Tíminn - 26.03.1936, Qupperneq 3
TÍMINN
47
er útlit fyrir, að takast megi að
vinna markaði, sem um munar,
fjunr hraðfrystan fisk, hefir
Fiskimálanefnd hugsað sér, að
í frystihúsum, sem þegar eru
til á höfnum víðsvegar um
land, t. d. kjötfrystihúsunum
o, fl., verði bætt við hrað-
frystitækjum. Síðar yrðu svo
að koma ný frystihús, ef þörfin
krefur.
— En þá er að koma frysta
fiskinum til markaðslandanna.
Er það ekki örðugleikum bund-
ið. með þeim skipakosti, sem
nú er fyrir hendi?
— Eins og nú standa sakir,
er það mjög erfitt og hefir taf-
ið verulega fyrir því að hægt
væri að nota sölumöguleika,
sem hafa verið og eru fyrir
hendi, á meginlandi Evrópu.
Það verða líka miklir erfiðleik-
ar á að koma fiskinum til Ame-
ríku.
— Er ekki hægt að nota ís-
lenzku skipin, sem nú eru til?
— Brúarfoss er eina skipið,
sem sérstaklega er byggt sem
frystiskip. En auk þess er dá-
lítill frystiklefi í Gullfossi, og
svo í Súðinni. önnur íslenzk
skip hafa ekki frystirúm.
Ég býst við, segir Pálmi
Loftsson, að vinna þurfi að því
} náinni framtíð, að fá 100—
200 tonna frystirúm í öll milli-
ferðaskipin, sem sigla til meg-
inlandsins. Ennfremur þyrfti a.
m. k. eitt fullkomið frystiskip,
sem sigldi milli íslands og
Ameríku yfir vetrarmánuðina.
Eins og sjá má á þessum
upplýsingum, er hér mikið og
aðkallandi verk framundan í
því efni að sjá svo um, að salan
á frysta fiskinum strandi
ekki á því, að landsmenn vanti
skiprúm til að flytja hann á
markaðinn, á þann hátt sem
hentugast er. Þar þarf áreiðan-
lega góða forsjá og e. t.v.
skjót úrræði, hvaða leið sem
farin verður.
Því að eins og vænta mátti,
hefir hina gömlu „forráða-
menn“ fisksölunnar skort alla
fyrirhyggju um þetta eins og
annað, sem að breyttum fram-
leiðsluháttum og framtíð þess-
ara mála lýtur.
Múlasýslu, þá mun vegur hans
enn minni en fyr.
17. Fátt er andstyggilegra í fram-
komu Sveins á Egilsstöðum en á-
rás hans á Sigurð Jónsson á Arn-
arvatni. Hann brigslar Sigurði um
að hann muni hafa skuldað í
Kaupfélagi þingeyinga, og þó ekki
glatað trausti samsýslunga sinna.
Hvorttveggja er rétt. Sigurður
skuldar ekki nein 30 þús. í bönk-
um fyrir utan kreppusjóð,
eins og Sveinn á Egilsstöðum.
Sigurður er dæmi um mann
einmitt af því tægi, sem Kreppu-
sjóður átti fyrst og fremst að
hjálpa. Ég tel ekki það honum til
kosta hér, þó að það sé mikilvægt
atriði, að hann hefir gert ódauð-
legan þjóðsöng íslenzkra byggða,
heldur ekki að hann er einn hinn
þroskaðasti og bezt rpennti bóndi á
landinu. Ég tek þá hliðina, sem
veit eingöngu að búnaðarstarfi
hans. Sigurður á Amarvatni hefir
aiið upp 11 börn og komið þeim
vel til manns. Langvinnt heilsu-
leysi hefir herjað heimili hans. Og
skáldið í bóndanum hefir gert
sínar kröfur. En varla mun sá
bóndi vera til á landinu, sem lagt
hefir á sig meiri eríiðisvinnu en
Sigurður skáld á Amarvatni. Hann
er sívinnandi eljumaður, allan
tíma árs. Hann er enn einn af
þeim Mývetningum, sem fer í eft-
irleitir á Austurfjöll, eftir að kom-
inn er vetur og býr marga daga í
óbyggðum, í veðraham norðlenzkra
Fólk í tötrum
Fjórar bækur eftir
Halldór Kiljan Laxness.
[J. I. hefir ritað i Nýja dagblað-
iim greinaflokk um síðustu bækur
H. K. L. Greinaflokkurinn ber fyr-
iisögnina: „Fólk i tötrum“, og fer
siðnsta greinin hér á eftir].
