Tíminn - 19.01.1938, Qupperneq 1

Tíminn - 19.01.1938, Qupperneq 1
2^fgtEií>sía og lnn|)elmta ©afnaxott. )6 <5imi 2353 - Póotbélf 96J ©jaíbbagi Mateina et I |6nl &cganj)nrtnn fostat 7 ft. XXII. ár. Reykjavík, 19. janúar 1938. 4. blað. (Pramhald.) Saga Framsóknarflokksins byrjar árið 1916. Við landskjörið þá um sumarið kom flokkurinn Sigurði Jónssyni á þing á lands- lista, og um haustið vann flokk- urinn nokkur þingsæti þannig, að þegar Alþingi kom saman skömmu fyrir áramótin, var ílokkurinn þriðji stærsti fiokkur þingsins. Sigurður í Yztafelli var kjörinn varaforseti sameinaðs Alþingis fyrsta daginn sem hann sat á þingi, og var orðinn einn af þrem ráðherrum í ráðuneyti Jóns Magnússonar, með stjórn atvinnu- og bankamála, áður en mánuður var liðinn frá þvi á þing var komið. Sigurður Jóns- son var ráðherra fyrir flokksins hönd frá 1917 til 1920, og sá tírni var að mörgu leyti eitt hið þýð- ingarmesta umbótatímabil í sögu flokksins. Undir eins í byrjun tók Fram- sóknarflokkurinn upp mið- flokksaðstöðu á Alþingi. Hann hélt áfram miðjan þjóðveg stjórnmálanna. Aðrir flokkar voru á sömu leið til hægri og vinstri. Þeir leituðu sífellt að jafnvægi þar sem Framsóknar- flokkurinn var. Þeir leituðu þá strax og hafa leitað síðan frá hægri og vinstri, inn á hina hóf- sömu leið samvinnumanna og í félagi við miðflokkinn hafa gerzt og munu framvegis gerast lausn- ir hinna erfiðu vandamála. Þegar Framsóknarflokkurinn myndaðist, var Heimastjórnar- flokkurinn stærstur og sterkast- ur allra þingflokkanna, en hið gamla fylgilið Björns Jónssonar og Skúla Thoroddsens var í tveim flokksbrotum. Annað, og hið veikara var kallað „langs- um“. Það var raunverulega eins- konar undirdeild af Heima- stjórnarflokknum, og meö þessu litla broti þóttist Heimastjórn- arflokkurinn viss um að fá ör- uggan þingmeirahluta úr kosn- ingunum 1916. Hinn flokkurinn var kallaður „þversum“ og var til muna fjölmennari, og að öllu samtöldu miklu frjálslyndari en Heimast j órnar f lokkur inn. Með því að sameina Framsóknar- flokkinn, „þversum“-flokkinn og hinn fyrsta fulltrúa verka- manna á þingi, var hægt að stöðva framrás Heimastjórnar- flokksins, sem var í eðli sinu nokkuð svipaður eins og þá var komið, eins og Mbl.ílokkurinn er nú. Hlutverk mitt í þessum kosn- ingum var að skapa allsherj- arbandalag móti Heimastj órn og „langsum" til að stöðva framrás þeirra og til að skapa Framsóknarflokknum áhrifaað- stöðu. í Reykjavík vann ég með Birni Kristjánssyni, Benedikt Sveinssyni o. fl. af leiðtogum „þversum“-manna, að því að fella Jón Magnússon og Knút Zimsen fyrir Heimastjórnar- flokknum, með því að styðja frambjóðendur verkamanna í bænum. Annar verkamanna- fulltrúinn sigraði og Jón Magn- ússon. Að baki verkamannafull- Frh. á 4. síöu. Sjálfstæðisflokkurinn fvr og nú 1929 voru útgerðarmeim á móti kauphækkun, því hún orsakaði tekjuliallarekstur. Nú krefj- ast þeir þess, að ríkið greiði tekjuhalla togar- aima, svo hægt sé að hækka kaupið! Ábyrgðarleysi og tak- markalaust lýðskrum þeirra manna, sem ráða mestu í Sjálfstæðisflokknum, kem- ur í fáum málum betur í Ijós en afstöðu útgerðar- manna til kauphækkunar á togurum og kröfum þeirra til ríkisstjórnarinnar. Sjómenn hafa heimtað kaup- hækkun á togurunum og félag þeirra sett nýjan taxta, sem út- gerðarmenn hafa enn ekki sam- þykkt. En þeir hafa þó tekið þessum kröfum mjög á annan hátt en venjulega. Er í þessum efnum skemmzt að minna á