Tíminn - 05.10.1939, Page 2

Tíminn - 05.10.1939, Page 2
458 TÍMIM, fimmtmlagiim 5. okt. 1939 115. blað Fimmtudaginn 5. okt. Fleírí bændur Fyrlr skömmu síðan birtust hér í blaðinu nokkrar endur- minningar aldraðs bónda á Suð- urlandi, Jasonar Steinþórs- sonar í Vorsabæ. í lok endur- minninga sinna kemst hann svo að orði: „Nú vil ég beina þeirri áskor- un til allra þeirra, sem unna sveitunum og sveitalífinu, að vinna að því með ráðum og dáð, að börn okkar staðnæmist í sveitinni. Ég segi þetta af því, að ef bóndinn reisir sér ekki burðarás um öxl með skuldum, þá er bóndastaðan einhver frjálsasta staðan hér á landi, þótt erfið sé“. Eftir að hafa rökstutt þetta nokkuru nánara, segir hann: „Allt öðru máli er að gegna um verkamanninn við sjóinn. Hann á allt undir duttlungum vinnuveitandans, hvort hann fær nokkra vinnu eða ekki til að framfleyta sér og sinni fjöl- skyldu. Þetta þætti mér ekki á- hyggjulaust líf. En í sveitinni er aldrei atvinnuleysi, heldur óþrjótandi verkefni". Sá maður, sem segir þessi orð, styðst við langa reynslu. Endur- minningar hans sýna, að hann hefir í æsku sinni kynnzt fá- tæktinni í sveitinni eins og hún getur mest verið. Bæði hann og systkini hans hafa þó komizt vel til manns. Vafalaust geta þau að nokkru leyti þakkað það sveitalífinu, því að börn, sem alast upp í mikilli fátækt í bæj- unum og hafa götuna fyrir leik- völl og helzta umhverfi, eiga það á hættu að glata sumum beztu eiginleikum sínum. Hann hefir á fullorðinsárum sínum unnið að því að yrkja jörðina með miklum dugnaði og komið upp allfjölmennum bárnahóp. Slíkt hefir ekki leyft margar tómstundir. En samt fellir hann hiklaust þann dóm, að „bóndastaðan sé einhver frjáls- asta staðan hér á landi, þótt erfið sé“ og að honum myndi ekki þykja líf vexkamannsins, sem á afkomu sína undir öðr- um, „áhyggjulaust líf“. Sérhver sá, sem krefur þessi ummæli til mergjar, mun áreið- anlega komast á sömu skoðun. Bóndinn er sinn eigin húsbóndi, verkamaðurinn annarra þjónn. Bóndinn er að vísu háður „sól og regni“, ef svo mætti að orði komast, en óvissa hans um af- komuna í framtiðinni, er þó yfirleitt minni en flestra verka- manna. Bóndinn getur alltaf haft nóg að starfa, en verka- maðurinn er oft iðjulaus tím- um saman, og þótt hár kaup- taxti og tómstundir geti veitt nokkra ánægju, er sú gleði ein- lægust, sem starfið og samvinn- an við náttúruna veitir. Bónd- inn elur börn sín upp i hollu umhverfi, en verkamaðurinn er í sífelldum ótta við götuna og skúmaskot bæjanna sem leikvöll barna sinna. Þannig mætti lengi telja. Það má segja, að atvinnubóta- vinnan og fátækraframfærið hafi veitt verkamönnunum og fólkinu, sem þyrpist á mölina, nokkuxt öryggi í bili, en öllum er nú orðið ljóst, að hvorki rík- ið né bæjarfélögin hafa bol- magn til að halda slíku áfram til lengdar. Enginn sæmilegur maður þiggur heldur slíka hjálp öðruvísi en sem neyðarúrræði og hún er áreiðanlega ekki leið- in til að skapa dugandi þegna. Þar sem það er almennt við- urkennt, að fólksfjöldi margra bæjanna sé orðinn meiri en at- vinnuskilyrðin þar leyfa og að enn séu miklir möguleikar til sjálfbjargaf óhagnýttir í sveit- um landsins, hlýtur það að vera sjálfsögð þjóðfélagsleg krafa til þeirra, sem með völdin fara, að sköpuð verði skilyrði fyrir fleiri bændur í landinu. Slík krafa byggist ekki á metnaði bændastéttarinnar