Niðurl.
Viðvaningar í listum geta
haft þá afsökun, að þeir verði
að beita öfgum til að vekja eft-
irtekt daufheyrðrar veraldar.
En þetta á ekki við um H. K.
L. Hann er sannarlega ekki við-
vaningur, og hann vekur eftir-
tekt og aðdáun, ekki með öfg-
um sínum, ekki með tötrum
þeim, sem hann klæðir fólk sitt
í, heldur vegna sannra yfir-
burða, vegna sálarlífs persón-
anna. og vegna alls þess and-
lega lífs, sem hann sýnir með
svo mikilli rithöfundargáfu.
Deilan milli skáldsins og
lesandi manna í landinu, er ekki
útkljáð enn. Og hún verður
aldrei útkljáð með sæmd fyrir
báða aðila nema með því, að
sltáldið byrji að gleðjast með
samlöndum sínum yfir þeirri
merltilegu baráttu, sem háð er
á íslandi, þar sem stigið er á
sjö mílna skóm yfir vanrækslu
margra alda. Takist skáldinu
að sjá fegurð í verkum Islend-
inga, eins og í sálarlífi þeirra
og í náttúru landsins, þá munu
skáldverk hans verða sönn
mynd af íslenzku þjóðlífi, án
þess að nokkuð sé misst af
því, sem nú gefur þeim gildi.
En auk þeirrar bölsýni, sem
nú hefir verið lýst, á H. K. L. í
stríði við annað enn hættulegra
andlegt mein, og það er bylt-
ingarstefna Rússa. I Sölku
Völku er H. K. L. hlutlaus í
þeim efnum. Hann gagnrýnir
allt hlífðarlaust, kommúnism-
ann líka, og á þann hátt, að
engin mannfélagsstefna skygg-
ir á í hinni skáldlegu efnismeð-
ferð. En eftir að H. K. L.
hafði lokið þeirri sögu, brá
hann sér til Rússlands og ritaði
bók um þá för sína. Mun hann
hafa orðið þar fyrir allsterkum
áhrifum. Gætir þess mjög mik-
íð í „Sjálfstætt fólk“, bæði í
hinum almenna undirstraum
bókarinnar, sem er einkar vel
fallinn til að skapa ótrú á nú-
verandi þjóðskipulagi. En þegar
vetra. þennan mann, sem elur upp
stóran og myndarlegan bamahóp
handa þjóð sinni, og sem er
fremstur i baráttu bændanna, bæði
í áreynslu búskaparins, í listum,
og i félagsmálastefnum stéttar
sinnar, þennan mann leyfir ver-
feði’ungurinn og ættarskömmin á
Egilsstöðum sér að svívirða fyrir
lífsbaráttu, sem kastar ljóma á
hann sjálfan, byggð hans, stétt
hans og þjóð.
18. Aður en nokkur Framsóknar-
maður minntist á einstakar skuld-
ir „varaliðsmanna", hafði íhaldið
ráðist á Bjarna Ásgeirsson alþm.
á Reykjum fyrir skuldaskipti við
Kreppulánasjóð. En kjósendur
Bjarna tóku þessari sókn á þm.
þeirra á þann veg, að hvorki þ.
Br. né Jón Jónsson mun fýsa að
taka þann leik upp að nýju. Jón
Jónsson mun hafa vísvitandi
gefið Sveini rangar tölur bæði um
Bjarna Ásgeirsson og Jörund Bryn-
jólfsson. En þó að Sveini þylci sér
gagn að því að skrökva um fjár-
rr.iður þessara manna, þá má vel
nota glópsku hans til að skýra
satt frá þeirra ástæðum. Jörundur
Brynjólfsson kom úr bæ í sveit,
rétt áður en verðfall byrjaði eftir
slríðið. Hann keypti dýran bústofn,
sem féll skjótt í verði. Hann bjó
á tveim leigujörðum og varð að
kaupa dýr hús á hinni síðari, en
hafði eins árs byggingu i senn,
og réttlaus með hús sín, ef upp
var sagt. Jörundur var á þessum
kemur aftur í síðara bindið,
verður þessi undirstraumur al-
ráðandi; og nokkrir káflar eru
alls ekki skáldskapur eða list,
heldur laglegar kommúnistarit-
gerðir. Þar hættir H. K. L. að
láta atburðina tala, en gefur
liversdagslegt vfirlit um hversu
Lundúnabankar stjóma land-
inu, um kúgun bankanna að
taka vexti, um kaupfélögin
sem okurstofnanir, um stjóm-
málamennina sem samvizku-
lausa lýðskrumara, um eymd
sveitafólksins í torfkofum sín-
um og um enn meiri eymd þess
i steinhúsum. Að lokum er því
slegið föstu, að þýðingarlaust
sé fyrir vinnandi stéttir lands-
ins að ætla að hafa þolanleg
skýli yfir höfuðið. Það hæðsta
sem fólkið má 4iugsa til, er að
hafa skýli fyrir skepnurnar o.
s. frv.
