Tíminn - 29.10.1938, Side 3
59. blað
TÍMIM, lawgardagiim 29. okt. 1938,
235
ÍÞRÓTTIR
Skíðafélag' Reykjavíkur.
Skíðafélag Reykj avíkur hélt
aðalfund sinn síðastl. miðviku-
dag. Formaður félagsins, L. H.
Miiller var endurkosinn, en
hann hefir gegnt því starfi síð-
an félagið var stofnað. Einnig
voru endurkosnir í stjórnina
Kristján Skagfjörð, Eiríkur
Beck og Einar Guðmundsson. í
stað Herluf Clausen, sem skor-
aðist undan endurkosningu, var
kosinn Kjartan Hjaltested.
Skíðafélagið verður 25 ára í
febrúarmánuði næstk. Hyggst
félagið að halda veglegt skíða-
mót í tilefni af afmælinu og
mun þangað verða boðið skíða-
mönnum frá hinum Norður-
landaþjóðunum. Hefir verið
unnið að því í sumar að bæta
skilyrðin fyrir þetta mót. M. a.
hefir verið komið upp stórri
stökkbraut, skammt frá skála
félagsins á Hellisheiði. Kostar
hún um 13—14 þús. kr. og hefir
ríkissjóður og bæjarsjóður lagt
fé til verksins í sameiningu.
Einnig hefir félagið látið reisa
gufubaðsskýli rétt við skálann
og geta 5—6 manns verið þar í
gufubaði í einu. Þar er einnig
hægt að fá kalt steypubað. Hef-
ir Sveinn Steindórsson í Hvera-
gerði annast þessa framkvæmd.
Ennfremur hefir félagið reist
geymsluhús rétt við skálann og
losna við það nokkur herbergi í
kjallaranum, sem voru notuð
fyrir geymslu, en verður nú
breytt í svefnstofur. Mun verða
hægt að hafa þar rúm fyrir um
20 manns.
Félagið efndi til 33 skíðaferða
síðastl. vetur.
Skautafélag.
Nokkrir ungir og áhugasamir
skautamenn hafa í hyggju að
stofna skautafélag hér í höfuð-
staðnum. Og biðja þeir alla þá,
sem áhuga hafa á skautaíþrótt-
inni, að koma á fund n. k.
mánudagskvöld kl. 9 í Oddfel-
lowhúsinu, til að stofna skauta-
félagið. Það er varla vansalaust
fyrir höfuðstaðinn, að ekkert
skautafélag skuli vera hér straf-
andi. Er því þess að vænta, að
þeir, sem vilja nota „Tjarnar-
ísinn og tunglsljósið“ í vetur, og
síðar vinna að því að hér verði
byggður skautaskáli, komi á
stofnfundinn.
Heimsmet í spjótkasti.
Finninn Nikkanen hefir ný-
lega sett nýtt heimsmet í spjót-
kasti. Kastaði hann 78.80 m. ís-
lenzkt met er 58.78 m., sett af
Kristjáni Vattnes í fyrrasumar.
ft Æ K U R
GuSmundur Daníelsson: Gegn-
umlystigarðinn. (ísa)oldarprent-
smiðja 1938).
Um sögu, sem manni þykir á
flestan hátt mjög svo góð, en þó
ekki allskostar ágæt, er erfitt
að vera stuttorður, ef allt á að
skiljast, er maður vildi sagt
hafa.
Efni sögunnar: Gegnum lysti-
garðinn, skal ekki rakið hér svo
neinu nemi. Þetta er eiginlega
lífslýsing eða baráttusaga nokk-
urra, aðallega þriggja, ungra
manna, sem eiga þá sameigin-
legu trú, að í sér búi hæfileikar
til mikilla afreka, hver á sínu
sviði. Barátta þeirra skal verða
baráttan við að vinna sig upp
úr ókynninu, yfir á tind frægð-
arinnar og út í þá baráttu
leggja þeir, frá tjöldum vega-
vinnumannanna austanfjalls til
borgar hinna miklu möguleika,
Reykjavíkur. En að enduðu
þessu tveggja ára tímabili, sem
sagan nær yfir, standa þeir þó
enn í sömu sporum, hvað frægð-
inni viðkemur og sjálfsagt enn-
þá dýpra niðri í ókynninu og
þýðingarleysinu, séð með aug-
um manna sem þrá frægð. Það
er Guðmundur Hrólfsson einn,
sem hugðist afla sér frægðar
með sínum miklu líkamsburð-
um. Maður illa gefinn til sálar-
innar og í rauninni aðeins
„fólskur kraftur“. Honum hefir
tekizt að afla sér heimsfrægðar.
