Tíminn - 01.10.1932, Síða 3
TÍMINN______________________________161_
Vagnar
Og
vagnhjól
best, transtast og ódýrast
hjá
Samband ísl. samvinnnfél.
Ný bók
Alríkisstefnan
ettir Ingvar Sígurðsson
fæst hjá bóksölum í Reykjavík
og út um land.
Stærð: 20 arkir. Verð í kápu 6.50 í bandi 8.00
Frá og með 1. okt. n k. lækka
forvextir at víxlum og vextir af
lánum um l°|o.
Framlengingargjaldið
helst óbreytt
Reykjavík, 30. sept. 1932.
r
Landsbanki Islands,
Utvegsbanki Islands H.F.
Búnaðarbanki Islands
Ný^arnabók.
Þrjú æfintýri
eftir Marta Fromme, þýdd úr þýzku af Vilborgu Auð-
unsdóttur. Fást hjá bóksölum. Verð kr. 2.50 í bandi.
Aðalútsala: Prentsmiðjan Acta
Rauður hestur
6—10 kr. á heimsmarkaðinum. Slík
liörmung varir ekki lengi. Slíkt verð-
leysi er aðeins öldudalur, sem íylgir
hinni miklu kreppu. Fyr en varir
liefir andblær nýrra tíma hrakið
kreppuskýin burtu.
En á meðan er hættan mikil, ef
gengið væri að jörðum og búum
bænda, ef lánsstofnanir létu sér ekki
nægja að taka jarðir upp í veðskuld-
ir, sem ekki greiddust, heldur seldu
þær síðan hæstbjóðendum, sem þá
yrðu væntanlega helzt fjáraflamenn
úr bæjunum, sem yrðu lítið til upp-
byggingar sveitunum, enda fæstir
slíkir menn sem myndu nota jarð-
irnar nema til fjárbralls og eignar-
hald þeirra verður framleiðslunni til
niðurdreps.
Bændur landsins munu ekki
óneyddir gefast upp og biðja um að
skuldir þeirra verði látnar falla nið-
ur. En á móti þeim 30—40 miljónum,
sem búið er að gefa fjárbrallsmönn-
um kaupstaða og kauptúna af fé
bankanna og þar með alþjóðar hljóta
bændur landsins að setja fram þá
kröfu, að þeim sé sýnd ítrasta sann-
girni í baráttu þeirra við að borga
skuldir þrátt fyrir hið fáheyrða verð-
fall.
Af því sem að framan er greint
og áður nýverið tekið fram hér í
blaðinu, þykir við eiga að benda á
þrjú úrræði um erfiðleika bænda,
sem ástæða væri til að ræða á fé-
lags- og fulltrúafundum Framsókn-
armanna nú í haust.
Ilið fyrsta eru vextir bankanna,
hver leið væri fær til að lækka
verulega innlánsvexti, og útlánsvexti
þó miklu meir, með þvi að viður-
kenna í verki, að bin miklu töp
bankanna á óreiðumönnum kaup-
staðanna verði ekki og megi ekki
ætla að vinna upp fyr en kreppumii
léttir.
Annað atriði er það hvort þeim
lánstofnunum, bönkum og sparisjóð-
um, sem eignast jarðir við nauð-
ungarsölu nú á krepputímunum,
væri fyrimkipað af Alþingi, að eiga
þessar jarðeignir t. d. næstu 5 ár, og
gefa núverandi eigenduni kost á að
innleysa þessar eignir sínar, livenær
sem er á þessum tíma.
þriðja atiiðið er um bústofn bænda,
hvaða úrræði séu tiltækilcgust
meðan kreppan stendur, til þess
að ekki yrði hægt að ganga að fjöl-
skyldumönnum, og taka aí þeirn bú-
stoín þann, sem verður að vera und-
irstaða framleiðslunnar.
Hverri af þessum leiðum fylgja
margir annmarkai', og vel má vera
að við nánari athuguu finnist önnur
betri ráð til að bjarga heimilum
smáframleiðendaiiua í landinu frá
yfirstandandi voða kreppunnar og
verðfallsins.