tog- araverkfallið 1929. Útreikningar Hagstofunnar sanna, að dýrtíð er ekki meiri nú en þá, m. a. sökum þeirrar verðlækkunar á matvörum, sem kaupfélagsskap- urinn hefir knúið fram. Útgerð- armenn töldu kaup sjómanna þá, áður en það var hækkað, nægilega hátt, miðað við þáv. verðlag. En höfuðröksemd þeirra var sú, að hagur útgerðarinnar þyldi ekki neina kauphækkun og ekki væri hægt að vei*ða við nein- um slikum kröfum, ef ekki ætti að reka útgerðina með tapi. En taprekstur töldu þeir undir öll- um kringumstæðum óþolandi. Nú er kröfum sjómanna tekið á allt annan veg. Nú segja blöð útgerðarmanna að kröfur sjó- manna séu sanngjarnar og „eðli- leg afleiðing af sívaxandi dýr- tíð“. Útgerðarmenn segja sjó- mönnum, að þeir óski einskis frekar en að verða vlö óskum þeirra. En það sé allt komið und- ir ríkisstjórninni! Ef hún vilji gera ráðstafanir til að bæta rekstrarafkomu hvers togara um 110 þús. kr. á ári, séu þeir fúsir til þess að verða við kröfum sjó- manna! Af hverju stafa umskiptin? Hvað veldur þessari breyttu afstöðu útgerðarmanna siðan 1929, þegar afkoma útgerðarinn- ar var margfalt betri. Þá voru þeir á móti kauphækkun, því að hún orsakaði taprekstur. Nú krefjast þeir af ríkinu, að það greiði tekjuhalla fyrir útgerðina, sem m. a. leiðir af kauphækkun! Þessi breytta afstaða verður aðeins skýrð út frá hinni póli- tísku afstöðu útgerðarmanna. Með því að taka kröfum sjó- manna vel, ætla þeir að afla sér pólitískra vinsælda meðal þeirra. Með því að beina síðan þessum og öðrum óframkvæmanlegum kröfum til ríkisstjórnarinnar, þykjast þeir geta skapað sér að- stöðu til að kenna henni um á- standið. Þessi breytta afstaða útgerð- armanna sannar einmitt það, sem oft hefir verið haldið fram hér í blaðinu, að síðan 1929, þeg- ar Jón Þorláksson var formaður Sjálfstæðisflokksins, hefir flokk- urinn tekið þeirri meginbreyt- ingu, að gerast ábyrgðarlaus lýð- skrumsflokkur, sem ekki hikar við að gera kröfur um tekju- hallarekstur á ríkissjóði og at- vinnuvegunum í pólitísku augnamiði, í stað þess að vera áður fastheldinn íhaldsflokkur, sem vildi hafa lág ríkisútgjöld og tekjuhallalausan rekstur fyrir sitt aðalmarkmið. Breytlng, sem margtr Sjálfstæðiskjósendur hafa ekki gert sér grein fyrir. Þessari breytingu á Sjálfstæð- isflokknum hafa fjölmargir af kjósendum hans enn ekki gert sér grein fyrir. En þeir þuxfa ekki annað en að athuga afstöðu Sjálfstæðisflokksins til af- greiðslu fjárlaganna á undan- förnum árum, til að komast að raun um þetta. Þar hefir flokk- urinn borið fram í lýðskrums- skyni tillögur um millj. kr. út- gjöld, þótt af þvi leiddi jafnháan tekjuhalla á rekstri ríkisins. Þeir þurfa heldur ekki annað en að athuga fátækraframfærið i Reykjavík. Fulltrúar flokksins í bæjarstjórninni hafa ekki þorað að gera neinar sparnaðartil- raunir þar af ótta við styrkþeg- ana. Sjálfstæðlsflokkurinn heflr sýnt það í þessum málum, að hann reynir að skriða fyrir öll- um, en á meðan svo er, getur hann ekki sýnt ábyrgð nó festu í neinu máli. Ólaf ur Tliors og kröfar útgcrðarmanna. Þegar athuguð er afstaða Sjálfstæðisflokksins til framan- greindra krafa útgerðarmanna, sést þetta líka glögglega. For- maður flokksins og Morgunblað- íð hafa lýst yfir, að flokkurinn vildi að ríkið styrkti togaraút- gerðina, sem svaraði 110 þús. kr. á togara. En hvorki Ólafur Thors eða Morgunblaðið hafa bent á neina leið til að íramkvæma þetta. Af hverju? Af því, að sllkar ráðstafanir