Tíminn - 15.12.1938, Side 4
312
TÍMIM, fimmtudagiim 15. des. 1938
78. blalS
Leopold Belgíukonungur íór nýlega í heimsókn til Hollands.
Á myndinni eru (talið frá vinstri) Leopold konungur, Juliana
krónprinsessa með dóttur sína, maður hennar og Viktoria
drottning.
Virginio Gayda er 53 ára gam-
all. Hann er frœgasti núlifandi
blaðamaður ítala og greinar
hans vekja meira umtal og at-
hygli en flestra annarra blaða-
manna. Ástœðan til þess er sú,
að hann er talinn túlka viðhorf
Mussolínis í alþjóðamálum frá
degi til dags. Hann rœðir daglega
við Mussolini eða Ciano greifa og
skrifar síðan 5—6 dálka langa
grein í þlað sitt, Giornale d’Ita-
lia. — Gayda er doktor í ríkis-
réttarfrœði. Þegar heimsstyrj-
öldin hófst, dvaldi hann í Rúss-
landi. Eftir styrjöldina var
honum falið að stjórna heimferð
ítala, sem voru fangar í Austur-
ríki. Hann gekk strax í fasista-
flokk Mussolinis, er hann var
stofnaður. Eftir að Mussolini
kom til valda, var hann fyrst í
þjónustu utanrikisráðuneytisins
og fór ýms ferðalög í þágu þess.
Hann talar og les ensku, frönsku
og þýzku auðveldlega og var þvl
vel til sllkra starfa fallinn. Fyrir
12 árum varð hann ritstjóri Gi-
ornale d’Italia og síðan hefir
hann verið „óopinber málpípa
hins opinbera“ eins og hann er
stundum nefndur í gamni.
Gayda er ólíkur ítölum í því,
að hann hefir enga ánœgju af
veizlum eða af þvl að láta bera
mikið á sér. Það má miklu frekar
kalla hann mannfœlinn. Hann
kemur yfirleitt ekki i veizlur,
tekur ekki á móti gestum á rit-
stjórninni, sézt aldrei á mann-
fundum og á mjög fáa persónu-
lega kunningja. Hann gegnir
engu opínberu trúnaðarstarfi.
Hann er orðlagður fyrir að
drekka mikið af mjólkurlausu
kaffi, þegar hann er að skrifa
greinar sínar, einkum ef þœr eru
alvarlegs efnis.
Tómstundir slnar notar Gayda
aðallega til lesturs. Hann les
mikið af erlendum blöðum og
söguritum. Auk hinna löngu,
daglegu blaðagreina, skrifar
hann árlega 1—2 bœkur, sem
fjalla um stjórnmál. Árslaun
hans eru talin 30 þús. lirur.
Gayda er prýðilega ritfœr og
flytur mál sitt með þeirri hörku
og ófyrirleitni, sem fellur Musso-
lini vel í geð.
Gayda hefir Ijósrautt hár og er
bláeygður. í útliti líkist hann
meira Norðurlandabúa en ítala.
* * *
Nýlega fór fram samkeppni í
Nizza um það, hver gœti reykt
flestar sigarettur á 10 klukku-
stundum. Keppendur voru um
100. En keppnín stóð ekki svo
lengi. Þegar 9 klst. voru liðnar,
fengu tveir keppendurnir yfirlið.
Lœknar voru til kvaddir, en
fengu ekkert að gert. Hvorugur
þessara manna vaknaði til lífs-
ins aftur. Þeir höfðu reykt um
600 sigarettur á þessum tíma og
orðið með því sjálfum sér að
bana. Forgöngumenn samkeppn-
innar hafa verið fangelsaðir.
