Tíminn - 18.06.1932, Side 1
®)aíb£ert
09 afgrci&sluma&ur ÍT i m a n s et
HanitDCÍg í>orstcins&ólMr,
Cojfjargötu 6 a. iíeYfjartif.
2^fgreibðía
Cimans er í €œfjarðöhi 6 a.
©pin &aglega» fL 9—6
Sitöi 2353
XVI. árg.
■*------------'-----—
Reykjavík, 18.
júní 1932.
26. blaö.
/kda.lfuiidiii*
Sambands íslenzkra samvinnufélaga
Ár 1932, þriðjudaginn 7. júní,
kl. 9% árdegis, var aðalfundur
Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga settur í Sambandshúsinu í
Reykjavík af formanni Sam-
bandsins, Ingólfi Bjarnarsyni
alþm. í Fjósatungu.
Formaður bauð fundarmenn
velkomna og stakk upp á, að eft-
irgreindir menn yrðu kosnir til
að athuga kjörbréf fulltrúa:
Vilhjálmur Þór, Akureyri,
Jón ívarsson, Höfn og
Sigurður Jónsson, Arnarvatni.
Var það samþykkt, og síðan
var fundarhlé í 1 klst. meðan
nefndin starfaði. Að því loknu
gerði Sigurður á Arnarvatni
grein fyrir starfi nefndarinnar.
Taldi nefndin, að kjörbréf nokk-
urra fulltrúa væru eigi í svo
góðu lagi, sem æskilegt væri, en
lagði þó til, að þeir yrðu teknir
gildir sem fulltrúar. Á síðasta
aðalfundi hafði sú breyting verið
gerð á samþyktum Sambandsins,
að framvegis skyldi þess gætt,
þegar ákveðin væri fulltrúatala
hvers sambandsfélags, sem mið-
ast við meðlimatölu þeirra, að
sami maður væri aðeins talinn í
einu félagi. Þessu ákvæði hafði
eigi verið framfylgt af öðrum en
Sláturfélagi Austur-Húnvetninga,
sem nú hafði aðeins kosið einn
fulltrúa á fund Sambandsins.
Þar sem önnur félög höfðu eigi
farið eftir þessari ákvörðun að
þessu sinni, báru þeir Runólfur
Björnsson og Hannes , Pálsson
fram kröfu um, að varafulltrúi
Sláturfélags Austur-Húnvetn-
inga yrði einnig tekinn gildur
sem fulltrúi fyrir félagið á þess-
um fundi. Var það samþykkt í
einu hljóði.
Samþykkt var tillaga kjör-
bréfanefndar um að þessir menn
hefðu fulltrúaréttindi á fundin-
um:
1. Frá Kf. „Snæfellsás": Jón
Sigurðsson, kfstj., Amarstapa.
2. Frá Kf. Stykkishólms: Sig-
urður Steinþórsson, kfstj., Stykk-
ishólmi.
3. Frá Kf. Stykkishólms: Hall-
ur Kristjánsson, Gríshóli.
4. Frá Kf. Hvammsfjarðar:
Jón Þorleifsson, kfstj.., Búðar-
dal.
5. Frá Kf. Saurbæinga: Þór-
ólfur Guðjónsson, Fagradal.
6. Frá Kf. Króksfjarðar: Jón
Ólafsson, kfstj., Króksfjarðar-
nesi.
7. Frá Kf. Rauðsendinga: Ól-
afur Þórarinsson, kfstj., Pat-
reksfirði.
8. Frá Kf. Dýrfirðinga: Krist-
inn Guðlaugsson, Núpi.
9. Frá Kf. Önfirðinga: Magn-
ús Guðmundsson, kfstj., Flateyri.
10. Frá Kf. Nauteyrarhrepps:
Sigurður Þórðarson, kfstj., Am-
gerðareyri.
11. Frá Vf. Steingrímsfjarðar:
Jónatan Benediktsson, kfstj.,
Hólmavík.
