Tíminn - 06.01.1940, Síða 2

Tíminn - 06.01.1940, Síða 2
6 TjggBgN, langardagiim 6. janúar 1940 2. blað ‘gímtrm Laufiardaginn 6. jjan. Vaxtaskatturínnn Eitt þeirra mála, sem ekki náði afgreiðslu á þessu þingi, var frumvarp milliþinganefnd- arinnar i skatta og tollamálun- um um vaxtaskatt. Má það næsta einkennilegt heita, að mál þetta skyldi ekki mæta meira skilningi hjá þing- inu en raun varð á. Sú skoðun virðist hafa skap- azt víða, að hér sé um nýjan skatt að ræða, en það er full- kominn misskilningur. Eins og skattalöggjöfin er nú fram- kvæmd virðist það hægur vandi að koma sparifé og verðbréfum undan skatti, og er það ekkert launungarmál, að þetta er gert í störum 'stíl. Tilgangurinn með vaxtaskattinum er sá einn, að koma í veg fyrir að hægt sé að koma eignum undan skatti með þessum móti. Alþingi þurfti því ekki að taka afstöðu til ann- ars en þess, hvort leyfa ætti þeim, sem ekki telja þess- ar eignir til skatts, að komast hjá löglegri skattgreiðslu á með- an þeir, sem rétt telja fram, verða að greiða skatt af þeim. Málið er því ákaflega einfalt og ætti ekki að þurfa að valda neinum heilabrotum. Þeir eru kannske einhverjir, sem hafa þá skoðun, að ekki sé rétt að taka skatt af sparifé og verðbréfum. En þá ætti slík undanþága vitanlega að ná til allra, en ekki aðeins til þeirra, sem fara á bak við lögin. Ann- ars mun þessum mönnum erfitt að finna rök máli sínu til stuðn- ings. Það er áreiðanlega mikill vandi að gera mun á þessum eignum og mörgum öðrum eign- um. Það má taka dæmi. Bóndi á jörð. Hann verður að greiða skatt af þessari eign. Hann sel- ur jörðina og leggur andvirði hennar í banka. Þá þarf hann ekki lengur að greiða skatt af þessari eign. Er það réttlæti að skattleggja jörðina, en undan- þiggja peningana? Þeir menn eru kannske til, sem segja að skattur á sparifé og verðbréfum dragi úr sparn- aði. En þessir góðu menn gæta þess ekki, að fleira er sparnað- ur en að leggja fé á banka og kaupa verðbréf. Það má aftur taka dæmi af bóndanum. Ung- ur maður festir kaup á jörð og ver til þess fé, sem hann hefir sparað saman. Það nægir senni- lega ekki til að greiða allt jarð- arandvirðið og hann heldur því áfram að spara til að geta greitt það að fullu. Þetta er vissulega sparnaður, sem er lofsverður og er erfitt að sjá, hvers vegna ætti síður að ýta undir menn til að spara fé með þessum móti en á þann hátt, að leggja það á banka eða kaupa verðbréf. En sú verður vitanlega niður- staðan, ef sparifé í bönkum eða verðbréf nytu skattfrelsis. Það er því alveg sama, hvern- ig litið er á þessi mál. Það eru engin rök til, sem réttlæta það, að sparifé í bönkum eða verð- bréf séu látin vera rétthærri en aðrar eignir. Það er fullkomið sanngirnismál, að til þeirra eigna nái sömu skattaákvæði og til annara eigna. Frá sjónarmiði ríkisins ætti lika síður en svo að þykja á- stæða til þess, að hlífa vissum mönnum við réttmætum skatti. Eins og fjárhagsafkomu ríkis- ins er nú komið, ætti miklu frekar að þykja ástæða til þess nú, að vinna að bættri inn- heimtu skattanna en að gera það gagnstæða. Þess ber því fullkomlega að vænta, að þetta mál fái aðrar viðtökur á næsta þingi og nái þá framgangi. Kaupendur Tímans Tilkynnið afgr. blaðsins tafar- Iaust ef vanskil verða á blaðinu. Mun