eða neinum tilraunum til að hefja hana til öndvegis á kostnað annarra stétta. Slík krafa er studd af nauðsyn og kröfum þjóðarheildarinnar samkvæmt Guðjón Sigurðsson frá Straumfírði Laugardaginn 23. fyrri mán- aðar var jarðsunginn að Borg Mýrum Guðj ón Sigurðsson fyrrum bóndi á Straumfirði, að viðstöddu miklu fjölmenni sveitunga og annarra vina. Vildi ég biðja Tímann fyrir ör- fá minningarorð um þann á- gætismann. Guðjón heitinn var fæddur að Miðhúsum á Mýr- um 15. september 1868, son- ur Sigurðar Brandssonar og Halldóru Jónsdóttur. Voru for- eldrar hans fremur fátæk og varð hann snemma að sjá sér farborða af eigin dáðum, eins og títt var um unglinga á þeim tímum. En með óvenjulegum dugnaði og drengskap hófst hann fljótlega að efnum og áliti, og á tiltölulega ungum aldri var hann þegar kominn í beztu bænda röð. Eftir fermingaraldur stund- aði hann venjuleg sveitastörf, en fór brátt einnig að stunda sjóróðra og reri þá að vetrum á Suðurlandi hjá ýmsum ágætum formönnum og varð það honum góður skóli í sjómennsku og skipstjórn, er síðar kom honum að góðu haldi. Um aldamótin giftist hann eftirlifandi konu sinni Þórdísi Jónasdóttur frá Straumfirði, Kristj ánssonar frá Hitardal og Þuríðar Bjarnadóttur frá Knarr- arnesi. Byrjuðu þau búskap í Straumfirði og bjuggu þar við mestu rausn og myndarskap um hartnær fjörutíu ár eða til vors- ins 1938. Jörðin Straumfjörður liggur á framanverðum Mýrum. Þar er höfn ágæt þegar inn er komið, enda gamall verzlunarstaður. Var þar áður fyrr og framyfir aldamót einkum stunduð verzl- un á kaupskipum bæði vor og haust.. Sumarfagurt er þar með afbrigðum eins og víðar fyrir Mýrum. En leiðir eru þar ó- hreinar mjög, og oft illfærar nema þaulkunnugum mönnum og aðgætnum. Sær er þar úfinn að vetrarlagi, fláir boðar og brimótt skerjaströnd. Hefir þar líka, sem kunnugt er, orðið valur margra vaskra drengja. Jörð þessi býr yfir mörgum gögnum og gæðum en kostir hennar liggja jafnt til lands og sjávar. Útheimta slíkar jarðir mikla ár- vekni og atorku, og fjölbreytta starfhæfni, ef vel eiga að nytj- ast. Öllum þessum kostum var Guðjón sál. búinn í bezta mæli. Hann var afburða atorkumað- ur og jafnvígur á sjávarstörf og sveita. Sýndi þó hin stöðuga og margháttaða barátta hans við ægi bezt hvað í honum bjó af karlmannlegu þreki og vakandi aðgæzlu. Jörð sína sat Guðjón ágæt- lega, húsaði hana frá grunni og bætti margvíslega. Lagði hann mikla stund á að nytja sem bezt öll hennar margvíslegu gæði og lagði í það mikið fé og fyrir höfn. Hann var kappsfullur við störf og sívinnandi og hlífði sér hvergi. Oft var mannmargt á heimili þeirra hjóna, því að jörðin útheimti mikið starfslið ýmsa árstíma. Varð þeim vel til hjúa, enda sýndu þeim hina mestu nærgætni og umönnun. þeim rökum, sem rakin hafa verið hér á undan. Það er þvi eitt allra stærsta og veigamesta verkefnið, sem bíður þjððarinnar á komandi árum, að skapa skilyrði fyrir fleiri bændur og aukinn fólks- fjölda í sveitum landsins. Það veltur mikið á því, að sem allra fyrst verði vel og viturlega við því máli brugðizt. Vinnuharður var Guðjón að- eins við sjálfan sig. Sér ætlaði hann jafnan erfiðustu störfin, lengstan vinnutíma, minnsta hvíld. Þó að Straumfjörður megi teljast afskekkt jörð, þá liggur hún þó í einskonar þjóðbraut. Aðdrættir vestur með Mýrum hafa jafnan farið fram á sjó að mestu