12. Frá Vf. Hrútfirðinga:
Kristmundur Jónsson, kfstj.,
Borðeyri.
13. Frá Kf. Vestur-Húnvetn-
inga: Hannes Jónsson, kfstj.,
Hvammstanga.
14 Frá Kf. Vestur—Húnvetn-
inga: Magnús Jónsson, Sveins-
stöðum.
17. Frá Slf. Austur-Ilúnvetn-
inga: Runólfur Björnss., Kornsá.
18. Frá Vf. Vindhælinga: Ólaf-
ur Lárusson, kfstj. Skagaströnd.
19. Frá Slf. Skagfirðinga: Sig-
urður Björnsson, Veðramóti.
20. Frá Kf. Skagfirðinga: séra
Sigfús Jónsson, kfstj., Sauðár-
króki.
21. Frá Kf. Skagfirðinga: Sig-
urður Þórðarson, Nautabúi.
22. Frá Kf. Fellshrepps: Tómas
Jónasson, kfstj., Hofsós.
23. Frá Svf. Fljótamanna: Her-
mann Jónsson, kfstj., Haganes-
vík.
24. Frá Kf. Siglfirðinga: Guð-
mundur Skarphéðinsson, Siglu-
firði.
25. —31. Frá Kf. Eyfirðinga:
Vilhjálmur Þór, kfstj., Akureyri,
Sigtryggur Þorsteinsson, Akur-
eyri, Karl Arngrímsson, Veisu,
Valdimar Pálsson, Möðruvöllum,
Hólmgeir Þorsteinsson, Hrafna-
gili, Baldvin Jóhannsson, Dalvík,
Davíð Jónsson, Kroppi.
32. Frá Kf. Svalbarðseyrar:
Sigurður Sigurðsson, Landamóti.
33. —35. Frá Kf. Þingeyinga:
Sigurður S. Bjarklind, kfstj.,
Húsavík, Björn Sigtryggsson,
Brún, Sigurður Jónsson, Arnar-
vatni.
36. Frá Kf. Norður-Þingeyinga:
Þórhallur Björnsson, Kópaskeri.
37. Frá Kf. Langnesinga: Karl
Hjálmarsson, kfstj., Þórshöfn.
38. Frá Kf. Vopnfirðinga: Ólaf-
ur Metúsalemsson, kfstj., Vopna-
firði.
39. Frá Kf. Austfjarða: Stefán
Baldvinsson, Stákkahlíð.
40. Frá Kf. Eskifjarðar: HaJl-
,dór Jónsson.
41. —42. Frá Kf. Héraðsbúa:
Björn Hallsson, Rangá, Erlingur
Sveinsson, Víðivöllum.
43. Frá Kf. Breiðdæla: Einar
Björnsson, kfstj., Breiðdalsvík.
44. Frá Kf. Berufjarðar: Þór-
hallur Sigtryggsson, kfstj., Djúpa
vogi.
45. Frá Kf. Austur-Skaftfell-
inga: Jón ívarsson, kfstj., Höfn.
46. Frá Kf. Skaftfellinga: Magn
ús Finnbogason, Reynisdal.
47. Frá Kf. Hallgeirseyjar:
Ágúst Einarsson, kfstj., Hall-
geirsey.
48. Frá Kf. Verkamanna: Erl-
ingur Friðjónsson, kfst., Akur-
eyri.
Framangreindir fulltrúar voru
allir mættir í fundarbyrjun, aðr-
ir en Sigurður Steinþórsson,
Stykkishólmi og Karl Arngríms-
son, Veisu.