hún gera allt, sem í hennar valdi stendur til þess að bæta úr þvi. Blöð, sem skiivísa kaup- endur vantar, munu verða send tafariaust, séu þau ekki upp- gengin. Forystnmeim þjjógaima: Neville NIÐURLAG Fyrstu árin, sem Á leið til Chamberlain sat á valda. þingi, lét hann lítið á sér bera. Lloyd George var þá stjórnarforseti og var Chamberlain ákveðinn andstæðingur hans. Á þessum árum var Chamberlain kjörinn formaður hinna skipulögðu landssamtaka íhaldsflokksins og gegndi hann því starfi sam- fleytt í 9 ár. Lagði hann mikla vinnu í skipulagningu flokks- ins og náði góðum árangri í þeim efnum. Hefir þetta starf hans áreiðanlega bætt mjög að- stöðu hans síðar. í Englandi þykir það þó ekki nein sérstök tignarstaða að vera formaður hinnar skipulögðu flokksstarf- semi. Menn eru ekki valdir í þær stöður með neinu sérstöku tilliti til foringjahæfileika. Það eru aðeins gerðar kröfur til þeirra sem starfsmanna, en ekki sem foringja. Forystan hvílir fyrst og fremst á formanni þingflokksins. Haustið 1922 gerðist atburður, sem jafnan verður frægur 1 sögu Englands. Lloyd George var þá enn forseti samsteypustjórnar, en íhaldsmenn voru þó í meira- hluta á þingi. Erfiðleikarnir, sem sköpuðust eftir styrjöld- ina, voru margvíslegir og eins og títt er eignaðir ríkisstjórninni að meira eða minna leyti. Hinir eldri foringjar íhaldsflokksins studdu þó Lloyd George, enda hafði klofningur sá, er hann olli í frjálslynda flokknum, ver- ið vatn á myllu þeirra. Tiltölu- lega óþekktur þingmaður í flokki íhaldsmanna, Stanley Baldwin, flutti þá ræðu á stór- um fundi íhaldsmanna. Hann réðist ákaft á samsteypustjórn- ina. Ræða hans var svo snjöll og áhrifamikil, að hún sópaði grunninum undan samsteypu- stjórninni og gexði Baldwin að sjálfkjörnum foringja íhalds- flokksins, þótt hann tæki ekki formlega við forystunni, sem var í höndum Bonar Law. Afleiðing þessa atburðar varð sú, að Bonar Law myndaði hreina fiokksstjórn um haustið. Chamberlain hlaut nú launin fyrir andstöðuna gegn Lloyd George og fékk minniháttar ráðherrastöðu. Baldwin varð fjármálaráðherra. Vorið 1923 varð Bonar Law að leggja niður stjórnarforystuna, sökum heilsubrests, og Baldwin varð forsætisráðherra. Hann gerði Chamberlain að eftirmanni sín- um sem fjármálaráðherra, enda þótt aðrir stæðu miklu nær. Vakti þetta val Baldwins því talsverða furðu. Chamberlain auðnaðist það ekki að leggja Chamberlaín fram fjárlög að þessu sinni. Þeir Baldwin vildu koma á verndartollum til hjálpar iðn- aðinum og efndu því til kosn- inga. íhaldsflokkurinn beið mikinn ósigur og verkamanna- fiokkurinn myndaði stjórn með aðstoð frjálslynda flokksins. Valdaskeið þeirrar stjórnar varð stutt og eftir nýjar kosn- ingar haustið 1924 myndaði Baldwin stjórn, sem sat að völd- um til vorsins 1929. Chamber- lain var boðin fjármálaráð- herrastaðan í þessari stjórn, en hann kaus heldur að verða heil- brigðismálaráðhera. Það er haft Heilbrigðismála- eftir C h a m- ráffherrann. b e r 1 a i n, að embætti heil- brigðismálaráðherra telji hann skemmtilegasta starfið, er hann hafi gegnt um dagana. Hann vann líka mjög ötullega á þess- um árum og lét margvísleg mál til sín taka. Hér skulu aðeins tvö nefnd. Áður en Chamberlain varð heilbrigðismálaráðherra hafði verið hafizt