Tíminn - 15.11.1938, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduliúsi, Lindargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA,
,OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
Edduhúsi, Lindargötu 1D.
Simi: 2323.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Símar: 3948 og 3720.
22. árg.
llevkjavík, þriðjndagiim 15. nóv. 1938
66. blað
Einar Munksgaard bókaútgefandi í Kaupmannahöfn hefir látið prenta
Ijósmyndaútgáfu af ýmsum íslemkum fornhandritum. Hefir þessi útgáfu-
starfsemi hans vakiö mikla atliygli víða um heim og á lieimssýningunni
í Briissel 1935, fékk liún fyrstu verðlaun. Nýlega hefir Munksgaard gefið
út bók með Ijósmyndum af nokkrum kvœðahandritum Bjarna Thoraren-
sen og Jónasar Hallgrímssonar. Dr. Þorkell Jóhannesson hefir getið þess-
arar bókar állítarlega hér í blaðinu fyrir skömmu, en hún er gefin út í
tilefni af heimsókn Hermanns Jónassonar forsœtisráðherra til Munksgaard
á síðastliðnu liausti. Er myndin hér að ofan tékin við það tœkifœri og sjást
á henni (talið frá vinstri) Hermann Jónasson, Munksgaard og Jón Helga-
son 'prófessor, sem séð hefir um útgáfu þessa.
Búnaðarþingið íullskípað
Þar eiga sæti 25 lulltrúar frá 10
búnaðarsamböndum
Kosningu fulltrúa til bún-
aðarþings er nú lokið. Var síð-
ast kosið í Búnaðarsambandi
Suðurlands 30, f. m. og fór
talning atkvæða fram í fyrra-
dag.
Voru úrslitin þau, að listi
Framsóknarflokksins fékk 474
atkvæði, listi Sjálfstæðisflokkins
301 atkvæði og listi Bænda-
flokksins 123 atkvæði. Fékk
Framsóknaxflokkurinn því þrjá
menn kosna, Sjálfstæðisflokkur-
inn tvo, en Bændaflokkurinn
engan. Um 1400 menn voru á
kjörskrá og greiddu um 65% at-
kvæði. Sambandið nær yfir Ár-
nessýslu, Rangárvallasýslu, Vest-
mannaeyjar og Vestur-Skafta-
fellssýslu.
í þrem öðrum búnaðarsam-
böndum hefir listakosning farið
fram innan búnaðarfélaganna.
í Búnaðarsambandi Kjalar-
nesþings komu fram tveir listar,
annar var studdur af íhalds-
mönnum og „Bændaflokks“-
mönnum, en hinn var óháður og
var Björn Birnir í Grafarholti
þar efstur. Sá listi var aðallega
studdur af Framsóknarmönn-
um. Atkvæði féllu þannig, að
fyrri listinn fékk 208 atkv. og
kom að tveimur mönnum, en
síðari listinn 93 atkv. og fékk
engan kosinn.
í Búnaðarsambandi Borgar-
fjarðar komu fram tveir listar,
frá Framsóknarmönnum og
Sjálfstæðismönnum. Fékk listi
Framsóknarflokksins 184 atkv.,
en listi Sjálfstæðisflokksins 174
atkv. Komst að einn maður af
hvorum lista.
í Búnaðarsambandi Austur-
lands komu fram tveir listar,
annar frá Framsóknarflokknum
en hinn frá íhaldsmönnum og
Bændaflokksmönnum í samein-
ingu. Fékk fyrri listinn 354 atkv.
og kom að tveimur mönnum, en
síðari listinn 230 atkv. og fékk
einn mann kosinn.
í öðrum búnaðarsamböndum
náðist samkomulag um fulltrúa.
Nöfn hinna nýju búnaðar-
þingsfulltrúa fara hér á eftir:
Búnaðarsamband Suðurlands:
Þorst. Sigurðsson, Vatnsleysu.
