Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 12
3JA RÉTTA HÁDEGISSEÐILL Mánudaga til föstudaga frá 11.30–14.30 GASTROPUB SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is • FORRÉTTUR • AÐALRÉTTUR Veldu kjöt eða fisk • EFTIRRÉTTUR 2.800 kr. SKOÐAÐU MATSEÐILL VIKUNNAR Á @saetasvinid 12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 21. október 2016 Jakob Valgeir segist hins vegar ekkert kannast við félagið. „Ég hef aldrei heyrt þetta nafn áður. Ég skil ekki hvernig ég á að tengjast þessu. Ég veit ekki hvernig stendur á þessu.“ Ekki er hægt að fullyrða að Jakob Valgeir segi ekki satt þrátt fyrir tengingu hans við félagið í gögnum Mossack Fonseca. Jakob Valgeir segir aðspurður að hann hafi ekki átt neitt aflandsfélag eða -félög. „Ég átti ekki neitt slíkt; ég skil ekki hvað þú ert að tala um.“ Sjólasystkinin í skattaskjóli Í gögnunum frá Mossack Fonseca eru einnig upplýsingar um eignarhalds- félög sem meðlimir fjölskyldunnar sem rak Sjólaskip í Hafnarfirði um árabil áttu. Sjólaskip var fjölskyldu- fyrirtæki Jóns Guðmundssonar og var stofnað árið 1992 og tóku börn hans svo við útgerðinni. Jón sjálfur var með prókúruumboð fyrir einu félagi á Tortólu sem hét Sarin Sy- stems Ltd. og var stofnað árið 2001. Eiginkona hans, Marinella R. Har- aldsdóttir, var einnig með prókúru- umboð fyrir umrætt félag. Sjólaskip átti meðal annars útgerð á Kanaríeyjum sem fyrirtækið seldi til Samherja árið 2007 fyrir nokkra milljarða króna. Um var að ræða verksmiðjutogara sem veiddu hesta- makríl meðfram strönd Vestur-Afr- íku, aðallega Máritaníu. Miðað við Panamaskjölin seldi fjölskyldan Afr- íkútgerðina í gegnum þessi aflands- félög sín. Samherji rak útgerðina áfram fram til ársins 2013 þegar hún var seld til rússnesks fyrirtækis. Í gögnunum er líka meðal annars fjallað um félag Guðmundar Jóns- sonar í Sjólaskipum, Champo Cons- ulting Ltd. á Tortólu. Guðmundur vill ekki ræða um félag sitt við Frétta- tímann og neitar meðal annars að gefa upp hvort félag hans var notað til að halda utan um eignarhald á út- gerðum. „Ég hef ekkert um þetta að segja. Þetta er bara mitt mál.“ Guð- mundur vill heldur ekki svara því hvort hann noti ennþá slík félög á aflandssvæðum. Fjögur af systkinunum úr Sjóla- skipum eru í gögnunum frá Mossack Fonseca en auk Guðmundar er þar að finna Harald Jónsson, Berglindi Jónsdóttur og Ragnheiði Jónu Jóns- dóttur. Afrit af vegabréfum þeirra allra er að finna í gögnunum. 70 milljóna lán frá Tortólafélagi A n n a r ú t ge rð a r m að u r í Panamaskjölunum er Örn Erlings- son sem fyrr á þessu ári seldi útgerð sína Sólbakka ehf. til Stakkavíkur í Grindavík. Um var að ræða snur- voðarbát og 1000 þorskígildistonna kvóta. Örn sagði í viðtali við Við- skiptablaðið að grundvöllur út- gerðarinnar væri brostinn þar sem greiðslur og álögur til ríkisins væru svo miklar. „Þá er maður kominn í vinnu fyrir hið opinbera,“ var haft eftir Erni í Viðskiptablaðinu og var ljóst að hann sæi eftir því sem út- gerðin þurfti að greiða í ríkiskass- ann. Örn var hluthafi og prókúruhafi félagsins Artic Circle Corp í Panama sem lánaði útgerðarfélagi hans á Ís- landi, Unga ehf., 70 milljónir króna árið 2006. Ungi ehf. var móðurfélag útgerðar Arnar, Sólbakka ehf., og hagnaðist félagið um rúman millj- arð króna í fyrra, samkvæmt árs- reikningi félagsins. Artic Circle Corp keypti einnig hlutabréf í Unga ehf. af fyrirtæki sem heitir Palli Egils ehf. á Selfossi og er kaupsamninginn að finna í Panamaskjölunum. Félag Arnar í Panama stundaði því bæði lánastarfsemi til útgerðarfélags hans á Íslandi og einnig hlutabréfa- viðskiptii með bréf í móðurfélagi Sólbakka, Unga ehf. Örn var staddur erlendis þegar Fréttatíminn náði tali af honum. Hann gaf ekki færi á viðtali eft- ir að blaðið nefndi nafn félagsins í Panama við hann. Blaðið