Tíminn - 09.04.1932, Qupperneq 3

Tíminn - 09.04.1932, Qupperneq 3
TIMÍNN 57 Losendurnir geta haldið saman- hurðinum áfram. Meðferð flokka og ríkisstjórna á fjármunum þjóðarinnar geta og liljóta alltaf að orka tvímælis í ein- hverjum atriðum. Um það þarf ekki að deila. En óskar þjóðin að stjórnar- hæltir íslandsbanka færist inn yfir ríkissjóðinn. Ef svo væri ætti íhaldið að taka völdin. ----O--- Ný ésanníndí um Sambandið. í Morgunhl. þann 3. þ. m. birtist grein með yfirskriftinni „Jósafat". A hún að vera svar við grein í Tíman- um þann 17. f. m., er nefndist „Jósa- fat og þjóðin". Hefir Timagrein þessi auðsjáanlega komið injög við kaun’ v Morgunblaðsritstjóranna, og reyna þeir eftir mætti að þvo af ser og flokksbræðrum sinum Jósafats- nafnið. For þá sem oftar fyrir þcssum heiðursmönnum, að rök þeirra verða upplognar söguságnir óhlutvandra manna um menn og stofnanir. Skal óg nú færa þessum orðum mínum stað. í áminstri Morgunblaðsgrein cr mcðal annars komizt svo að orði: — — — „Jafnvéí Sambandið sjálft sem reisti sér stórhýsi á hafnarbakk- anum í sumar scm leið, hafði sömu aðferð. Megnið af efnum þeim, sem fóru í það hús, var keypjt hjá verzl- un hór í bienum, sem er því öldung- is óháð. I-Ivaða iærdóm má nú draga út af þessu? Getur það verið, að Sjálfstæðisokraramir — Jósafatarnir — sem Tíminn er alltaf að tala um, geti þegar allt kemur tii alls, undir- lioðið Sambandið sjálít mcð efni i þess eigið liús? Önnur skýring verð- ur sennilega ekki gefin á þessu. Og það kemur líka alveg heim við það, að þegar útboð fór fram í verka- mannabústaðina, hreppti Sambandið ekki nema lítinn hluta þeirrar verzl- unar við þá byggingu, sem þuð sótti eftir að ná í“. það dylst nú víst engum í hvaða tilgangi þetta er slcrifað. Vitanlega -i þeim' tilgangi einum, að rýra álit Sambandsins í augum viðskipta- manna þess og annara velunnara, jafnframt þvi, sem það á að vera pólitískt herbragð. Um byggingu vörugeymsluhúss Sambandsins á hafnarbakkanum er það að segja, að Sambandiö keypti sjálft inn allt efni, sem í það fór, svo sem cement. og steypujárn það, sem samkvæmt útreikningi hr. Geiis Zoega verkfræðings átt.i að nægja i húsið. Sömuleiðis hurðir og glugga. En timbui' það, sem notað var. við steýpuna, kom, samkvæmt, verk- samningi, i Idut býggingarmeistar- ans, og var því Sambandinu óvið- komandi. Cementið var i raunihni cinnig Sambandinu óviðkomandi, þar sem um ákvæðisvinnu var að ræðá. En með þvi að Sambandið gat. hoðið það með betri kjörum en völ var á ann- arsstaðar, sá byggingarmeistarinn sér auðvitað hag í því að kaupa það hjá S. í. S. Til þess að taka af öl! tvhnæli i þessu efni, fylgir hér með vottorð byggingarmeistaranS: „Ég undirritaður, sem tók að mér byggingu á vörugeymsluhúsi Sam- bands ísl. samvinnufélaga í Rvík, votta hér með, að Sambandið keypti | sjálft inn frá útlöndum allt efni til \ byggingarinnar, svo sem: Cement, steypujárn, hurðir og glugga. — þó skal tekið fram, að vegna ónákvæms útreiknings, varð steypujárnið of lít- ið, og varð því að kaupa það sem til vantaði hjá heildsöluverzlunum hér í bænum. Cementið átti ég, samkvæmt verk- samningi, að leggja til sjálfur. En með því að ég gat fengið það ódýr- ara hjá Sambandinu en öðrum, keypti ég það þar. Reykjavík 7. apríl 1932. Kornelíus Sigmundsson byggi ngarmeistari.