Tíminn - 20.10.1937, Qupperneq 2

Tíminn - 20.10.1937, Qupperneq 2
178 TÍMINN Fjárlagaræðan Framh. af 1. síðu. þús. Er þetta mjög eftirtektar- ver'ö tala og lcemur illa heim við hið stöðuga tal og skrif stjórnar- andstæðinga undanfarin ár um skuldasöfnun ríkissjóðs. Stjórnarkostnaður, dóms- mál og löggæzla, o. s. frv. Af hækkun á 10. gr. stafa 85 þús. kr. af kostnaði við utanrík- ismál, aðallega samninga við er- lend ríki, en 69 þús. kr. er hækk- un á kostnaöi við stjórnarráöið, hagstofu og ríkisfjárhirzlu, og er það furðulega lítil hækkun á 10 ára tímabili, þegar tekið er tillit til hinnar gífurlegu starfsaukn- ingar, sem orðið hefir hjá þess- um stofnunum. Á 11. gr. A, er 250 þús. kr. hækkun vegna land- helgisgæzlunnar, 69 þús. kr. vegna stofnunar vinnuhælisins á Litla-Hrauni, 179 þús. kr. vegna toll- og löggæzlu, og má það heita nýr liður, þar sem sú gæzla var naumast til áður, miðað við það sem nú er orðið og nauðsyn ber til. Afgangurinn, eða um 88 þús. kr., er hækkun á skrifstofu- kostnaði hjá lögmanni, lögreglu- stjórum öllum og sýslumönnum. Á 11. gr. B, stafa hækkanirnar af auknu burðargjaldi, símakostn- aði og eyöublaðanotkun og hækkuðum kostnaði hjá skatta- nefndum og skattayfirvöldum. Eru þetta afleiðingar af aukinni starfsemi ríkisins og íhlutun um allan gang mála, sem orðið hefir mjög veruleg á þessu tímabili. Hækkun vegafjár um 820 þús., strandferðir, hafnargerðir, fræðslumál. Á 13.gr.A, liggur hækkunin í 365 þús. kr. auknu vegaviðhaldi og ca. 455 þús. kr. hækkuðum fram- lögum til nýrra vega og sýslu- vega. Á 13. gr. B, stafar hækkun- in af 170 þús. kr. auknu framlagi til strandferða og 60 þús. kr. styrkhækkun til Eimskipafélags íslands. Á 13. gr. C, stafar hækk- unin nærri öll af auknu framlagi til nýrra hafnargerða. Á 14. gr. B, er 208 þús. kr. af hækkuninni aukið framlag til barnafræðsl- unnar, bæði aukin kennaralaun ekki sízt vegna miklu fleiri kennara nú en áður, og enn- fremur framlög til barnaskóla- bygginga. 183 þús. stafa aftur á móti af auknum tillögum til hér- aðs- og gagnfræðaskóla. 16. greinin (verklegar fram- kvæmdir) hefir hækkað um nærri 2 milljónir króna. Þá kem ég að 16. grein- inni, en þar hefir aðal- hækkunin orðið, eins og kom fram áðan, þar sem greiðslur hafa hækkað um nálega 2 mill- jónir króna, og yrði of langt upp að telja allar þær hækkanir og þá nýju liði, sem þar eru. Aðalliðina vil ég þó benda á, ýmist alveg nýja eða hækkaða frá 1936 (allir nýir nema jarð- ræktarstyrkur, þar hækkun): Nýbýlasjóður kr. 180.000 Atvinnubætur — 520.000 Jarðræktarstyrkur — 525.000 Verkfærakaupasjóður — 60.000 Búfjárrækt — 42.000 Bygg. og landnámssj. — 250.000 Verkamannabústaðir — 142.000 Kartöfluverðlaun — 30.000 Kreppulánasjóður — 250.000 Mjólkurbúastyrkir — 60.000 Vextir af fasteigna- veðslánum — 85.000 Veðurstofan — 66.000 Iðnlánasjóður — 25.000 Ennfremur margar aðrar hækkanir minni til nauðsynlegra framkvæmda. Aftur á móti voru framlög í fjárlögunum fyrir árið 1926 sem ekki voru 1936, svo sem til kæliskips 350 þús. og Flóa- áveitu 225 þús. kr., en heildar- hækkunin, eins og áður er um getið, samt nálega 2 millj. kr. Fátækraframfæri, sjúkrakostn- aður og tryggingar. Á 17. gr. stafar hækkunin af auknu framlagi vegna berkla- sjúkra, 300 þús. kr., aukinni þátttöku ríkissjóðs í fátækra- framfæri kr. 160 þús., og aukn- um framlögum til tryggingar- mála, kr. 300 þús. Um lækkunina, sem