Tíminn - 29.07.1936, Qupperneq 1
c-9 inu^eimta ©afnatPís. )Ö
tShni 2353 — ^óötí)5tf OC/1
©jaíbbagt
blabotns er ! jftnl
JÁcganguriitn fostat 7 ft.
XX. ár.
Ó
'gnir
Er íhaldið
ofbeldise að ganga af
stefnvmnar göflunum?
Á Spáni er nú að gerast
þessa daga einn af harmleik-
um mannkvnsins.
Sá harmleikur er saga allra
borgarastyr j alda.
Fólk af sömu þjóð, úr sama
landi, sömu sveit eða bæ,
stundum skyldmenni og vinir,
berst nú á banaspjót með allri
hrylling þeirrar grimmdar, sem
mannssálin getur í sig drukkið.
Það eru öfl einræðisins, sem
þar skiptast vopnum.
Þegar til slíkra ógna dregur,
sem nú á Spáni, eru það öfg-
arnar til beggja handa, sem
hæst ber á.
Æst þjóð, sem leiðst hefir
út til slíkra bræðravíga, fær
ekki, meðan á ógnunum stend-
ur, notið rólegrar, achugandi
og metandi skynsemi, er vel-
ur meðalveg hófs og þróunar.
Þess vegna er hætt við að það,
sem af þessari yfirstandandi
borgarastyrjöld leiðir, verði
einhverskonar einræði, hvort
sem það verður heldur fas-
cismi eða kommúnismni.
Það eru fascistar og kon-
ungssinnar, sem til uppreisnar-
innar stofna. Áður voldugar
stéttir í þjóðfélagi, þar sem
Alfonso konungur ríkti, en
sem töpuðu áhrifaaðstöðu sinni
með falli hans og valdatöku
lýðræðismanna, gera nú til-
raun til þess að hrifsa völdin
í sínar hendur með vopnuðu
ofbeldi.
Hvernig þessi hroðalegi leik-
ur fer, er enginn kominn til að
segja.
Hitt blasir við allra augum,
liver voði stafar af því, er of-
beldishugarfarið nær að leggja
undir sig meginþætti í athöfn-
um einstaklinga og þjóða. Of-
beldi, sem einkis svífst, hvorki
um frelsi manna né fjör.
Og aldrei sézt betur en und-
ir slíkum kringumstæðum,
hvers virði sterkt lýðfrelsi og
þingræði er, og hvernig með
því má — og því einu, halda í
slcefjum ofbeldisöflum, sem
annars skeyta fæstu, nema
þröngum sérhagsmunum líð-
andi stundar.
Öfgaflokkamir eru til í öll-
um löndum. En á Norðurlönd-
um ná þeir minnstri fótfestu,
eiga þar hrjóstrugastan jarð-
veg- og lítil uppivöðsluskilyrði.
Allir vita að þetta er mest
þeirri almennu menntun og
menningu að þakka, sem Norð-
urlandaþjóðimar hafa öðlazt
með langri þroskasælli þróun.
Kommúnistaflokkar þessara
landa eru áhrifalausir og fá-
mennir. Fascistar og Hitlers-
dýrkendur eru enn færri og
vesælli. Hvorugir hafa neitt
Ijolmagn til þess að steypa
samborgurum sínum út í bál
byltinganna.
Hér á landi hafa báðir
þessir flokkar reynt að ná fót-
íestu meðal þjóðarinnar.
En það hefir heldur ekki
tekizt.
Nazistarnir hafa gert sig
Frh. á 4. síðu.
Ein's og kunnugt er, var for-
sætisráðherra Dana, Th. Stau-
ning, nýlega á ferð hér á landi.
Ilann kom hingað m. a. til að
ræða við íslenzku ríkisstjórn-
ina um viðskiptamál Islands
og Danmerkur, og þá fyrst og
fremst það, hvaða möguleikar
séu á því, að Danir geti bætt
okkur Islendingum upp þann
mikla mismun, sem er á því
vörumagni, sem við kaupum af
Dönum og því, sem Danir
kaupa af okkur. Undanfarið
hefir verið bent á tvö úrræði
í þessum efnum: I fyrsta lagi,
að Danir reyni að auka vöru-
kaup sín frá Islandi. I öðru
lagi, að Danir greiði fyrir sölu
íslenzkra vara í iSuðurlöndum
og víðar á þann hátt, að gera
þar sjálfir vörukaup, sem séu
látin koma Islendingum til
góða, þegar vöruskiptin eru
gerð upp.