handa um niðurrif fátækrahverfanna í stórborg- unum, en allar fyrirætlanir um þau efni höfðu reynzt meira og minna gallaðar í framkvæmd. Chamberlain, sem hafði sýnt þessum málum mikinn áhuga meðan hann var í Birmingham, tók þau upp á nýjum grund- velli og varð svo vel ágengt, að um 2 milj. íbúða voru byggöar í stað þeirra, sem lagðar voru niður, í stjórnartíð hans. Það má vissulega eftir á finna ýmsa annmarka á framkvæmd þess- ara byggingarmála, en hinu verður ekki neitað, að mikið hafði áunnizt. í fáum löndum var eins al- gengt að konur létust af barns- burði og í Englandi. Chamber- lain tók þetta mál til meðferð- ar og beitti sér fyrir aukinni menntun ljósmæðra og fleiri ráðstöfunum í því sambandi. Þetta bar ágætan árangur og tala þessara dánarorsaka stór- lækkaði. „Menn verða að gera sér ljóst“, sagði Chamberlain einu sinni í ræðu, „hvaða af- leiðingar það hefir, þegar móðir deyr og ung börn missa umönn- un og áhrif, sem móðirin ein getur veitt þeim“. Eftir nokkra þögn bætti hann við lágum rómi: „Ég var sex ára, þegar móðir mín lézt af barnsburði". Störf Chamberlains sem heil- brigðismálaráðherra uku mjög álit hans og öfluðu honum þeirr- ar viðurkenningar, að hann væri einn nýtasti maður íhalds- flokksins. Haustið 1931 Fjármálaráff- hafði s t j ó r n herrann. verkamanna- flokksins sýnt með tveggja ári starfi, að hún réði ekki við þau erfiðu við- fangsefni, er kreppan hafði skapað. Niðurstaðan > arð m y n d u n þj óðstj órnarinnar. Chamberlain varð fjármálaráð- herra henna.r og gegndi því starfi til vorsins 1937. Fjármálalíf þjóðarinnar var í hinu mesta ó- efni, er hann tók við starfinu. Þegar hann lét af því sex árum síðar var það á miklu traustara grundvelli og afkoma atvinnu- veganna stórum betri. Það gæti orðið óþrotlegt deilu- efni, hvort þennan afturbata fjármálalífsins beri aðallega að þakka fjármálastjórn Chamber- lains eða öðrum orsökum. Þegar menn t. d. athuga fjárlög hans gætir þar engra róttækra breyt- inga. Það má að visu benda á nokkrar verulegar lækkanir ýmsra útgjalda og hækkanir ýmsra tekjuliða, nær eingöngu tolla og skatta. Allt eru þetta þó mjög hversdagslegar að- gerðir og sem hafa verið við- hafðar í flestum löndum. En það er einmitt í þessu að- gerðaleysi, ef þannig mætti orða það, er ýmsir meðhaldsmenn Chamberlains segja að fjár- málagaldur hans sé fólginn. Samkvæmt þeirra stefnu eru miklar breytingar, sem iðulega er óvíst um, hvernig reynast muni í framkvæmd, aldrei eins hættulegar og á krepputímum. Þær aðeins auka á glundroðann og ringulreiðina í fjármálalíf- inu. Það, sem skiptir mestu, er að skapa festu og öryggi. Þegar ríkið gerir það kemur það einnig smátt og smátt hjá einstakling- unum. Stórtækar breytingar á helzt ekki að gera, nema á venjulegum tímum, ellegar þær eiga að koma smásaman. Hvert álit, sem menn hafa á þessari kenningu, verður því ekki neit- að,að festa og öryggi jókst í fjár- málalífi Breta meðan Chamber- lain var fjármálaráðherra. Ó- vissan og vantrúin, sem áður höfðu ríkt, hurfu að mestu leyti. Chamberlain sagði í fjárlaga- ræðu sinni 1936 að íjármála- stefna sín byggðist einkum á tveim atriðum: Tollum og lá- gengi. Eitt af fyrstu verkum þjóðstjórnarinnar var að koma á gengislækkun og á þinginu 1932 kom Chamberlain