Tíminn - 02.10.1934, Side 3

Tíminn - 02.10.1934, Side 3
T 1 M I N N 169 Yátryggingarhlutafélagið Nve Danske af 1864 Liftryggingar og brunatryggingar. — Bezt kjör. Aðalnmboð iyrir ísiand: Vátrygglngaskrlfatoia Sigfúsar Sighvatssonar Lækjargötu 2 Sími 3171, Fornritafélagið Af Fornritunum er komið út: Egíls saga Skalla-Grímssonar Sigurður Nordal gaf út. 108+320 bls. með 6 myndum og 4 uppdráttum. Laxdæia saga. Halldórs þœttir Snorrascnar, Stútsþáttr Einar ól. Sveinsson gaf út. 96+320 bls. með 6 myndum og 2 uppdráttum. Hvort bindi kostar heft kr. 9,00 — í skinnb. kr. 15,00 Bækurnar fást hjá bóksölum Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar Beykjavik. SUFER - X Kraft aukning 50% Hraöa aukning 36% Super-X skotin eru nú meira umtöluð og dásömuð en nokkur önnur meðal skotmanna. — F.f þér hafið ekki enn reynt Super-X, þá gjörið það nú, það er yðar eiginn hagur. Supei'-X Kal. 22/short (fjárskot) Super-X — 22/long (stórgripaskot) Super-X — 22/long rifle (gœsa og Super-X — 11/ex. long (selaskot) SPORTVÖBUHÚSHEYKJAVÍKUR Reykjavik Skólavörurl m Stilabækur, þær beztu á landinu) Fást i öllum stærðum og þyktum, með linum, hálfstífum og stífum spjöldum. Blýantar: 10 aura blýantamir landfrægu. Eru fyrirtaksgóðir. Tylftin aöeins eina krónu. KOH-I-NOOR-teikniblýantar, allar hörkur. Betri teikniblýantar eru ekki til. Kr. 0,60 stk., 6,60 tylftin. Teikniblokkir, 10 blaða 55 aura, 20 blaða 85 aura. Teiknipappír. margar tegundir. Teiknibestik, afbragðsgóð, nýsilfur. Kosta kr. 11,50, kr. 16,80 og kr. 23,50. Teiknibólur, margar tegundir, allir litir. Vatnslitakassar, mikið úrval. Ágætir, með 12 litum, aöeins kr. 1,00. Blýantslitir og krítarlitir, stór úrval. Frá 20 aurum til kr. 1,25 askjan. SJÁLFBLEKUNGAR, feikna úrval. Með glerpenna kr. 1,25 með stálpenna penna kr. 2,00. Með gullpenna frá kr. 5,00 til 30,00. Sett (sjálfblekungur og blýantur), margar gerðir, frá kr. 2,50—4,50. IfluniS, að viö gröfum ókeypis nöfn á þá sjálfblekunga, sem keypt- ir eru hjá okkur. Skrúfblýantar, með ýmsu verði, frá 30 aurum til kr. 4,50. Blýantsyddarar með rakvélablaði. Eru að útrýma öllum öðrum yddur- um. Kosta kr. 0,75. Strokleður, afbragðsgóð, 10, 15, 20, 25 og 45 aura stykkið. Reglustrikur úr tré og stáli, allar lengdir. Frá 10 aurum. Pennastokkar, mikið og fallegt úrval. Pennasköft, yfir 30 tegundir, frá 10—60 aura stk. Nótnahefti, fyrirtaks pappir, 40 síður, aðeins 50 aura! Joumal-hefti, til bókfærslukennslu, 2 þykktir: kr. 1,25 og 1,90. PENNAR, allar hugsanlegar gerðír, þar á meðal allar breiddir af rúnnskriftarpennum. BLEK: svart blátt, fjólublátt, rautt, grænt. Nótnablek, gullblek, silfur- blek o. fl. Mikill afsláttur gefinn i stærri kaupum. Sendum gegn eftirkröfu hvert á land sem er. INGÓlFSHVOLI = SiHI mínum áfram og um miðjan mánuðinn skrifaði ég því aftur og skýrði frá því, að ekki myndi nægja að minna en 300 tonn og sennilega yrði þörf fyrir allt að 400 tonn. Stjórnarráðið tók þá að leita tilboða um kaup á þessu sildarmjöli, en það síldarmjöl, sem1 nú er til í landinu er allt fyrirfrám selt útlendingum,- nema um 110 tonn hjá síldar- verksmiðju ríkisins. Hjá síldarverksmlðju ríkis- ins liggja nú fyrir pantanir um ca. 160 toxm og hjá mér um! ca. 250 tonn. Landbúnaðarráðherra hefir nú tekið það ráð, að banna all- an útflutning á síldarmjöli og kemlur það til þingsins