Morgunblaðið - 17.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.1919, Blaðsíða 1
Mánudag 17, febr. 1919 6. argangr 96. tfílublaf "■ 1 ... - rr=r' Ritstjómarsími nr. 500 .—t: ■■ ■■■■■„ ... ; -=r.' Erl simfregnir. Frá (réttaritara Morgunblaðsins Khöfn, 15. fehr. Friðarfunduriun hefir samþykt lög um alþjóðasamband. Michelsen hefir gefist upp við að mynda nýja stjórn í Noregi. Mannerheim hefir orðið yeikur í Btokkhólmi og heimsókn hans til Kaupmannahafnar er frestað. - Gengi erlendrar myntar. 100 krónur sænskar 107.85 100 krónur norskar 105.10 Sterlingspund 18.26 100 dollarar 383.50 Á sextugsafmæH Jóns Magnússonar forsætisráð- herra (16. jan.) flytja „Berlingske Tidende“ um hann alllanga grein með mynd. Segir í þeirri grein svo, meðal annars: „Það mun tæplega finnast varkárari og þöglari stjórn- málamaður á Norðurlöndum held- ur en Jón Magnússon.....Hann ltann að starfa; hann liefir víðtæka ! þekkingu, er gagnkunnur Dana- málum, og hann er sá „diplomat“, sem hinir æstu samþingismenn hans hafa jafnan treyst á þegar vanda bar að höndum. Þess vegna var líka leitað til hans þegar deilan milli Dana og Islendinga liarðnaði í fyrravetur, jafnframt því sem ís- lenzku flokkarnir voru hver íiðrum andvígari en nokkru siimi fyr. Hann greip stjórnvölinn með traustri hönd, þögull, gætinn en þó stefnuvissari en fyrri stjórnmála- menn fslands. Og hann setti stefn- una þegar á fullveldi íslauds. Flokkana fékk hann fljótt með sér ■ og sama trausts og hann naut á ís- landi aflaði hann sér í Kaupmanna- höfn. Nú komst skriður á málið og því lauk með Sambandslögunum nafnkunnu. Það er Jóni Magnússyni framar öllum öðrum íslendingum að þakka að hinum vandasömu samningum lauk svo friðsamlega. Jón Magnús- son skilur danskan hugsunarhátt. Friðsamlega, gætilega og diploma- tiskt greiddi hann úr<vandræðun- um jafnan. Hin yfirlætislausa og ujartanlega gestrisna hans og konu iians gerði dönsku nefndarmönnun- u® dvölina í Reykjavík ánœgju- Kaupirðu góðan hlut, $á mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen lega og* viðkunnanlega. Danir þeir, sem voru á íslandi í sumar, fengu þá skoðun á Jóni Magnússyni, að þótt hann sé fyrst og fremst ís- lendingur og* ekkert annað en ís- lendingur, þá eigi þó Danmörk og dönsk menning, þar sem hanu er, tryggan og vitran vin, sem vill leggja alt kapp á drengilega og góða samvinnu milli íslands og Danmerkur undir hinum nýja sátt- mála.“ Island — Færeyjar. Samband við Noreg. Bum norsk blöð eru nú að ræða um það að Færeyjar og fsland eigi ekki lengur að vera í sambandi við Ðanmörk, heldur sameinast móður- landinu Noregi. Þannig skrifar t. d. „Nationen“ : — Land vort á því láni að fagna, að það þarf ekki að gera stórar kröfur þá er ferið verður að breyta Norðurálfukortinu.......Það ætti eng'um að koma á óvart, þótt Dan- mörk tæki til athugunar afstöðu sína gagnvart íslandi og Færeyj- um, um leið og suðurjózka málið ér tekið til meðferðar. Vér skulum láta ósagt, hvort nokkur sérstakur áhugi sé fyrir því liér í landi, en á hinn bóginn er það trúa vor, að íbúarnir í þessum útkjálkalöndum ættu að fá að láta uppi á.lit sitt nú, þá er þjóðernisskiftingin á að verða grundvöllur hinna miklu land- breytinga í álfunni. En hvað sem öðru líður, þá er sú grafþögn, sem hvílir yfir íslandi og Færeyjum, ekki í samræmi við pólitík tímans yfirleitt. Hér er þó ekki um að ræða nein viðkvæm mál, oða þýðingarmikla viðskiftahags- muni, heldur er um að ræða að fá ráðið hreint fram úr þjoðasifjum, og hú er einniitt tím.inn til þess að ræða þetta blátt áfram og öfga- laust.----- í blaðið „Nidaros“ skrifar ein- liver Johs. Ekker: —- f blaðinu „Nidaros“ hefir hvað eftir aunað verið mælt fram með því, að þá er farið verður að gera upp álfubúið, verði þessi gömlu norsku lönd (ísland og Fær- eyjar) gefin Noregi aftur. Þetta er fullkomlega réttmætt og einkenni- legt, að enginn skuli hafa minst á það fyr. Þó má eigi gefa Noregi þessi lönd aftur nema því áð eins að þau vilji sjálf ganga í konungs- Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Péturason. IsafoldarprtntsmiQja jj samband við Noreg% CJm þessa kröfu ættu allir Norðmenn að sam- einast og vér væntum þess af stjórn vorri, að hún láti uú málið til sín taka. Nú eða aldrei. Vér höfum ekki ráð á því að missa þann menn- ingarlega hagnað, sem vér hefðum af nánara endursambandi norræna kynstofnsins.