orðið hefir á 1,2. gr., er það að segja, að hún er vegna þess, að árið 1926 var varið 330 þús. kr. til bygginga á nýjum sjúkrahúsum, þannig að raunverulega hefir árlegur kostnaður við heilbrigðismál vaxið allverulega á tímabilinu, eins og eðlilegt er, þar sem bæði Nýi Kleppur og Landsspítalinn hafa bætzt við á þessum árum, og töluverður rekstrarhalli er á báðum þeim sjúkrahúsum. Aðalhækkanir eru á útgjöldum til almannaþarfa, en á kostnaði við ríkisreksturinn hverfandi litlar. Hvaða ályktun er þá hægt að draga af þeim samanburði, sem hér hefir verið gerður á greiðsl- um úr ríkissjóði árin 1926 og 1936? í fyrsta lagi. aö mínum dómi sá, að beinn kostnaður viö rekstur þjóðarbúsins hafi vaxið furðulega lítið þessi ár, eins og bezt sést á því, að hækkanirnar á 10. gr. og að nokkru leyti á 11. gr. eru smávægilegar samanbor- ið við aðrar hækkanir, og í fram- haldi af því, að svo að segja öll þessi hækkun, sem orðið hefir, er vegna stuönings við atvinnuveg- ina (16. gr.), aukinna sam- gangna (13. gr), aukinna fram- laga til hjálpar sjúkum mönn- um, til tryggingarmála og fá- tækraframfæris (17. gr.) og auk- ið framlag til fræðslumála (14. gi'.). Þessi samanburður sannar þá einnig glögglega það sem ég hefi stöðugt haldiö fram, að hin- ar margendurteknu deilur milli flokkanna hér, innan þings og utan, um upphæð ríkisútgjald- anna, eru ekki deilur um bein og bitlinga, heldur deilur um það, hversu miklu rétt sé að verja af sameiginlegu fé landsmanna til styrktar atvinnuvegunum og al- menningi, um hendur Alþingis og ríkisstjórnarinnar. íhaldið býsnast út af „eyðsl- unni“, en vill eiga heiðurinn af framkvæmdunum! Það er eftirtektarvert, að fjöldi þeirra þingmanna, sem átt hefir sæti hér á Alþingi þessi umræddu 10 ár, og allir þing- flokkar, telja sér það til gildis, að hafa verið meömæltir yfir- gnæfandi meirihluta þeirra mála sem ég hefi nú gert grein fyrir og hafa haft kostnað í för með sér, þótt hinu sé ekki að leyna, aö sumir flokkanna hafa lítið að því unnið að hrinda málunum fram. Og það er ekki síður eftir- tektarvert, að þeir flokkar, sem mest gera að því að deila á aðra, fyrir há ríkisútgjöld, gera síður en svo minna að því en aðrir, að eigna sér vinsældirnar af fram- lögum þeim til nauðsynjamála, sem valda yfirgnæfandi meiri- hluta útgjaldanna. Hver myndi ekki hrósa sér af því, að hafa veriö með því aö fjölga sjúkra- húsum, aö auka framlög til vega og auka og bæta strandferðirn- ar? Að leggja fram fé til hafnar- gerða, eða efia unglingafræðsl- una, aö auka jarðræktarstyrk- inn, aö leggja fram fé til bygg- ingar- og landnámssjóðs, aö veita fé til kreppulánasjóðs, hækka styrk til berklavarna og auka framlag til fátækramála og sjúkra- og ellitrygginga? — Svona mætti lengi telja. Um þaö þarf ekki að deila, að yfirgnæf- andi meirihluti þessara greiðslna gengur til nauðsynlegra mála. Um hitt getur verið ágreiningur, hversu mikilli heildarfjárhæð er hægt að verja í þessu skyni og á hvern hátt eigi að afla hennar. Af þessu á einnig að geta orðið ljósara en áður, að ef verulega á að færa niður greiðslur ríkis- sjóðs, þá verður slíkt ekki gert á annan hátt en þann, aö skerða framlög til framkvæmda, sem taldar eru nauðsynlegar. Þetta verður þó vafalaust að gera að einhverju leyti, og kem ég inn á það síðar. Vegna þeirrar tiltölu- lega litlu hækkunar, sem orðið hefir á beinum útgjöldum, vegna rekstrar