Ekkert er eins hættulegt fyr-
ir skáld eins og að vera prédik-
ari og ætla að festa vissa lífs-
skoðun í huga lesenda. Þá em
markmiðin orðin tvö, og ósam-
rýnanleg. Hið eina hlutverk
skáldsins er að sýna lífið, sýna
bylgjur sálarlífsins, sýna hin
eilífu sannindi um mannssálina.
Þau skáld, sem með mestri
snilld lýsa hinum óbreytanlegu
eðlisþáttum í mannlífinu, lifa
lengst. En sá skáldskapur, sem
er bundinn við tízkuöldur eða
stjómmálaáróður, lifir. stytzt.
Hver metur nú lýsingar „veru-
leika“-skáldanna frá 1880 um
hinar „blautu“ og „blóðrauðu"
varir konunnar? Hver hefir nú
sérstaklega gaman af ádeilu
Þorst. Erlingssonar á presta og
kirkju? Hve lengi munu menn
lesa sér til ánægju leikritið
,,Straumrof“, sem virðist vera
i'itað sem stuðningur við vafa-
samar kenningar um úrslita-
vald ástríðanna?
Ef menn bera saman sögur
Einars Kvarans, t. d. „Vonir“
og „Litla Hvamm“, þar sem
hann lætur sér nægja að lýsa
mannlífinu á skáldlegan hátt,
cg verður sígildur höfundur,
við síðari bækur hans, sem end-
urspegla trú skáldsins á spírit-
isma, en eru nálega þýðingar-
lausar fyrir íslenzkar bók-
menntir, þá sézt í hvílíkri
hættu H. K. L. er með sína trú
á kommúnismanum. Hvaða
fólk hér á landi kærir sig um
kommúnista áróður í skáldsög-
um? Þeir, sem þrá slíka and-
tima 5 ár frá verkum í einu, þar
af hálft annað ár með gipssteypu
við bakið heima í Skálholti. Börn
hans voru þá ung, og allt starfs-
fólk vandalaust. Halda menn að
líí slíks bónda sé leikur, t. d.
sambærilegt við málfærslu prang-
arans, sem tekur 30 þús. fyrri eitt
rnál, bankastjóralaun, 7000 kr. fyr-
ir að vera i Kreppusjóði og gefa
Sveini á Egilsstöðum, Bergsteini 1
Kaupangi og Stefánl í Fagraskógi
gjafir af fé annara manna? Ár-
nesingar vita að Jörundur er
hraustmenni og djarfur maður í
fylkingarbrjósti í málum þeirra.
j’eir meta það, að hann kom til
þeirra á erfiðasta tíma, að hann
hefir barizt með þeim, og hvergi
dregið af sér, að margir af mestu
sigrum bænda í Árnessýslu eru
unnir undir hans forustu og vegna
orku hans og manndóms.
Sveinn á Egilsstöðum sendir
Bjarna Ásgcirssyni hnútur fyrir aö
liafa tapað á búskap. En hvers-
vegna nefnir hann ekki flokks-
bróður sinn, Halldór á Hvanneyri.
Halldóri hafa verið gefin upp
mörg hundruð þús. krónur í bönk-
um landsins, tap hans á fram-
leiðslunni. Samt hefir Halldór
hetri kjör en nokkur bóndi á ís-
landi. Hann hefir að jafnaði grætt
um 20 þús. kr. á aðstöðu þeirri,
sem ríkið veitir honum. Og samt
varð að gefa honum, að því er
virðist, án tilefnis. Halldór hefir
engu fórnað sjálfur fyrir íslenzkan
lega fæðu, lesa „Verklýðsblað-
ið“ sér til hugarhægðar. Og í
öðrum löndum, Skandinaviu,
Englandi og Ameríku, er ekki
sýnilegt, að þörf sé fyrir slík-
ar hugleiðingar héðan úr norð-
urátt. Allt og sumt, sem H. K.