náði svo ekki í hann aftur. Vildi sleppa við skatta í Danmörku Einn eigandi fiskbúðar á Íslandi er í Panamagögnunum, Kristján Berg Ásgeirsson sem rekur Fiski- kónginn í dag. Félag Kristjáns Berg var stofnað árið 2006 á Seychelles- -eyjum og heitir Solberg Group Ltd. Ráðleggingar. „Ég seldi fyrirtæk- ið mitt, Fiskbúðina Vör, og flutti til Danmerkur þar sem skattar eru sextíu og eitthvað prósent. Ég var með einkabankaþjónustu í Lúxem- borg og þeir ráðlögðu mér þetta. Ef ég hefði verið skattaður í Danmörku hefði öll vinna mín síðastliðin 25 ára farið í danska ríkið. Og ég hafði voðalega lítinn áhuga á því. Ég borg- aði skatta af sölunni á Íslandi en ég vildi ekki fara með peningana til Danmerkur út af skattinum. Ég ætl- aði ekki að láta danska ríkið hirða af mér restina.“ Kristján Berg segir að hann hafi lagt peningana inn í félagið á Seychelles og svo tapað því í hrun- inu. „Ætli ég hafi ekki tapað svona 200 milljónum á hruninu. Ég flutti svo bara aftur til Íslands og er bara búinn að vinna baki brotnu síðan. Ég kann ekkert í fjárfestingum; ég er bara fisksali og hef alltaf bara verið það. Ég treysti öðrum mönnum til að gefa mér ráðleggingar um þetta. Ég vissi ekki betur á þessum tíma en að þetta væri í lagi. Ég var þrjátíu og tveggja ára og hélt ég gæti bara hætt að vinna og lifað á þessum pening- um. Það er leiðinlegasta starf sem ég hef verið í.“ Hann segist vera löngu hættur að nota félagið. Er þetta einkamál? Þó ýmsir, eins og Kristján Berg Ás- geirsson, séu fúsir til að tala í löngu máli um viðskipti aflandsfélaga sinna þá getur verið erfitt að fá aðra til þess, eins og sést hér. Valborg María Stefánsdóttir, sem skráð er fyrir einu Tortólafélagi sem heitir Maser Shipping ásamt manni sínum, Gunnlaugi Konráðssyni, segir að það komi engum við af hverju hún stofn- aði félagið. „Í hvaða tilgangi ertu að spyrja að þessu? Ég veit ekki af hverju ég á að gefa þér upplýsingar um þetta. Það er neikvæð umræða um þetta. Mér finnst þér ekkert koma þetta við. Ég ætla bara að eiga þetta allt fyrir mig.“ Spurningin er hins vegar hvort að notkun á aflandsfélögum í skatta- skjólum sé sannarlega aðeins einka- mál hvers og eins og Valborg vill meina. Með notkun Íslendinga og annarra á skattaskjólum verða ríki heimsins af miklum skatttekjum á hverju ári. Þó ekki sé hægt að full- yrða að allir sem noti aflandsfélög svíki undan skatti þá eru ástæður fyrir því að fjárfestar velja slík fé- lög en ekki fyrirtæki sem ekki eru í aflands- eða lágskattasvæðum. Þrátt fyrir að átta ár séu liðin fyrir íslenska efnahagshruninu, og þrátt fyrir að mikil umræða hafi verið um skattaskjól í samfélaginu á liðnum árum, þá áttu Íslendingar til dæm- is ennþá 32 milljarða króna eignir á Bresku Jómfrúareyjum í árslok í fyrra. Vandamálin sem aflands- félögin búa til – á milli 450 og 700 milljarðar króna voru sviknir und- an skatti á árunum 2000 til 2008 samkvæmt mati hagfræðinganna Jóhannesar Hraunfjörð Karlssonar og Þórólfs Matthíassonar – virðast því alls ekki heyra sögunni til á Ís- landi. Það sem Valborg vill meina að sé einkamál er því bara alls ekkert einkamál heldur hagsmunamál allra í samfélaginu. „Ég hef ekkert um þetta að segja. Þetta er bara mitt mál.“ Guðmundur Jónsson í Sjólaskipum „Ég kann ekkert í fjár- festingum; ég er bara fisksali og hef alltaf bara verið það. Ég treysti öðrum mönnum til að gefa mér ráðleggingar um þetta. Ég vissi ekki betur á þessum tíma en að þetta væri í lagi.“ Kristjón Berg Ásgeirsson í Fiskikónginum Systkinin sem erfðu Sjólaskip í Hafnarfirði stýrðu öll félögum í skattaskjólum í gegnum Mossack Fonseca. Gögnin sýna að sala þeirra á Afríkuútgerð sinni til Samherja árið 2007 fór að hluta að minnsta kosti fram í gegnum þessi félög sem skráð eru á Tortólu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.