Auk fulltrúanna voru mættir á
fundinum: Formaður Sambands-
ins, Ingólfur Bjarnarson, alþm.,
og meðstjórnendur: Þorsteinn
Jónsson, kfstj., Reyðarfirði, Sig-
urður S. Bjarklind, kfstj., Húsa-
vík, Einar Ámason, alþm., Eyr-
arlandi og Jón Jónsson, alþm.,
Stóradal. Einnig forstjóri Sigurð-
ur Kristinnsson. Ennfr. mættu á
fundinum nokkrir af starfsmönn-
um Sambandsins og nokkrir
gestir.
Var þá gengið til dagskrár og
tekið f yrir:
I. Kosning fundastjóra:
Eftir tillögu formanns var Sig-
urður S. Bjarklind, kfstj., Húsa-
vík, kosinn fundastjóri, með lófa-
klappi, og tók hann þá þegar við
fundarstjórn. Varafundastj.: Þor-
steinn Jónsson, Reyðarfirði.
II. Kosning ritara:
Ritari fundarins vai' kosinn
Skúli Guðmundsson, bókari, og
aðstoðarritarar: Þórhallur Björns
son á Kópaskeri og Hólmgeir Þor-
steinsson á Hrafnagili.
III. Kosniríg nefnda:
a. Reikninganefnd:
Vilhjálmur Þór, kfstj., Akur-
eyri með 30 atkv., Sigurður Jóns-
son, Arnarvatni, með 28 atkv., sr.
Sigfús Jónsson, Sauðárkróki, með
26 atkv., Jón ívarsson, kfstj.,
Ilöfn, með 22 atkv., Kristinn Guð-
laugsson, Núpi, með 13 atkv.,
Runólfur Björnsson, Kornsá, með
13 atkv., Jakob II. Líndal, Lækja-
móti, með 12 atkv.
b. Ferðakostnaðarnefnd
Þórhallur Sigtryggsson, kfstj.,
Djúpavogi, Ólafur Metúsalemsson
kfstj., Vopnafirði, Jón Ólafsson,
kfstj., Króksfjarðarnesi.
Fundarhlé 2 klst.
Klukkan 2 síðdegis var fundi
fram haldið og .tekið fyrir:
IV. Inntaka nýrra deilda:
Framlögð inntökubeiðni frá Kf.
Árnesinga í Sigtúnum og var
samþykt í einu hljóði að veita
því félagi upptöku í Sambandið.
Tók þá sæti á fundinum fulltrúi
þess félags Egill Thorarensen,
kfstj., Sigtúnum.
Ennfremur óskaði Kf. Holta-
manna, Rauðalækjarskála, eftir
upptöku í Sambandið, og var
samþykt að vísa þeirri inntöku-
beiðni til Sambandsstjórnarinnar
til athugunar.
V. Reikningar Santbandsins
og skýrsla forstjóra:
Efnahags- og rekstrarreikning-
um Sambandsins var úthlutað til
fulltrúa. Því næst tók forstjóri til
máls og gerði grein fyrir starf-
serni Sambandsins og hag þess
um síðastliðin áramót. í ársbyrj-
un 1931 voru 38 félög í Samband-
inu; eitt bættist við á árinu, Kf.
Rauðsendinga, en tvö hættu
störfum, svo að tala Sambands-
deildanna í árslok er 37. Tala
félagsmanna mun vera ca. 8.100.
Auk viðskipta við Sambandsfé-
lögin, hefir S. í. S. haft viðskipti
við 18 önnur samvinnufélög síð-
astliðið ár.
Árið 1931 seldi Sambandið er-
lendar vörur fyrir kr. 5.712.053,00
en innlendar vörur fyrir kr.
6.845.431,00, sem er rúmlega 400
þúsund kr. meira en árið áður.
Stafar það af því, að miklu meira
var óselt í árslok 1930 heldur en
í árslok 1931. Öll viðskiptaveltá
Sambandsins 1931 var kr. 12.557-
484,00, sem er kr. 1.324.000,00
minna en árið 1930. Á árinu var
seldur áburður fyrir Áburðar-
einkasölu ríkisins fyrir kr. 833-
171,00, sem er 87 þús. kr. meira
en árið 1930. Peningaviðskipti
samvinnufélaganna við Samband-
ið voru miklu minni en næsta ár
á undan.