L. getur orkað með því að ger-
ast í skáldskap boðberi hinna
austrænu hugmynda, er að láta
þær stýfa vængi af skáldfák
sínum og missa marks um sitt
íramtíðarland, eins og ein af
söguhetjum hans gerir af
miklu skiljanlegri ástæðum í
„Sjálfstætt fólk“.
Þannig er H. K. L. nú. Hann
stendur í blóma lífs síns, betur
búinn til að vinna sér frægð í
mörgum löndum en nokkurt
annað íslenzkt skáld, síðan Eg-
ill Skallagrímsson dró „djarf-
hött“ yfir sína „dökku skör“.
Honum hefir til þessa gengið
flest til vegs og frama. íslend-
ingar hafa ríkulega ástæðu til
að gera sér miklar vonir um
framtíð hans. Þeir óska einkis
fremur en að á ókomnum árum
megi jafnan fara saman frægð
hans og sæmd lands og þjóðar.
J. J.
Úr
Rangárvailasýsln
er skrifað 15/2. þ. á.:
Tíðarfar hefir verið hér einmuna
gott, það sem af er vetrar. Um
mánaðamótin nóv. og des. gerði
nokkurn umhleyping og snjókom-
ur, en síðan hafa staðið hrein-
viðri og snjólaust með öllu. Á beit-
arjörðum hefir fé lítið eða ekkert
'erið gefið enn. Og hross ganga
víða gjafarlaus til þessa. í félags-
lífi gerist fátt markvert og póli-
tíkin, sem annars fjörgar til-
breytingarleysið öðru hvoru^ hefir
verið óvanalega liflítil um. skeið.
Höfðu menn almennt búist við, að
þingmenn kjördæmisins mundu
tala og ráðgast við kjósendur með
fundarhöldum fyrir þingbyrjun,
eins og venja er til, eldti sízt þeg-
ar vegir eru eins og að sumri til,
liæði um héraðið allt og frá
Reykjavík, og er það sjaldgæft
um þctta leyti árs. — þá höfðu
menn og fremur vænst þessa, þar
sem fjölmcnni var heima fyrir,
svo að segja engir farnir til vers
af yngra fólkinu, vegna verkfalls-
ins í Vestmannaeyjum. Menn
leiða hér ýmsum getum að hvers-
vegna þingmenn okkar áræddu
búskap. Fórnir þjóðfélagsins hafa
allar verið honum í vil. En Bjarni
á Reykjum hefir verið algerlega
brautryðjandi í að nota jarðhitann
til ræktunar á íslandi. Allir vita
að bændastéttin á eftir að læra
niikið af þeirri forgöngu. En
fyrstu 10 árin hafði Bjarni ekkert
ncma tap, alveg stórkostlegt tap á
]>essum tilraunum og á því að
i'.vggja stærstu gróðurskálana, sem
enn eru reistir hér á landi. Sum
árin eyddi skaðleg jurtasýki ná-
lega öllum gróðrinum, sem stórfé !
var lagt í að rækta. Nú eru þeir j
erfiðleikar yfirunnir, og allir sem
rækta í gróðurskálum hér á landi,
geta héreítir byggt á þeirri reynslu
sem kostaði fyrsta brautryðjand-
ann marga tugi þúsunda. Mýra-
menn vita þetta vel. þcir vita hvað
Bjarni hefir gert fyrir íslenzkan
landbúnað, og fyrir það kjördæmi,
sem hann liefir verið fulltrúi fyrir
um langa stund með svo glæsileg-
um árangri. Vill Sveinn athuga
]>að hvernig stendur á því að
„varalið íhaldsins" eins og hann
og Halldór á Hvanneyri hafa ekki
þá félagslegu tiltrú, að þeir geti
orfiðislítið náð kosningu í sóknar-
nefnd í átthögum sínum, en að
þeir þingmenn Framsóknarmanna,
sem íhaldið hyggst að óvirða í
sambandi við búskap, njóta
trausts og halds ár eftir ár í stór-
um, vel menntuðum héröðum. Áð-
ur en lýkur mun eg gefa Sveini
skýringu á þessu, að því er hann
ekki að þessu sinni, að rœöa mál-
efni sín og áhugamál við kjós-
cndur sína áður en þeir legðu sin
lóð á metaskálamar um afdrif
mála á Alþingi. Eins og gengur
finna menu þar til hæði ásakanir
og afsakanir, um slik mál. En þó
mun það vera almennt álit manna,
.einnig meðal kjósenda þingm.,
að eitthvað, og það ekki veigalít-
ið, hljóti að liafa kyrs.ett þá í
Reykjavik, að þessu sinni, frá
íundarhöldum. — þegar allar að-
stæður ytra séð voru svo óvenju-
lega góðar, sennilega betri en ver-
ið hefir um marga áratugi, og þó
skyidi vera taliö nauðsynlegt af
þeim i þetta sinn að brjóta hina
æfagömlu venju. En sjálfsagt
koina þ.eir sjálíir með hinar réttu
skýringar siðar meir.
