Morgunblaðið - 07.07.2006, Blaðsíða 1
2006 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ BLAÐ C
FH-INGAR ERU KOMNIR MEÐ TÓLF STIGA FORSKOT / C2, C3
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
AXEL Ásgeirsson, fimmtán ára
gamall kylfingur úr GR, gerði sér
lítið fyrir sl. mánudag og náði
albatrosa – en svo kalla kylfingar
þann sjaldgæfa viðburð þegar
kylfingar leika holu á þremur
höggum undir pari. Axel var við
leik á meistaramóti klúbbsins í 15–
18 ára flokki á Grafarholtsvelli og
gerði sér lítið fyrir og lék 4. hol-
una sem er par fimm og 454 metr-
ar að lengd af hvítum teigum, á
tveimur höggum.
Axel segir að teighögg hans hafi
stöðvast 150 metra frá fremri
flatarbrún eftir upphafshöggið og
hann hafi notað járnkylfu númer
sex í innáhöggið.
Þar sem flötin sem tekin var í
notkun í síðasta mánuði er upp-
hækkuð sá hann ekki ferð boltans
á flötinni. ,,Ég gerði mér hins veg-
ar strax ljóst hvað hafði gerst, því
að Gunnar Marteins og Birgir
Már, starfsmenn GR, sem voru að
fylgjast með keppninni við fjórðu
flötina, hoppuðu af gleði og æptu,
segir Axel sem notaði aðeins tólf
högg á fyrstu fjórar holurnar og
var því fjórum höggum undir pari.
Hvort sem aukin taugaspenna
eftir höggin góðu á fjórðu braut-
inni var um að kenna eða ein-
hverju öðru náði hann ekki að
fylgja glæsilegri byrjun sinni eftir,
en hann lauk hringnum á 77 högg-
um og blandaði sér því ekki í bar-
áttuna um sigurinn í flokknum.
Sjaldséð
fuglategund
í Grafarholti
Eftir Frosta Eiðsson
Morgunblaðið/Frosti Eiðsson
Axel Ásgeirsson er hér á flötinni á fjórðu braut, sem er par
fimm. Axel lék brautina á aðeins tveimur höggum.
Blöðin fundu liðinu og þjálfaran-um allt til foráttu eftir fyrstu
leiki liðsins á HM en eftir sigra á
Brasilíumönnum og Portúgölum
halda blöðin ekki vatni yfir snilli
leikmanna liðsins og þjálfarans.
,,Stórkostlegt“ var fyrirsögnin í
Le Parisien. „Vítaspyrna frá meist-
aranum (Zidane) dugði til að sigra
Portúgal og nú liggur leiðin til
Berlínar,“ segir ennfremur í Le
Parisien.
,,Guð er með okkur,“ segir í
France Soir. „Eftir að hafa lagt
Spánverja, Brasilíumenn og Portú-
gala hefur Zidane leitt franska liðið í
úrslitaleikinn og þarf að sigra Ítali.“
,,Þeir hafa náð markmiði lífsins“
er aðalfyrirsögnin í franska íþrótta-
blaðinu L’Equipe. ,,Nú verða Frakk-
ar að vinna úrslitaleikinn og kveðja
Zidane á viðeigandi hátt. Það yrðu
mikil vonbrigði fyrir hann að hætta
eftir tap í úrslitaleik. Þeir bláu geta
samt verið stoltir af því sem þeir
hafa afrekað,“ segir í L’Equipe.
,,Sunnudagur í Berlín“ er fyrir-
sögnin í Liberation. ,,Sigurinn á
Portúgal og sæti í úrslitaleikinn var
miklu meira en menn þorðu að
vona.“
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út
í Frakklandi í fyrrakvöld eftir sig-
urinn á Portúgölum. Ungir sem
aldnir stigu stríðsdans sem tók sinn
toll því tveir liggja í valnum, 20 ára
karlamaður og 18 ára stúlka, og
nokkur fjöldi fólks er slasaður. Í
París safnaðist hálf milljón manna
saman á Champs-Elysees og í Lyon
og Marseille, heimabæ hetjunnar Zi-
nedine Zidane, stóðu fagnaðarlætin
fram undir morgun. ,,Zizou, Zizou“
hrópaði fólk en enn og aftur er Zid-
ane kominn í guða tölu hjá Frökk-
um.
Fagnaðarlætin breiddust út til
Alsír en í bænum Aguemoune, sem
er í 260 kíllómetra fjarlægð frá
Algeirsborg, búa foreldrar Zidane.
Íbúar bæjarins fylgdust með hverju
sparki í leik Frakka og Ítala og á
kaffihúsinu í bænum, „Cafe de
Zizou“, sem er skírt í höfuðið á Zid-
ane, var mikil sigurhátíð og eins og
vertinn hafði lofað bauð hann upp á
drykki í boði hússins.
Reuters
Mikil gleði braust út í Frakklandi eftir sigurinn á Portúgal og hér er fagnað við Effelturninn í París.
Frakkar í sigurvímu
FRÖNSKU blöðin hafa heldur betur snúist við í umfjöllun sinni um
franska landsliðið og þjálfarann Raymond Domenech – eftir sig-
urinn á Portúgal á HM í Þýskalandi og þegar ljóst er að Frakkar leika
sinn annan úrslitaleik á HM á átta árum, eða síðan Frakkar urðu
heimsmeistarar í París 1998.
ÓLAFUR H. Kristjánsson var í gær ráðinn þjálf-
ari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Hann tek-
ur við af Bjarna Jóhannssyni. Ólafur, sem þjálfaði
síðast Fram sl. keppnistímabil, mun stjórna Blik-
um í leik í Landsbankadeildinni gegn Val í Laug-
ardal á sunnudaginn. „Fyrsta markmiðið er að
reyna að landa þeim þremur stigum sem eru í
boði,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið. Í frétta-
tilkynningu frá Breiðabliki segir að mikils sé að
vænta af störfum Ólafs, en sjálfur gat hann ekki
útskýrt hvað felist í því orðalagi. „Þú verður að
spyrja Blikana að því. Ég geri bara ráð fyrir því
að þeir vænti þess af mér að ég sinni mínu starfi
eins vel og heiðarlega og ég get. Þá er ekki hægt
að biðja um meira frá mér. Ég ræð því ekki hvort
stigin detta inn eða ekki. Ég get unnið þannig að
við eigum meiri möguleika á því,“ segir Ólafur.
Ólafur tekur
við Breiðabliki