandi er að hefj-
ast. Hefir Pálmi Loftsson útgerðar-
stjóri leigt skip í Noergi til að ann-
ast flutning fiskjarins samkvæmt lög-
um frá þinginu i sumar.
Góð tíð hefir verið undanfarið um
land allt og útlit með heyfeng betra
en á horfðist framan af í sumar.
Grasspretta á útengi er nú viða orð-
in í góðu meðallagi.
Kappleikjunum milli knattspyrnu-
félaganna í Reykjavík lauk á sunnu-
daginn var. Varð Knattspymufélag
Reykjavíkur hlutskarpast og fékk 11
stig, Valur 9, Víkingur 3 og Fram 1
stig. K. R. vann lika landsmótið i
knattsyrnu á þessu ári.
Sr. Sigurður Einarsson hefir verið
settur 2. kennari við Kennaraskólann
í Reykjavík.
Stjárnarbyltiugartilraun var gjörð
í Lissabon, höfuðhorg Portugals 26.
f. m., en bæld niður í bráð. En við-
sjár miklar eru í landinu.
hælt. Þó voru þá kvartanir um
að það væri misjafnt. Þær voru
á rökum byggðar, en nú á að
hafa verið sett undir þann leka,
sem mismuninn orsakaði, og síld-
armjölið á að vera jafnt og gott.
Sé gefið hey með síldarmjölinu,
er bezt að gefa mjölið yfir heyið.
Fé nær því alveg, séu garðarnir
(jöturnar, krærnar) ekki því
verri, og það étur heyið með
betri lyst, og betur upp, og notast
því heyið betur en ella. En íái
kindin fylli sína úti, en vanti und-
irstöðu til að haldast við, er nóg
að gefa henni síldarmjöl ein-
göngu. Þetta gerðu ýmsir í fyrra,
og gafst ágætlega. Sumir gáfu
síldarmjölið í stokka, líka brunn-
stokkum, úti um hagann, áður en
þeir fóru að hýsa, og telja það
mjög gott. Verður þá að athuga,
hvort kosti kindina meira erfiði,
og þar með fóður, röltið heim að
húsunum, eða hitatapið við að
liggja úti í kaldara bæli, en á
húsgólfinu. Og það er sjálfsagt
svo víða, þar sem beitilandið er
langt frá, að betra er að láta féð
liggja, og gefa því síldarmjöl í
hagann en reka það langar leiðir
að og frá húsi.
Sumstaðar eru nú mjög sinu-
mikil fjallahey frá sumrinu í
sumar. Þessi hey étast trauðla
nema þau séu bætt. Bæta má þau
með lýsi. Við það étast þau með
lyst, meltast betur, og kindin hef-
ir þeirra betri not. Að hinu leyt-
inu étur kindin varla svo mikið
lýsi, að það dragi hana neitt,
nema ef það er lýsi, sem í er mik-
af vitaminum, og kindina vanti
þau.
Brædd síld er notuð á sama
hátt, og síldarmjöl, sem stráð er
yfir heyið gerir sama gagn, með
því að láta heyið étast.
Bændur, sem eiga þessi sínu-
miklu fjallahey, eiga að gefa með
þeim fóðurbæti.
Til sparnaðar handa kúm, er
bezt að gefa blöndu af síldarmjöli
og mais, og hafa síldarmjölið
Það má ætla að fyrir hvert eitt
kíló af þeirri blöndu mun mega
spara 2,3—3 kg. af töðu. Maís-
inn kostar um 17 kr. pr. 100 kg.
Eigi að gefa kúnum mikið af
mat, þá verður að gefa margar
tegundir, og því á ekki að nota
þessa blöndu ef gefa á meira en
2 kg. á dag pr. kú.
Þessi blanda er líka of eggja-
hvítusnauð til að koma sem við-
bót við heyíramleiðslufóður há-
mjólka kúa. Því má segja, að
hana eigi ekki að nota, sem við-
bót við mikla heygjöf, handa góð-
um kúm, sem eiga að setjast
hátt upp, ekki sé kúnni gefið yfir
2 kg. af fóðurbæti á dag, og ekki
lianda kúm, sem mjólka yfir 14
—16 merkur í mál. I öllum þess-
um tilfellum á að gefa kúa fóður-
blöndur, og þær má fá hjá
Mjólkurfélagi Reykjavíkur, og
hjá S. 1. S..
VI.
Ég býst við því, að sumum,
sem þekkja mig, og vita, að ég
nú held því fram, að ein helzta
leið bændanna til að hjálpa sér
yfir kreppuna sé sú, að búa sem
allra mest að sínu, þyki þetta,
sem ég hef sagt hér, samrýmast
því illa.
