Tíminn - 22.09.1938, Blaðsíða 4
172
TÍMIM, fgmmtudagimi 22. sept. 1938,
43. blað
NY BOK:
Lögreglan í Reykjavík.
Gefin út að tilhlutun lögreg^tjómarinnar í
Reykjavík.
Samið hefir Guðbrandur Jónsson prófessor.
Ritið er fróðlegt og fyrir margra liluta sakir merkilegt, og svo
skemmtilega skrifað, að þótt þarna sé dreginn saman mikill
fróðleikur, geta allir lesið það sér til ánægju.
Fæst í bókaverzlunum.
tmmmutmm:
|| NÝ SKÓLABÓK
»
II
Danskir leskaflar
handa íslenzkum skólum.
Valið hefir Ágúst Sigurðsson cand. mag.
Bókin er 414 + XII blaðsíður og auk þess
nokkrar fallegar myndir.
Fæst 1 bókaverzlunum.
::
§
I
♦♦
!l::::::::tn:::::tm:mn::::::t::m:tmm«mtmm:tttmmmtmt:mm:ttm::mnttnt::
Svört tígrisdýr eru mjög sjald-
gœf. Aðeins fjögur hafa sézt, öll
í sama héraði í Indlandi. Tvö þau
siðustu sáust 1928 og 1937.
'H H*
6. júlí 1873 var haldin gripa-
sýning i Reykjavík, til ágóða fyr-
ir Kvennaskólann.
* * *
Það er hœgt að búa til svo
sterkt gler, að það þurfi 350 smá-
lesta þrýsting til að mola 5 ten-
ingssentimetra tening. En það er
líka hœgt að búa til svo við-
kvœmt gler, að drykkjarglas
brotni, ef andað er á það.
* * *
Jökulbreiðurnar á Grœnlandi
eru um 1.8 milljón ferkm. að
flatarmáli. Þekja þœr þvi álika
svœði og samanlagt flatarmál
Póllands, Þýzkalands, Hollands,
Belgíu, Englands og Frakklands.
* * *
Joe Harrison setti nýlega
heimsmet i einkennilegri og erf-
iðri iþróttagrein. í fœðingarbce
sínum, Kitchener í Canada,
ruggaði hann sér látlaust í gam-
aldags ruggustól í 55 klukku-
stundir og 15 mínútur.
H* sjc ❖
Blóð er ekki ávallt rautt. Flest
skordýr, sem skiptast í a. m. k.
10 milljónir tegunda, hafa grœn-
leitt, gulleitt eða algerlega lit-
laust blóð.
* * *
Amerískt bókaútgáfufyrírtœki
vill kaupa œttartölu sænsku kvik
myndastjörnunnar, Gretu Gar-
bo, fyrir 25.000 dollara. Það hefir
tekizt að rekja œtt hennar aftur
um 64 œttliði. Þegar komið er
aftur um 1300, má rekja frænd-
semi hennar til ýmsra aðals-
mannafjölskyldna.
* * #
Á tilraunastöðinnj Forus í
Noregi, hefir heppnazt að fram-
leiða nýja byggtegund, með því
að blanda saman þeim byggteg-
undum, sem bezt hafa reynzt í
Noregi. (Asplund og Maskin-
bygg). Þessi nýja tegund, sem er
kölluð Bonus, hefir gefið 3—11%
meiri uppskeru en eldri tegund-
irnar og þykir að ýmsu leyti
betri. Er talið, að þessi uppfynd-
ing geti haft mikla þýðingu fyrir
landbúnað Norðmanna.
* * *
í sumar var sett bann við inn-
flutningi á kanarifuglum og
páfagaukum til Noregs. Hefir
reynslan orðið sú viða annars-
staðar, að þessir fuglar flyttu
með sér ýmsa sjúkdóma.
Á krossgötum.
(Frh. af 1. siBu.)