En því er þessu máli beint til
Framsóknarfélaganna, að þau eru í
þessu efni eina brjóstvöm bænda.
það ei' vitanlegt, að aðrir flokkar
láta sig litlu skipta framfarir sveit-
anna, og nú síðasta árið hafa leið-
andi menn við blöð íhaldsmanna og
sócialista gagnrýnt harðlega þá við-
leitni þjóðfélagsins að bæta vegi,
síma og hibýli manna í hinum
dreifðu bygðum.
Framfaramönnum landsins liggur
næst að atliuga þessi tvö þýðingar-
miklu mál: Varnir bænda móti að-
steðjandi hættu yfirstandandi tima,
og jafnhliða því fjölgun sveitaheim-
ilanna og öryggi hinna starfandi
manna er að ræktuiiinni vinna.
J. J.
-----o----
Framsóknarfélaa Reykjavikur held-
ur fund í Sambandshúsinu n. k.
mánudagskvöld. Eysteinn Jónsson
skattstjóri hefur umræður um tog-
araútgerðina í Reykjavík. þetta er
fyrsti fundur félagsins á þessu
hausti. (Sjá augl.).
Brezka „þjóðstjómm*1 sundrast.
Tveir af ráðhermm Frjálslynda
flokksins í brezku „þjóðstjórninni"
og Snowden lávarður, sem áður var
fjármálaráðherra liafa beðizt lausnar
og jafnframt nokkrir undirráðherrar,
sem þeim fylgja að málum. Ráð-
herramir, sem skipaðir hafa verið í
þeirra stað, eru flestir íhaldsmenn.
Ráðherraskiptin hafa orðið vegna
osamkomulags út af Ottawasamn-
ingnum og útilokunarstefnu íhalds-
flokksins. Eftir þessi tíðindi má telja
að „þjóðstjórnin" sem slík, sé úr
sögunni, og í raun og veru hefir
hún aldrei v.erið nein þjóðstjórn,
með því að hún hafði þriðjung þjóð-
arinnar á móti sér strax við kosn-
ingamar í fyrrahaust.
J
Reykj avikurannðll.
Eossiagin
í haust
Ilialdshlöðin hér í bænum sýnast
vera dálítið undrandi yfir því, að
Framsóknarflokkurinn skuli ekki
iiafa mann í kjöri við kosningarnar
í haust.
1 ulltiúaiáð Framsóknarfélagamia
liór tók þá ákvörðun í vikunni áður
en framboðsfrestur rann út, að beit-
así ekki fyrir því að flokkurinn tæki
þátt í kosningunum. þessi ákvörð-
un var auðvitað nokkurnveginn
sjálisögð. Engum Framsóknarmanni
datt í liug að telja sjálfum sér eða
öðrum trú um, að flokkurinn gæti
unnið kosningu í Reykjavík, þar
sem aðeins átti að kjósa einn þing-
mann. Til þess þurfti hann að vera
orðinn fjölmennasti flokkurinn í liöf-
uðstaðnum. Og þó að fylgi flokksins
fari jafnt og þétt vaxandi, má það
vera nokkuð mikil bjartsýni lijá
íhaldsblöðunum, á framtíð Fram-
sóknarflokksins hér, eí þau geta í-
myndað sér, að hann sé nú þegar
orðinn stærri en íhaldið, jafnvel þó
mikið hafi af því gengið við það
innbyrðis ósamkomulag, sem þar
hefir átt sér stað og minnst liefir
verið á hér i blaðinu.
Allir vita að kosningin er mark-
leysa, Pétur Halldórsson er viss og
Sigurður Eggerz hefði líka verið
viss, eí liann liefði verið einn í
kjöri frá ílialdinu. Jafnvel Valtýr
Stefárísson liefði að líkindum komizt
að sem frambjóðandi ílialdsins við
þessar kosningar. íhaldsblöðin segja
sjálf, að socialistar og kömmúnistar
samanlagðir muni ekki vei’ða liálf-
drættingar á við íhaldið.