Guðjón Jónsson, Ási.
Þórarinn Helgason, Þykkvabæ.
Páll Stefánsson, Ásólfsstöðum.
Guðmundur Erlendsson, Núpi.
Búnaðarsamb. Kjalarnesþings:
Magnús Þorláksson, Blikast.
Pálmi Einarsson, ráðunautur.
Búnaðarsamb. Borgarf jarðar:
Jón Hannesson, Deildartungu
Kristj. Guðmundss., Indriðast
Búnaðarsamb. Dala- og Snæf.s.:
Guðbj. Kristj ánsson, Hjarðarf.
Magnús Friðriksson, Stykkish.
Búnaðarsamband Vestfjarða:
Kristinn Guðlaugsson, Núpi.
Gunnar Þórðarson, Grænum.t.
Páll Pálsson, Þúfum.
Búnaðarsamband Húnavatnss.:
Hafst. Pétursson, Gunnst.st.
Jakob H. Líndal, Lækjamóti.
Búnaðarsamband Skagfirðinga:
Kristján Karlsson, Hólum.
Jón Sigurðsson, Reynistað.
Búnaðarsamband Eyfirðinga:
Hólmg. Þorsteinsson, Hrafnag.
Ólafur Jónsson, Akureyri.
Búnaðarsamband Þingeyinga:
Sigurður Jónsson, Arnarvatni.
Helgi Kristjánsson, Leirhöfn.
Búnaðarsamband Ansturlands:
Björn Hallsson, Rangá.
Sigurður Jónsson, Stafafelli.
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum.
Alls eiga 25 fulltrúar sæti á
búnaðarþingi. Fjórtán af þessum
fulltrúum eru Framsóknarmenn.
Sýníngar á
loðdýrum
Klukkan 10 í morgun var opn.
uð í markaðsskálanum við Ing-
ólfsstræti hin stærsta loðdýra-
sýning, er haldin hefir verið hér
á landi. Eru á henni um 158
refir, þar af 16 blárefir. Síðast
þegar loðdýrasýning var haldin
hér í Reykjavík, voru sýndir um
70 refir.
Dýrin eru víðsvegar að, jafn-
vel vestan af ísafirði, norðan úr
Húnavatnssýslu og austan úr
Rangárvallasýslu, og auk þess að
sjálfsögðu héðan úr nágrenni
bæjarins, Gullbringu- og Kjós-
arsýslu, Árnessýslu og Borgar-
fjaröar. og Mýrasýslu.
Dómarar á sýningunni eru O.
Aurdal og H. J. Hólmjárn loð-
dýraræktarráðunautur, en þeir
komu til bæjarins í gær úr sýn-
ingarferðalagi um nokkurn
hluta Vesturlands og Norður-
lands.
Sýning hófst á því, að dæmt
var um blárefina. Var það gert
fyrir hádegið, en síðan byrjað að
dæma um silfurrefina.Voru þeir
flokkaðir eftir litum og byrjað á
hinum dekkstu. Verður sýning-
unni lokið á miðvikudagskvöldið.
Verðlaun þau, sem veitt eru,
eru áletraðir silkiborðar, en
auk þess dýrmætur silfurbikar
fyrir bezta dýr sýningarinnar.
— Gefur Loðdýraræktarfélagið
þikar þennan. Hefir svo verið á
öllum sýningunum í haust.
Á sýningunum úti um land,
voru, að því er H. J. Hólmjám
hefir skýrt blaðinu frá, sýndir
um 540 refir,langflest silfurrefir.
Af þessum dýrum komu 50—60
á sýninguna í Borgarnesi, um
70 voru sýnd í Búðardal, 50 á
Hólmavík, 100 á Hvammstanga,
110 á Blönduósi, 70 í Sauðár-
króki og 110—120 í Stykkishólmi.