leyti, og sjóferðir því ver- ið tíðar þá tíma árs, sem þær leiðir eru færar. Svo er og að nokkru leyti enn, þó allmikið hafi breytzt á síðari árum. Vegna þess, sem fyrr er fram- tekið, svo og hins hvernig jörð- in er í „sveit sett“, hefir þar jafnan verið tíður viðkomu- staður sæfarenda á þeim slóð- um. Það var líka gott að leita á náðir þeirra Straumfjarðar- hjóna. Mátti með sanni segja, að sá væri kominn í höfn, er þangað náði, hvort heldur var á nóttu eða degi. Þar sátu al- úðin og umhyggjan í öndvegi, auk þess sem árvakurt auga hins þrautreynda og þaulkunn- uga húsbónda vakti yfir hverri hreyfingu vinda og sævar, og var hann ætíð boðinn og búinn að leiðbeina og liðsinna þeim, sem til hans leituðu. Mun heimili þeirra hjóna verða ó- gleymanlegt þeim, er því kynnt- ust, fyrir góðvild og greiðasemi, og er ómetanlegt happ að eign ast útverði á áríðandi stöðum, slíka sem Guðjón í Straumfirði var. Þau hjón, Guðjón og Þórdís, reyndust samhent og samvalin að mannkostum og var hjóna- band þeirra hið ástríkasta. Þeim varð ekki barna auðið en ólu upp tvö fósturbörn, auk þess sem fjöldi barna dvaldi á heim- ili þeirra lengur eða skemur. Þó að Guðjón sál. væri þrek- maður mikill, eins og fyrr er sagt, var þó heilsu hans mjög tekið að hnigna hin síðari æfi- ár. Var þess og von, því að hann hafði alla æfi á sig lagt meira en mannlegu þreki var ætlandi að þola til lengdar. Mannskaðaveðrið haustið 1937, þegar franska hafrannsókn arskipið fórst undan Straum- firði, skapaði honum óvenju- lega örðugleika. Ú,agði hann þá saman nætur og daga við að bjarga undan sjó rekaldi úr skipinu og þó einkum líkum skipverja, er skolaði á land um eyjar og voga. Voru þau flutt heim til Straumfj arðar og lögð hlið við hlið á túnið skammt frá íbúðarhúsinu og tjaldað yf- ir. Var það örðugt starf og á- takanlegt með afbrigðum. Eini sólargeislinn í öllum þeim ó- hugnaði var það, að honum tókst með aðstoð manna sinna að bjarga til lífsins einum skip brotsmanna, sem á undursam legan hátt skolaði um margra sjómílna brimlöður, með lífs- marki til strandar. Tókst þeim hjónum að hlúa að og hjúkra honum, svo að hann náði fullri heilsu og þreki. Var það öllum. sem að því stóðu, óumræðileg gleði. Fyrir alla framkomu hans við hinn átakanlega atburð, sæmdi frakkneska jstjórnin hann heið- ursmerki, og sömuleiðis sendi franski ræðismaðurinn í Reykj a- vík blómsveig á kistu hans. En hið mikla erfiði, er hann lagði á sig þessa eftirminnilegu daga, varð honum ofraun Nokkru síðar fékk hann vott af heilablóðfalli, sem svifti hann fótavist um tíma, og eftir það tók hann aldrei á heilum sér Vorið 1938 brá hann svo búi og flutti nokkru síðar í Borgar- nes, þar sem hann andaðist af heilablóðfalli 12. september síðastliðinn. Lauk þar með dáðríkri bar áttu einnar af hinum þögulu hetjum þjóðarinnar. Guðjón sálugi var mikill vexti og allur hinn gj örvilegasti, enda hið mesta karlmenni. Hann var alvöru- og skapfestumaður en þó bjartsýnn og glaðvær, og jafnan í góðra vina hópi hrók- ur alls fagnaðar. Hann var full- ur velvilja við alla, hjálpsamur og trygglyndur, enda vinsæll mjög, og virtur af öllum, er þekktu hann. Þó að slíkra manna sé jafnan ljúft að minn- ast, verður það ekki gjört án saknaðar. Bjarnl Ásgeirsson Þann 15. apríl síðastl. andað- ist að heimili sínu, Miðjanesi, Helga Jónsdóttir, eftir þunga