það er hið fámenna floklisbrot
kommúnista, þó að hlálegt sé, sem
ræður því, að einhver hluti af reyk-
vískum kjósendum þarf að ómaka
sig að kjörborðunum fyrsta vetrar-
dag. Kommúnistum þykir „sport" í
því að munnhöggvast við íhaldið á
einum eða tveim kosningafundum
og vonast eftir að geta náð á sitt
hand nokkrum tugum atvinnulausra
verkamamia, sem litla aðstoð þykj-
ast fá lijá socialistum í bæjarstjórn-
ínni, sem auðvitað þarf elcki að ætl-
ast til, jafnvel þótt viljinn væri fyrir
hendi, því að eins og menn vita,
ráða socialistar eiigu í bæjarstjórn-
inni. þonnan „stóra sigur öreig-
anna“ langar kommúnistaforingjana
til að geta auglýst í blaði sínu áð-
ur en ]?að gefur upp öndina. Social-
istar hafa hinsvegar megnasta heyg,
og sjálísagt óþarflega mikinn, af
sundrungarstarfsemi kommúnista i
verkamannafélögunuin. þessvegna
þykjast þeir þurfa að liafa mann í
kjöri líka, til þess að forða blaut-
geðja sálum frá því að falla í klær
óvinarins.
það má vel vera, að Mbi. og Al-
þýöubl. gremjist, að Framsóknar-
flokkurinn skuli ekki láta hafa sig
t.il þess að taka þátt í þessum þýð-
ingarlausa skrípaleik. En Framsókn-
armenn telja sér alveg vansalaust að
viðurkenna það opinberlega, að þeir
hafi ekki atkvæðamagn til að vinna
þingsætið af Pétii. Karlagrobb gömlu
flokksforingjanna hér um kjósenda-
fyjgi, er að vísu alkunnugt liér í
bænum. Við hverjar kosningar í Rvik
þykjast íhaldsflokkurinn og jafnað-
armannaflokkurinn, hver um sig,
[ eiga öll sætin vís! það er eins og
i þessir menn álíti, að meirihlutinn
af Reykvikingum séu fífl eða karar-
menni, og trui á víxl þessum bjána-
lega spádómsþvættingi um kjörfylgi
fiokkanna ár eftir ár. í raun og
veru er þetta bein móðgun við heil-
brigða skynsemi almennings og ber
vott um fremur lítið hugvit hjá
foringjunum.
Framsóknarmenn búast ekki við
neinum árangri af slíkum aðferðum.
Og þeir telja sig ekki þurfa á nein-
um kosningaæsingum að halda til að
þjappa flokknum saman hér í bæn-
um. Framsóknarflokkurinn í Reykja-
vík stendur saman sem einn maður
um ákvoðin málefni og getur vel
komizt af án hjartastyrkjandi slag-
orða á kosningafundunum. þetta
vita andstæðingarnir og stendur
beygur af. Af því stafa áliyggjur
. þeirra út af Framsóknarmönnum,
sem nú eru áhorfendur í baráttunni.
A víðavanýi.
Klofningurinn í ihaldsfiokknum.
Sterkar líkur benda nú í þá átt,
að sá pólitíski bræðingur, sem Jón
þorláksson lcallaði „núv.eranda
sjálfstæðisflokk" sé að leysast upp
í sín fyrri frumefni. í Vestmanna-
eyjum hefir flokkurinn klofnað í
þrennt og gefur hvert flokksbrot
út sérstakt hlað, eftir því sem síð-
ustu fregnir herma. 1 Reykjavík eru
partarmr i rauninni jafn margir,
eins og nánar var vikið að í síðasta
blaði Tímans. Sigurð Eggerz, sem í
tvö ár hefir verið atvinnulaus, hefir
flokksstjórninni tekizt að kaupa af
sér með því að lofa honum bæjar-
fógetaembætti vestur á ísafirði. Af
því að Heimdellingar eru litlir fyrir
sér til alls annars en að hljóða á
mannfúndum, halda sumir, að part-
arnir muni skríða saman aftur, þeg-
ar Sigurður er farinn, með því móti
að unglingarnir fái að tala illa um
Jón þorláksson og Magnús Guð-
mundsson í sinn hóp eins og þeir
hafa gjört hingað til. Aðrir halda, að
ný endurskírn sé þó a. m. lc. ólijá-
kvæmileg, hvað sem öðru líði.