* * *
Nýlega gerði starfsfólk á 130
gistihúsum og veitingastöðum í
ÚTC B/ENUM
Egill Vilhjálmsson
bifreiðasali bauð blaðamönnum í gær
að skoða verzlunar- og viðgerðarhús
sitt við Laugaveg 118. Er nú gólfflötur
byggingarinnar alls orðinn 2970 fer-
metrar. Er þarna framkvæmd allskonar
bifvélavinna og allt, sem lýtur að yfir-
byggingu bifreiða og málningu. Er tré-
smíðaverkstæðið i nýrri byggingu, sem
lokið var við í haust. Alls geta verk-
stæðin tekið um 40 bifreiðar til yfir-
byggingar í einu. Fyrirtæki þetta var
stofnað 1930, en á byggingunni við
Laugaveg 118 var byrjað 1932.
Aðalfundur
Stúdentafélags Reykjavíkur var hald-
inn í Oddfellowhúsinu á þriðjudags-
kvöldið. í stjórn voru kjörnir: Hörður
Bjarnason, húsameistari, formaður,
Árni Snævarr, gjaldkeri og Ragnar
Jóhannesson ritari. Sigurður Ólason
var formaður síðastliðið ár, en baðst
undan endurkosningu. Að loknum að-
alfundarstörfum flutti Ludvig Guð-
mundsson langt erindi um nýtt land-
nám á íslandi. Urðu um það umræður
og að þeim loknum kosin nefnd, sem
geri tillögur um málið og leggi fyrir
næsta fund. í nefndina voru kosn-
ir Ludvig Guðmundsson, Guðmundur
Finnbogason og Hákon Bjarnason.
Gestir í bænum.
Þorgrímur Jónsson bóndi á Kúlu-
dalsá, Guðmundur Ólafsson frá Mið-
sandi.
Fjárpestm á Austurl.
(Framh. af 1. síðu)
Ríkisstjórnin hefir falið Hall-
dóri Pálssyni ráðunaut að hafa
yfirumsjón með rannsóknum á
útbreiðslu veikinnar.
Tíminn hefir látið Halldór
sjá viðtalið hér að framan og
kvaðst hann ekki að svo stöddu
bæta við öðru en því, að lyf,
sem alveg nýlega hefir verið
fengið frá Englandi, virðist ætla
að bera árangur. Var það reynt
á 40—50 kindum á Hæli og
leiddi í ljós að flestar þeirra
voru sýktar.
Á tveim öðrum bæjum í
Gnúpverjahreppi, Stóru-Más-
tungum og Hlíð, hafa fundizt
sýktar kindur.
Á viðavangl.
(Framh. af 1. síðu)
deilur eiga að brjóta fasisman-
um Jeið eins og í Þýzkalandi.
Slíkur er draumur heildsala-
klíkunnar, sem kom þessu
bandalagi á. En meginhluti
hinna óbreyttu Sjálfstæðis-
manna vilja aukinn frið en ekki
auknar deilur, viðreisn fram-
leiðslunnar en ekki aukin verk-
föil. Þess vegna mun bandalag-
ið við kommúnista verða íhalds-
foringjunum dýrkeypt.
Noregi, langflestum .1 Oslo, verk-
fall sem stóð í 24 daga. Fékk það
sama og engu af kröfum sínum
framgengt. En á þessum tíma
tapaði það um einni miljón
króna í vinnulaunum og eyddi
um 170 þús. kr. úr verkfallssjóði
sínum. Tjón ríkisins, sem kemur
fram í minni tekjum af veitinga-
skattí, er áœtlað um 300 þús. kr.
tltbrciðið TÍMANN
Sigur lýðræðisins.
