Vísir - 14.09.1928, Blaðsíða 2
Ví SIR
ll)) ftomíNi I Olsbni CÉ
æ
æ
Höfum tils
æ
æ
Biue Cross, meí> 6 í pakka.
Hollandia. — 8 —
Baacon — 36 —
Sömu góðu teg. og áður.
æ
Fypipliggandi:
Burstavörur allsk., handkofort 30—35 cm.,
galv. fötur og balar, gólfmottur 3 teg., og
margt fleira.
A. Obenliaupt.
Símskeyti
Khöfn, 13. sept., F.B.
Samsæri á Spáni uppgötvað.
Frá París er sítnaö: Spánverska
lögreglan hefir uppg'ötvað samsæri
gegn einræöisstjórninni. Voru sam-
særismennirnir rnjög fjölmennir og
var ætlun þeirra, aö hefja byltingu
í dag, á fimm ára afmæli einræð-
isins. Setuliöið í Barcelona hét
byltingamönnunum stuðningi. Yfir
eitt þúsuncl menn hafa verið hand-
teknir víðsvegar á Spáni, þar á
meðal merkir stjórnmálamenn,
blaðantenn, lýðveldissinnar,' verka-
menn og liðsforingjar. Ströngu
skeytaeftirliti hefir verið komið á
i landinu.
Kosning fylkisstjóra í Mainefylki.
Frá Washington er símað : Við
ríkisstjórakosningu í ríkinu Maine
fékk ríkisstjóraefni repuhlikana 97
þúsund atkvæði, en ríkisstjóraefni
demokrata 39 þúsund atkvæöi. Úr-
slitin hafa aukið vonir repuhlikana
um sigur við forsetakosninguna í
nóvember. Demokratar, hinsvegar,
halda því fram, að ríkisstjórakosn-
ingin verði ekki notuð sem mæli-
kvarði viðvíkjandi horfum urn for-
setakosninguna.
ítölsk leitarskip halda heim.
Frá Rómaborg er símað: Citta
di Milano og Braganza fara heim
á næstu dögum, þar eð versnandi
veður með haustinu gera erfitt að
ltalda áfram leitinni á ishafinu.
Krassin heldur áfram að leita.
Frá Moskva er símað : Krassin
er norðan við Spitzbergen. Sjuk-
novski hóf flugferðir í gær, í þeirn
tilgangi, að leita að loftskipa-
flökknum.
Khöfn, 14. sept., F.B.
Utanríkismál ítalíu.
Frá Rómaborg er simað: I ías-
cistablaðinu Tevera hefir birtst
grein, sem hefir vakið mikla eftir-
tekt. Er því haldið fram í grein-
inni, að æskilegt væri að hreyta til
um stefnu í utanríkismálum ítalíu.
Telur hlaðið hina svo kölluðu
bresk-ítölsku vináttu eingöngu tóm
orð, setn enga raunverulega jtýð-
ingu hafi, og álítur þess vegna, að
Italía eigi að gera bandaíág við
önnur ríki, sent vilja hreyta nú-
verandi ’stjórnmálaástandi í Ev-
rópu. Nefnir blaðið til Rússland,
ef til vill Þýskaland, Tyrkland og
önnur ríki, þar sem ráðandi menn
hafa hvatt til breytinga á ýmsum
sviðum. Svipuð skoðun og fran:
kemur hjá hlaðinu, hefir komið
fram og verið rædd mikið á ýms-
um fundum, sem Fascistar hafa
haldið undanfarið víðsvegar uifi
ítalíu.