kasta, hvaða frekari aðgerðir verða gerðar í malinu og þá meðal annars, hvort það síldarmjöl, sem þarf til að fullnægja pönt- unum verður tekið eignar- námi. Benzínskatlurinn í frumvarpi, sem ríkis- stjórnin leggur fyrir komandi Alþingi, verður lagt til, að hækka innflutningsgjald á ben- zíni, þannig, að skattur alls á benzín verði ca 8V2 aurar pr. lítra. Vegaviðhald hér á landi fer nú hraðvaxandi með ári hverju um leið og nýir vegir eru byggðir og umferðin eykst og mun á næsta ári vera áætlað til vega um 550 þúsund krón- ur. Það er mikið fé og krefst nýrra tekna, sem ekki voru nauðsynlegur meðan vega- viðhald var óvenjulegur gjaldaliður. — Erlendis hefir sú aðferð verið mjög upp tek- in, að leggja gjöld á benzín fyrir vegaviðhaldinu, með því að benzínið er svo mjög notað af þeim flutningatækjum, sem1 um vegina fara og orsaka slit þeirra. Sú hækkun á benzínskattin- um, sem nú er farið framj á, mun þó að vonum vekja nokk- um ugg hjá þeim, sem: benzín þurfa að nota. Þarf það mál nánari skýringar, að benzínið nú er valið sem; skattstofn. Eins og fram1 var tekið verð- ur benzínskattur nú álls um 81/2 aurar pr. lítra, ef frv. verður samþykkt. En í Dan- mörku, sem er eins og sakir standa, stjómað mjög méð hag almennings fyrir augum, er benzínskatturinn 13 aurar pr. lítra. Er þó vegaviðhaldið í Danmörku vitanlega miklu minna en hér, tiltölulega. En þó að þetta hafi verið svona, að benzínskatturinn í Danmörku hefir verið ,13 aur- ar, en hér ekki nema um 41/2 aurar pr. lítra (en það er hann nú), þá hefir samt út- söluverð á benzíni verið mjög álíka hér og í Danmörku. Þetta sannar það, sem raun- ar er almennt vitað, að álagningin á benzíni er mjög mikil eins og sakir standa nú hér á landi. Eðlilegast hefði verið, að ríkið tæki í sínar hendur einkasölu á benzíni og fengi á þann hátt milliliðagróðann. Verzlun með benzín er tiltölu- lega einföld í framkvæmd. Undirbúning mun þó skorta til þess að slík einkasala sé fram- kvæmanleg að svo stöddu. En til þess verður að ætl- azt, að sú hækkun, sem nú á að gera á benzínskattinum, verði ekki til þess að hækka veröið í útsölu til þeirra, sem benzínið nota. Skatthækkunin á að takast af milliliðagróð- anum, og getur hann þrátt fyrir það orðið mjeira en við- unandi, ef miðað er t. d. við ástandið í Danmörku. Það getur vel farið svo, að setja þurfi * hámarksverð á benzín, til þess að tryggja, að skatthækkunin komi niður þar sem! rétt er, á milliliðagróðan- um, en ekki notendunum. Þyki það fyrirkomulag ekki henta áfram, verður einkasalan að koma. Frétfir Slátrun sauðljár hóíst í s. 1. viku í slátrunarhúsi K. E. A. á Oddeyrartanga. Gert er ráð fyrir að slátrað verði 23 þús. fjár í haust í húsinu og að sláturtíð verði úti um eða litlu fyrir miðj- an október. Venjulega verður slátrað um 1200 á dag, en þó stundum nokkuð þar fram yfir. Æfisaga iðnaðarmanns heitir bók, sem er nýlega komin út. Höfundurinn er C. C. Homung og mun þetta vera æfisaga hans sjálfs. þýðinguna hefir gert Sig- urður Skúlason mag. art. Skólastjórar hafa þessir menn verið skipaðir: Sigursteinn Magn- ússon við bamaskólann í Ólafs- firði, Gestur Ó. Gestsson við barnaskólann í Flatey, Gísli Gott- skálksson við bamaskólann í Akrahreppi og Sæmundur Dúa- son við bamaskólann í Haganes- hreppi. Yfirlögregluþjónn, sem var glæpamaður. Nýlega var yfir- lögregluþjónn