hlytu að hafa tjón í "fór með sér fyrir ýmsa menn i landinu, sem íhaldið vill eiga vingott við. — Gengislækkun myndi t. d. þýða mikið tap fyrir stærstu spari- fjáreigendurna, sem eru í Sjálf- stæðisflokknum. Nýir neyzlutoll- ar eða álögur á aðra atvinnuvegi til að vega á móti þessum út- gjöldum, myndu heldur ekki mælast vel fyrir. Þess vegna benda ólafur Thors og Morgunblaðið ekki á neinar fjáröflunarleiðir. Það er alveg eins og þegar ihaldið flytur út- gjaldatillögur sinar i þinginu. Þar bendir það heldur ekki á neinar tekjuöflunarleiðir, vegna þess að slíkt gæti aflað því óvin- sælda. Slík eru vinnubrögð ábyrgðar- lausra lýðskrumara, en ekki | annarra. I | Hvað fiimsí kjóseiulimi ' Sjálfstæðisflokksius? I í Margir kjósendur Sjálfstæðis- flokksins standa í þeirri trú, að hann sé enn eins og hann taldist á dögum Jóns Þorlákss., flokk- ur, sem er á móti miklum ríkis- útgjöldum og vill hafa tekju- hallalausan rekstur á atvinnu- vegunum. Af þeim ástæðum fylgja þeir flokknum enn að málum. En athugi þeir baráttu Sjálf- stæðisflokksins og framkvæmdir á undanförnum árum, hljóta þeir komast að þeirri raun, að hann er ekki slíkur flokkur lengur. Hann er nú sá flokkur, sem gerir mestar og ákveðnastar kröfur um tekjuhallarekstur á atvinnuvegum. Það sanna kröf- ur stórútgerðarmanna og síldar- verkfall Ólafs Thors 1936. Hann er nú sá flokkur, sem gerir mestar kröfur um útgjöld til ríkisins, án þess að sjá þvl fyrir nokkrum tekjum til að vega upp á móti. Hann er nú sá ílokkur, sem er hræddastur við að taka á sig nokkra ábyrgð, sem fylgir þvi að rétta við fjárhag ríkis og bæjar- félaga og koma atvinnurekstrin- Aðalftmdur mlðstjórnar Framsóknarflokkslns á þessu ári hefir verlð kvaddur saman 1 Reykjavlk 15. febr. næstkom- andi — þingsetningardaginn — kl. 5 slðdegis. VeTður hann haldinn í hinum nýju húsa- kynnum flokksins í prent- smiðjuhúsinu á Lindargötu 1 D og stendur væntanlega 3—4 daga. Á aðalfundl mlðstjórnarinnar elga nú sæti og atkvæðisrétt þessir 35 fulltrúar kjörnir af flokksþinginu 1937: Úr Reykjavík og grennd: Aðalsteinn Kristinsson, Bergur Jónsson, Bjarni Ásgeirsson, Eysteinn Jónsson (nú ritari flokksins), Gisli Guðmundsson, Guðbrandur Magnússon, Guðm. Kr. Guðmundsson, Hermann Jónasson, Jón Árnason, Jónas Jónsson (nú formaður flokkslns), Jörundur Brynjólfsson, Páll Zophóníasson, Sigurður Kristinsson, Steingrlmur Steinþórsson, Sveinbjörn Högnason. Með búsetu 1 einstökum kjördæmum: Jón Hannesson, bóndi, Deildartungu, Jón Steingrimsson sýslumaður, Borgamesi, Böðvar Magnússon bóndi á Laugarvatni átti sex- tugsafmæli 25. des. sl., eins og getið var um í síðasta blaði. um á tekjuhallalausan grund- völl. Finnst þeim kjósendum Sjálf- stæðisflokksins, sem fylgja hinni fyrri stefnu flokksins, að slíkur flokkur sé llklegastur til að ráða bót á vandkvæðum atvinnuveg- anna og bæjarfélaganna? Finnst þeim, að slíkur flokkur muni vera líklegastur tll að taka föstum tökum á fjárhagsvand- ræðum bæjarins, ólestri fá- tækraframfærisins og erfiðleik- um útgerðarinnar, þar sem allt þetta hefir fyrst og fremst dafn- að undir stjórn forráðamanna hans og þeir kunna ekki önnur úrræði en kröfur um tekjuhalla- rekstur? Þetta þurfa hinir gætnari kjósendur Sjálfstæðisflokksins að hugleiða vel fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar 30. janúar næstkomandi. Markús Torfason bóndl, Ólafsdal, Sr. Þorsteinn Kristjánsson prestur, Sauðlauksdal, Kristinn Guðlaugsson