Tíminn - 15.02.1937, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.02.1937, Blaðsíða 1
XXI. ár. 7. tbl. Reykjavik, 15. febr. 1937. UÓttctö gfóxtíssson: ^Ratt^ías ^oclntmsson I. Tveir af sonum sr. Matthíasar Jochumssonar, hinn elzti ogf hinn yngsti, Steingrímur lælcnir á Ak- ureyri og Magnús kaupmaður í Reykjavík hafa nú fyrir jólin gefið út ljóðmæli föður þeirra í prýði- legri útgáfu, sem nú mun komin á bókamarkaðinn í stærstu kaupstöðum landsins. Þessi útgáfa er hin þriðja og mesta af ljóðmælum #r. Matthíasar. Hún er miklu meiri og vandaðri en östlundsútgáfan, sem var í 5 bindum, og á ýmsan hátt áfátt um ytri búning. Hér eru Ijóðmælin öll í einu bindi, í fallegu formi, á þunnum pappír, svo að bókin er fyrirferðariítil þó að hún sé nálega 1000 blaðsíður. Kvæðunum ei raðað í bálka eftir skyld- leika. Fremst í bókinni er gott yfirlit, en síðast full- komin skrá yfir kvæðin, eftiv upphafsorðum ijóð- anna. Steingrímur læknir hefir sjálfur, og með stuðn- ingi annarra, safnað miklum drögum til þessarar bókar í handritum skáldsins norður á Akureyri. Síðan hefir Magnús Matthíasson haldið áfram því starfi í Reykjavík. Að lokum hefir Þorsteinn skáld Gíslason lagt síðustu hönd á allan undirbúning úr- gáfunnar og að því er virðist leyst það af hendi með smekkvísi og miklum kunnugleika. Hinsvegar er. prófarkalesturinn hvergi nærri sem skyldi. n. Bréf sr. Matthíasar komu út íyrir skömmu og urðu aðdáendum hahs ekki óblandinn gleðifengur. Þó eru þau afarmikils virði fyrir þá, sem í sam- bandi við skáldskap hans, vilja skilja þessa mikii- fenglegu listamannssál. En með þessari bók eru Matthíasi gerð bezt skil. Hér liggur fyrir augum lesendanria ljóðagerð hans nálega öll, að fráteknum hinum stærri leikritaþýðingum. En hér eru öli hans frumsömdu ljóð, þau sem þekkt eru og nokkra þýðingu hafa. Jafnvel hið umdeilda kvæði: „Volaða land“ er elcki undanfellt. í þessari eiriu bók gætir geysimikillar f jölbreytni, bæði um efnisval, form og alla meðferð. Þar eru hátíðaljóð, kvæði um landið og þjóðina og um önnur lönd og aðrar þjóðir. Þá koma fjölmargir sálmar, bæði frumsamdir og þýddir. Síðan ótölulegur grúi érfiljóða, um söguhetjur, móður og föður skáldsins, konur hans, böm þeirra og venslamenn. Þá gleymir Matthías ekki listamönnum og skáldum, fræðimönn- um, prestum og biskupum, læknum, lögfræðingum, fjölda kvenna, unglinga og barna. Þá koma hugg- unarljóð til vina hans, sem eru í raunum staddir, veizlukvæði, brúðkaupskvæði, gamankvæði, barna- kvæði, ljóðabréf, vísur úr leikritum hans. Að lokum koma svo Grettisljóð og þýðingar úr helztu tungu- málum álfunnar. Það lætur að líkum, að hér er um ótrúlega mikla auðlegð að ræða. Hér er skáld, sem byrjar ungur að yrkja og heldur áfram fram í háa elli. Hér er maður, sem er alla æfi leitandi að ljósi og sannleik, fullur af skapandi þrá og víðfeðma samúð. Sé því bætt við, að Matthías hafði ótrúlegt vald yfir málinu, svo að mælska hans og orðgnótt var eins og hamramur fossflaumur, þá má fá nokkra hugmynd um hvílíkur fengur það er ljóðrænni menningu í landinu að hafa fengið til almennrar eignar þetta merkilega — eða öllu heldur volduga ljóðasafn. III. Hver sá maður, sem ætlar sér í stuttu máli að gefa yfirlit um verk þessa mikla skálds, lendir í sama vanda og Matthías sjálfur, er hann byrjaði að yrlcja hina glæsilegu drápu um Skagafjörð. Menn vita ekki hvar á að byrja og hvar skal enda. Hinn mikli breytileiki í efni og meðferð truflar og villir lesandann. Hér er af svo mildu að taka, svo mikið að verða hrifinn af og svo margt, sem hægt er að ganga framhjá með lokuð augu, að leitin að þehn háa sjónarhól, þar sem sést yfir allan skáldaheim Matthíasar, verður flestum erfið. Ef til vill er æfi Matthíasar engu síður merkileg en ljóð hans. Hann er fæddur og uppalinn í af- skekktri, fátækri sveit, með útsýn suður yfir Breiða- fjörð og í skjóli við hin háu Vestfjarðafjöll. For- eldrar hans eru fátæk. Hann vinnur erfiðisvinnu á sjó og landi eins og flestir íslenzkir drengir, sem nokkuð er spunnið í. Hann fær stórar vinnuheridur af ár og orfi eins og vinur hans og samtíðarmaður Tryggvi Gunnarsson, eða Jóhannes Kjarval, sem minnir manna mest á Matthías af öllum íslenzkum listamönrium, í hinum undursamlega innblæstri og furðulegu gönuskeiðum. Fram eftir öllum unglings- árum sýnist örvænt um að Matthías geti notið nokkurrar eiginlegrar skólagöngu. Þó verður það um síðir. Menn sem skynja hinar einkennilegu gáf- ur hans, koma honum í LatínuskóJann. Þaðan fer hann í prestaskólann, útskrifast þar, verður prestur í tveim sveitaprestaköllum sunnanlands og um stund ópólitískur ritstjóri að pólitísku blaði í Reykjavík. Um síðir verður hann prestur á Akureyri, á þar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.