Eftir þeim ummælum, er hinn
norski dómari, Aurdal, hefir lát-
ið falla, hefir loðdýrastofninn
íslenzki tekið miklum stakka-
skiptum til hins betra á síðasta
ári. Mun hvorttveggja valda þar
um, að lökustu dýrunum hefir
verið fargað og umhirða og með-
ferð er nú orðin betri og hag-
felldari en áður.
Ofsóknirnar gegn Gyðíngum A víðavangi
Vaxandi andúð gegn Þjóðverjum í Eng-
landi og Ameríku
í heimsblöðunum er nú ekkert
meira rætt en Gyðingaofsókn-
irnar í Þýzkalandi. Fá þær nær
undantekningarlaust hina hörð-
ustu dóma, einkum í amerísk-
um og enskum blöðum. Er það
fullvíst, að þær muni stórspilla
fyrir Þjóðverjum í öðrum lönd-
um og torvelda samninga þá,
sem fyrirhugaðir voru milli
stórveldanna í Evrópu. Hefir al-
menningsálitið í Englandi sjald-
an verið eins andstætt Þjóðverj-
um. og nú og mun stjórnin því
telja hyggilegast að hafa lítil
samningamök við þá meðan
þessir atburðir eru ferskastir í
minni. í þýzkum blöðum og út-
varpi, er þess ekkert getið
hvernig litið er á þessi mál er-
lendis.
í enska þinginu voru þessir
atburðir til umræðu í gær og
féllu þar mörg þung orð í garð
Þjóðverja. Jafnvel Chamberlain,
sem jafnan hefir tekið málstað
þeirra í seinni tíð, lét svo um-
mælt, að ræða Göbbels virtist
sanna, að þessar voðalegu fregn-
ir væru ekki orðum auknar, og
þó morð von Rath væri versti
glæpur, réttlætti það á engan
hátt, að koma fram hefndum á
alsaklausu fólki. Einn íhalds-
þingmaður lét í ljós, að með-
ferðin á Gyðingum sýndi, að
Þjóðverjum væri ekki trúandi
fyrir að stjórna nýlenduþjóð-
um. Sömu skoðun hefir Archi-
bald Sinclair, foringi frjálslynda
flokksins, látið í ljós. Þá hefir
enska stjórnin látið sendiherra
sinn í Berlín krefjast fullra
réttinda fyrir enska Gyðinga í
Þýzkalandi og mótmæla þeim
ummælum í blaði Göbbels, að
ýmsir enskir stjórnmálamenn
væru sama sinnis og morðingi
von Rath.
Það sýnir nokkuð vel hug al-
mennings í Bandaríkjunum í
þessu máli, að litlu munaði fyr-
ir nokkru, að múgurinn hefði
tekið formann þýzk-ameríska
félagsins í New York af lífi,
án dóms og laga. — Heppn-
aðist lögreglunni að bjarga
honum á seinustu stund. —
Hann hefir nú verið ákærður
A.
Ný sauðfjárveiki. — Fiskifloti ísfirðinga. — Bátasmíði á ísafirði. — Nýtt
gagnfræðaskólahús á ísafirði. — Ný slökkvistöð.
A3 undanförnu hefir á nokkrum
stöðum hér á landi gætt illkynjaðs
sjúkdóms í sauðfé, er eigi hefir áður
orðið hér vart. Sjúkdómur þessi er
þekktur í Englandi, Þýzkalandi og
víðar og er talið líklegt að hann hafi
borizt hingað með karakúlfénu. Hann
lýsir sér sem langvinn uppdráttarsýki
og er ólæknandi. Kindur, sem fengið
hafa sjúkdóminn, verða fljótlega úfn-
ar og svipdaufar, smátærast upp og
geta verið að dragast upp í heilt ár. Sé
sýktum kindum slátrað kemur í Ijós,
að þarmaveggirnir eru þykkir, slím-
húðin í görnunum verður þykkari en
eðlilegt er, hrjúf og oft með djúpum
fellingum. Ríkisstjórnin hefir falið
Halldóri Pálssyni sauðfjárræktarráðu-
naut að sjá um að rannsókn fari fram
á útbreiðslu sýkinnar. Hefir Ásgeir
Einarsson dýralæknir þær rannsóknir
með höndum austanlands, en rann-
sóknastofa háskólans annarstaðar. —
Fullvíst er, aö sýkin er á Útnyrðings-
stöðum á Héraði, í Breiðdalsvík, Hólum
í Hjaltadal og Hæli í Hreppum.