“ Ég sagði iiér að framan, að Sam- bandið hefði keypt inn steypustyrkt- arjárn það, sem samkvæmt útreikn- ; ingi verkfræðingsins hcfði átt að | nægja i Iiúsið. En vegna ónákvæmni j i útreikningnum nægði járnið ekki. Var því það sem til vantaði keypt hér í bænum. Skal ég fræða Mbl. á þvi. að eftir að 6g hafði fengið þessar verzlanir, sem járnið var keypt af, til að lækkaJ verðið uin 10—12%, þá var járnið þó um 28% dýrara én það, er Sambandið sjálft keypti inn. — Munu þessar verzlanir þó vera full- komlega samkeppnisfærar við aðrar slíkar heildsöluverzlanir bæjarins. þá kem ég að þeirri fuhyrðingu Morgunblaðsins,' að Sambandið hafi ekki lireppt nema litinn hluta þeirr- ar verzlunar við verkamannabústað- ina, sem það hafi sótt um. þarna er aftur farið með algerlega rangt mál. Tilboð Sambandsins í moginhluta þeirra vara, er það bauð í, voru lægst og' þessvegna tekin fram yfir önnur. Skal þctta sannað með eftir- farandi vottorði formanns Bvgging arfélags verkámanna: „Að- gefnu lilefni vottast hér með, að þcgar byrjað var á byggingu vcrkamannabústaðarma síðastliðið sumar, var leitað tifboða í allt. steypumótatimhur, scm þurfti ti 1 bygginganna, kringum helming af cementi og þakjárni ásamt fleiru. Samband ísl. samvinnufélaga goi’ði lægsta tilboð í framannefnt efni, og var ]>vi tekið. Næst þegar út var boðið byggingarefni, gerði S. í. S. eklci tilboð. Reykjavík 7. april 1932. Héðinn Valdimarsson, form. Byggingarfél. Verkamanna í Rey.kjavík." Ég voná nú að þetta nægi til þess' að hnekkja áðurnefndu atvinnurógs- skrifi Morgunblaðsins, og vænti jafn- framt að ritstjórarnir verði framveg is vandari að vali heimildarmanna sinna, þegar þeir gera Sambandið að umræðúefni. Aðalsteinn Kristinsson. -----o---- Karlakór Reykjavikur hélt fyrsta samsöng sinn á þessurn vetri síðastliðiö - miðvikudagskvöld. Kveffaraldur hefir mjög hamlað árangri af æfingum karlakóranna i vetur. Samt sem áður er kórinn í framför og ber rneðferð hans á við- fangsefnunum jafnan vott um mikla einlægni 1 viðleitni söngmannanna og óþreytandi elju og samvizkusamlega vandvirkni söngstjórans, Sigurðar þórðarsonar. Á söngskránni voru nokkur ný lög eftir íslenzka höfunda og meðal þeirra hið þróttmikla lag Sigurðar þórðarsonar: „þér landnem- ar“. „íslands lág“ eftir Björgvin Guð- mundsson, „Hóladans" cftir Friðrik Bjarnason, „í Svanahlið", eftir Emil Thoroddsen eru allt gullfalleg lög. „ísland, vort land“ eítir Árna Thor- steinsson er einkar viðfeldið lag. Meðferð viðfangsefnanná var yfirleitt. góð og ágæt nfeð köfliun. Höfuðein- kenni flokksins hefir frá upphafi ver- ið mjúkleiki og ríkulég tilbrigði. Síð- ustu samsöngvar lians og ekki sízt þessi síðasti hafa einnig sýnt, að ilokkurinn á til mikinn þrótt og rösk- leg tilþrif. Má enn vænta aukinna framfara í þá átt. — Einsöngvarar flokksins eru þeir Erling Ólafsson og bræðurnir Daníe! og Sveinn þorkels- synir og eru allir, liver með sínum hætti ágætir raddmenn og söngmenn. — Ágætasta skemmtun sem völ er á, eru samsöngvar okkar ágætu karla- kóra. Söngskemmtun þessi var. endur- tekin í gærkvöld og verður enn end- urtekin á morgun. Áheyrandi. -—o------- Athugasemd Hr. ritstjóri. í 14. tölubl. „Tímans", sem úf kom í gær, er birt tillaga minnihl. stjórn- arskrárnefndar efri doildar Alþingis til hreytinga á frumvarpi því til breytinga á stjórnarskránni, sem fyr- ir þinginu liggur. í ummælum blaðsins ýmsum, sem tillögunum fylgdu, er svo um mælt, að skilja má sem Framsóknarflokk- urinn, utan þings og innan, st.andi óskiptur að þessum tillögum minnilil. stjórnarslcrárn. e. d. Út af þessum ummælum blaðsins óska ég að taka fram, að ég hefi ekki fallizt á þessar tillögur í einstökum at.riðum, né vil bera noklcra ábyrgð á þeim. — Aðrir segi fyrir sig. jiossi athugasemd óslca ég að birt sé í næsta tölubl. blaðsins, sem út kemur. Virðingarfyllst, 3. apríl 1932. Halldór Stefánsson 1. þm. N.-M. jáL Beztu cigaretturnar í 20 stykkja pökkum sem kosta kr. 1,10, eru Westminster Vírginía ciáarettur f i . 