VTfiistaðahælið.
Ut af slúðursögu Vísis um fjármál
Vífiistaðahælisins þykir Tímanum
í'étt að gefa eftirfarandi upplýsingar.
Fyrverandi gjaldkeri hælisins kenndi
s 1. vetur sjúkleika, sem mun hafa
orðið þess valdandi, að hann gat
ekki sinnt störfum sínum um hríð.
Var þá í'áðinn annar gjaldkeri ~
áliðnum vetri, og gegnir nann enn
störfum, enda fyrirrennari hans ver-
ið sjúkiingur undir læknishendi. En
með því að ekki þótti útilokað, að
bókhaldi hælisins kynni að vera eitt-
livað áhótavant vegna veikinda gjald-
kerans, sem áður var, fól fyrv. dóms-
málaráðhorra bæjarfógetanum í
Hafnarfirði að athuga það mól, ef
honum þætti óstæða til. Ekki hefir
Timinn heyrt um, að neinar stór-
felldar misfellur liafi fyrirfundist,
en sé svo, er sjálfsagt liægt að fó um
það upplýsingar hjá núverandi ríkis-
stjórn. En ekki verður úr þessu máli
neinn feitur biti fyrir íhaldsblöðin
eða árásarefni ó fyrv. dómsmálaróð-
herra.
„Æðsti vörður laga og réttar“.
Glettin eru örlögin. Ekki hefir Mhl.
á undanförnum árum orðið tíðrædd-
ára um annað en það, livílíkt
lineyksli það væri, að liafa Jónas
Jónsson fyrv. dómsmálaráðherra
íyrir „æðsta vörð laga og réttar" í
landinu. Orsök þessara ofuryrða var
sú, að Jónas Jónsson geröist athafna-
samur umhótamaður um réttarfar
og embættisfærslu í landinu. Hins-
vegar fékk Mbl. aldrei minnstu á-
tyllu til þess að ásaka hann um
rninnsta ósamræmi við opinbert vel-
sæmi. — En nú verður þctta sama
blað að skýra frá því, að dómsmála-
róðherra íhaldsins sé kallaður fyrir
rétt í sakamálsrannsókn sterklega
grunaður um hlutdeild í fjórsvika-
máli. Hvað myndi Mbl. hafa sagt,
ef slíkt hefði hent dómsmálaráðherra
Framsóknar? Örlögin eru ekki ein-
ungis glettin; þau eru einnig stund-
um kaldhæðin.
» V
Frá Guðmundi Ólafssyni
málaflutningsmanni liefir ritstjóra
Tímans borizt (einka)bréf viðvíkj-
andi fyrirspurn blaðsins um afskipti
téðst málaflutningsmamis af liinu
umtalaða máli Magnúsar Guðmunds-
sonar dómsmálaráðherra. G. Ó. slcýr-
ir svo frá, að afskipti sín „af rann-
sókn þessa máls eru þau, að ég með
hréfi (lags. 4. júlí 1931, heindi þeirri
ósk útlends skjólstæðings mins til
lögreglustjórans í Reykjavík, sem
starfað hafði að rannsókn málsins*),
í ca. % ár, að sérstaldega yrði rann-
sakað, hvemig ó því stæði, að
Behrens hefði fengið afhenta spari-
sjóðsbók með 3000 kr. innstæðu, er
liann hefði fengið afhent til hr.
