Tíminn - 30.12.1936, Page 4

Tíminn - 30.12.1936, Page 4
210 TIMINN Um vinnulöggjof og nauðsyn hennar Framli. af 1. síðu. skilningur á nauðsyn þessa máls. Niðurstaðan varð sú, að þingið féllst á, að eðlilegt væri, að verkamannasamtökin styddu að því að leysa málið. Var þá fallizt á þá tillögu, sem áður var fram komin frá Framsókn- armönnum á Alþingi, að sett yrði milliþinganefnd í málið. Nefndin skipuð. Þessi nefnd var svo, eins og kunnugt er, skipuð af atvinnu- málaráðherra 15. þ. m. Að því hefir verið fundið í blöðum stjórnarandstæðinga, að fulltrúar frá Sjálfstæðis- fiokknum eða stóratvinnurek- endum hafi ekki verið skipað- 3i í þessa nefnd. En við þessu er það að segja, að með áðumefndu frumvai-pi írá síðasta Alþingi, sem sam- ið var af stjórn Vinnuveitenda- félags íslands og borið fram og stutt af Sjálfstæðisflokknum á Alþingi, liggur þegar fyrir afstaða þeirra í málinu og ná- kvæmur tilboðsgrundvöllur. Hinsvegar liggur ekkert slíkt fyrir frá verkamönnum og ekki beldur frá samvinnufélögun- um, sem eru stór atvinnurek- andi utan þeirra samtaka, er að fyrnefndu frumvaii)i stóðu. Er þessvegna, eins og málið hefir að borið, eðlilegt, að nú sé með nefndarskipuninni leitað eftir sjónarmiði þessara aðila um málið. Við lausn málsins verður svo vitanlega, eftir því sem unnt er, að taka tillit til allra þeirra sjónarmiða, er fram hafa kom- ið. — Niðurlag. Þannig stendur málið nú, og hefir það óneitanlega þokast verulega í áttina. Ákjósanlegra hefði raunar verið, að skiln- ingur aðila á nauðsyn þess hefði vaknað fyr. Innan Alþýðuflokksins virð- ist að vísu enn vera nokkurt hik í málinu, eftir sumum um- mælum að dæma, er birzt hafa opinberlega. Þetta kemur mér reyndar dálítið einkennilega fyrir sjónir vegna þess, að meðal aðalrakanna í ályktun Alþýðusambandsþingsins, því til stuðnings, að rétt sé að styðja vinnulöggjöf, var ein- mitt það undirstrikað, hver á- vinningur það væri fyrir verka- menn, að fá þetta mál afgreitt einmitt á þeim tíma, þegar flokkur þeirra hefði aðstöðu til að leysa það í samvinnu við frjálslyndan flokk. Frá sjónarmiði verkamanna eru þetta rétt og sterk rök. En samkvæmt þessum rökum ættu einmitt þeir að vilja leysa mál- ið sem fyrst. Hermann Jónasson. Borgfírzka fjárpestín Framh. af 1. síðu. andi á þetta sjúkdómsfyrir- brigði í smásjám sínum og vita ekki, hvað þeir eiga að halda. Þessi skrif Braga eru því ekki annað en fljótfæmi, sem er ósæmandi læknislærðum manni. Nú geri ég ráð fyrir því, að menn langi til að vita eitthvað jákvætt um þennan sjúkdóm, það sem hægt er að segja um hann, eins og nú standa sakir. Ég hefi undanfariö haft ágætt tækifæri til að kynnast þessum sjúkdómi, þar eð ég hefi unnið við atliuganir og til- raunir á honum á Rannsóknar- stofu Háskólans síðan um miðjan október, en ég vil taka það strax fram, til þess að fyrirbyggja misskilning, að það sem ég segi hér eru aðeins mín persónulegu ummæli, en engin tilkynning eða skýrsla frá Rannsóknastofunni. Það kem- ur á sínum tíma. Þegar veiki þessi