legu. Helga er fædd að Brands- stöðum á Reykjanesi í Reyk- hólasveit, á jólunum 1880, en fluttist ung með foreldrum sín- um að Miðjanesi, sem má heita að sé næsti bær við Brandsstaði. Foreldrar Helgu voru Jón Guð- mundsson, járnsmiður, er and- aðist í Reykjavík hjá syni sín- Helga Jónsdottir Miðjanesí um, Guðmundi trésmið, fyrir nokkru — og Steinunn Guð- brandsdóttir, Jónssonar, móður- bróður Björn Jónssonar ráð- herra og ritstjóra frá Djúpadal. Var Steinunn móðir Helgu mesta greindar- og atgerfiskona, eins og hún átti kyn til. Jón faðir hennar var einnig skynsamur vel og svo prýðilega hagur, að orð var á gert. Hann var einnig hagur á fleira en járn, því að sumar gamanstökurnar, er hann gerði á sínum yngri árum munu vera fyrir löngu landfleygar. Eins og fyr er getið fluttist Helga í bernsku með foreldrum sínum að Miðjanesi. Var Miðja nes upp frá því hennar heimili, sá staður, sem hún batt við ó rjúfandi tryggð, lifði og starf- aði á og fórnaði kröftum sín um, — fyrst sem ung stúlka, er hún var aðalstoð og styrkur foreldra sinna heima við bú- skapinn og seinna sem eigin á búandi. Árið 1913 varð Helga fyrir þeirri þungu sorg að missa móður sína á sviplegan hátt, - hún varð úti í aftaka norðan hríð rétt við túngarðinn. Nokkru seinna giftist hún eftirlifandi manni sínum, Júlíusi Ólafssyni, bróður Magnúsar sál. Ólafsson- ar ljósmyndara í Reykjavík, og eignaðist með honum tvö börn, Játvarð Jökul og Steinunni Keyptu þau þá einnig um líkt leyti jörðina. Þegar í æsku hafði Helga sýnt sérstakan á- huga fyrir búskap og ræktun og ást á hinu gróandi lífi, sem sveitirnar fóstra. Og þegar hún sjálf var orðin húsfreyja og bóndi, kom auðvitað áhugi hennar og dugnaður ekki síður í ljós. Lét hún nú byggja upp öll hús á jörðinni, þar á meðal all stórt íbúðarhús úr timbri. Enn fremur sléttaði hún og bætti að öðru leyti túnið stórum, svo að Miðjanes varð með bezt setnu jörðum í sveitinni, enda telur Sigurður Sigurðsson fyrv. bún- aðarmálastjóri Helgu mestu jarðræktarkonu landsins, i grein, er hann skrifaði um hana í BúnaðaTritið fyrir nokkrum árum. Þetta starf Helgu heitinnar verður enn þá merkilegra og undraverðara þegar gætt er þeirrar aðstöðu, sem hún lengst af hafði. Vinnukröftum hafði hún oftast litlum á að skipa öðr um en sjálfri sér, þar til nú seinustu árin, eftir að sonur hennar komst upp og varð henn- ar önnur hönd. Auk þess að hafa forsjá um framkvæmdir á öllu urðu erfiðustu störfin einnig verklega að hvíla á hennar eig- in herðum, svo sem heyskapur- inn og jafnvel sjálfar jarðabæt urnar. Vann hún sjálf með eig- in höndum ekki svo lítinn hluta af þeim. Helga var oft einyrkinn utanbæjar og innan, og þeir, sem þekktu hana og líf hennar, hlutu að undrast það undra- verða þrek, andlegt og líkamlegt og þá ótrúlegu þrautseigju, sem bjó í þessari smávöxnu konu. Má nærri geta, að oft hefir hún gengið þreytt til hvílu. En sízt minni þreytu en hið líkamlega erfiði muh þó ýmislegt annað hafa valdið henni, og þá ekki hvað minnst að horfa upp á heilsuleysi dótturinnar, sem verið hefir heilsulaus frá barn- æsku. Til viðbótar við hin mörgu störf heimilisins, stundaði hún hana í legum hennar jafnt á nótt sem degi, með þeirri þraut- seigju og fórnfýsi, sem góðri móður er gefið. Gerði hún flest sem hugsanlegt var til að ráða bót á heilsubresti hennar og sparaði til þess hvorki fé