Hinir, fiðluleikarinn Símon og
skáldið Hrafn, hafa báðir orðið
að yfirgefa sína miklu köllun,
sína æðri list, ekki á miðri leið,
heldur eftir örfá gengin spor I
áttina til frægðarinnar: Með
Guðmundi Hrólfssyni gefur höf-
undur sögunnar ágæta og í
fyllsta máta maklega sneið
hinni brjálæðiskenndu dýrkun
fjöldans á þeirri tegund íþrótta-
afreka, sem skyldara á við eðli
og afköst nautsins, en siðfágun
sæmilega skynsams manns. Sú
sneið tapar samt nokkuð við
það, að hinir tveir, sem ætluðu
að ryðja sér frægðarbrautina á
sviði hinna æðri lista, hætta þar
báðir, en ekki fyrir ytri ástæð-
ur, heldur sinn eigin veikleika.
Maður fær í raun og veru ekki
séð, að með þeim hafi nokkrir
hæfileikar búið. Persónur þess-
arar sögu gætu að sjálfsögðu
allar verið til vor á meðal. Það
eru ef til vill venjulegar mann-
eskjur, en þó ekki fullkomlega
alvenjulegar. Hæpin finnst mér
lýsingin á Svölu, sem nútíma
stúlku, uppalinni í Reykjavik
við góð efni. Þekkjanlegasta
persóna sögunnar er Guðmund-
ur Hrólfsson og svo H. P. bíl-
stjóri. Hrafn Halldórsson, aðal-
persóna sögunnar, er hið
draumlynda sveitabarn, sem
svo eða svo löng — segjum eitt
ár — og að menn ættu að vera
í þjónustu ríkisins þetta ár, þá
höfum við ákveðið mark að
miða við. Núna starfar nýliða-
skólinn í 84 daga, og gera má
ráð fyrir \fiðbótartima, þegar
kemur til samæfinga. Það er
þannig nægilegur tími til að
taka af, vilji menn nota hann.
Svo að tala sé nefnd, þá eru
nýliðarnir í öllum greinum
hersins um 12000 ár hvert. Þeg-
ar hernaðarþjálfunin væri um
garð gengin — eða jafnvel fyrr
— allt eftir því hvort betur
hentar — mætti senda liðsveit-
irnar út sem vinnuher, og þess
mundu áreiðanlega sjást merki,
hvar herinn færi. Mér er það
fullkomlega ljóst, að sú spurn-
ing vaknar, hvernig séð verði
fyrir fjárhagshliðinni, því að
fæði og húsnæði kostar mikla
peninga. Og hér kæmi líka önn-
ur mótbára ennþá verri; verka-
mennirnir í hinum ýmsu at-
vinnugreinum munu halda því
fram, að þegnskylduvinna dragi
úr atvinnumöguleikum þeirra,
og þannig skapist atvinnuleysi
hjá hópum manna, sem nú eru
að starfi, og sé þá vafasamur
ávinningurinn. Allt þetta eru
mótbárur, sem eiga rót sína að
rekja til íhalds og vanafestu
geðslegra ódyggða, sem dafna
vel í jarðvegi lýðræðisins. Eðli-
lega hefði svo mikið átak, sem
hér er um að ræða, áhrif á nú-
verandi atvinnulíf og margar
áferðarfallegar hugmyndir í
þjóð- og atvinnulífi okkar yrðu
fyrir hnjaski, en þróuninni
myndi miða áfram að verulegu
leyti, miða áfram til almennra
hagsbóta, og það er þó, hvað
sem öðru líður, mest um vert.
Auk þess væri alltaf þörf fyr-
ir sérfróða menn í verklegum
efnum, og launakjör þeirra biðu
ekki við þetta neinn hnekki.
Sá yrði bara .munurinn, að her-
inn ryddi veg um torfærur,
skæri skurði og plantaði skóg
í stórum stíl, legði fram fyrstu
og stærstu átökin við vatns-
virkjun og hafnarmannvirki,
væri yfirleitt her, sem hefði ekki
það verkefni eitt, að standa á
verði gagnvart féndaflokki,
heldur leggði hönd á plóginn við
uppbyggingarstarf, sem ætti
engan sinn líka í sögu lands-
ins. Sérfróðu verkamennirnir
kæmu svo á eftir og lykju þeim
verkefnum, sem krefjast sér-
þekkingar. Á þennan hátt
mundi vinnuherinn og hinir
sérfróðu verkamenn jafna hvor-
ir aðra upp. Það þyrfti ekki að
óttast, að verkefnin þryti. Ef
hægt væri að ljúka á einum
mannsaldri þeim verkefnum,
sem fyrir hendi eru og ætla má
að tækju tvo, þá væri það stór-
sigur fyrir þjóðina, miklu álit-
legri sigur en á vígvelli er hægt
að vinna. Og það hefir þrá-
faldlega komið í ljós, að unnið
verk skapar nýtt verkefni. Að
fullnægja þörf, skapar nýja
þörf. Og þá á ekki sízt við um
land eins og okkar, strjálbýlt
með tálmanir frá hendi nátt-
úrunnar, sem flestar aðrar þjóð-
ir mundu ganga á snið við. En
spurningin er: vilja menn? Þá
er málið framkvæmanlegt.