Fimn*eidin,
Þriðja hefti 1928 er komið út
fyrir nokkuru og flytur þetta cfni:
,,Haustnótt“, kvæði eftir Sigurjón
Friðjónsson; „Gáta geimsins", eft-
ir Einar Benediktsson; „Útvarp og
n;enning“, eftir Gunnlaug Briem;
„Frá Grímsey og Grímseyingum“,
eftir Steindór Sigurðsson; „Litið
til baka“, kvæði eftir Herdísi And-
résdóttur; „Sjötíu ára“, kvæði eft-
ir Ólínu Andrésdóttur; „Þjóðlygar
og þegnskylda“, eftir Svein Sig-
urðsson; „Réttadagar“, eftir Berg-
stein Kristjánsson ; „Vaskir dreng-
ir“, eftir Sv. S.; „William Shake-
speare“, eftir Richard Beck ; „Val-
týr Guðmundsson látinn“ (með
rnynd); „Lifa látnir?“ (frh.) eftir
Svein Sigurðsson; „Veraldarsýn“
cg „Horfin ljúflingalönd", kvæði
eftir F. W. H. Myers (Jakob Jóh.
Smári íslenskaðif. Loks er „Radd-
ir“ og „Ritsjá“. — Núverandi rit-
sljóri „Eimreiðarinnar“ hefir lagL
mikla stund á að gera hana aö
fróðlegu og skemtilegu tímariti og
honum hefir tekist það. í þessu
síðasta hefti eru þrjár merkilegar
ritgerðir, hver annari betri. Eru
það ritgerðir þeirra Gunnlaugs
Briem, verkfræðings, dr. Ri.chards
Beck, og ritstjórans um „Þjóðlyg-
ar og þegnskyldu“. Er öllum gott
Sænsku
Biliidirs-kjiticiiriiinar,
eru ekki aðeins þær bestu,
heldur jafnframt liinar lang-
ódýrustu - - Fást í
Versl. B. H. BJARNASON.
að lesa ritgerðir þessar með at-
hygli og ]tá ekki síst ritgerðina
um „Þjóðlygarnar“.— Er þar með-
al margs annars drengilega ráðist
á stjórnmálaspillinguna í landinu
og flolcksþ'rælkunina. Þá er og
nokkuð minst á „fítonsanda frarn-
hleypninnar“ og aðra stórgalla,
sem óneitaúlega einkenna nú einna
mest suma stjórnmála-pjakka
landsins, þá er hæst hafa um sig
og þykjast öllurn fótum í jötu
standa. — Ætti kjósendur alment
að lesa grein þessa rækilega, en að
lestrinum loknum „getur hver cinn
skygnst um sína sveit“.
Vegabætur við Itöfnina.
A jtessu ári hefir verið unnið all-
tnikið að vegabótum við höfnina.
Er nú verið að ganga frá áfram-
haldi Tryggvagötu, frá Stein-
bryggjunni að Verkamannaskýl-
inu. Hefir gata þessi verið breikk-
uð mikið þannig, að hleðslan á
sjávarbakkanum hefir verið færð
almikið út. Verður sæmilega hreið
gangstétt á hakkanum, og er ti!
mikilla hóta að fá hana, þvx að
jtarna hefir alt til þessa verið ill-
fæt gangandi mönnum mikinn
hluta ársins. En mikil nauðsyn er á
því, að góð girðing eða sæmilega
há steinbrík sé sett á götubrúnina
út að höfninni. svo að ekki sé hætt
við, að menn gangi fram af gang-
st.éttinni í sjóinn. Er t. d. ósenni-
legt, að aldrei verði þarna ölvaður
maður á gangi, þótt nú sé mikið
gurnað af gæslu bannlaganna. Og
þarf raunar ekki að vera drukk-
in.n til að fara fram af, ef hálka
er eða myrkur.
Þar sem líkt hagar til og þarna
hiá öðrum Jtjóðum, er það víða,
að ekki eru aðeins girðingar, held-
ur hjörgunarhringir á liverju strái,
og jafnvel fest upp spjöld með ná-
kvæmum leiðbeiningum um lífg-
un á druknuðum mönnum. Er ekki
fyrir ]tað að synja, að slíkar leið-
hciningar geti oft kornið að ltaldi,
og íslendingum væri alveg skamm-
laust að taka sér meiri þjóðir til
fyrirmyndar í þessu efni.