í fram- kvæmd víðtækri tollalöggjöf. Er sagt, að Chamberlain telji það síðar einn mesta stjórnmála- sigur sinn, þar sem hann hafi þar komið í framkvæmd stór- máli, sem faðir hans hafi barizt fyrir manna mest, en tókst þó ekki sjálfum að leiða til lykta. Minntist Chamberlain sérstaklega þessarar baráttu föður síns, þegar hann lagði frumvarpið um tollalögin fyrir þingið. En hvorttveggja þessara xáðstafana, lækkun sterlings- pundsins og innflutningstollur- inn, hafa áreiðanlega átt mik- inn þátt í því að lækka hinn stórfelda halla, sem orðinn var á verzlunarjöfnuðinum, og efla iðnaðinn. Chamberlain og Baldwin tóku báðir þátt í hinni frægu Ott- awaráðstefnu sumarið 1932. — Niðurstaða þeirrar ráðstefnu var fullkomlega í anda Joseph Chamberlains, því að skapaður yar stórum bættur grundvöllur fyrir tollasamvinnu milli Bret- lands og samveldislandanna. Hins vegar urðu þær tilraunir Baldwíns og Chamberlains, að fá ráðstefnuna til að beita sér fyrir almennri tollaívilnun og frjálsari heimsverzlun, árang- urlausar. Samveldislöndin risu gegn þeim. Eitt af helztu verkum Cham- berlains sem fjármálaráðherra, var að koma því til leiðar, að lækkaðir voru vextir á 2.000 millj. sterlingspunda stríðslán- um úr 5% í 3V2%. Þótt stríðs- skuldabréfin væri í höndum margra aðila, . tókst þetta næstum möglunarlaust og má vafalaust þakka það að veru- legu leyti vinsældum Chamber- lains meðal fjármálamanna. Chamberlain sýndi það iðu- lega i fjármálaráðherratíð sinni, að hann var stefnufastasti og MOLAR Weekly Review, London Ljóninu Sleppt Lausu! * * * í sambandi viö þc.nn atburð, aö Þjóðverjar neyddust nýlega til að eyðileggja orustuskipið „Graf von Rpee", sem vann að því aö granda enskum kaupförum í Suðurhöfum, hafa Bretar bent á, að það hafi náð miklu minni árangri en þýzka orustu- skipið „Emden" i seinustu heimsstyrj- öld. Afrek „Emden" eru líka einsdæmi i sjóhernaðarsögunni. Skipið var ekki nema 3650 smál. og ekki sérstaklega vel vopnað. Það hélt sig í Indlands- hafi mánuðina ágúst—okt. 1914 og sökkti 21 kaupfari, sem voru virt á 37 millj. kr. Um tuttugu herskip Banda- manna leituðu þess samt stöðugt á þessu tímabili. Svo fífldjarfur var for- ingi skipsins, Muller að nafni, að hann sigldi því inn á höfnina í Penang, þar sem lá 3200. smál. rússneskt herskip. Var Emden þá að öllu leyti útbúið sem enskt herskip, hafði m. a. sett upp auka reykháf. Á höfninni sökkti það rússneska herskipinu. Þegar skipið lét aftur úr höfninni mœtti það jrönsku herskipi og tókst að sökkva því. Hinn 9. nóv. tókst Bandamönnum loks að ná því. Það hafði sett menn á land til að eyðileggja enska skeyta- stöð á Kokoseyjum, en hún gat áður gert herskipum Bandamanna aðvart. Ástralslca herskipið „Sidney" varð fyrst á vettvang. Það var langtum stœrra og betur vopnað. Skipstjórinn tók því það ráð eftir skamma viðureign, að sigla skipinu í strand og var hann tekinn til fanga, ásamt skipshöfninni. Sjóliðarnir, sem áttu að eyðileggja skeytastöðina, komust hinsvegar und- an. Þegar þeir sáu endalok Emdens tóku þeir skonnortu, sem var þar á höfninni, á vald sitt og heppnaðist þeim að sigla henni til Tyrklands. Var það ferðalag mjög cefintýraríkt. þrautseigasti maðurinn í rikis- stjórninni, enda var þar fátt um skörunga. Hann