r t t
ísfirðingar telja aflatregðuárin orð-
in sjö við ísafjarðardjúp, þótt nokkuð
hafi raknað úr á þessu ári. Og ekki
er enn sá fiskur á hinum venjulegu
fiskislóðum við Djúp, að tiltök sé
fyrir hina stærri báta að sækja sjó.
Hinir sjö 45 smál. vélbátar samvinnu-
félagsins og Hugirnir þrir, eins og
þeir eru nefndir í daglegu tali, og hver
sig eru 58 smál., hafa undanfarin
ár gert lítið að því, að hreyfa sig utan
vetrarvertíðar og síldarvertíðar. Auk
þessara 10 stóru báta eiga ísfirðingar
fjóra minni vélbáta, 38, 28, 14 og 12
smál., sem jafnan sækja sjó þegar
gæftir eru og aflavon, og þola þessir
bátar betur tregfiskið en hin stærri
skip. Loks ganga frá ísafirði 12—14
trillubátar og opnir bátar. Eru sumir
þeirra eign skipverja af hinum stóru
vélbátum, og því einkum haldið úti
meðan þeir liggja bundnir. Undan-
farið hefir verið nokkur afli, en gæftir
stopular. Hinn 11. þ. m. drógu þrír
menn til dæmis 1600 pund á færi inn
undir Ögri. Réru þeir um morguninn
og komu að um ljósaskipti. Þótti þetta
rétt góð veiði.
r r t
Tvö félög hafa verið stofnuð á ísa-
firði sem láta nú vinna að vélbáta-
smíði. Heitir annað Njörður, fram-
kvæmdarstjóri Ketill Guðmundsson
kaupfélagsstjóri. Fyrir þetta félag hef-
ir Bárður G. Tómasson skipasmiður
lokið smíði á tveim 14 smál. bátum,
en aðrir þrír bátar jafnstórir verða
smíðaðir á vegum sama félags í vetur.
Heita bátar þessir Ásdís og Sædls,
og eru sagðir frábærilega falleg skip.
Hitt félagið heitir Muninn, fram-
kvæmdarstjóri Ólafur Guðmundsson.
Fyrir það félag hefir Marsellíus Bern-
harðsson skipasmiður lokið smíði á
einum 24 smál. vélbát, en smíði tveggja
annarra jafnstórra vélbáta á að verða
lokið fyrir vertíð. Verða þetta einnig
hin prýðilegustu skip. Stærð skipanna
bendir til þess, að þeim sé fyrst og
fremst ætlað að hagnýta heimamiðin.
Smíði 8 vélbáta á einu ári í ekki
stærri bæ en ísafirði, er drjúg atvinnu-
aukning og ber, ásamt öðru, vott um
ötula sjálfsbjargarviðleitni þessa
byggðarlags.
r r r
ísfirðingar eru að reisa myndarlegt
hús fyrir gagnfræðaskóla sinn. Mun
það verða tekið til afnota í næsta
mánuði. Á skólanum eru nú 79 reglu-
legir nemendur auk 20 nemenda í
vinnudeild, en þeir stunda einkum
nám í smíöi úr tré og málmi. Þá hefir
veriö komið á námskeiði við skólann
í islenzku og reikningi fyrir sjómenn,
sem stendur yfir í 2—3 mánuði. Greiða
sjómenn 5 króna kennslugjald á mán
uði. Námskeiðið sækja 20 menn. Sam-
tals njóta því um 120 manns meiri
og minni tilsagnar við skólann í vetur.