er hrein í fé (þ. e. ekki blönduð lungna- pest) er líðan þess og holdafar lengi vel góð, það hefir matar- lyst sæmilega og er hitalaust (hiti þetta 38,9°—39,5°). Svo þegar á líður, fer að bera á hryglu ýmist í barka eða frammi í nösum, sérstaklega þegar féð hefir staðið lengi inni og verður síðan fyrir hreyfingu. Eykst þá hryglan og íylgir hósti á eftir. Hóstann hefir það samt alltaf við og við, þrátt fyrir kyrstöðu, og er hann kvalinn, lágur og votur og varir oft lengi í einu. Renn- ur oft fín hvítleit froða eða gráleitur þunnur vökvi fram úr nösunum, þegar kindin lýtur iágt eða höfuðið er keyrt nið- ur á milli framlappa. Kemur þetta aðeins fyrir hjá kindum, sem hafa Deildartunguveikina. Við hlustun heyrist sér- kennilegt gutlandi hljóð og urg, ýskur og nuddhljóð (af stækkun lungnanna). Til þess að þekkja veikina á byrjunar- stigi þarf sérþekkingu og mikla æfingu. Hið sérkennilega gutl- andi hljóð myndast af hinum gríðarmiklu vessum, sem eru samfara breytingunum í lung- unum, en svo getur allt lungað verið undirlagt, þótt ekkert hljóð heyrist, ef lungnapípurn- ar eru stíflaðar og loftið kemst ekki inn til þess að setja vess- ana á hreyfingu. Meinið í lung- unum vex jafnt og þétt og að sama skapi minnkar heilbrigði lungnavefurinn, sem kindin hefir til súrefnisvinnslu. Ef hún svo verður fyrir áreynslu og þarf á meira lofti að halda, kafnar hún blátt áfram. Þó er liitt algengara, að lungun verða svo veikluð, þegar veikin er komin á hátt stig, að kindin fær lungnapest ofan í hitt sem fyrir er, og hækkar þá hitinn, og holdin, sem fram að því geta verið góð, tínast af á skömmum tíma, svo sem tveim vikum, og að sama skapi hverfur mátturinn og matar- lystin. Seinast ýmist þýtur hit- inn upp í dauðastig eða yfir færist magnleysi (coma), sem lýkur með dauða á fáum dög- um. Það getur verið erfitt að þekkja veikina frá vissum stigum lungnapestar. Fé, sem búið er að fá og yfirstíga lungnapest, sem ekki er annað en smitandi illkynjuð lungna- bólga, er venjulega lengi að jafna sig eftir hana. Á þessu tímabili eru lungun að hreins- ast, slím að losna, og kemur þá oft fram 'hrygla, sem minn- ir á Deildartunguveiki, en þá er það lungnahljóðið og hitinn, sem skera úr (hiti þá rétt und- ir og yfir 40 stig). Annars gengur lungnapest þannig yfir, að öll hjörðin sýk- ist á stuttum tíma og ber þá mest á hósta í yngra fénu, en margt af því eldra drepst oft hóstalaust. Hitinn er þetta 41 —42 stig. Flestar drepast eftir 2—8 sólarhringa og einstaka dragast upp. Aftur á móti Deildartungu- veikin legst á yngra og mið- aldra fé, og er það oft búið að ganga mánuðum saman með veikina, áður en verulega ber á því. Þetta atriði gerir það ómögulegt að tína allar veikar kindur úr einni hjörð, þ. e. hreinsa hana alveg. Þessi langi aðdragandi og laumulega yfir- ferð veikinnar gerir það svo ákaflega erfitt að varast hana og verjast henni. Breytingarnar, sem Deildar- tunguveikin orsakar í lungun- um eru mjög sérkennilegar, og hefi ég eigi séð neitt líkt því