Fyrir okkur Islendinga er
þetta vitanlega stórt mál. En
það er líka mikilsvert atriði
fyrir Dani. Þeir vilja ógjarn-
an missa af vörusölu hingað
til lands, en vita hinsvegar, að
við getum tæpast látið okkur
lynda áfram þann óhagstæða
viðskiptajöfnuð, sem nú er
milli landanna, og myndum
því neyðast til að flytja kaup
okkar að meira eða minna leyti
frá Danmörku, ef ekkert er að
gert.
Einhvemtíma myndi það
fremur hafa þótt bera vott
um vaxandi en minnkandi
sjálfstæði íslands, ef erlendur
forsætisráðherra hefði gert sér
ferð hingað til að ræða við-
skiptamál við íslendinga.
En nú æsast íhaldsblöðin út
af komu Staunings og telja
hana bera vott um það, að ís-
lenzka ríkisstjómin sé að ofur-
selja sjálfstæði landsins í hend-
ur Dana! Sérstaklega óskapast
Mbl. út af því, að Stauning
skuli hafa sagt í viðtali við er-
lend blöð, að viðræður hans við
íslenzku stjórnina verði „tekn-
ar með til yfirvegunar" í sam-
bandi við verzlunarmál „sem
tekin verða til meðferðar í
Danmörku“.
Það er nokkuð erfitt að gera
sér grein fyrir því, á hvern
hátt gáfnaljósin við Morgun-
blaðið ætla íslenzku ríkisstjórn-
inni að fara að því að koma
lagfæringu á viðskiptin milli
Islendinga og Dana.
Þegar danski forsætisráð-
herrann býðst til að koma hing-
að heim og ræða málið, ætlar
íhaldið úr öllum mannlegum
ham.
Og þegar Stauning skýrir
frá því erlendis, að kröfur Is-
lendinga og viðræðurnar við ís-
lenzku stjómina muni verða
„teknar til yfirvegunar“ eins
og önnur erlend verzlunarmál,
þá sér Mbl. bókstaflega rautt,
og talai' um, að þar með sé
„íslenzka verzlunarmálarðu-
neytið flutt til Danmerkur“!
Vildu spekingar íhaldsins
Framh. á 4. síðu.
Reykjavík, 29. júlí 1936.
31. tbl.
A víðavangi
Síídveiöin.
Laugardaginn 25. þ. m. voru
alls komin á land 474 þús. mál
síldar til bræðslu. Á sama tíma
í fyrra var bræðslusíldin ekki
nema 820 þús. mál, og jókst
ekki úr því, svo að neinu næmi.
Sala bræðslusíldarafurðanna
gengur vel það sem af er og
má áætla, eftir þeirri sölu, sem
gerð hefir verið hjá ríkisverk-
smiðjunum, að síldarmjöl og
síldarlýsi, sem nú er búið að
vinna, sé um 5 millj. kr. virði
til útflutnings. Saltsíldaraflinn
var 25 þ. m. orðinn nál. 60
þús. tunnur, en var aðeins 10
þús. tunnur á sama tíma í
íyrra. Af karfa er búið að
veiða rúml. 11 þús. tonn. —
Karfalýsið hefir selzt miklu
hærra verði en síldarlýsi og
karfamjölið selzt líka betur en
síldarmjöl.
EHitryggingarnar.
íhaldsmenn halda áfram öðru
hverju að ala á rógi um Fram-
sóknarflokkinn í sveitum út af
ellitryggingunum nýju. Þannig
lét einn íhaldssýslumaður þess
sérstaklega getið á manntals-
þingi, að nú kæmi hækkun á
ellistyrktargjaldi, sem „stjórn-
in“ legði á bændur! En hitt
mun hann hafa þagað um sá
góði sýslumaður, að á Alþingi
greiddu íhaldsmenn atkvæði
með ellitryggingunni, og full-
trúar þeirra í allsherjarnefnd,
Garðar Þorsteinsson og Thor
Thors, mæltu með því sérstak-
lega, að það mál næði fram að
ganga. — íhaldsmenn ætluðu
meira að segja að ganga inn á,
að ellitryggingargjaldið yrði 6
kr. á mann í sveitum í stað 5
kr., sem kveðið var. En breyt-
ingin um lækkun kom frá
Framsóknarmönnum. — Einn
þingmaður úr miðstjórn íhalds-
flokksins, Jakob Möller, barðist
hinsvegar fyrir því, að munur-
inn á ellistyrk til gamalmenna
í sveitum og kaupstöðum yrði
sem mestur og að gamalmenni
í sveitunum yrðu höfð útund-
an. En Framsóknarmenn neit-
uðu að fylgja tryggingalögun-
um, ef slíkt óréttlæti næði
fram að ganga, og komu á
þann hátt í veg fyrir það. Um
þetta ættu íhaldssýslumennim-
ir að gefa slcýrslu á manntals-
þingum næst!