Magnúsar Guðmundssonar, til trygg-
ingar nauðasamningum, er Magnús
Guðmundsson hafði gjört tilraun til
að koma á fyrir Behrens á miðju
ári 1930“. — Ritstjóri Tímans þakk-
ar málaflutningsmanninum þessar
upplýsingar, sem koma heima við
þær fregnir, sem blaðinu höfðu bor-
izt og skýrt var frá i siðasta tbl.
*) þ. e. rannsókn út af gjaldþroti
C. Behrens kaupsmanns 1 Reykja-
vík. Ritstj.
Jafnvel Morgunblaðið
viðurkennir þá óhæfu, sem nú á
sér stað í sambandi við liið æðsta
sæti i dómsmálastjórn landsins.
Blaðið segir á sunnudaginn var 25.
þ. m.: „pegar fram kemur opinber-
lcga þung ákæra á hendur embættis-
manni ríkisins, þá á þiöðin heimt-
ing á að fá að vita hið sanna í
málinu“. En hversvegna í ósköpun-
um hlutast blaðið þá ekki til um
það, að Magnús Guðmundsson láti
koma fyrir almenningssiónir skjöl
þess máls, sem hann, til óbætan-
legrar skapraunar fyrir þjóðina, er
riðinn við og nú er umt.alsefni um
land allt? Skrifa ritstjórarnir ósjálf-
rátt, eða hefir sannleikurinn slæðst
inn í blaðið á móti þeirra vilja?
----o----
Vextirnir lækka
Rétt- eftir að byrjað var á prentun
þessa tbl., hefir blaðinu borizt fregn
frá bönkunum um að ákveðið hafi
verið að lækka vexti af útlánum í
almennum bankaviðskiptum um 1%
fró og með deginum í dag. Um hina
knýjandi nauðsyn vaxtalækkunar-
innar hefir verið ritað hvað eftir
annað hér i blaðinu síðustu vikurn-
ar. þykir blaðinu óstæða til að lýsa
ánægju sinni yfir því, að bankarnir
skuli nú þegar hafa sýnt nokkra
viðleitni í þó átt að verða við sann-
gjörnum luöfum í þessu efni.
----o----
póroddur GuSmundsson frá Sandi
er ráðinn kennari við Reykjaskóla
í Hrútafirði. Hann hefir verið er-
lendis við nám s. 1. ár.
tapaðist 12. f. m. frá
Hvammsvík í Kjós.
Hesturinn er úr
Húnavatnssýslu og því sennilega
á norðurleið. Mark: Stýft og biti
framan vinstra. Þeir, sem verða
hestsins varir eru vinsamlegast
beðnir að gera undirrituðum að-
vart gegn ómakslaunum.
Albert J. Finnbogason
Hverfisgötu 59 — Sími 471.
Mjólkursamlag Eyfirðinga hefir á
fundi nú nýlega ákveðið að lækka
útsöluverð mjólkur ó Akureyri úr
35 aurum niður í 25 aura.
„Bárujám“ er heiti á nýútkomnum
smásögum eftir Sigurð B. Gröndal
í Reykjavík. Sögurnar eru læsilegar
og ritaðar af samúð. Persónurnar eru
flestar „skipbrotslíf ó sorgarsænum".
Sumum kann að þykja fróðlegt að
vita, að höfundurinn er framreiðslu-
maður á veitingahúsi hér í bænum,
fyrsti ritliöfundurinn úr þeirri stétt
hér á landi.
Nýja stjómin í Svíþjóð. Jafnaðar-
menn, sem nú, eftir kosningarnar
síðustu, eru stærsti flokkurinn í
sænska þinginu og luifa nærri helm-
ing þingsætanna, hafa nú myndað
nýja ríkisstjórn. Hinn nýi forsætis-
ráðherra Svía er Per Albin Hansson
foringi jafnaðafmannaflokksins. I
Svíþjóð var, ó sínum tíma, myndað
fyrsta jafnaðarmannaráðuneyti ólf-
unnar, undir foi-ustu liins kunna
stjórnmálamanns Brantings, sem lát-
inn er fyrir nokkrum órum.