Skólastjórinn er Hannibal Valdimars-
son.
r r r
ísafjarðarkaupstaður er að endur-
bæta slökkvitæki sín og reisa slökkvi-
stöð. Hefir samizt svo um við Brima-
bótafélagið, að það veitti nokkurt fé
(Framh. á 4. síðu.)
JULIUS STREiUHER.
aðalforsprakki Gyðingaofsóknanna í
Þýzkalandi.
fyrir óleyfilegan undirróður
gegn Gyðingum.
í Þýzkalandi halda ofsóknirn-
ar enn áfram, þó í smærri stíl sé
en áður. Fjölda margir Gyð-
ingar hafa verið settir í fanga-
búðir seinustu dagana. Víða
hafa Gyðingar flúið úr borgun-
um og hafast þeir við í skógum,
sem eru þar í nágrenninu.
Margir þeirra hafa árangurs-
laust reynt að komast úr landi,
en hvergi fengið landvistar-
leyfi, nema nokkur þúsund
börn, -sem Hollendingar hafa
tekið á móti um stundarsakir.
í skeytum margra fréttarit-
ara kemur fram sú skoðun, að
mikill meiri hluti þýzku þjóð-
arinnar hafi andúð á ofsókn-
unum og hefðu þær ekki verið
mögulegar, nema með samþykki
valdhafanna. Á sunnudaginn
létu ýmsir prestar andúð í ljós
í stólræðum sínum, og kaþólski
erkibiskupinn, Falkenhauser,
hefir lýst sig andvígan þeim.
Þessu hefir verið svarað með
því að brjóta rúður í húsi hans
og trufla hátíðahöld, sem ka-
þólska kirkjan efndi til í Mún-
chen síðastliðinn sunnudag.
Eins og tilkynnt var á dögun-
um, hefir þýzka stjórnin sett
ýms ný fyrirmæli til að þrengja
kjör Gyðinga og mun enn vera
von á fleirum. Nú þegar er orð-
ið kunnugt um þessar fyrir-
skipanir:
Gyðingum er bannað að reka
verzlun eða iðnaðarstarfsemi.
Þeir mega heldur ekki vera for-
stjórar fyrirtækja, sem aðrir
eiga. Þeir mega ekki taka þátt
í kauphallarviðskiptum og verða
að selja öll verðbréf sín.
Gyðingum er bannað að sækja
opinberar skemmtanir eða
skemmtistaði.
Gyðingum er bannað að
stunda háskólanám og hlýða á
háskólafyrirlestra.
Gyðingum er bannað að gefa
út blöð.
Gyðingum er bannað að bera
vopn eða hafa þau í fórum
sínum.
Gyðingar eru skyldaðir til
að greiða 1000 millj. marka í
skaðabætur fyrir von Rath og
verður þetta fé innheimt með
sérstökum skattalögum.
Gyðingar fá ekkkert vátrygg-
ingarfé fyrir skemmdir þær, sem
unnar hafa verið á eignum
þeirra undanfarna daga. Allt
slíkt fé, sem þeim verður út
borgað, rennur til ríkisins.
Flestar þessar ráðstafanir
voru ákveðnar á ríkisráðsfundi,
sem stjórnað var af Göring.
ViðreisnarÉillögur
frönsku stjórnarinnar
Franska stjórnin hefir nú til
kynnt nokkrar af ráðstöfunum
þeim, sem hún ætlar að gera
til viðreisnar atvinnuvegum og
(Framh. á 4. síðu.)