Þá las forstjórinn rekstrar- og
efnahagsreikning Sambandsins
og útskýrði hvern einstakan lið
á reikningnum, með samanburði
við næsta ár á undan. Hann gat
þess, að til þess að minnka rekstr
arkostnað Sambandsins, hefði
skrifstofan í Hamborg verið lögð
niður og starfsmönnum á aðal-
skrifstofunni fækkað um 2, en
laun allra starfsmanna lækkuð.
Að síðustu tók forstjórinn það
fram, að helztu ráðin til að verj-
ast kreppunni teldi hann vera þau
að búa sem allra mest að sínu,
spara allan kostnað eins og unt
er og fresta öllum framkvæmd-
um, öðrum en þeim, sem miða að
því að auka verðmæti framleiðsl-
unnar. Enn væri ekkert útlit
fyrir að kreppunni væri að létta
og menn mættu búast við vax-
andi erfiðleikum. Samvinnumönn-
um væri þess því meiri þörf nú
en nokkru sinni fyr að standa
fast saman til að verjast áföllum.
Ræða forstjóra var þökkuð
með lófaklappi. Reikningunum
var vísað til reikninganefndar-
innar til athugunar, eftir litlar
umræður.
Á fundinum mætti Björn Páls-
son á Löngumýri, fulltrúi fyrir
Sláturfélag Austur-Húnvetn-
inga, Blönduósi.
VI. Skýrsla framkvæmdastjóra
. innflutningsdeildar:
Framkvæmdastjóri innflutn-
ingsdeildar, Aðalsteinn Kristins-
son, gerði grein fyrir innflutn-
ingi erlendra vara 1931, sem
hafði verið miklu minni en næsta
ár á undan, þannig, að vörusala
Sanibandsins hafði orðið 1,7 milj.
kr. lægri en 1930. Vörur höfðu
verið keyptar frá 12 löndum, og
gerði framkvæmdastjórinn grein
fyrir því, hvaða vörutegundir
voru keyptar frá hverju landi
og gerði samanburð á innflutn-
ingi ýmsra vörutegunda á árinu
við innflutning næstu ár á und-
an. Ennfremur gaf hann yfirlit
um áburðarsöluna árin 1928—
1931.
Ræða framkvæmdastjórans var
þökkuð með lófaklappi og í til-
efni af henni tóku til máls Vil-
hjálmur Þór og Ólafur Metúsal-
emsson. Vilhj. Þór gat þess, að
venjulega hefði Sambandið getað
boðið Kaupfélagi Eyfirðinga
betri kaup á erlendum vörum,
heldur en önnur firmu. T. d.
hefði Sambandið undantekning-
arlaust boðið kaupfélaginu hag-
kvæmust kaup á kolum, salti og
timbri undanfarin ár. Þá lýsti
hann ánægju sinni yfir hinni
nýju kaffibætisverksmiðju Sam-
bandsins og taldi nauðsynlegt, að
Sambandið færi að framleiða
fleira af „efnagerðar“-vörum, t.
d. sápu og saft, strax þegar á-
stæður leyfa.
Svohljóðandi tillaga frá Vil-
hjálmi Þór kaupfélagsstjóra var
samþykkt í einu hljóði:
„Jafnframt því að lýsa ánægju
sinni yfir því, að Sambandið
hefir nú byrjað á kaffibætisgerð,
væntir fundurinn þess, að það
komi á framleiðslu á fleiri iðn-
aðarvörum".
Fundi frestað til næsta dags.