í borginni Lille í Frakklandi tekinn fastur fyrir það að vera foringi glæpamanna- flokks, sem m. a. hafði stolið 300 þús. kr. í stimpilmerkjum. — Hafði lögreglan lengi haft grun um, að einhver í hennar hópi hefði verið valdur að þessu og störfuðu þeir, sem settir höfðu verið til þess að fá nánari vitn- eskju um það, á sömu skrifstofu og yfirlögregluþjónninn í hálfan mánuð, án þess að verða nokk- urs vísari. Farþegi nr. 1.000.000. Flugfélagið Lufthansa gaf 27. sept. út farseðil nr 1.000.000 handa farþega, sem flaug frá Múnchen til Berlínar. Honum var afhent heiðursskjal til minningar um atburðinn, er hann kom á flugvöllinn í Tempel- hof við Berlin. Og björgln kloínuðu, skáldsaga bók eftir Jóhann Frímann er ný- lega komin út. Nökkvar og ný skip. Ný ljóða- hók efitr Jóhann Frhímann er ný- komin út. Ugluspegill, barnasaga, þýdd af Jónasi Rafnar, nýkomin út. Gríma, 10, hefti er nýlega kom- in á bókamarkaðinn. Sigurður Jónsson rafvirki og l)æjarfulltrúi íhaldsins óskaði þess fyrir skömmu, að bú sitt yrði tek- ið til gjaldþrotaskipta og hafði lögmaður haft málið til meðferð- ar. En nú hefir Sigurður gert samninga við lánardrottna sína og mun ekki verða af gjaldþrota- skiptum. Mun fáum hafa tekizt uð ná samningum við lánardrottna, eftir að hafa gefið sig fram til gjaldþrotaskipta og er ekki ólík- legt að einhverjir hafi þótzt þurfa að veita Sigurði lið, fyrir trúa þjónustu í kollumálinu. MJólkursölunefndin. Samhand isl. samvinnufélaga hefir tilnefnt Árna G. Eylands 'til þess að taka sæti fyrir þess hönd í Mjólkur- sölunefndinni og Alþýðusamband- ið Guðmund R. Oddsson. Land- búnaðarráðherra hefir skipað Hannes Jónsson dýralækni og sr. Sveinbjörn Högnason, sem verður formaður nefndarinnar. Unnið er nú að því að dýpka hátahöfnina á ísafirði. Kappsláttur. Kappsláttarmót fór fram í Skálavík vestra seint í sumar og var þangað komið til að vera viðstatt margt fólk úr Bolungarvík og víðar að. Kepp- endur voru fimm og heitir sá Jó- hann Pálsson, er varð hlutskarp- astur. Sló hann 700 fermetra á 19 mínútum. Dýravemdarinu, 5. tbl. yílr- standandi árgangs er nýkomið út Aðalgreinin er eftir Áma Einars- son bónda í Múlakoti og heitir: Gamlir kunningjar. Kolaverzlun SIGURÐAR ÓLAFSSONAR Simn.: KOL. Reykjavík. Simi 1933. Ritstjóri: Gisli Guðmundsson. Tjamargötu 39. Simi 4245. P»unfauni8iaa Anfak TRÚLOFUNARHRINGAR ávalt fyrirliggjandi. HARALDUR HAGAN, Auisturstr. 3. Sími 3890 TRYGGINGU hafa menn fyrir að fá góðar vörur með góðu verði, méð því að verzla við Eaupfélag Reykjavíkur. Stjórnmál í september Framh. af 2. síðu. frv. um að legg-ja embættið niður, en íhald- ið og’ liðsmenn einkafyrirtækisins vörðu það, en það var almenn trú að enginn mað- ur í landinu utan þings vildi mæla Jakob bót. Nú var honum vikið frá. En Jakob átti formælendur fáa. Það verður að segja al- gengum íhaldskjósendum til verðugs hróss, að enginn þeirra hefir látið til sín heyra stunu eða hósta út af burtvikningu Jakobs. Hefir stjórnin þótt vaxa af málinu, og munu landsmenn yfirleitt vænta, að hún hlífi ekki dýrum og ónýtum starfsmönnum þjóðfé- lagsins. Sá atburður gerðist í þessum mánuði, að Jón Þorláksson borgarstjóri kom heim frá baðstað í Rínardalnum. Var Valgeir Björns- son verkfræðingur hans >á á góðum vegi með að hindra að gert yrði við sundhöllina í Reykjavík. Jón Þorláksson tók þar