þjóðarbúsins síðastliðin 10 ár, og sparnaðar, sem fram- kvæmdur var í byrjun síðasta kjörtímabils, er ekki hægt að bú- ast við neinum verulegum spam- aði á þeim lið, þótt sjálfsagt sé að gera ítrustu tilraunir til að færa þau gjöld niður og ekkert nema gott um það aö segja, að skynsamleg gagnrýni frá stjórn- arandstæðingum á hverjum tíma veiti aðhald um allan þessháttar kostnað. Fjárlagafrumvarpið. Þá mun ég minnast á fjár- lagafrv. það, sem hér liggur fyrir. Frv. þetta er að mestu leyti samhljóða fjárlagafrv. því, er lagt var fyrir siðasta Al- þingi, en þó ber þess að geta, að greiðslur samkv. frv. eru um 270 þús. kr. hærri en samkv. frv., er lagt var fyrir síðasta þing. Er það aðallega vegna greiðslna, sem fjárveitinga- nefnd fyrir sitt leyti var búin að samþykkja áður en þing var rofið. Ennfremur hefi ég hækk- að áætlunarfé til vegaviöhalds um 100 þús. kr. samkv. reynzl- unni. Frumvarpið gerir ráð fyr- ir greiðsluhalla, er nemur um 730 þús. kr., en ég skal taka þaö fram, aö láðst hefir við samn- ingu frv. að leiðrétta áætlun vaxtaútgjaldanna, sem þarf að hækka um 150 þús. kr., þannig að raunverulegur greiðsluhalli á frv. er um 900 þús. kr. Eru þá tekjurnar áætlaðar mjög svip- að og þær reyndust árið 1936, en eins og gefur að skilja, þarf árið 1938 aö verða betra tekju- ár en 1936, til þess að útkoma fjárlaganna verði eins og gert er ráð fyrir. Liggur það í því, að útgjöldin fara alltaf eitt- hvaö fram úr áætlun, hvernig sem gegn því er barizt. Ég verö þó að líta svo á, að ef ekki verður veruleg breyting á til hins verra um tekjuvonir íikis- sjóðs, þá sé áætlunin sæmilega varleg, en þó ekki varlegri en svo, að ekki getur komið til mála að tefla í því á tæpara vað. — Skuldir ríkissjóðs standa í stað. Eins og drepið hefir verið á hér að framan, hefir ekki tek- izt undanfarin ár að greiöa af- borganir af föstum, samnings- bundnum lánum ríkissjóös, sem nú orðið nema um 1,4 millj. kr. á ári, af tekjunum, heldur hefir reynzlan oröið sú, að á móti þessum afborgunum hafa myndazt skuldir innanlands, aðallega í Landsbankanum. Þótt þetta geti í raun og veru talizt sæmileg útkoma, að skuldirnar standi í stað, þá verður ekki við það unaö til lengdar, sökum þess hve erfitt er um lántökur innanlands til þessara greiðslna og neyöarúr- ræöi að leita út fyrir landið með slíkar lántökur. Af þessu leiðir það, að skapa verður fullan greiðslujöfnuð á fjár- lögunum. Það má að vísu segja, að til mikils sé ætlazt að ríkis- sjóöur lækki skuldir sínar um 1,4 millj. kr. á ári, en ég tel ekki hjá því komizt að setja markið þar. Nýjar kröfur um opinberan stuðning hljóta að leiða af sér nýja skatta og tolla. Nú er kunnugt, að áhugi mun vera fyrir því í þinginu, aö styrkja ýmsar framkvæmdir á sviði sjávarútvegsmála í fram- haldi af því sem gert hefir verið í þeim málum og enn- fremur vitað, að fjárpestin, sem geysað hefir undanfarið, mun hafa áframhaldandi kostnað í för með sér. Þá mun og vera áhugi fyrir aö styrkja byggingar í sveitum og ein- stakir þingmenn munu vafa- laust bera fyrir brjósti ýms mál, sem kosta munu fé ef til framkvæmda koma. Þegar þetta er athugað og þess gætt, aö á fjárlagafrumv. er raun- verulega 900 þús. kr. greiðslu- halli, sem á að vega upp á.móti, þá sjá allir, aö það er örðugt verkefni að skapa fullan jöfn- uð á fjárlögunum, en það er verkefni sem verður að leysa. Að mínum dómi verður fyrst að svipast