(Framh. af 1. síðu)
manna. Þykir líklegt að verk-
lýðsfélögin muni reyna á næst-
unni að losa sig undan öllum
yfirráðum kommúnista, en þau
verða samt lengi að ná sér eft-
ir þessa handleiðslu þeirra. Á
einum degi sviptu verklýðssam-
tökin sig miklu af því valdi, sem
þau höfðu skapað sér á undan-
förnum árum og myndi hafa
verið óhaggað nú, ef þau hefðu
beitt því með meiri forsjá og
ekki ætlað því að ná út yfir
takmörk sín.
i
Eftir hinn glæsilega sigur
var Daladier óspart hvattur til
að láta kné fylgja kviði og
ganga á milli bols og höfuðs á
verklýðssamtökunum. En hann
neitaði. Hann beindi þeirri á-
skorun melra að segja til at-
vinnurekenda að láta verka-
menn yfirleitt ekki gjalda
verkfallsins og gera í þeim efn-
um mun á upphafsmönnum og
þeim, sem hefðu verið ginning-
arfífl. Aðeins opinberum starfs-
mönnum, sem gegndu ábyrgð-
miklum embættum, var refsað.
Sumum með brottrekstri og
öðrum með því að flytja þá í
lægri stöður. Úrslit verkfallsins,
sagði Daladier, sýndi að þjóð-
in er sameinaðri en andstæð-
ingarnir hafa gert sér ljóst og
ég tel það heppilegast til að
vinna að eflingu lýðxæðisins og
aukinni einingu þjóðarinnar að
fara ekki með neina eins og þeir
hefðu beöið ósigur í stríði.
Framtíð þjóðarinnar veltur á
því, að hún geti gert stór, sam-
eiginleg átök. Styrkleiki þjóð-
arinnar út á við fer líka eftir
samheldni hennar inn á við.
Ef verkfallið hefði heppnazt,
stjórn Daladiers fallið og við-
reisnarráðstafanir verið af-
numdar, er ómögulegt að segja
hver endalokin hefðu orðið. En
flest bendir til að skapazt hefðu
aukin átök og sundrung inn-
viðreisn atvinnulífsins og endir-
inn orðið rauð eða brún bylting.
Erlendir fjandmenn Frakka
hefðu reynt eftir megni að
hagnýta sér þessa innbyrðis
sundrung þeirra.
Enn verður það að vísu
ekki sagt, hvort Daladier eða
eftirmenn hans hafi til fulls
komizt framhjá þessum skerj-
um. En undir forystu hans hef-
ir franska lýðveldið unnið í
annað sinn þýðingarmikinn sig-
ur og öfgamennirnir orðíð fyrir
miklu áfalli.
ÍSM
miMLMtnuitíuK
„Þ O R L Á K U R
ÞREYTTI11
Gamanleikur í 3 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur:
Har. Á. Signrðsson.
Sýning í kvöld kl. 8.
Lækkað verð.
— ÍVæst síðasta sinn. —
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
E.s. Lyra
ÁST OG
AFBRÝÐISEMI
Áhrifamikil og snilldar-
lega vel leikin sakamála-
kvikmynd tekin af UFA.
Aðalhlutv. leika:
CHARLES BOYER
og
ODETTE FLÓRELLE.
Börn fá ekki aðgang.
nýja Bíó^mmvrmnÞ
* SÁ HRAUSTI 1
SIGRAR
Spennandi og æfintýrarík
amerísk Cowboymynd,
leikin af Cowboy-kappan-
um fræga
JOHN WAYNE.
Aukamynd
Æfintýrið í Klondyke.
Amerísk kvikmynd, er
sýnir sögu, er gerist meðal
útlaga í Alaska.
Börn fá ekki aðgang.
Nýkomið mikið úrvul af
Karlmannaf ataeínum
og skóm.
Ennfremur: Flughúfur, Barnalúffur, Kvenlúffur
og Karlmannahanzkar.
Verksmiðjuútsalan
€ref|nn - Iðnnn
Aðalstræti.
Ráðningarstofa
Reykj aví kurb æjar
Bankastræti 7. Sími 4966.
Kaupmenn, kaupfélög og iðjuhöldar! Ef þið þurfið að láta
vinna einhver verk fyrir jólin (eða síðar), ættuð þér strax
að snúa yður til Rðningarstofunnar, því að fjöldi at-
vinnulausra verkamanna eru þar skráðir, og eru á reiðum
höndum, til að taka að sér vinnuna.
Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar,
Sími 4966.
Mjólknrbúðin
á Vesturgötu 12 verður opnuð aftur föstu-
dagínn 16. p. m.
Mjólkursamsalan.
Mjólkur- oj» braiabúð
opnum vér, föstudaginn 16. p. m. á Víðimel 35.
M j ólli ii rssiinsitlan.
150 Andreas Poltzer:
■■■'■ ' ri'. ' j fr ■%. #i
Hann tók undir sig stökk og hljóp, eins
og sjálfur kölski væri á hælunum á
honum.
FJÓRÐI KAPITULI.
Óheppnin hafði elt Whinstone í allri
hans málagrennslan, en loks hafði hann
þó stigið spor í áttina. Eftir að brotizt
var inn í ibúð hans og engu stolið nema
skjölunum, sem hann hafði fengið til
varðveizlu frá Patriciu, gekk hann í
málíð með hálfu meiri dugnaði en áður.
Fulltrúanum var órótt, því að hann
skildi ekki, hvað innbrotsþjófurinn ætl-
aði við þessi plögg að gera. Whinstone
iðraði þess, að han hafði ekki skoðað
skjölin betur. Eins og áður er sagt voru
þau að miklu leyti á þýzku.
Whinstone grunaði Meller um inn-
brotið, jafnvel þó að hann sæi ekki, til
hvers hann ætlaði sér að nota skjölin.
Fulltrúinn hafði fengið að vita það hjá
Patriciu, að Meller hafði fengið afrit af
fæðingarvottorði hennar. Ef Meller ætl-
aði sér að giftast Patriciu var honum
nóg að hafa þetta vottorð fyrir gifting-
una. Og það gat gilt einu hvort það væri
sú rétta ungfrú Holm eða ekki, sem stóð
hjá honum frammi fyrir prestinum.
Annars var Whinstone forviða á, að
Meller skyldi ekki hafa hugkvæmst þetta
ráð fyr. Það var auðsjáanlegt að per-
Patricia 151
sónan Patricia skipti minna máli fyrir
Meller en hitt, að hann gæti komið fram
sem eiginmaður hennar. Það var að svo
stöddu leyndarmál hversvegna Meller
vildi fá þessu framgengt.
Að minnsta kosti var það næsta ólík-
legt, að það væri auðæfi Kingsley lá-
varðar, sem Meller var að hugsa um.
Hann gæti aldrei náð í þau, þó hann
giftist Patriciu nauðugri. Hvað stoðaði
það hann, þó hann fengi prestinn og
svaramennina til að sverja, að allt hefði
farið fram á löglegan hátt? Dómurinn
mundi leggja meiri trúnað á framburð
sonardóttur lávarðsins og ekki taka
mark á hvað misindismenn eins og
Meller og hans nótar höfðu fram að
færa.
Eins og allir æfðir lögreglunjósnarar,
beindi Whinstone athygli sinni mjög að
aukaatriðunum. Eitt af aukaatriðunum
voru litlu holurnar tvær í hurðinni á
íbúðinni hans. Það var auðvelt að sjá,
til hvers þær höfðu verið gerðar.
Nú kom þessi spurning: Hversvegna
hafði innbrotsþjófurinn — það sást á
handaverkum hans, að hann var enginn
viðvaningur — þurft að fást við slag-
brandinn fyrir hurðinni? Úr því að eng-
inn var í íbúðinni og innbrotsþjófurinn
vissi þetta, þá gat slagbrandurinn ekki
Ser héðan í kvöld 15.
p. m. kl. 7 til Bergen
um Vestmannaeyjar og
Thorshavn.
P. Smith & Co.
Skrifstofa
Framsóknarflokksms
í Reykjavík
er á Lindargötu 1 D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Framsóknarmenn! Munið að
koma á flokksskrifstofuna á
Lindargötu 1D.