í taum- ana og gerði það sem hver sæmilega skyn- samur og sómasamlegur maður myndi gert hafa. Hann fól húsameistara að hafa yfir- umsjón með því að verkinu yrði lokið, úr J’ví samkomulag var fengið um kostnaðinn. Þegar Framsóknarmenn á þingi tóku upp urslitabaráttu fyrir niálinu árið sem leið, studdi Jón Þorl. viðleitni þeirra og hélt því nú áfram sem borgarstj óri. En allmikið af kjósendum hans eru bæði hryggir og reið- ir yfir, að sundhöllin verði fullger, því að þeir vita, að það verður aldrei afmáð, að Framsóknarmenn hafa þrem sinnum bjargað málinu, og mjög að óvilja hinna heimskai’i og kærulausari manna í íhaldsflokknum. Ekki verður með jafnmikilli ánægju sagt frá aðgerðum íhaldsmanna í útvarpsráði, er þeir réðu Jón Leifs að útvarpinu með 600 kr. á mánuði, eingöngu sem atvinnubót honum til handa. Hefði alveg eins mátt ráða vin hans Kristján Albertson til að yrkja ljóð fyrir útvarpið. Við útvarpið starfa tveir prýðilega söngfróðir menn, Emil Thoroddsen og Þórarinn Guðmundsson. Þeir höfðu borið hitann og þungann af forgöngu um val á söng og músíkverkefnum við út- varpið. Þeir gátu gert það áfram. En Jón Leifs var atvinnulaus, og útvarpsráðið vildi bæta úr því. Annars átti Jón Leifs við að skapa sér atvinnu við útvarpið sér lengri forsögu. Þegar útvarpið var reist lagði Jón Jónsson í Stóradal ofurkapp á að koma Jóni Iæifs frænda sínum að útvarpinu sem söng- stjóra og lagði fæð á þá menn, sem ekki höfðu trú á honum sem hagnýtum leiðtoga í söngmennt. Voru í hinni niðurbældu gremju Jóns í Stóradal nokkur frumdrög að því að hann gekk íhaldinu á hönd og tók að vinna móti fyrri samherjum. En nú var stjórn útvarpsins betur skipuð í þessum efnum en fyr. Þrír af fimm ráða- mönnum útvarpsins voru komnir þangað á þann hátt, sem mest minnti á það, er Jón í Stóradal og Pétur Magnússon kusu sig sjálfa í stjórn Kreppulánasjóðs með 7200 kr. aukaþóknun árlega. Helgi Hjörvar var skipaður formaður í vor sem leið til þriggja ára af Þorsteini Briem eftir að hann var raunverulega kominn í minnj hluta á þingi og hafði engan siðferðilegan rétt til að veita embætti. Bjarni Benediktsson kaus sig sjálfan í háskólaráðinu inn í útvarpsráðið og flaut á því, og Guðjón skólastjóri í Hafnarfirði kaus sig sjálfan í útvarpsráðið, rétt áður en hann vissi, að hann mýndi lenda í algerðum minnihluta á almennu kennaraþingi. Andi Jóns í Stóradal hafði svifið yfir kosningu útvarpsráðsins, og þetta hið sama útvarpsráð tók nú Jón Leifs að sér til atvinnu. Jón mun í fyrstu hafa ætlað að fá samning til 10 ára, sem mátti telja virðingarverða lítilþægni, en útvarps- ráðið mun þó hafa látið sér nægja eitthvað skemmri tíma. Almenn óánægja er í landinu með þessu ráðstöfun, því að sárafáir munu þeir vera, sem hlakka til að Jón Leifs ráði yfir söng og hljóðfæraslætti útvarpsins. Niðurl. J. J. Heilsufræðissýning verður hald- in hér í bænum dagana 6.—21. okt. næstk., að tilhlutun Lækna- félagsins. Sýningin verður til húsa í nýja Landakotsspítalanum. Sundknnnátta bjargar manns- lífi. Nýlega vildi það til á Siglu- firði að maður féll út af Goos- hryggjunni og bar straumur hann frá henni, svo ekki varð náð til hans. Jón Gunnlaugsson rafvirlci, sem var þar nærstaddur, kastaði sér til sunds í öllum fötum og tókst að bjarga honum á seinustu stundu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.