né tíma. Helga Jónsdóttir var ein af Deim of fáu, sem eru fullkom- lega það sem þeir sýnast. Ekk- ert var henni fjær skapi en yfir- borðsháttur og fals. Áreiðanleiki og vöndun í öllum orðum og verkum og viðskiptum, ásamt órjúfandi trygglyndi og vin- festu auðkenndi hana mörgum fremur. Hún var hjálpfús og greiðvikin við nágrannana og aðra sem á þurftu að halda. Fé- lagslynd var hún mjög að upp- lagi, var t. d. mjög áhugasamur ungmennafélagi á fyrri árum sínum, og í búnaðarfélagi hreppsins var hún frá því fyrsta, sennilega eina konan á landinu, sem hefir verið í búnaðarfélagi. Yfirleitt unni hún hverskonar félagsskap og viðleitni, er til menningar áttu að miða. Okkur, sem vorum svo heppin að kynn- ast Helgu heitinni persónulega og hafa tal af henni, gat held- ur ekki dulizt, að þar var engin hugsunarlítil vöflukona, sem hún var, heldur var þar fyrir að hitta óvenju þroskaðan og heilsteyptan persónuleika, er mætti viðfangsefnum lífsins með hugsun og alvöru og tók á þeim föstum tökum. Enda er það mála sannast, að fáa hefi ég hitt, er mér þætti skemmti- legra og meira „uppbyggjandi" að tala við en Helgu Jónsdóttur. Var það hvorttveggja af því, að konan var prýðilega skynsöm og glöggskyggn, og auk þess svo sanngjörn og hógvær í dómum sínum um menn og.málefni, að fágætt var. Og þótt Helga virt- ist fyrst og fremst vera ráð- deildarsöm og hyggin búkona og sérstaklega eiga heima á því sviði, var ekki síður gaman að ræða við hana um ýmislegt ann- að en búskap. Var fátt mann- legt henni óviðkomandi, þótt hinsvegar að lítilsvert slúður og órökstuddir dagdómar væru henni ótamari en flestum öðr- um. Helga var bókhneigð mjög, þótt lítinn tíma hefði hún til bóklesturs, og fylgdist furðu vel með öllu er gerðist á sviði þjóð- málanna. Fínan og næman smekk hafði hún fyrir skáldskap bæði í bundnu og óbundnu máli, enda sjálf vel hagorð, þótt lítið eða ekkert hafi hún gert að slíku frá því að hún var ungl- ingur. Sem líklegt var um jafn hugs- andi konu, var Helga trúhneigð, — og víðsýn og frjálslynd í þeim efnum. Á því sviði sem öðru einkenndi hana bjartsýni og trú á sigur hins góða í manneðlinu. Þessi bjartsýni ásamt dóm- greind hennar og skapstillingu gerði henni fært að mæta hin- um mörgu örðugleikum lífsins með bros á vör og sigrast á þeim. Nágrönnum og vinum Helgu finnst æði skarð orðið þar sem hún var, en mestur er þó miss- irinn fyrir hennar nánustu. Fyrir eftirlifandi mann hennar, fyrir dótturina, sem þrátt fyrir ágætar gáfur þarf svo mikið á móðuraðstoð að hjálp að halda, og fyrir son hennar, sem var móður sinni svo hjart- fólginn og nátengdur og efalaust hennar stóra gleði og framtíð- arvon, enda reyndist hann henni góður sonur, og vegna hæfileika og mannkosta líklegur til þess að feta að mörgu í hennar fót- spor. Og hin íslenzka bænda- stétt hefir misst eina af sínum merkustu og sérstæðustu kon- um þar sem Helga var, eina af fórnfúsustu og tryggustu dætr- um hinna íslenzku sveita. Því fleiri dætur og syni, sem sveit- irnar fóstra líka henni að fórn- fýsi, ást og tryggð til átthaganna og hinar gróandi moldar, því betur blómgast hagur þeirra í framtíðinni. Höllustöðum, 10. júni 1939. Ingibjörg Þorgeirsdóttir. Hallgrímur Halldórsson £rá Melum Þann 27. júlí sl. andaðist eftir langa og þunga vanheilsu Hall- grímur Halldórsson fyrrverandi hreppstjóri frá Melum í