bóndi, Núpi, Jón H. Fjalldal bóndl, Melgraseyrl, Gunnar Þórðarson bóndi, Grænumýrartungu, Skúli Guðmundsson, alþm., Hvammstanga, Hannes Pálsson bóndi, Undirfelli, Gísli Magnússon bóndi, Eyhildarholti, Bernharð Stefánsson alþm., Akureyri, Einar Árnason alþm., Eyrarlandl, Þórólfur Sigurðsson bóndi, Baldursheimi, Björn Kristjánsson kaupfélagsstj., Kópaskeri Halldór Ásgrímsson kaupfélagsstj., Borgarfirði, Pétur Jónsson bóndi, Egilsstöðum, Sigurður Jónsson bóndi, Stafafelli. Bjarni Runólfsson bóndi, Hólmi, Sigurþór Ólafsson bóndi, Kollabæ, Bjarni Bjarnason alþm., Laugarvatni. 8 fyrstu varamenn hinna 15 miðstjórnarmanna i Framh. á 4. slðu. Uian úr heimi Á hinu stórkostlegasta þingi, sem brezki verkamannaflokkur- inn hefir haldiö eftir ófriðinn mikla — það var þingið í Bir- mingham, sem undirbjó kosn- ingasigur og verkamannastjórn 1929 — spurði mig háttsettur ti’únaðarmaður í flokknum, hvort ég heföi tekið eftir mis- muninum á þessu þingi og flokksþingum á meginlandinu. — Hjá okkur eru lýðæsingarn- ar miklu minni, mælti hann. Við látum ekki skyndihrifningu leiða okkur afvega. Leiðtogarnir fá ekki að leika með okkur. Mér er enn i fersku minni þær móttökur, sem þingið bjó þeim MacDonald, Snowden og fyrst og fremst Oswald Mosley. Síðan hefi ég séð hugarfar fólksins breytast úr óstjórnlegri gleði í hamslausa gremju. Á árunum eftir þetta þing hafði ég aðstöðu til að fylgjast með klofningnum og loks svikunum, eftir að hinir umgetnu menn höfðu verið dýrkaðir meira en nokkrir verkamannaleiðtogar á megin- landinu. Áður en þetta geröist, hafði brezka þjóðin dýrkað Lloyd George meira en nokkurn annan. Framúrskarandi atgerfismenn eru litnir heldur tortryggnum augum í brezkum stjórnmálum. Eftirmaöur Baldwins varð Ne- ville Chamberlain, einn hæglát- asti og æsingaminnsti stjórn- málamaður, sem nú er uppi. Ef maður leitar að þeim á þingum verkamannaflokksins, sem get- ur skipað sæti MacDonalds og Lansburys, þá staðnæmdist maður við mjög hæggerðan mann, Clement Richard Attlee. Með lítilfjörlegan hýung í kring um skallann, með tóbakspípu í hendinni eða munnvikinu, situr foringi brezka verkamanna- flokksins niðursokkinn í skjöl sín, eins og honum komi um- hverfið lítið við. Er hann stendur upp til að tala, þá er það óupp- litsdjarfur maður, með veika rödd, sem segir þurrlega og í stuttu máli það, sem segja þarf og síðan sezt hann niður. Hyll- ingarklappið truflar ekki ræður hans, eins og þegar MacDonald talaði; hann hrífur aldrei, eins og Lansbury gamli getur gert enn þann dag í dag. En lendi í kappræðum, þá er það undarlegt, hversu mikið traust er borið til nafns Attlee. Eftir allt það öryggisleysi, sem svik gömlu leiðtoganna orsökuðu 1931, hefir þessum rólega manni tekizt að verða áhrifamesti mað- ur flokksins og það ekki að ó- verðskulduðu. Framarlega í brezku verkamannahreyfing- unni, eru menn eins og Herbert Morrison og Hugh Dalton, sem virðast glæsilegri foringjaefni. Þeir hefðu gert flokkinn harðari I pólitískum deilum á þessum viðsjárverðu tímum. En fyrir þá heilbrigðu, hægfara þróun innan flokksins, mun Attlee þrátt fyrir allt, vera heppilegastur. Attlee er ekki uppalinn í verkamannastétt, eins og Mac Donald. Hann fékk menntun sína í stofnunum yfirstéttarinn- ar, Haileybury Public og í Ox- ford. Hann varð málafærslu- maður 1915 og var traustur i- Aðalfundur míðstjórnar F ramsóknarf iokksins

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.