áður. Finnast þær hvar sem er um lungun, bæði þar sem ormahnútar eru fyrir og fullt eins oft þar sem aldrei sést ormahnútur. Oft eru framlapp- ar lungnanna undirlagðir, og svo mismunandi breið rönd (krans) af aðallöppunum. Breytingamar eru einnig þung- ar og þykkar svo að lungun þyngjast um meir en þrefalt eða 1500—2000 grömm á móts við eðlileg ærlungu, sem eru 450—500 grömm. Auk þess koma ýms form fyrir, svo sem hnútar frá kríueggs- upp í karlmannshnefa-stærð, stund- um flatt þunnt lag undir yfir- borði lungnanna, stundum lítið komið út á yfirborðið, en meira inni og teygir út anga (infii- trativt). Stundum koma fyrir hnefastórar vessa- og graftar- blöðrur og algengt er, að um alla skemmdina sé eins og sáð graftarkýlum (abscess) frá krækibers- og í litla kartöflu- stærð. Stundum renna þessi kýli saman í einn daunillan graftarklasa. Á litinn eru breytingamar rauðgráar eða gráglærar og hveljukenndar, þegar þær eru nýjar og svo meirar að fing’ur manns gengur í gegnum þykk- ildið, ef stutt er all-þétt á það. Þar sem aftur á móti lungna- pestin er komin til viðbótar, verða breytingarnar þéttari. Þegar skorið er í þykkildin, líkist skurðurinn einna mest þykkum, köldum bygggrjóna- graut, en þó miklu vessameira, ef um hreina veiki er að ræða. Þegar sneið úr veiku lunga er skoðuð í smásjá, sézt að lungnavefurinn er orðinn afar- þéttur og hin einfalda öndun- arslímhúð lungnablaðranna er crðin margföld með köflum(of- vöxtur) og vaxa út úr henni separ, sem stundum eru svo stórir, að þeir fylla alla blöðr- una að innan. Aðrar lungna- blöðrur eru aftur fullar af dauðum frumum, blóðhlutum og slími. (Niðurl. næst). Reykjavík, 22./12. 1936. Ásgeir ó. Einarson. Um 5 dögum eftir að ég lauk við grein mína, barst til lands- ins bréf frá próf. N. Dungal, þar sem hann telur víst, að hér sé um svonefnda „Jaagziekte" að ræða, sem fyrir kemur í Suður-Afríku. Hefir birzt út- dráttur úr þessu bréfi prófess- orsins í blöðum og útvarpi. Má þá telja það víst að veik- in er smitandi frá kind til kindar, en ekki nein lungna- ormaveiki, og verður nú al- mannarómur í Borgarfirðinum sannur, því engu er hér til að dreifa nema karakúl-hrútnum, sem var í Deildartungu. Hrútur þessi kom fyrst að Sturlureykjum seinnipart sum- ars 1934, var hafður þar með hrútum og bar þá ekkert á veikindum í honum. Um jóla- leytið fór hann svo að Deildar- tungu og var þar það sem eft- ir var vetrar og var hafður Þvotftaduftið PERLA er bezt ,Nú 8kal ág þvo fyrir mömmu, meðan hún er í burtir, segir Gunna. Pær konur, sem reynt hafa Perlupvottaduftid, telja pað langbezta pvottaefnið. Það leysir óhrein- índin fijótt og vel úr fötunum. Állir blettír hverfa. Það er pví ótrúlega létt að pvo úr Perlu-pvotta- efninu Óhreinindin renna fyrirhafnarlaust úr, og pvotturínn verðnr hvílur og Íallegur. — Þetta er raunveruleiki. Húsmæður! Reynið Perlu-pvottaduftið! Það mun sannfæra ykkur um ágæti pess. Þaðan af notið pið ekki annað pvottaefni. Atkvæðagreíðsla t búnaðarfélögum Þess var getið hér í blaðinu 17. des., að 84 hreppabúnaðar- félög hefðu þá lýst sig fylgj- andi því, að Búnaðarfélag ís- lands taki að sér framkvæmd hinna nýju jarðræktarlaga. Síð- an hafa þessi bæzt við: Búnaðarfélag Suðureyrar- hrepps, Vestur-ísafjarðarsýslu. Búnaðarfél. Hálshrepps, Suð- ur-Þingeyj arsýslu. Búnaðarfélag Grýtubakka- hrepps, S.