Þetta er byggt á misskilningi
hjá þeim, er svo sýnist. Rétt er,
að bændur eiga að kaupa sem
minnst, lifa sem mest af sínu, en
þar með er ekki sagt, að þeir eigi
ekki að kaupa það sem annars-
vegar lætur þeirra framleiðslu
notast betur, eins og t. d. beitina,
þegar síldarmjöl er gefið með,
eða töðuna, þegar hámjólka kúm
er gefinn fóðurbætir með, en þeir
,eiga ekki að kaupa það til þess
eins að „gefa fóðurbæti“.
Og þeir, sem nú standa yfir
því, að verða vegna heyleysis að
minnka stofninn sinn, svo að
hann verði svo lítill, að hann
gefur þeim ekki nóg til lífsviður-
væris, eiga skilyrðislaust að kaupa
fóðurbæti og halda í stofninn.
En með hverju á að borga?
Margir eru skuldugir eftir bygg-
ingar og jarðabætur, og eiga fullt
í fangi með að borga það, sem
þeir mega til, til lúkningar venju-
legrar ársgreiðslu. Þeim finnst
það því vera hálfgerð öfug-
mæli, að vera að segja þeim
að kaupa fóðurbæti. Og ég veit
að skórinn kreppir. En betur get-
ur hann kreppt, ef stofninn nú
verður að skerða. Bóndinn, sem
nú á 100 ær, og gengur illa að
standa í skilum í haust, honum
gengur það ekki betur að hausti,
ef hann nú þarf að fækka ánum
í 60, en svo er heyskapurinn rýr
sumstaðar, að þesa væri þörf, ef
ekki væri tryggður fóðurauki með
íóðurbæti.
Ég hvet menn yfirleitt ekki til
lántaka. Þær eru oft tvíeggjað-
ar. En í þessum tilfellum á að
taka lán. Hrepparnir, sem hey-
skepurinn er verstur í, og sem
bændur þessvegna verða að gera
annaðhvort, minnka bústofn sinn
mjög, eða kaupa fóðurbæti, eiga
að taka lán. Og þeir eiga að taka
það úr Bjargráðasjóði. Til þess
stofnaði landlæknir o. fl. mætir
menn til Bjargráðasjóðsins með
lögunum frá 1913, að hann gæti
komið að liði þegar lík tilfelli
kæmu fyrir og nú steðja að
Vestur- og Austurlandi.
Ég veit að stjórn hans hefir'
fullan skilning á þessu, og mun
mæta þeim hreppsnefndum, sem
þurfa á lánum að halda með
fullum skilningi og samúð. Lán
úr Bjargráðasjóði, eru eins og
menn vita veitt til eins árs.
VII.
Mín ráð til bændanna eru því
þessi:
1. Látið ekki litla heyskapinn
í sumar freista ykkur til að setja
á guð og gaddinn.
2. Reynið að halda í bústofn-
inn. Fáið ykkur til þess fóður-
bæti, síldarmjöl, handa fé og mais
handa kúm.
3. Gegnum hreppsnefndimar
verður að hjálpa þeim, sem ekki
geta af eigin ramleik keypt sér
fóðurbæti, til að fá lán, og kaupa
hann. Er þá sjálfsagt að snúa sér
fyrst og fremst að Bjargráða-
sjóðnum, sem beint er ætlað að
hjálpa þegar þess er þörf.
4. Þó ekki sé þörf á fóðurbætis-
kaupum vegna heyleysis, þá er
víða sjálfsagt að kaupa og nota
fóðurbæti til þess að innlenda
fóðrið notist betur og skepnurnar
geri betra gagn.
5. En fóðurbæti á ekki að
kaupa af neinni fordeild eða lítt
yfirveguðu ráði. Bóndinn á að
leggja niður fyrir sér hvort það
borgi sig eða ekki, og haga sín-
um framkvæmdum eftir þeim
niðurstöðum, sem hann þá kemst
að.
6. Athugið hvort þið eigið ekki
óþarfa hross, sem óþarfi sé að
fóðra.
7. Athugið hvort þið getið ekki
haft færri kýr og þó haft eins
mikla mjólk úr fjósinu og þið
hafið nú. Ef þið getið það, sparið
þið með því hey.
Það mætti enn margt um þetta
mál segja, en það verður nú ekki
gert hér.
Eftir fáa daga fer ég að fara
í mitt venjulega haustferðalag,
ég ferðast þá um nærri hluta
af landinu, og mun þá fá tæki-
færi til að tala við ýmsa um þessi
mál. Og gleði verður mér það,
ef ég get svarað einhverjum, sem
spyr, svo hann hafi gagn af.
Páll Zophóníasson.
-----o----
JarSskjálftakippir hafa verið tíðir
austanfjalls undanfarna daga. Varð
vart jarðhitabreytinga á Reykjum í
Ölfusi, en hafa færst í samt lag aft-
ur.