Nýlega voru leiðréttar hér í
blaðinu nokkrar vitleysur, sem
málgagn ,,Bændaflokksins“ sál-
uga hafði birt um fjármál og
viðskiptamál. Á málgagnið hefir
þetta ekki haft önnur áhrif en
þau, að allar vitleysurnar eru
endurteknar með sömu eða
svipuðum orðum og áður, og
einni eða tveim vitleysum bætt
við. Það er engin furða, þó að
aðstandendum þessa málgagns
hafi tekizt sæmilega að reyta af
sér fylgið á síðustu tímum. Og
mikil er trú þeirra reykvisku
heildsala, sem enn leggja fé í
þetta fyrirtæki!
* * *
Héðinn Valdimarsson er lagð-
ur af stað til London, sennilega
til að gegna formennskunni „út
á við“ fyrir nýja flokkinn, sem
enginn kann að nefna. Eftir er
að vita hvað hinn formaðurinn
kann að gera „inn á við“ með-
an Héðinn er í siglingunni.
* * *
Um kosningarnar til Búnað-
arþings segir Mbl. í dag: „Rík-
isstjórnin mun vafalaust telja
iessa Búnaðarþingskosningu
yfirleitt sem sigur fyrir sína
stefnu í nýju j arðræktarlögun-
um“. Hitt er misskilningur hjá
Mbl., að Sjálfstæðis- og Bænda-
flokkarnir hefðu unnið kosning-
una á Suðurlandi, ef þeir hefðu
haft sameiginlegan lista, því að
listar þeirra fengu samtals mun
færri atkvæði en listi Fram-
sóknarmanna. Ranghermi er
það lika hjá Mbl., að Fram-
sóknarmenn á hinu nýja Bún-
aðarþingi séu 13. Þeir eru 14.
Sjálfstæðismenn eru 6, „Bænda-
flokks“-menn 4, en 1 utan-
flokka. En rétt er að taka það
fram, að Bændaflokksmenn-
irnir allir eru komnir inn í
Búnaðarþingið fyrir atbeina
Sj álf stæðismanna, ýmist við
almenna kosningu eða kjörnir
án atkvæðagreiðslu eftir til-
nefningu Sjálfstæðismanna í
hlutaðeigandi búnaðarsam-
bandi.
* * *
Blöð Sjálfstæðisflokksins
halda áfram skrifum sínum um
strandferðirnar. Enginn af
þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins hefir mótmælt því sem þar
er sagt. Verður því að álíta, að
Sjálfstæðisflokkurinn í heild sé
mótfallinn kaupum hins nýja
strandferðaskips og hafi viljað
láta selja Esju án þess að nokk-
uð kæmi i staðinn. Munu Aust-
firðingar væntanlega kunna
þeim Árna frá Múla og Magnúsi
Gíslasyni hæfilegar þakkir fyrir
þessa hugulsemi í þeirra garð.
* * *
Mbl. sér blóðugum augunum
eftir þeirri 1 y2 millj. kr. í er-
lendum gjaldeyri, sem gengur
til þess að kaupa hið nýja og
vandaða strandferðaskip. Hinn
erlendi gjaldeyrir fyrir skipið
fæst þó allur með andvirði Esju
og því, sem skipið á að vinna
sér inn í Glasgow-ferðunum
þrjá sumarmánuðina. En hvern-
ig gat Mbl. fengið sig til að
styðja að því, að Eimskipafélag-
ið byggði millilandaskip fyrir
3—4 millj. kr. í erlendum gjald-
eyri, skip, sem átti að reka með
reksturshalla, sem nam hundr-
uðum þúsunda á ári?
* * *
Eftir því, sem Tíminn hefir
sannfrétt í dag, hafa margir
Bændaflokksmenrl strikað út
nafn Klemenzar á Sámsstöðum
af lista „Bændafl.“ við Búnað-
arþingskosninguna á Suður-
landi. Þessar útstrikanir voru
svo miklar, að þó að listinn hefði
komið manni að, myndi Klem-
enz hafa fallið, en Skúli í
Bræðratungu komizt að. Eru því
léleg launin, sem Kúemenz fær
fyriT að lána nafn sitt á listann
og draga að honum persónulegt
fyigi.