Olav Oksvik.
Garnír.
Eins og að ímdanförnn ern vel verkaðar
garnir úr heimaslátruðu fé keyptar í Garna-
stöðinni í Reykjavík. Greiðsla við móttöku.
Meðferð garnanaa:
Þegar görnin er rakin, er náð í báða endana (slitið frá vinstr-
inni og langanum) og görnin rakin tvöföld ofan í ílát með vatni
í. Þá er gorið strokið úr görninni (tvöfaldri, jafnþættri) og hún
um leið gerð upp í hespu um eitt fet á lengd og brugðið utan um
(eitt bragð), með báðum endunum eða lykkjunni. Síðan er salti
nuddað inn í hverja hespu og vel undir bragðið. Þá eru garnirn-
ar lagðar niður í lagarhelt ílát og saltað vel í hvert lag. Ef ekki
myndast svo mikill pækill, að fljóti yfir lagið, þá verður að láta
vel sterkan pækil á garnirnar (24 gráðu).
2 0 S T K . PAKKINN KOSTAR K R . 1.60
Slitnar gfarnir:
Þegar garnirnar eru sendar, má taka þær úr lagarhelda ilát-
inu og senda í kassa.
Gamirnar má helzt ekki slíta. Þær garnir, sem slitna og eru
í tvennu eða þrennu lagi, má hirða og láta spottana (2 eða 3) í
sömu hespuna. Þær garnir, sem eru slitnar meira en í þrennt, eru
ónýtar.
Garnastöðín. - Sími 4241.
§paðkjötíð
er komið.
Þessar tunnustærðir fyrirliggjandi:
Auglýsing
frá fj ármálaráduneytinu
McH tílvísmn til aiaglýsingar ráðianeytisiiis,
dags. 21. niarz s. 1., Mrtrar í lögbirtingablað-
inu 23. marz s. 1., er hér inoð auglýst, að eftir-
Sreiinl vottorð þarf að senda ráðimeytiim með
umsókn uni endurgreiöslu á vörutelli af kolum
samkvæmt 6. gr. laga nr. 71, 31. des. 1937:
1) Yfirlýsing' útgerlSarmanns skips uin út-
geröartíma þess á saltfiskveiðum á þessu
ári.
2) Vottorð yfirvélstjóra skips una kolanotkun
á saltfiskveiöuin og sé vottorð þetta sund-
130 kg. @ kr. 165.00
70 — 91.50
65 — 85.00
30 — 42.00
Tekið við pöntunum allan daginn í síma 1080.
Samband ísl. samvinnuíélaga
urliðaSS þannig:
a) Kolabirgðir í skipinu í hyrjun vertíðar.
b) Magn kola, sem látin eru um horð í skip-
ið á saltfiskveiðum.
c) Kolabirgðir í skipinu að saltfiskveiðum
loknum.
Fjármálaráðuneytið, 27. okt. 1938.
rífur sig upp frá heimili sínu
með rótum og hyggst að berj-
ast fyrir frama sínum í borgar-
lífinu, en þegar sú leið þrengist
hverfur hann aftur til sveitar-
innar, í nýtt umhverfi. Saga
hans er þó langt frá því að vera
boðskapur um blessun sveita-
lífsins eða köllun mannsins til
að starfa í samræmi við nátt-
úruna og gróður íslenzkrar
moldar. Hann flýr ekki á náðir
sveitarinnar aftur vegna þess.
Saga Hrafns er saga mannsins,
sem gefst upp, týnir sjálfum sér.
Lífshamingja hans er glötuð,
og ekkert frelsi til. Svo algjör-
lega brotinn maður er hann í
sögulokin, vegna óhamingju-
semi sinnar fyrstu ástar. Allt
þetta er með nokkrum ósann-
indablæ. Það er galli.