var því sjálfkjörinn forsætisráðherra, þegar Baldwin lét af því starfi vorið 1937. (Framh. á 3. síðu) ^ . .................................... . ' '' Frá fyrsta fundi Chamberlains og Hitlers í Berchtesgaden Ragnar Ásgeirsson Ferðasaga FRAMHALD. En Hólakirkja gæti orðið enn fegurri en hún er. Til dæmis ef flutt væri þangað aftur eitthvað af því, sem þaðan hefir verið flutt og er nú í þjóðminjasafn- inu. Því á meðan að Hólakirkju er jafnmikil umhyggja sýnd og nú er, er geymsla þessara gripa tryggari þar, en uppí undir súð- inni í Safnahúsinu. Það er ógur- leg tilhugsun, að gömlu grip- irnir i þjóðminjasafninu geti eyðilagzt á stuttri stundu, ef eldur kæmi upp þar. Og á með- an að geymslan er svo ótrygg, ættum við íslendingar ekki að gera háværar kröfur um endur- heimt gamalla gripa frá útlönd- um. Að vísu hefir komið til mála að flytja þjóðminjasafnið í þjóð- leikhúsið. En það er engin lausn og yrði aðeins til tafar því að málið leystist svo, að safnið og framtíðin megi við una. — Og með því að flytja það í þjóð- leikhúsið væri þjóðleikhússmál- ið orðiö hneyklismál. — En af- sakið, góðir menn, því þetta kemur ferðasögunni ekki beint við, — en kemur í huga í sér- hvert sinn er talað er um vernd gamalla verðmæta. Þennan dag flutti ég tvo garðyrkjufyrirlestra yfir nem- endum skólans og nokkrum mönnum, er að voru komnir frá næstu bæjum. Á Hólum er all- mikil garðrækt og ennfremur á bæjunum í dalnum. Og uppskera hafði verið góð eftir þetta ein- staka sumar. Og sagt var mér, að sáð hefði verið til gulróta á einum bænum fyrir fáum dög- um. Það er sumstaðar gert er- lendis, að sá þeim á haustin og getur sjálfsagt gefist vel þarna nyrðra, þar sem staðviðri eru og tiltölulega laust við um- hleypinga. En tæplega myndi ég ráða til þess sunnan lands. En ræktun gulróta þyrfti að hundr- aðfalda í landinu, og það sem fyrst. Niður á Hólatúninu eru akrar og garðar. Þar stendur enn dá- lítið af grænkáli og fóðurmerg- káli. Þar er kindahópur á beit, hvítar og svartar, og hinar svörtu allar í hóp. Þótt ekki sé ég fjárglöggur, sé ég þó, að ekki er þetta venjulegur fénaður og fer að skoða. Og þetta eru þrjú fjárkyn. Það skozka hvítt og með skrítið höfuðlag, hitt kolsvart karakúlfé, með fituklumpinn á dindlinum og með nærri því laf- andi eyru. Það eru þær, sem halda hópinn og alltaf hlaupa saman í hnapp ef þær halda að hætta sé á ferð. Þriðja kynið er það íslenzka og það er fegurst — i mínum augum, og auðséð á þeim kindum að þær eru „inn- bornar“ í óteljandi ættliði. En nú er aðeins fátt af því heima við, því flestar kindur voru hlaupnar á fremstu grös þessa fyrstu og blíðu daga vetrarins. Fremsti bærinn í Hjaltadal er Reykir. Eins og nafnið bendir til, er þar jarðhiti. Vegna þess og annars, langaði mig að koma þar. Það sýnist stutt að Reykjum frá Hólum, en eru þó um 9 km. Á Reykjum býr Ástvaldur Jó- hannesson og hefir búið þar lengi. Hann var í Hólaskóla fyr- ir um hálfri öld. Ástvald bónda hitti ég á Hólum, en hann var þá á leið „út í Krók“ sér til heilsubótar, gamli maðurinn. Hann var skólabróðir Gissurs í Drangshlíð og Ólafs á Sólheim- um og bað mig að skila kveðju til þeirra, en þar sem ekki er víst að ég sjái þá fyrst um sinn, sendi ég hana áfram þessa leið- ina. En föstudagsmorguninn