------ í „Moss Avis“ ritar einhver E. R. grein um Suðurjótland og Is- land. Er það aðallega skammagrein til „Politiken“ í sambandi við það sem hún hefir sagt um grein eftir þennan ritliöfund um Suður-Jót- land. En í því sambandi tekur liann upp þessa klausu úr „Politiken“ : „Norðmenn hafa enga þjóðernis- kröfu til íslands. Auk þess hafa Islendingar nú, í samræmi við grundvallarregluna um sjálfs- ákvörðunarrétt þjóðanna, samþykt það með yfirgnæfandi meirihluta, að halda sambandinu við Dani.“ — Sama lýgin upp aftur og upp aftur, segir E. R. Enn hafa íslendingar aldrei fengið tækifæri til, að greiða atkvæði á grundvelli sjálfsákvörð- unar um þjóðernisstefnuna. Með þjóðaratkvæði því, er nýlega var greitt, hefir Islendingum gefist tækifæri til þess að láta í ljós vilja, sinn í stjórnskipun inn á við, en þeim hefir ekki gefist kostur á að kjósa um það, samkvæmt þjóðern- isregiunni, hvort þeir vilji fylgja Dönum eða Norðmcnnum. Og þótt íslendingar hafi með þðssari at- kvæða greiðslu sameinast um sjálf- stætt og óháð konungsríki og ætla að nota Danakonung sem ríkishöf- uð, þá sýnir þetta alls eigi neitt sérstakt fylgi við Dani og má alls eigi takast sem sönnun fyrir þverr- andi rækt íslenzku þjóðarinnar við sitt gamla móðurland, en að sama skapi aukna rækt við Danmörk. Ef „Politiken“ vill fræða nor- nena alþýðu um það, að íslending- ar hafi æskt nánara, bandalags við Danmörk, þá hefði hann átt að velja til þess heppilegri stund en ]>á er ísland hefir slitið ríkistengsl- um við Danmörk og dregur upp þjóðfána sinn í fögnuði út af því, að vera nú laust uudan hinni höt- uðu Danastjórn.------- Þessari grein er aftur svarað seinna í sama blaði og þar segir meðal annars svo, að fæstir Norð- menn muni sakna þess að ísland og Færeyjar gengu undan Noregi fyr- ir 100 árum. Og að Noregur eigi að fá ísland aftur, sé mest undir því komið, að Islendingar sjálfir vilji slíkt samband, því að mót vilja þeirra sé það ekki hægt. En sann- Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Afgr*ið*ln*i»i ur. 609 leikurinn uiuni vera sá, að íslend- ingar kæri sig* ekkert um það) að komast undir Noreg. Þeir vilji ráða sér sjálfir (með Kristján 10. sem konung) og að miklar líkur séu til þess, að þeim muni takast það vel. Vér getum fallist á að það sé rétt, sem segir í þessari síðustu grein, að íslendingar muni ekki kæra sig um það, að komast í samband við Nor- eg. Að minsta kosti höfum vér eigí heyrt neinar raddir um það hér heima. Sjálfstæðisbarátta vor hefir ekki stefnt að því að losna við Dani til þess að komast undir einhverja aðra þjóð, heldur höfuin vér jafnan stefnt að því, að fá fullveldi í öll- um vorum málum. Nú mim það eigi vaka fyrir þeim Norðmönnum, sem um þetta mál rita, að ísland eigi á nokkurn hátt að vera „undir“ Nor- egi, heldur að eins í konungssam- bandi við Norðmenn. En vér sjáum eigi enn, hver hagur okkur ætti að vera að því, fremur en vera í kon- ungssambandi við Danmörk, eins og nú er. Kirkjuhfið á Seyðisfirði. Af því að eg er einn af kaupend- um Morgunbl., ætla eg að s'enda því dálítinn pistil um kirkjulíf vort, Seyðfirðinga,' og framtíðar- horfur þess. Er það eigi ófróð- legt fyrir biskup og kirkjuvöld að heyra um það. Og eg skal ekki þreyta menn með mikilli mælgi. Eigi þarf að lýsa staðháttum hér. Flestir vita, að bærimi skiftist í tvo aðalhluta. Aðalbærinn er Aldan og Búðareyrin, samvaxin. Þar eru tæp- lega 7/s íbúanna, en Vestadalseyr- in, með rúmlega % íbúanna, er næstum hálfa mílu út ineð firðin- um og eigi sein greiðfærastur veg- ur á milli, síst á vetrardag. Nú væri eigi ósanngjarnt að kirkjan væri þar sett í bænum, er flestir eru íbú- arnir. En það er síður en svo sé. Hún stendur einmana og oftast tóm úti áVestdalseyri, því varla er hægt að segja að bæjarbúar, hér innan að, ræki kirkjugöngu nema einu sinni á ári, þ. e. þegar fermt er. Hygg eg eigi ýkt, þótt fullyrt sé, að % allra bæjarbúa komi eigi í kirkju þessa nema i þetta eina siim, allan arsins hring. Af hverju kemur nú Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann< Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.