En þrátt fyrir það, sem hér er
sagt, er þó þessi saga, Gegnum
lystigarðinn, mjög svo athyglis-
verð. Veldur þar mest um, hve
frásögnin er gædd miklu lífi og
fjöri, stíllinn afburðaléttur og
hressandi, ef til vill þó um of
fjaskenndur á köflum. Slíkt er
í tízku.
Frásagnarhæfileikar höfund-
arins eru afburða tniklir. Hann
segir margt bráðsnjallt og
skemmtilega, svo að þar hafa
aðrir ekki gert betur. Þá eru
einnig margar lýsingar hans á-
gætar á ýmsum atburðum og
brugðið upp af mikilli leikni.
Guðmundur Daníelsson er þess-
vegna skemmtilegur höfundur
og verður án efa vinsæll.
Stefán Jónsson.
HAFIÐ ÞÉR
greitt andvirði yfirstand-
andi árg. Tímans? Sé svo
ekki, pá gerið það hið
fyrsta. Gjalddagi var 1. júní
síðastliðinn.
F. h. r.
Annast kaup og sölu verðbréfa.
Daglega 50% hráolíusparnaður
eru drjúgar tekjur fyrir skozka
síldarútgerð með Kelvin-Diesel.
Jón Guðmundsson
/Finar Bjarnason.
H1 j óðf ær averkstæði
Pálmars fsólfssonar,
Sími 4926. Óðinsg. 8.
Allar viðgerðir á píanoum
og orgelum.
Framleiðir ný píanó.
Kaupir og selur notuð hljóðfæri.
- Kaup og sala -
IJllarefni og silki,
margar tegundir. BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomið.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
TRÚLOFUNARHRINGAR, sem
æfilán fylgir, sendir gegn póst-
kröfu, hvert á land, sem er. —
Sendið nákvæmt mál.
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4, Reykjavik.
76 Andreas Poltzer:
Þegar fulltrúinn kom auga á flótta-
manninn, var hann kominn ofan á göt-
una og mun hafa verið um þrjú hundruð
metra frá honum. Whinstone fulltrúi,
sem annars var góður íþróttamaður, var
ekki hlaupari nema í meðallagi. Hann
hafði fyrir mörgum árum orðið fyrir
slysi og fótbrotnað. Þó brotið væri fyrir
löngu gróið, kenndi hann alltaf til í
fætinum, þegar hann hljóp.
Það dró í sífellu sundur með honum og
flóttamanninum. Þegar hann hljóp fyrir
næsta horn, sá hann að mikil umferð
var í þeirri götu og von bráðar var flótta-
maðurinn horfinn honum sjónum.
Fulltrúanum var nauðugur einn kostur
að snúa við. Þegar hann kom i matsöl-
una, stóð Sluice enn á verði við dyrnar,
með skammbyssuna í hendinni.
— Haldið þér ekki, að maðurinn hafi
komið aftur, vegna þess að hann hafi
gleymt einhverju í herberginu? sagði
Sluice. Hann hefir vitað, að það var
hættulegt fyrir hann að koma hingað
aftur.
— Jú, ég er sannfærður um það, herra
Sluice.
Litli maðurinn leit forviða á fulltrúann
og sagði hógvær:
— Og þér haldiö líka, að hann hafi
Patricia 73
stúlknanna er alltaf þar inni. Það hefði
verið mjög varhugavert af Ray að fara
inn í herbergið að degi til, því að hann
hefði sézt af skrifstofunni.
Whinstone fulltrúi dáðist að mann-
væsklinum.
— Með leyfi að spyrja, hvað starfið
þér, herra Sluice? spurði hann.
Spurningin virtist koma Sluice í bobba.
Whinstone tók eftir því, og flýtti sér að
segja:
— Afsakið forvitnina í mér, en ég er
sannfærður um, að þér væruð ágætur
lögreglunj ósnari.
Sluice tók þegjandi við skjallinu og
Whinstone einsetti sér að afla sér betri
upplýsinga um þenna merkilega mann.
— Sluice fellur ekki, að hann sé spurð-
ur um stöðu sína, sagði Patricia, þegar
þau voru orðin ein.
— Jæja, svaraði Whinstone hugsandi.
Honum hafði dottið nokkuð í hug.
— Hafið þér nokkurt hugboð um, hvað
það gæti verið, sem maðurinn var að
leita að í herberginu yðar?
Patricia hugsaði sig um.
— Ég get víst ekki gefið ýður neina
bendingu um það, Whinstone fulltrúi.
— Hafið þér nokkur skjöl undir hönd-
um, ungfrú Holm?
í sama bili kom Sluice trítlandi inn.