-Þingeyjarsýslu. með mislitu ánum. Um vorið (1935) var hann orðinn afar móður, þegar rekið var, og rann froða úr nösum honum. Hann týndist á fjalli og margt af ánum (um 200) aðallega af þeim mislitu. Og svo hélt veik- in áfram eins og ofan er sagt. Nú drepur þessi „Jaagziekte“ í Suður-Afríku ekki nema um 1,6 af hundraði og þaðan af minna, en borgfirzka fjárpest- in hefir farið upp í 75 af hundr- aði. Þessi mismunur stafar af því að hér á landi blandast lungna- pestin saman við Deildartungu- veikina í flestum tilfellum, og gerir hana svo skæða sem raun er á. Ásgeir Ó. Einarson. Búnaðarfélag Fram-Fnjósk- dælinga, S.-Þingeyjarsýslu. Búnaðarfélag Skarðshrepps, Skagafjarðarsýslu. Búnaðarfél. Geiradalshrepps, Barðastrandarsýslu. Búnaðarfél. Leiðvallahrepps, V.-Skaptafellssýslu. Búnaðarfélag Grunnavíkur- hrepps, N.-ísafjarðarsýslu. Búnaðarfélag Breiðuvíkur- hrepps, Snæfellsnessýslu. Ræktunarfél. Stykkishólms, Snæfellssýslu. Búnaðarfélag Suðurfjarða- hrepps, Barðastrandarsýslu. Búnaðarfélag Nauteyrar- hrepps, N.-ísafjarðarsýslu. Búnaðarfélag Skriðuhrepps, Ey j aí j ar ðarsýslu. Búnaðarfélag Dalahrepps, Barðastrandarsýslu. Búnaðarfélagið „Örlygur", Barðastrandarsýslu. Búnaðarfélag Patrekshrepps, Barðastrandarsýslu. Búnaðarfélag Hlíðarhrepps, Norður-Múlasýslu. Búnaðarfél. Álftanesshrepps, Mýrasýslu. Það er eftirtektarvert, að í mörgum kjördæmum, þar sera Framsóknarflokkurinn hafði ekki meirahluta greiddra at- kvæða við síðustu kosningar, hefir nú meirihluti bænda snúizt gegn „neikvæðu flokk- unum“ í atkvæðagreiðslunni um jarðræktarlögin og framkvsemd þeirra. Þessi kjördæmi eru m. a. Árnessýsla, Rangárvalla- sýsla, Norður-Múlasýsla, Skaga fjarðarsýsla og Strandasýsla. 1 Strandasýslu er atkvæðamun- i urinn nú sérstaklega áberandi. Búvísindi liðhlaupanna. Metúsalem Stefánsson birtir nýlega í Frey endurbætta út- gáfu af búreikningi Guðmund- ar á Hvanneyri. Fyrir skömmu lagði G. J. fram á búnaðar- þingi niðurstöður af búreikn- ingum nálega 20 heimila og átti það að sýna framleiðslukostn- að. En þá urðu tveir liðhlaup- ar á Búnaðarþingi nálega ör- vita yfir því að þessir reikn- ingar bænda væru of lágir, og stukku þeir af fundi. Ráðkænn maður á fundinum sagði, að bezt væri að leyna niðurstöðu Guðmundar á Hvanneyri og láta orð hans vera sem ótöluð, sjá hvort ekki mætti reikna betur. Sefuðust hugir manna við þetta. Nú hefir G. J. setið við með sveittan skallann, að hækka útgjaldaliðina á sveita- heimilum, svo að húsbændum hans líki. Og nú eru þau búvís- indi sett í Frey! En með þessu verður samanburðurinn milli ára algerlega rangur, eins og síðar mun sýnt verða. Prentsm. Edda h. f.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.