Ófarir íhaldsins
í skattamálum.
Skýrsla sú, er birt var hér í
blaðinu í vor um upphæð rík-
isskatta á íbúa, bæði hér á
landi og í öðrum löndum, hefir
vakið mikla athygli. Skýrsla
þessi var tekin eftir amerísku
vísindariti, og hún sýnir, að
skattar til ríkisins hér á landi
eru lægi’i á hvern íbúa en ann-
arsstaðar á Norðui’löndum og
lægri en skattameðaltal Norð-
urálfuríkjanna. Ýmsir hafa
haft orð á því við Tímann síð-
an þessi skýrsla var birt, að
þeir botnuðu ekkert í því, að
íhaldsmenn skyldu hafa haldið
því fram undanfarið, að skatt-
ar hér á landi væru hærri en
nokkursstaðar annarsstaðar, og
að mönnum, sem þannig haga
.
y ri.Y.a.J.
íMRgaiBaiiaa^.
Kort af Spáni
þar sem hin ægilega borgarastyrjöld geisar,
málflutningi sínum, geti ekki
verið mjög annt um að segja
satt yfirleitt. En íhaldsblöðin
hafa orðið að gjalti í þessu
máli sem von er.
„Mosaskeggur41
kveður Eyfirðinga!
Sigurður „mosaskeggur“ skrif-
ar nýlega í Mbl. um fýluför
þeirra Garðars í Eyjafjörð. Vill
Tíminn eindx’egið ráða mönnum
til að lesa þá grein, því að
hrakförum þein’a félaga í Ey-
jafirði er þar enn átakanlegar
lýst á milli línanna, en gert
verður í beinni frásögn.
1 grein þessai’i játar Sigui'ð-
ur að fregn Mbl. um vantraust-
ið á Ili’afnagili hafi verið upp-
spuni.
En gremju sinni yfir óförun-
um reynir „mosaskeggur" að
svala með ókvæðisorðum um
einstaka menn í Eyjafirði og
sér í lagi um Kaupfélag Ey-
firðinga.
Hann segir m. a.:
„— — Pólitisk ómenning"
hefir verið breidd upp yfir
höfuð héi’aðsbúum af Kaupfé-
lagi Eyfirðinga“. Þvínæst tal-
ar hann um þá, sem „fastast
trúi á kaupfélagskúgunina“ og
segir svo: „En óvíst verður að
telja, að það sé einhlítt, því þó
ofstopi og yfirgangur kaupfé-
lagsins gangi mjög úr hófi, þá
fylgir slíkri kúgun sársauki,
sem menn þola ekki til lengd-
ar------“.
Ef „Mosaskeggur“ hefir ætl-
að að gei'a Garðari greiða með
skrifi þessu, þá er sú tilraun á-
xeiðanlega ekki heppileg. Því
að eitthvað annað mun vera
vænlegra til fylgis í Eyjafirði
en að níða hið myndarlega og
vinsæla samvinnufélag þeii’ra
Eyfirðinga. Var Garðar þar
sjálfur búinn nóg að gera, þótt
eigi hyggi „mosaskeggur“ í
hinn sama knérunn.
Innanhéraðsmönnum á
Hrafnagilsfundinum gefur
„mosaskeggur“ þann vitnis-
burð, að á þá hafi ekki verið
hlustandi, því að þeir séu
„mjög vitlausir menn“!
En margur myndi það mæla,
að á meðan „mosaskeggur“
unir við „vitlausa manninn í
skutnum“, sem formann í
Azana,
forseti spánska lýðveldisins.
| Sjálfstæðisflokknum og þjónar
undir hann, þá sé hann ekki
| of góður til að hlusta á bændur
! norður í Eyjafirði.
í .
i „Okkar söngur“!
Eitt höfuðeinkenni í opin-
| berri framkomu íhaldsmanna á
i mótum og mannfundum, er
vanmáttartilfinningin.
| Þeir eru fyrir löngu famir
| að sjá fram á þá sannreynd, að
i öil von muni vera úti um það,
að þeirra flokkur komizt fram-
ar til valda á Islandi.
: Það er rétt hjá þeim.