fylgdi Kristján Karlsson mér fram að Reykjum á hestum. Ég rek aug- un í ístöðin um leið og ég fer á bak, því svona ístöð eru hvergi smíðuð nema í Skaftafellssýlun- um, svo ég viti. Og það stendur heima, þau eru eftir einn af sonum Eiríks á Fossi á Siðu. Það er fagurt að sjá til fjall- anna þennan morgun, og fram- undan sjáum við Hólabyrðu og Hagafjall, Hafrafell og Fúin- hyrnu. Ekki veit ég hversvegna hún ber þetta nafn, því mér sýnist vera eins gott í henni og hinum fjöllunum. Við erum klukkutíma að Reykjum, förum hægt og komum hvergi við. Það fyrsta sem ég tek eftir heima á Reykjum er flúnkurný sláttu- vél. Ójá. En þeir hafa notað hana í 9 ár. Svona á að halda vélunum við — og hvað skyldi þessi geta verið lengi eins og ný, með svona góðri umhirðu? En það var jarðhitinn á Reykj- um. Lindirnar heitu eru um 200 metrum fyrir neðan bæinn, á svæði, sem ekki er mjög stórt um sig. Annars getur hitasvæð- ið verið stærra en það sýnist, því að þarna er raklent. Heitasta uppsprettan mældist mér vera 51°. Þarna eru garðar, en ekki stórir um sig. En þarna eru merkilegar fornmenjar, sem sýna hver not menn höfðu fyrr- um af heita vatninu. Það er gömul upphlaðin laug, sem heit- ir Biskupslaug, sökum þess, að Hólabiskupar fóru þangað til laugar. Þessarar laugar er enn- fremur getið í Laxdælu. Og þarna er fleira, hin svonefnda „Vinnufólkslaug", því að ekki þótti viðeigandi að vinnulýður^ inn baðaði sig í sömu lauginni og hálfheilagir biskupar. En ekki sést nú fyrir þeirri laug, því að hlaðið hefir verið fyrir neðan og gerð uppistaða, sem nú er notuð fyrir sundlaug, og þar eru leifar vinnufólkslaug- arinnar á botninum. Jóhannes, sonur Ástvaldar bónda, sýndi okkur umhverfið og er við höfðum athugað það, héldum við heim til stofu. Bær- inn er því miður alllangt frá heitu lindunum og fyrir ofan þær, svo kostnaðarsamt mun að leiða hitann heim. Allhátt uppi í fjalli, fyrir ofan bæinn, bend- ir Jóhannes okkur á stað, þar sem heit uppspretta er einnig. En hiti er þar litill og vatns- magnið lítið. Og ekki þykir mér sennilegt, að jarðhitinn á Reykjum fái þýðingu svo um muni fyrir aðra bæi. Til þess virðist hann of lítill og hita- svæðið ekki stórt. Heima við bæinn, sunnan megin, standa reyniviðir 25 ára gamlir. Fagrir eru þeir á vorin með sínu nýútsprungna græna laufi. Fegurri þó þegar hin hvíta blómamergð glitrar angandi I sólskini. En fegurstir máske þó þennan fagra haustdag, þegar varla sést í greinarnar fyrir eldrauðum berjum. Og sjaldan hefi ég séð jafn mikinn ávöxt á reynivið og þarna á Reykj- um. En þetta er líka í fyrsta sinn, sem reynirinn þarna hefir farið í rauða skrúðann — aftur eitt táknið upp á hið blíða vor, sumar og haust. — Inni bíður kaffið á borðinu og við gerum því góð skil. Og ég rek strax augun í gamlan skáp með út- skornum fjölum í hurðinni. Þær eru úr kirkju, sem stóð ein- hversstaðar i Svarfaðardal og var rifin fyrir nokkrum áratug- um. Þetta er auðséð, því ég hefi áður séð þrjár samskonar fjalir á Dalvík og þetta er prýðilega skorið. Ekki máttum við Kristján sitja lengi í stofunni hjá Jó- hannesi, þvi að ég þurfti að lesa yfir Hólamönnum seinnipart dagsins. Þökkuðum því góðar viðtökur og héldum heim til

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.