því hvattir til þess að hagnýta sér góð
tækifæri, sem gefast um þetta leyti
árs, einkum til sveita í sambandi við
haustleitir og réttahöld, til þess að afla
því áskrifenda. Áskriftarlistar og aðrar
pantanir þurfa helzt að berast útgáf-
unni í októbermánuði og í síðasta lagi
í nóvembermánuði.
ÚR BÆNUM
Skátafélögin í Reykjavík,
Ernir og Væringjar, hafa verið sam-
einuð og heitir hið nýja félag Skátafé-
lag Reykjavíkur. Stjórnina skipa:
Leifur Guðmundsson formaður, Björg-
vin Þorbjörnsson gjaldkeri, Þórarinn
Björnsson ritari, Hörður Jóhannesson
og Daniel Gíslason. Félagið efnir til
útilegu í Arnarskálanum um næstu
helgi og verður farið frá Miðbæjar-
skólanum kl. 8% á laugardagskvöld.
Bára Sigurjónsdóttir
byrjar danskennslu í Oddfellowhús-
inu 3. okt. Hún hefir verið í Danmörku
nokkra undanfarna mánuði og notið
tilsagnar hinna vinsælu danskennara,
Sarah Fjeldgaard og Aage Flatau. Hef-
ir hún tekið þátt í danssýningum þeirra
hér.
Bátaskýli Ármanns.
Fyrir allmörgum árum kom Glímu-
félagið Ármann sér upp dágóðu skýli
fyrir kappróðrabáta, en varð skömmu
síðar að rifa það niður, þar eð lóð-
arinnar, sem það stóð á, var krafizt
undir aðra byggingu. Síðan hefir fé-
lagið verið á sífelldum hrakningum
með kappróðrabáta sína tvo og í sum-
ar hefir ekkert orðið úr róðraæfingum
af þessum sökum. Nú hefir það feng-
ið leyfi til þess að reisa sér báta-
skýli í Nauthólsvík og er þegar búið
að steypa grunninn og undirstöðuvegg-
ina. Skýli þetta verður svo rúmgott,
að félagið getur þessvegna fjölgað
bátum sínum í framtíðinni.
Skotið á lamb á víðavangi.
Á miðvikudaginn fannst lamb inni
í Vatnagörðum, sem orðið hafði fyrir
riffilskoti og hafði skotið farið í gegn
um báða afturfæturna. Lögreglan hef-
ir þetta mál til rannsóknar, en hefir
ekki enn haft hendur í hári þess, sem
valdur er að þessu óhæfuverki.
Slys.
Telpa úr Vestmannaeyjum varð fyrir
slysi í gær í tóbaksbúðinni London í
Austurstræti á þann hátt, að hún
lenti með hendina á milli hurðar og
stafs og brotnaði einn fingur.
Athugun
á lendingarstöðum
(Frh. af 1. síBu.)
Að fengnum hagstæðum veð-
urfregnum á sunnudagsmorgun
var ráðin flugferð austur og
suður um land.
Flogið var yfir Mývatn, Mý-
vatnsöræfi, Grímsstaði og aust-
ur á Fljótsdalshérað það norð-
arlega, að vel sást niður í
Vopnafjörð.
Vitað er, að á þessari leið eru
margir lendingarstaðir. /
En nú þurfti að svipast eftir
stað til að setjast á, svo tæmt
yrði benzín af brúsum, sem með
voru í förinni. Fyrir vali varð
sandslétta í nánd við Eiða.
Þaðan var svo haldið suður
Velli, Skóga og Skriðdal, niður
í Breiðdal og þar lent á tveim
stöðum. Þar héldu leiðangurs-
menn kyrru íyrir á mánudag,
sakir veðurfars. En þriðjudag
var flogið til Hornafjarðar og
lent hjá Krossbæ í Nesjum og
á nýnæktartúni skammt frá
þorpinu í Höfn.
Á miðvikudagsmorgun var
lagt af stað úr Hornafirði, flog-
ið með ströndinni, nema hvað
skoðaður var Bæjarstaðaskógur,
og hvergi lent á leiðinni til
Reykjavíkur nema á Skógar-
sandi undir Eyjafjöllum, og við
Ossabæ i Landeyjum.