eftir því, hvort ekki sé unnt að fella niður eitthvað af greiðslum, sem áður hafa verið inntar af hendi úr ríkis sjóði og nauðsynlegar hafa verið taldar, en verja því fé til hinna nýju verkefna, sem verða að teljast enn nauðsyn- legri. En þess verða menn þá vel að minnast, að til slíkra úr- ræða yrði gripið sumpart til þess að mæta þeim breytingum á tollamálunum, sem nú hefir þegar verið lýst og sumpart til þess að komast hjá stórfeldum niðurskurði á framlögum til heilbrigðismála — menntamála — samgöngumála og framlög- um til beins stuðnings fyrir at- vinnuvegina: landbúnaö og , sjávarútveg. Að þeirri leið at- ; hugaðri til fullrar hlítar, er í vitaskuld ekki um annað að í ræða en auka tekjur ríkissjóðs ■ frá því sem nú er. Ég ætla ekki að fara út í það að sinni meö hvaöa móti slíkt myndi verða gert, en tek það þó fram, að þar sem beinar skattálögur eftir efnum og ástæöum eru nú mjög háar orðnar, þá mun varla um það að ræða, að veruleg upp- hæð fáist með hækkun þeirra einna. Enginn vafi leikur þess vegna á því, að grípa yrði til hækkunar á þeim almennu gjöldum, sem nú eru á lögð eða leggja á ný meö tilliti til breyt- inganna, sem oröið hafa í við- skiptum okkar. Ríkisábyrgðir. Eins og kunnugt er, þá hefir þeirri stefnu verið fylgt um rík- ísábyrgðir undanfarin ár, að forðazt hefir verið að takast á hendur ábyrgöir fyrir erlendum lánum. Síðan á árinu 1934 mun ekki hafa veriö tekin ábyrgð á neinu erlendu láni, nema til eins fyrirtækis, rafveitu á ísafirði, sem áður hafði verið gefið loforð um. Hinsvegar hafa verið teknar nokkrar ábyrgðir á lánum inn- anlands. Ástæðan til þessarar stefnubreytingar var sú, að hin- ar mörgu ábyrgöir ríkissjóðs er- lendis voru farnar að hafa slæm áhrif á lánstraust landsins út á við, og eins og sakir stóðu um gjaldeyrisástandið, var mjög varhugavert ao sækjast eftir er- lendum lánum yfirleitt. Fyrir undanförnum þingum hafa þó legið margar beiðnir um ábyrgö- ir á erlendum lánum, en af- greiðslu þeirra mála hefir verið frestað, ekki sízt með það fyrir augum, að sýnt yrði,' hvort ekki yrði hægt að fá lán til nytsam- legra stórfyrirtækja hér án rík- isábyrgðar. Reynsla sú, sem fengizt hefir í þessu, verður hins vegar aö teljast sú, aö mjög erf- itt sé að koma slíku í kring, ekki sízt vegna þeirra gjaldeyriserfið- leika, sem við eigum við að búa. Af þessu virðist mega draga þá ályktun, að vel gæti þaö legiö fyrir, að annaðhvort yröi að fresta þeim stórfyrirtækjum öll- um, sem nú eru á prjónunum, eða Alþingi gæfi kost á einhverj- um ábyrgðum. En hvaö sem við kann að sýnast liggja, verður það að vera ljóst, aö Alþingi hlýtur að sýna hina mestu gætni og festu í því að veita slíkar á- byrgðir. Það er alveg víst, að fyrir þetta þing munu koma margar á- byrgðarbeiðnir, og það er einnig víst, að ef nokkurt vit á að verða í afgreiðslu þeirra, þá ver'ður að- eins unnt aö sinna fáum þeirra. Það er ekki unnt að ráðast í einu í byggingar allra þeirra stórfyr- irtækja, sem nú virðast fyrirhug- uð í landinu, og á ég þar sérstak- lega við rafveitur. Þaö verður því að ákveða einhverja röð á þess- um framkvæmdum. Þjóðin verð- ur að gæta þess, að spilla ekki fyrir sér út á viö með því að fær- ast of mikið í fang á erfiðum tímum, jafnvel þótt um góöar og nauðsynlegar framkvæmdir sé að ræða. Þá hefir sú venja tíök- azt, að ábyrgjast allt andvirði þeirra stórfyrirtækja, sem ráðizt hefir verið