Svarf- aðardal, liðlega 72 ára gamall. Með Hallgrími er til grafar genginn, einn hinna ágætustu og vinsælustu Svarfdæla, sem þar hafa lifað og starfað sl. 50 ár, vegna mikilla mannkosta og óvenjulega fjölbreyttra hæfi- leika. Hallgrímur var fæddur að Melum 5. júlí 1867. Voru for- eldrar hans Halldór hreppstjóri Hallgrímsson og Sigriður Stef- ánsdóttir kona hans. Bæði töldu þau hjón ætt sína til sr. Magn- úsar Einarssonar skálds á Tjörn í Svarfaðardal, er sú ætt kunn þar í sveit fyrir gáfur og list- fengi, en í föðurætt var Halldór hreppstjóri kominn af Melaætt. Voru þar taldir að hafa verið sterkir menn og hraustir í fleiri ættliði. Hallgrímur heitinn hlaut í vöggugjöf það bezta frá forfeðr- um sínum, var hann þvi óvenju- lega góðum hæfileikum búinn, kom það fram í lífi hans, á með- an hann hélt heilsu og kröftum. Hann ólst upp hjá foreldrum í æsku við algeng sveitastörf. Innan við tvitugsaldur fór hann á gagnfræðaskólann á Möðru- völlum í Hörgárdal og lauk þar prófi með lofi eftir tveggja vetra nám. Eftir veru sína á Möðruvalla- skólanum, gerðist hann barna- kennari í heimasveit sinni, og stundaði það um allmörg ár. Varð hann nú strax mjög eftir- sóttur kennari. Taldi hver ung- lingur sig sælan að mega vera hjá Grími á Melum, eins og hann þá var almennt kallaður, var það ekki að furða, að ung- menni, sem uppalin voru í fá- sinni þeirra tíma, drægjust að hinum unga, fríða og lífsglaða manni. Var Hallgrímur, þótt frekar væri hann smár vexti, mjög fríður maður sýnum. í- þróttamaður ágætur, gat hann stokkið jafnfætis meira en hæð sína, eða fullar þrjár álnir. — Skíðamaður var hann svo góður, að fáir á þeim tíma þurftu eftir honum að leika og sterkur vel. Samfara þessu var hann svo söngvinn og söngelskur, að frá- bært mátti telja. Engrar til- sagnar hafði hann þó þar notið, annarrar en þeirrar, sem hann sjálfur veitti sér úr söngheftum Jónasar Helgasonar og úr Staf- rófi söngfræðinnar eftir Björn Kristjánsson. Lærði hann einn- ig að leika að mestu tilsagnar- laust á fiðlu og harmónium. í nótnalestri náði Hallgrímur svo mikilli leikni, að hann gat sung- ið af nótum hvert það lag, sem honum barst í h$ndur. Sá, sem þetta skrifar, sá hann oft skrifa upp lög af vörum manna. Ef hann hafði ekki nótna- pappír, sem oftast var, þá skrif- aði hann lögin upp i vasabók sína með bókstöfum og gerði sér svo merki um nótnagildin, færði svo allt inn á nótnapappír eftir reglum söngfræðinnar, þegar heim kom. Hygg ég, að ekki myndu það margir eftir leika. Af öllu þessu leiddi það, að al- staðar þar, sem gleðisamkomur voru, og söng og hljóðfæra- slátt skyldi um hönd hafa, en í þann tíma voru það nær ein- göngu brúðkaupsveizlur, þótti allt vanta, ef Hallgrím á Melum vantaði, enda var hann ætíð þar hrókur alls fagnaðar. En yfir allri hans gleði og söng hvíldi einhver sú prúðmennska og listræni, að frábært var, því að allt ljótt og ruddalegt var svo fjarri upplagi hans. Þegar bændur í Svarfaðardal stofnuðu deild í pöntunarfélagi því, sem þeir Höfðabræður, Þórður og Baldvin Gunnars- synir stjórnuðu, varð Hall- grímur deildarstjóri Svarfdæl- inga og endurskoðandi reikn- inga pöntunarfélagsins um nokkurra ára skeið. Leysti hann af höndum öll þau störf með mestu prýði til mikilla hags- bóta fyrir sveit sína. (Framh. á 4. síðuj

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.