Auk þessa hefir vegurinn verið.
Itreikkaður og hlaðinn upp hakk-
inn frá eystri hafnargarðinum að
Klöpp. Á vegur þessi að ná alllangt
inn með sjónum og heitir Skúla-
gata. Verður hann, þegar til kem-
ur, höfttð flutningabrautin frá
höfninni inn úr bænum. Þarf hann
sent fyrst að komast a. m. k. inn
aö Barónsstíg, því að fyr kemur
hann ekki að fullu gagni. Ekki er
enn farið að ganga frá vegi þess-
urn, og er nauðsynlegt, að þar verði
það athugað unt fráganginn á
sjávarbakkanum, sem hér að frarn-
an var sagt um framhald Tryggva-
götu.
1 !n ngangsorðið í „reglnna" er: 1 „tuttugu og fjórar r™“| hæfllega stdrar“ 1 1 „SPECIALS“. | |
L
Senn mun eg geta farið að fullnægja þeim mörgu
pöntunum, sem fyrir Jiggja hjá mér, á hinum nýju
F ord-f lutningabílum.
Þeir, sem enn ekki hafa pantað nýja Ford, ættu
að gera það sem fyrst, því eftirspurnin verður afar-
mikil, ;og þeir sem fyrst panta, verða fyrst afgreiddir.
Til upplýsingar fyrii; eigendur og væntanlega eig-
endur að nýja Ford, leyfi eg mér að tilkynna, að til-
tölnlega verður sama alþekta lága Ford verð á vara-
hlutum til nýju Ford-bílanna, svo sem í þá gömlu.
Sveinn Fgilsson,
Umboðsmaður fyrir Ford.
Sími 976.
Kápnefni og
Kápnskinn
nýkomið meS Gullfossi i
miklu úrvali.
Sanmastofan
Þingholísstræti 1.
Á sama stað getur stúlka
fengið að læra að sauma.
Það er til mikillar óprýði, að
ftantan á hleðsluna. þarna hefir
verið fleygt uppgrefti úr ,hús-
grunnum eða þvílíku. Er það til
óþrifnaðar framan á fallegri
hleðslunni, en þarna verður það
vafalaust að sitja, þar til sjórinn
sópar því burtu. Vinnubrögð eins
og þessi eru þeim ntun leiðari, sem
auðveldara er að komast hjá þeim.
Nú er t. d. verið að hreikka Skúla-
götu milli Klappar og Kveldúlfs-
bryggju, og er ekið möl alla leið
úr Eskihlíð, til að fá efni í upp-
fyllingu þá, er þarna er gerð. Er
undarlegt, ef ekki hefir verið hægt
að láta uppgröftinn, sem framan á
hleðslunni situr nokkurum föðtn-
um nær höfninni, koma þarna að
70 ái*a reynsla
og vísindalegar rannsóknir
tryggja gæði kaffibætisins
enda er hann heimsfrægur
og hefir 9 s i n n u m hlot-
ið gull- og silfurmedalíur
vegna framúrskarandi gæða
sinna.
Hér á landi hefir reynslan
sannað að VERO er miklu
betri og drýgri en nokkur
annar kaffibætir.
Notið að eins VERO.
það marg borgar sig.
f heildsölu hjá
HALLDÓRI EIRÍKSSYNI
Eafnarstæti 22. Reykjavík.
gagni. Loks vil eg benda á, að
hentugt væri að setja stutta
hryggju einhvers staðar fram úr
Skúlagötu sem væri höfð til þess
eins, að fleygja fram af henni rusli,
sem annars er hent fratn af götu-
brúninni og liggur þar til mikils
óþrifnaðar. Ef þessi bryggja væri
gerð, mætti fleygja öllu slíku rusli
beint í sjóinn.
L. M.