Miðvikudaginn 8. júní, kl. 91/2
árd. var fundi framhaldið. Var
þá tekið fyrir:
VII. Samvinnuskólinn:
Jónas Jónsson skólastjóri gaf
skýrslu um kennsluna og kenn-
aralið skólans og gerði grein fyr-
ir fjárhagsafkomu hans. Síðasta
vetur var nemendafjöldi skólans
svo mikill, sem húsnæði frekast
leyfði.
VIII. Skýrsla framkvæmdastjóra
útf lutningsdeildar:.
Jón Árnason framkvæmda-
stjóri gaf ítarlega skýrslu um
sölu íslenzkra vara hjá Samband-
inu síðastl. ár. Alls hafði sölu-
verð innlendra vara numið ca.
6,9 milj. króna. Gaf fram-
kvæmdastjórinn yfirlit um sölu
hverrar einstakrar vörutegundar
og verð. Ennfremur gaf hann
skýrslu um rekstur gæruverk-
smiðjunnar og garnahreinsunar-
stöðvarinnar. Fór framkvæmda-
stjórinn síðan nokkrum orðum
um þá miklu örðugleika, sem nú
eru í viðskiptalífinu. Tollmúrar
og innilokun þjóðanna gerir við-
skiptin mjög erfið, og virðist sú
styrjöld áframhaldandi. Þótt all-
mikið sé rætt um eftirgjöf stríðs-
skuldanna og fleira, sem orðið
gæti til að draga úr erfiðleikun-
um, eru framkvæmdir í þá átt
alls engar. í Miðjarðarhafslönd-
unum hefir tollur á fiski verið
hækkaður og í Englandi hefir
verið lagður 10% tollur á fisk,
en þar eru nú háværar kröfur
ýmsra um hærri toll á þá vöru.
Einnig hefir verið nokkurt um-
tal um að tolla kjöt, flesk og
hveiti þa.r í landi. 1 Noregi skell-
ur kjöttollurinn á 1. júlí næst-
komandi.
Þrátt fyrir hina margháttuðu
erfiðleika kvaðst framkvæmda-
stjórinn vænta þess, að úr þess-
um málum rættist betur en nú á
horfist.
Ræða framkvæmdastjórans var
þökkuð með lófaklappi.
Þennan dag mætti á fundinum
Sigurður Steinþórsson kaupfé-
lagsstjóri í Stykkishólmi.
Fundi frestað til næsta dags.
•
Fimmtudaginn 9. júní, kl. 9i/2
árd. var fundi framhaldið. Var
tekið fyrir:
IX. Klæðaverksmiðjan „Gefjun“:
Jón Árnason framkvæmdastj.
gaf skýrslu um framleiðslu verk-
smiðjunnar 1925—1931, og um
starfsemi hennar síðan hún var
keypt. Snemma á yfirstandanda
ári voru dúkar verksmiðjunnar
lækkaðir í verði um 10—20%,
og hefir framleiðslan aukizt til
muna síðan. I maí 1931 var sett
9
á stofn útsala frá verksmiðjunni
í Reykjavík. Var nokkur halli á
relcstri hennar s. 1. ár, en þá
fékk útsalan aðeins 15% um-
boðslaun af seldum vörum. I sam-
bandi við útsöluna er rekin
saumastofa. Náðust hagkvæmir
samningar við klæðskera, sem
veitir henni forstöðu. Hefir
- rekstur saumastofunnar gengið
vel, og vinnur nú 9 manns á
saumastofunni. Á Akureyri hefir
verksmiðjan einnig saumastofu,
sem var sett á stofn í september
síðastl.
1 Vilhjálmur Þór kaupfélagsstj.
' las upp reikninga verksmiðjunn-
ar fyrir s. 1. ár og skýrði* þá. Á
árinu fékk verksmiðjan greiddar
108 þús. kr. í vinnulaun og 62
þús. kr. fyrir seldar framleiðslu-
vörur. Tekjuafgangur verksmiðj-
unnar nam kr. 4.669,00. Ræðu-
maður taldi að hjá mörgum
kaupfélögum væri ekki nægilega
V