Þrír lærlíngar
og nokkrar vanar stúlkur, geta
komizt að nú þegar á sauma-
stofu
Verzlunarinnar GULLFOSS,
Austurstræti 1.
Jörd
óskast til kaups. Ekki fjær
Reykjavík en 60 km. — Upplýs-
ingar um verð, lán, legu, búpen-
ing o. fl. sendist í pósthólf 482,
Reykjavík.
Stór stofa, með hita, ræstingu
og aðgangi að baði og síma, til
leigu. Uppl. í sfma 1247 milli kl.
8—9.
Lent var í Reykjavík um há-
degi, eftir 3y2 stundar flug frá
Hornafirði.
Alls fóru í flug þetta um-
hverfis landið 11 klst. Eru þó
báðar vélarnar hægfara.
„Klemminn“ með 70 hestafla
vél og Bláfuglinn með 90. Með-
alhraðinn 100—110 km. á klst.
Kostnaður við benzín og
smurningsolíu á aflmeiri vélina
var 75 kr. alla þessa leið.
Frá Hornafirði til Reykjavík-
ur eru nothæfir lendingarstaðir
með mjög stuttu millibili.
Gefa leiðangursmenn ríkis—
stjórninni skýrslu um árangur
farar þessarar þegar þeir hafa
unnið úr gögnum sínum og
mælingum, og að sjálfsögðu er
landið lítt kannað enn í þessu
efni.
En það skildi maður á viðtal-
inu við Agnar Kofoed-Hansen,
að ekki notast verulega að hin-
um fjölmörgu náttúrlegu „flug-
höfnum“ víðsvegar um landið,
meðan flugvöll vantar í höfuð-
staðnum. Er það mjög bagalegt
— því landflugið er það sem
koma skal, en allar götur liggja
til Rómaborgar!
Beztu kolin
Símar: 1964 og 4017.
Húseignin
Eyrarhraun
er til sölu.
Upplýsingar gefur Magnús V.
Jóhannesson framfærslufulltrúi,
sem tekur við tilboðum til föstu-
dags 30. þ. m. kl. 12 á hádegi.
Borgarstjóriim.
Aktýgi — Reiðtýgi
fyrirliggjandi og allir sérstakir
hlutir til þeirra.
Allar aðgerðir og pantanir út
um land afgreiddar ávallt með
fyrstu ferðum.
Gísli Sigurbjörnsson
söðlasmiður
Laugaveg 72 Sími 2099
íþróttamótið
á Egílsstöðum
(Framhald af 3. síðu.)
Adam Jakobsson (Þ.) 9,90 — (11,76)
Illugi Jónsson (Þ.) 9,50 — (11,63)
Þessi samanburður verður að
teljast hagstæður fyrir Austfirð-
inga og Þingeyinga, þar sem að
þátttakendur í allsherjarmótinu
voru beztu íþróttamennirnir í
Reykjavík, Hafnarfirði og Vest-
mannaeyjum, sem vitanlega
hafa notið miklu betri tilsagn-
ar og æfingar en hinir. Sam-
kvæmt þessum samanburði
hefðu Þingeyingar og Austfirð-
ingar, ef þeir hefðu tekið þátt
í allsherjarmótinu, fengið 1.
mann í 800 m. hlaupi, 2. og 4. í
200 m. hlaupi, 2. og 4. í spjót-
kasti, 2. í kringlukasti og 3. og 4.
í langstökki. Þeir hefðu einnig
fengið 4. mann í stangarstökki,
kúluvarpi og þrístökki. í boð-
hlaupinu hefði sveit Þingeyinga
orðið sú fjórða í röðinni.
Á víðavangí
(Frh. af 1. síBu.)
hólum. Talstöðvar settar í all-
ar byggðar eyjar í Flateyjar-
hreppi. Haldið uppi ríflegum
styrk til flóabáts á norðanverð-
um Breiðafirði o. s. frv. Og ekki
hafa undirtektir Sjálfstæðis-
manna á þingi undir þessi mál
verið á þá leið, að þeir þurfi mik-
ið að láta.