Anhars fer okkur Rangæingum
að þykja dauft yfír málefnum
okkar á þessu sviði. Mál og fram-
kvæmdir af liendi hins opin-
bera heyrast vart nefndar á Al-
þingi um margra ára bil, þrátt
fyrir allt sem gert hefir verið síð-
ustu áratugina. Undantekning eru
aðeins árin 1931—1933, þegar hin
miklu mannvirki voru gerð til -
samgöngubóta á vatnasvæði þver-
ár og Markarfljóts. Og heima i
héraðinu sjálfu virðast þingmenn
okkar nú vera að leiða inn sama
svefninn og afskiptaleysið. þetta
tala menn almennt um nú um.
þessar mundir.
Um kjötlögin ræða menn al-
niennt hér með miklum velvilja,
og íinna muninn nú, að fá 12—14
kr. íyrir hvern dilk móts við 6—8
kr. árin næstu áður en þau komu.
Eru það víst undantekningar, ef
menn nú óska afnáms þeirra laga.
— Um árangur mjólkurlaganna
er ekki séð ennþá, en almennt
vænta menn einhvers árangurs,
enda þótt menn skilji vel, að erf-
iðleikarnir, sem við hefir verið að
etja í byrjun, muni draga úr því,
sem þau lög hefðu ella getað
fært þeim. Bíða menn með mikilli
óþreyju eftir að sjá hversu þeim
málum reiðir af.
Nýbýlalögin telja margir hér að
sé hið merkasta, sem síðasta þing
lét frá sér fara, og er almennur á-
iiugi nieðai ungra manna um að
kynna sér ákvæði þeirra til að
geta hafizt handa til að færa sér
þau i nyt og byrja hið nýja land-
nám, sem þau gefa fyrirheiti um.
Fýsir nú marga fremur, að freista
gæfunnar í viðskiptum við gróður-
mátt moldarinnar, en í óvissu og
áhættu þeirra, sem leita sér at-
vinnu við sjávarsíðuna. — þá er
og almenn ánægja með hin nýju
framfærslulög, sem eru hvort-
tv.eggja i senn, mannúðlegri en hin
fyrri og réttlátari gagnvart sveit-
unum.
snertir.
19. það er liægt að skilja, að
bóndinn á Egilsstöðum, sem ekki
fær meðmælendur til þings i sin-
um eigin hreppi líti öfundaraug-
um til vinsælla og þýðingarmikilla
íiianna eins og Steingríms búnað-
armálastjóra, Páls Zophoníassonar
og Páls Hermannssonar. Engu að
síður veit hann að báðir skóla-
stjórarnir bjuggu ágætlega á Hól-
um og Páll Hermannsson á Eiðum.
Hann veit að búskapur þessara
manna allra var þeim til sæmdar
og hinn rausnarlegasti. Hann veit,
að persónutraust þeirra hvers um
sig er mikið, og traust lians lítið.
Hann veit að á allan hátt er hann
einc og dvergur í samanburði við
þá, Gremja hans við þá er öfund-
arstuna lxins vanmáttuga gagnvart
þeim, sem mikið er gefið og fara
vel með sitt pund.
En það ei’ ástæða til að gefa
Svcini nokkra ráðningu fyrir
músarholueðli sitt í sambandi
við Eiða. Páll Heraiannsson hafði
rekið þar hið blómlegasta bú, að-
allega fjárbú, og til þess háfði
jörðin þótt bezt fallin. En á Eið-
um var engin sérstök þörf, vegna
skólans, að framleiða lcjöt. Sú vara
var framleidd hjá öðrum bændum
um alit héraðið, meir en nóg til
að bæta úr þörf skólans. En með
vaxandi blómgun Eiðaskóla, fyrir
aðhlynningu Framsóknarmanna að
stofnuninni, óx aðsókn þangað og
þar þurfti meiri mjóllt, sem hent-
Útg,erðar-„plaii“
Alpýðublaðsíns
Jón Sig'urðsson skrifar nýl.