1 hverjum pakka er gullfalleg íslenzk eimskipamynd. Sem verðlaun fyrir að safna sem flestum smámyndum gefum vér skínandi falleg albúm og framúrskarandi vel gerðar, stækkaðar eimskipamyndir út á þær. Þessar ágætu cigarettutegundir fást ávalt í heildsölu hjá Tóbakseinkasölu ríkisins Búnar til af Westminster Tobacco Samúðarverkfallið á Alþingi í eldhúsdagsumræðunum á Alþingi lét Héðinn Valdemarsson á sér skilja, að hann og flokksmenn hans myndu neita að afgreiða fjárlögin og neita að framlengja núgildandi tekjur rík- issjóðs, • ef Framsóknarmenn gæfu ; ekki upp rétt kjördæmanna úti um Iandið. Jafnframt skoraði hann á íhaldsflokkinn að fylgja sér og sínum mönnum fast í þessu máli og neita að afgreiða fjárlögin. Tryggvi þórhallsson forsætisráð- herra benti á, að slíka ákvörðun sem þessa bæri að skoða sem verkfall meðal þingmannanna um að inna al' hendi sínar frumlægustu þingmanns- skyldur. þetta væri ekki í fyrsta sinn se'm formaður verkamálaráðsins, Héðinn lýsti yíir verkfalli hér á landi. En hér væri nýlunda á ferð- um, því nú færi formaður verkamála- ráðsins fram á samúðarverkfall frá íhaldsflokknum á Alþingi. Beindi for- P rætisráðherra þeirri fyrirspurn til ihaldsmannanna, hvort þeir ætluðu sér að hlýða og lýsa yíir samúðar- verkfallinu við Héðin Valdemarsson. þær mörgu þúsundir manna, um land allt, sem á umræður þessar hlýddu liafa áreiðanlega beðið með mikilli eftirvæntingu eftir svörunum frá íhaldsmönnunum. Og svörin komu, hikandi og óskýr frá Magnúsi Guðmundssyni. íhaldið vill leggja niður gömlu kjördæmin, en M. G. er hræddur við Skagfirð- i inga. Hvað verður? Ætlar Héðinn full trúi verkamanna að neita að afgreiða fjárlög og liindra með því alla opin- bera vinnu í landinu — og ætlar íhaldið að gjöra samúðarverkfall mqð Héðni? 2. umr. um stjórnarskrárfrv. fór íram í efri deild á mánudag og var útvarpað. Forsætisráðherra, sem tal- aði af hálfu Framsóknarflokksins, sannaði með tilvitnun í Alþingistíð- indin, að Jón þorláksson hefði snar- snúizt i kjördæmamálinu síðan 1930. pá taldi J. þ. höfðatöluregluna „einstrengingslega". Kom þessi upp- lestur ,Jóni á óvart, og var frammi- staða hans hin aumlegasta. Breytingartillögur Framsóknar- ; manna voru felldar með sameinuðum j atkvæðum íhalds- og jafnaðarmanna. Sömuleiðis voru felldar tillögur frá Magnúsi Torfasyni^ um sérstakan þingmann fyrir Siglufjörð og tvo þingmenn í Gullbringu- og Kjósar- sýslu. Allar tegundir af tilbúnum áburði eru komnar. Menn eru beðnir ad vitja pantana sinna. pr. Áburðarsala ríkisins Samband ísl. samvinnufélaga. Vörur sendar gegn póstkvöfu út um lanú BaroaYagnar fallegastir og beztir. Húsgögn allskonar, mikið úryal. Eimfremur smíðuð eftir pöntun við allra hæfi. Vatnsstíg. Sími 1940. Húsgagnaverzlun Reykjavíkur. Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur fund í Sambandshúsinu mánud. 11. þ. m. kl. 8y% e. h. DAGSKRÁ: Umræður um kjördæmamálið. Félag-ar sýni skírteini við innganginn. Þeir, sem inntöku óska í félagið, gjöri aðvart á afgreiðslu Tímans eða skrifstofu Fram- sóknarflokksins. Félagsstjórnin. . Athygli skal vakin á hinum fjöl- breyttu framleiðsluvörum Slátur- félags Suðurlands, sem auglýstar eru á öðrum stað hér í blaðinu. þetta stærsta og myndarlegasta samvinnu- félag sunnlenzku bændanna gjörir ís- lenzku vikunni mikinn sóma. Framsóknariéiag Reykjavikur held ur fund á mánudagskvöldið. Sjá aug- lýsingu á 3. síðu. Eitt ai þvi nýstárlegasta, sem sést hefir í Reykjavík í íslenzku vikunni er sýningin á verkum skólabarnanna í Austurbæjarskólanum síðasta mán- uðinn áður en íslenzka vikan hófst. þau eru til sýnis í dag og á morgun, og gefa góða hugmynd um þá ný- breytni í kennsluaðferðum, sem tekin hefir verið upp í þeim skóla og allir foreldrar þurfa að vita um. SKRIFSTOFA FR AMSÓKN ARFLOKKSIN S er á Amtmannsstíg 4 (niðri). Síxni 1121. Allt íneð islenskuiii skipum! þcrkell Jóhannesson magister frá Fjalli kom hingað frá útlöndum með Gullfossi í gær. Hann hefir dvalið í þýzkalandi og Danmörku síðan í júnímánuði í fyrra. AtkvæðagreiSsla við 2. umræðu ijárlaganna í neðri deild fer fram í dag. -----o-----

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.