Þess mun engin von, ekki
t inu sinni með leyndri og opin-
l.erri aðstoð varaliðsins, s'em
Lennir sig við bændur þessa
; Lcnds.
; Það er meir að segja óvenju
■ skynsamlegt af þessum flokki
; ð gera sér Ijósa grein fynr
, þessum fyrirsjáanlegu örlögum.
Hitt er aftur á móti með
i nokkuð meiri furðu, hvernig
íhaldsmenn bera sig undir því
mótlæti.
Allir þekkja lýsingar ólafs
Thors á ástandinu í atvinnu-
lífi útgerðarmanna, meðan
’ians flokkur réð lögum og
| lofum í þeim efnum öllum,
hvernig allt var að sökkva á
kolakaf.
Og allir kannast við útmálun
þessa flokksforingja á högum
þjóðarinnar yfirleitt, hvernig
skelfing taugaveiklaðs manns
kemur fram í ákalli og hróp-
um um það, að allt sé á glöt-
unarleið.
Fyrir þetta hefir þessi for-
Framh. á 4. síðu.
Utan úr heimi
Undanfarna viku hefir geis-
að á Spáni ein hin ægilegast;
borgarastyrjöld, sem sögur
fara af, og er enn eigi víst,
hver verða muni úrslit hennar
Það eru fasistar og konungs-
sinnar, sem uppreisn hafa gert
gegn ríkisstjórninni, sem við
völdum tók eftir kosningasigui'
vinstri flokkanna í febrúar-
mánuði sl.
Síðustu vikurnar áður en
uppreisnin hófst, hafði verið
róstusamt á Spáni. Verkföll
geisuðu um landið, og þekktir
menn bæði úr liði stjómarirm-
ar og andstæðinga hennar
höfðu verið myrtir. En upp-
reisnin brauzt út í spönsku ný-
lendunni í Marokkó á norður-
strönd Afríku, og höfðu upp-
reisnarmenn brátt alla nýlend-
una á valdi sínu. Rétt að segja
samhliða hófst borgarastyrjöld-
in heima fyrir, bæði á Suður-
og Norður-Spáni. Urðu upþ-
reisnarmenn þegar yfirsterkari
á Suður-Spáni. Og á Norður-
Spáni veitti þeim einnig betur
framan af og fóru með liðsafn-
að að höfuðborginni, Madrid.
En höfuðborgin stendur í
rniðju landi á þurrum og
hrjóstrugum stað. Var um
tíma talið, að uppreisnarmenn
hefðu vatnsleiðslumar til
borgarinnar á valdi sínu, og a'ð
borgarbúar myndu verða að
gefast upp vegna skorts á
vatni og matvælum. Þetta hef-
ir þó breyzt nokkuð frá því,
sem sumir ætluðu. Á Norður-
Spáni virðist stjómin nú hafa
yfirhöndina. En á Suður-Spáni
standa yfir grimmilegir bar-
dagar. Flytja uppreisnarmenn
lið frá Marokkó yfir Gibraltar-
sund í flugvélum, þar á meðal
innfædda Afríkumenn. 1 Sevilla
ráða þeir yfir útvarpsstöð.
Allverulegur hluti ríkishers-
ins, bæði landhers, flughers og
fiota, virðist hafa tekið þátt í
uppreisninni. Og sá heitir
Franco, foringi í hemum, sem
fyrir uppreisninni stendur.
Stjómin hefir aftur á móti
fengið bændum og verkamönn-
um vopn í hendur og komið
sér á þann hátt upp miklu liði.
Bardagarnir hafa verið háðir
af mikilli grimmd, og með
hverskonar vígvélum öðrum en
eiturgasi. Uppreisnarmenn hafa
fengið vopnasendingar frá
þýzkum og ítölskum vopna-
verksmiðjum, en talið er að
stjómin hafi fengið vopn frá
Frakklandi, þar á meðal flug-
vélar.
I fregnum, sem bárust frá
Spáni fyrir 8—4 dögum, var
talið að 20 þúsundir manva
væru þegar fallnar í bardögim-
um, og hroðaleg hervirki orðin
í ýmsum stærstu borgum
landsins. — Erlendir menn
streyma út úr landinu þúsund-
um saman til að forða lífi sínu.
Brezki bærinn, Gibraltar , á
Suður-Spáni, er fullur af flótta-
mönnum. Hinir stríðandi hefir
eyða nú sitt eigið land með
drápstækjum nútímatækninn-
ar. En vel getur það haft eigi
lítil áhrif á málefni álfunnar,
hvort fasisminn eða þingræðis-
stjómin verður ofan á á Spáni.