í Alþýðubl. grein um tog-
araútgerðarfrv. það, er nokkr-
ir Alþýðuflokksmenn flytja nú
á Alþingi. 1 formála fyrir grein-
inni segir blaðið um Jón þennan
að hann hafi „undanfarið kom-
ið svo að segja í hvern bæ og
hvert þorp á landinu og hefir
komizt að raun um það, hve
djúp ítök þetta mál á í allri
þjóðinni“!
Svo er nú fyrir að þakka, að
ekki er ennþá hægt að segja,
að „öll þjóðin“ búi í „bæjum“
og þorpum“. Það mun því
vanta ærið mikið á, að J. S.
þekki hug „allrar þjóðarinnar“
til þessa máls, enda þótt geng-
ið væri út frá því sem sönnu,
að hann hefði farið um alla
kaupstaði og kauptún og orðið
þess vís, hver vilji manna þar
er í útgerðarmálunum.
Að þessu 'sinni sltal ekki far-
ið út í það að gagnrýna ríkis-
útgerð og bæjarútgerð yfir-
leitt, aðeins tekið fram það, sem
áður hefir verið yfirlýst, að
Framsóknarflokkurinn er því
yfirleitt andvígur, að fram-
leiðsla landsmanna sé rekin af
hinu opinbera. Hinsvegar hefir
flokkurinn ekki verið því mót-
fallinn, að veita stuðning ríkis-
ins til að koma upp nauðsyn-
legum framleiðslutækjum, þar
sem það var óhjákvæmilegt, svo
sem síldarverksmiðjunum. —
Hinsvegar ætlaðist flokkurinn
ekki til þess í upphafi, að rík-
ið ræki þessar síldarverksmiðj-
ur á venjulegan hátt, heldur að
um reksturinn væri einskonar
samvinnuíélagsskapur útgerð-
armanna og sjómanna, og að
síldin yrði ekki keypt ákvæðis-
verði eins og hjá kaupmanni.
Þetta hefir að vísu farið nokk-
uð á annan veg, en þarf að
breytast, ef vel á að vera.
J. S. minnir á það, að hann
hafi í vetur birt skýrslu um
meðalaldur þeirra togara, sem
nú eru í landinu og hafi hann
reynzt 15 ár. Þessi skýrsla Jóns
mun að vísu ekki hafa verið ný
fyrir mönnum, því að hér í
blaðinu var m. a. um þetta rit-
að mjög ítarlega veturinn 1933
—34, og auk þess eru mönnum
í fersku minni ummæli ólafs
Thors um ,,ryðkláfana“. Jón
ast var að framleiða á sjálfum
skólastaðnum. Ennfremur hafði
komið í 1 jós, með tilraunum, að ef
mólendið á Eiðum var friðað fyrir
sauðbeit, þá byrjaði skógur undir
cins að vaxa um aila landareign-
inn. Rætur skógarins lifðu í mold-
inni, en var haldið niðri af sauð-
beitinni. Hverjum heilskyggnum
manni var ljóst, að engin ástæða
var að ala upp sauðfé á skólajörð-
inni Eiðum, eingöngu til að drepa
skóginn, sem vildi umlykja mestu
monntastofnun Austurlands. Nú-
verandi ríkisstjórn ákvað þess-
vegna i samráði við Pál Her-
mannsson, að hætt skyldi við
auðfjáreign á Eiðum, en að land-
areignin skyldi að miklu leyti frið-
uð, og þar gerð ein liin stórfelld-
asta tilraun með skógrækt, sem
gerð hefir verið liér á landi á síð-
ari árum. það er fullvíst, að hver
oinasti ærlegur Austfirðingur mun
fagna þessari ráðstöfum, og telja
liana samboðna stórhuga fram-
tara og umbótamönnum. En það
fer lika vel á að Sveinn á Egils-
stöðum skuli fyllast gremju yfir
þessari ráðstöfun um leið og hann
legst niður til að glata manndómi
sínum í vesalli flatsæng með
klerkinum á Akranesi, sem læsti
rollur sínar inn í alfriðaða skógar-
girðingu ríkisins á Saurbæ á
Iívalfjarðarströnd, og gerði þessa
framkvæmd i notum þess, að hann
var þá yfirmaður friðunarmála
hinna niðurníddu, íslenzku skóga.