10 Andreas Poltzer: Patricia 11
• — Farið þér og athugið, hvort nokkra
af yfirhöfnum húsbónda yðar vantar í
fatageymsluna ....
Eftir nokkrar mínútur kom kjallara-
meistarinn aftur og sagði, að engan
frakka vantaði.
— Það er ósennilegt, að nokkur maður
fari út í þessa þoku yfirhafnarlaus, taut_
aði fulltrúinn. Hann haföi nú fundið
staðinn, þar sem skorið hafði verið á
símaleiðsluna.
Þriðji lögreglumaðurinn, sem hafði
verið skilinn eftir í anddyrinu kom nú og
tilkynnti, að einn af þjónunum og elda-
konan hefðu verið að koma heim. Ekki
gátu þau upplýst neitt, sem máli skipti.
Þau sögðu bæði, að lávarðurinn hefði
leyft þeim að fara út um kvöldið.
— Kemur það oft fyrir, að öllu þjón-
ustufólkinu sé leyft að fara út samtímis?
spurði fulltrúinn. • •
— Nei,þvert á móti, herra, svaraði kjall
arameistarinn. — Hans náð var alltaf
vanur, að láta eitthvað af fólkinu vera
heima. Hér í stofunum eru listaverk og
dýrgripir, sem eru mikils virði.
— Hefir nokkuð horfið í nótt? flýtti
Whinstone sér að spyrja.
— Ég get ekki séð að það vanti
neitt ....
Fulltrúinn horfði fast á þjóninn. Hon-
um fannst, að hann myndi hafa eitt-
hvað meira í pokahorninu.
— Getið þér gefið nokkra skýringu á
þessu hvarfi húsbónda yðar? spurði
hann.
— Nei, herra, svaraði hann ógn vand-
ræðalega.
Whinstone fulltrúi var sannfærður um,
að maðurinn dyldi hann einhvers. En
fyrst um sinn lét hann ekkert á því bera.
Á næsta hálftímanum, sem Whinstone
eyddi að mestu leyti í að athuga gamla
arininn, komu bílstjórinn og frammi-
stöðustúlkan heim. Þau voru yfirheyrð.
Ekkert hafðist upp úr því.
Svo fór lögreglumaðurinn á burt úr
húsinu við Berkeley Square. Fulltrúinn
brosti í kampinn. Hann hafði gert mik-
ilsverða athugun.
Lögregluþjónninn hélt á böggli. í hon-
um var grái kvenhanzkinn og heyrnar-
tólið af símanum.
Þegar Whinstone fulltrúi kom inn á
skrifstofuna sína í Scotland Yard sló
klukkan tvö.
* * *
Patricia var þreytt og illa fyrir kölluð,
þegar hún kom á skrifstofuna morgun-
inn eftir. Hún gat ekki hrint úr huga
sér því, sem fyrir hana hafði borið um
nóttina. Alltaf var hún að hugsa um
GAMLA
EIGUM \ ID AÐ
DAIVSA?
Fjörug og afar skemmtileg dans-
og söngmynd, með hinu heims-
fræga danspari
FRED ASTAIRE
og
GINGER ROGERS
Myndin sýnd kl. 7 og 9.
--------- NYJA
| KONA AFBROTA-
MANNSINS
Viðburðarík og spennandi am-
erísk lögreglumynd frá Warnes
Bros. —
Aðalhlutverkin leika:
PAT O’BRIEN,
MARGARET LINDSAY,
CESAR ROMERO O. fl.
Aukamynd:
Betra en glóandi gull
bráðfyndin og skemmtileg am-
erísk dansa- og söngvamynd.
BÖRN FÁ EKKI AÐGANG.
:::::n:::::::::tt:::í
HÁRVÖTN OG ILMVÖTA FRÁ ÁFENGIS-
VERZLUN RÍKISEVS ERU MJÖG HEAT-
UGAR TÆKIFÆRISGJAFIR
20stk. PAKKINN KOSTAR KR. 1-50