í. Þetta nær engri átt. Ef ríkissjóður á að ganga í á- byrgðir fyrir fyrirtæki, þá má það ekki vera nema að vissum hundraðshluta, t. d. ekki yfir 75 —80% af kostnaðarverði. Alþingi hefir ekki á hverjum tíma full- komna aðstöðu til aö meta það, hvort fyrirtæki, sem sótt er um ríkisábyrgö fyrir, eru raunveru- lega lífvænleg og réttmætt að rétta þeim hjálparhönd. Þeir, sem um slíkar ábyrgðir sækja, verða þvi að sýna trú sína á fyrirtækin með því að leggja sjálfir fram áhættufé. Það eru engin eða lítil takmörk fyrir því hverskonar fyrirtækjum yrði komið hér á fót ef þeirri reglu yrði framfylgt, aö ábyrgj- ast allan stofnkostnaðinn fyr- ir hlutaðeigendur. Þá verður þess ekki síður að gæta aö ríkis- ábyrgð sé ekki veitt nema henn- ar sé full þörf og að það sé eðli- legt að fé fáist ekki til fram- kvæmdarinnar meö öðru móti. En fyrst og fremst veröa menn þó aö skilja það, þótt þeir hafi áhuga fyrir framgangi ýmissa máia, að ekki er mögulegt aö gera allt i einu og að það er ó- hugsandi að iítið land eins og ísland geti fengið nema tak- markað fjármagn aö láni er- lendis, jafnvel þótt þaö sé ætl- a'ð til nytsamlegra fyrirtækja, fyrirtækja, sem út af fyrir sig gætu staðiö undir sjálfum sér. Gjaldeyrisástandið, sem ég mun fara um nokkrum orðum, sýnir það, að enda þótt atvinnuveg- irnir hafi gengiö betur á þessu ári en áöur og meiri peningar séu í umfer'ð manna á milli, þá er engu síður ástæ'ða til var- færni en áður í öllu því er snert- ir nýjar skuldbindingar þjóðar- innar út á við. Hversvegna innfluíningur hefir hækkað á árinu 1937, þrátt fyrir höftin. Þá sé ég ástæðu til að minn- ast á gjaldeyrishorfurnar. Sam- kvæmt síðustu skýrslu um inn- flutning og útflutning til loka septembermánaöar, nemur inn- flutningur og útflutningur hvor um sig ca. 40 millj. kr. og hefir verzlunarjöfnuði því sem næst verið náð. Á sama tíma í fyrra stóðu þessi mál þó nokkuð bet- ur því a'ð þá var verzlunarjöfn- uðurinn hagstæður um rúmar 2 millj. króna, en hins ber þá jafnframt að geta, að í landinu liggja nú mun meiri vörubirgðir en á sama tíma í fyrra. Vir'ðast allar líkur benda til þess, að greiðslujöfnu'ður muni nást á þessu ári ef vörur þær, sem ó- seldar eru, seljast svo sem viö má búast. En hitt er ljóst, aö innflutningurinn hefir hækkaö svo verulega á árinu, eða um 9 millj. kr., að um verulegan afgang verður ekki að ræ'ða. Af hverju stafar þá þessi hækk- un á innflutningnum? Er þa'ð vegna þess aö neyzla erlendra eyðsluvara hafi aukizt, og að raunverulega hafi þannig veri'ð linað á innflutningshöftunum. og því eigi sparast sá gjaldeyrir, sem ætla hefði mátt? Þessu má hiklaust svara neitandi. A'ð vísu liggur ekki fyrir yngri sundur- liðuð skýrsla um innflutning- inn en frá ágústmánaðarlokum þ. á. Þá var heildarinnflutning- urinn orðinn rúmum 8 millj. kr. meiri en í fyrra um sama leyti, en þá voru eftirtaldir 5 vöruflokkar hærri en í fyrra sem hér segir: Byggingarvörur höf'ðu hækkað um kr. 1,325 þús. Útgeröarvörur höfðu hækkað um kr. 3,334 þús. Rafmagnsvörur höfðu hækkað um kr. 595 þús. Skip og vélar höfðu hækkað um kr. 683 þús. Landbúnaðarvröur höfðu hækkað um kr. 310 þús. eða samtals um kr. 6,200 þús. Ásíand saltfisksölunnar krefst áframhaldandi, strangra innflutningshafta. Það er þessvegna ljóst: að hækkandi innflutningur hefir stafa'ð af aukinni síldarútgerð, af auknum framkvæmdum í byggingum, sérstaklega verk- smiðjubyggingum og vélaaup- um til þeirra, af auknum inn- flutningi rafmagnsvara, og þó er þar ekki meðtalinn innfluftn- ingur, sem gengur beint til raf- veitanna sjálfra. Það sem er eftir ótalið af innflutningshækk- uninni er bein afleiðing af verð- hækkun á vörum á erlendum markaði. M. ö. o. eða þátt fyrir svipaða framkvæmd innflutn- ingshaftanna og undanfarin ár, þá hefir innflutningurinn hækk aö af framangreindum ástæ'ð- um 9 millj. kr. það, sem af er árinu, og ekki sýnilegt, að gjald- eyrisafgangur verði frá árinu, sem neinu nemur í áslok. Ein meginástæðan enn til þess a'ð þetta yfirstandandi ár nær ekki aö verða þa'ð góðæri í verzlun okkar út á vi'ð, sem allar venju- legar ástæður bentu til, er vit- anlega ör'ðugleikinn, sem er á fiskútflutningi. Fiskver'ðið hef- ekkert hækkað og .útflutningur- inn á fiski virðist tæpast muni ná sömu fjárhæð og síðastl. ár, og þó var hann þá það lægsta sem orðið hefir um fjölda ára, e'ða 9 millj. kr. lægri en árið 1933 t. d. Þá er ennfremur þess a'ð geta að verð á saltsíld hefir eklcert hækka'ð og þannig hefir verðhækkunin ekki náö til fisks- ins eöa síldarinnar, sem venju- lega hafa náð því að vera helm- ingur alls útflutningsins. Verð- hækkun mun hinsvegar undan- tekningarlítið hafa náð til alls innflutningsins. AÖ þessu at- huguðu er engin ástæ'ða til neinnar sérstakrar bjartsýni um vi'ðsiptin út á við, þótt á- stand atvinnuveganna hafi batn að allverulega á þessu ári. Af þeim tölum, sem ég hefi nefnt, veröur að draga þá ályktun, að ekki sé unnt a'ð slaka til á inn- flutningshöftunum í næstu framtíð — því mi'ður. Sú fullyrð- ing, sem menn heyra daglega, aö hægt sé, vegna batnandi ár- ferðis, a'ð veita þennan eða hinn • innflutninginn fremur nú en áður, á sér því miður e n g a sto'ð í veruleikanum. „Við verðum að fara varlega“. Enda þótt sí'ðasta ár hafi mátt teljast gott ár yfirleitt, þegar frá eru talin þau stórfelldu óhöpp, sem leitt hefir af fjárpestinni, þá má ekki gleyma því aö enn hefir ekkert rætzt úr um markað fyrir þá vöru, sem fram á árið 1934 var aðalútflutningsvara landsmanna, saltfiskinn, og við megum ekki gleyma því þótt síldin hafi reynzt vel í ár, að á me'ðan svo stendur um fisk- markaðinn að ööru leyti eins og nú er verðum vi'ð að fara var- lega. Lfósasföð til sölu Þar sem Raflýsíngarfélag Hnífsdælinga hættir starfsemi sökum þess að Hnífs- dalur fær afl frá hinni nýju rafveitu ísafjarðar, vill það selja 12—15 hesfafla Bolindervél með sambyggðum 8 kiíó- watta dínamo ásamt töflu, volt og em- permælaæ, spenna 110 voif. Ennfremur ca 20 kilówattamæla Sérstakt tækífærísverð! Upplýsingar gefur: ÓLAFUR ANDRÉSSON Hnífsdal Vilhjálmur Stefánsson fer sigurför um landið! ÁRSÆLL ÁRNAS'ON, REYKJAVÍK Ý J-/G undirr. geriat hér með kaupandi að ferðahókum dr. Vil- hjálms Stefánssonar „Veiðimenn á hjara heims“, „Meðal Eskimóa" og’ „Heimsskautslöndin unaðslegu“. Bækurnar kaupi ég jafnóðum og’ þær koma út, i heftum á kr. 250 (eitt hofti á mánuöi, 5 arkir hýert) og horga ég hvert hefti um leiö og ég fæ það i hendur, enda séu heftin send og andvirðið innheimt mér að kostnaðarlausu. Meö þessari áskrift minni skuldbind ég mig til að kaupa all’ar ofan- nefndar bækur með þessurn kjörum. Nafn Staða.......................................... Heimilisfang................................... I’óststöð Fyrsta heftið er komið út.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.