Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
33
Frá aAalfundi Sambands sveitarfélajfa i Austurlandskjördæmi. Ljósm.
Mbl. Jóh. D. Jónsson.
Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi:
Vilja orkufrekan iðn-
að í Reyðarf jörð
EKÍIsstöðum 28. áiníst 1980.
AÐALFUNDUR Sambands sveit-
arfélaKa i Austurlandskjördæmi
var haídinn á Vopnafirði dagana
21. —23. áKÚst sl. í framhaldi af
aöalfundi SSA var haldinn á
lauKardcKÍnum 24. ágúst fundur
sveitarstjórnarmanna ok alþing-
ismanna kjördæmisins um orku-
mál.
Mörg mál voru til umfjöllunar á
aðalfundinum, en mest bar þar á
aðalmáli fundarins, sjávarút-
vegsmálum. Kom fram hjá fund-
armönnum gagnrýni á kvótaskipt-
ingu sem kemur illa niður á
smærri byggðum á Austurlandi.
Meðal annara mála, sem fengu
langa, nákvæma og snarpa um-
ræðu var hugmyndin um orku-
frekan iðnað í Reyðarfirði. Aðeins
einn fundarmanna mælti eindreg-
ið gegn orkufrekum iðnaði í Reyð-
arfirði, en alþingismaðurinn Helgi
Seljan frá Reyðarfirði vildi fara
varlega í sakirnar og ráðherrann
Hjörleifur Guttormsson vildi láta
fara fram mjög nákvæma rann-
sókn á öllum hliðum málsins.
Þrátt fyrir þessa afstöðu þing-
manna Alþýðubandalagsins hefur
náðst samstaða bæjar- og sveitar-
stjórnarmanna á Eskifirði og
Reyðarfirði um framgang málsins.
Segja má frá því, að helsti tals-
maður orkufreks iðnaðar í Reyð-
arfirði á fundinum var ásamt
Sverri Hermannssyni, Hrafnkell
Jónsson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins á Eskifirði. Tillaga
um þetta mál var samþykkt og fer
hún hér á eftir:
„Aðalfundur S.A.A., haldinn á
Vopnafirði 21.—22. ágúst 1980,
ítrekar og áréttar tillögur aðal-
fundar S.S.A. 1979 um orkumál.
Jafnframt lýsir fundurinn stuðn-
ingi sínum við framkomna sam-
þykkt sveitarstjórna á Reyðarfirði
og Eskifirði dags. 20. ágúst 1980
um orku- og atvinnumál."
Á orkumálafundinum, sem
haidinn var á Vopnafirði á sama
tíma eins og áður segir, var
ályktun um orkumál einróma
samþ.:
1 „Fundur S.S.A. um orkumál,
haldinn á Vopnafirði 23. ágúst,
lýsir ánægju sinni með samstöðu
þingmanna Austurlands í virkjun-
ar- og atvinnumálum fjórðungs-
ins. Fundurinn vill leggja áherslu
á eftirfarandi atriði:
1. Virkjunarmál: Til að nálgast
þau markmið S.S.A., að í fjórð-
ungnum sé til staðar nægileg
orka, við sem mestu öryggi og
við sem lægstu verði er virkjun
í fjórðungnum grundvallarat-
riði.
2. Orkufrekur iðnaður: Fundurinn
telur nauðsynlegt að nú þegar
verði hafinn undirbúningur að
orkufrekum iðnaði í fjórðungn-
um.
3. Verðlagsmál: Fundurinn leggur
áherslu á að fullur jöfnuður
náist sem fyrst í verðlagningu
orku í landinu, og skorar á
þingmenn að halda vöku sinni í
þessum efnum."
Stjórn Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi skipa nú:
Jónas Hallgrímsson, Seyðisfirði,
formaður, Albert Kemþ, Fá-
skrúðsfirði, Sigurður Geirsson,
Höfn, Logi Kristjánsson, Nes-
kaupstað, Brynjólfur Bergsteins-
son, Fellahr., Vilhjálmur Hjálm-
arsson, Mjóafirði og Kristinn Pét-
ursson, Skeggjastaðahreppi.
Jóh. D. Jónsson.
Spenna magnast
aftur í Kampala
Kampala. 2. scptember. AP.
LÖGREGLA hefur komid
fyrir nýjum vegatálmunum í
Kampala og nágrenni vegna
vaxandi spennu, sem stafar af
því, að ljóst virðist vera að
fyrstu kosningar í Uganda
síðan 1962 muni ekki fara
fram í lok mánaðarins.
Ákveðið hafði verið að kosn-
ingarnar færu fram 30. sept-
ember. En Demókrataflokkur-
inn sagði í yfirlýsingu í þess-
ari viku, að samkvæmt „áreið-
anlegum heimildum" yrði
kosningunum frestað í einn
mánuð.
Aðalritari flokkstns, Franc-
is Bwengye, sagði á blaða-
mannafundi, að ef herfor-
ingjastjórnin gæfi ekki við-
hlítandi skýringu á þessari töf
kynni flokkurinn að boða alls-
herjarverkfall.
Ferðamenn, sem hafa komið
til Kenýa, segja, að vegatálm-
unum hafi bæði verið komið
fyrir í Kampala og á leiðinni
að landamærunum. Leit er
gerð á fólki og í bílum að
vopnum.
Auknar öryggisráðstafanir
fylgja í kjölfar nýlegra lög-
brota í höfuðborginni. Emb-
ættismenn í Kenýa segja einn-
ig frá fréttum um bardaga
milli landsmanna og Uganda-
og Tanzaníuhermanna á
landamærasvæðum.
GÍÐI
— enn einu sinni íeti franiar f
Við höfum ávallt kappkostað að sinna kröfum neytenda og höfum
því útbúið nýja merkimiða á vörur okkar
Söltuð þurrkuð og reykt
Spæipyísa
PAKKAÐ
| ÞYNGD I KÍLÓVERÐ
VERÐ
Hráefnl: Svínafita, nautgripa
kjöt, svínakjöt, salt, krydd,
sykur.
Sýrur. Glukono-delta-fakton.
Þráavamarefni og lónblndar:
Askorbinsýra.
INNIHALDSiySING
er unnin í samráði við Rannsóknarstofu
Búvörudeildar, með ýtarlegri upplýsingum
en áður hafa þekkst,
— enda trygging fyrir góðri vöru.
, IÍTTUÁMIÐANN
AÐUR EN ÞÚ VEIXJR
'— |>ad borgfar si^.
@ KjönnvLy>\RSiöÐ a\Ma\NDsiNS
ALLT FYRIR
BARNIÐ ÞITT
Hentug husgögn í
smekklegu samræmi
vekja löngun hjá barni
þínu til að vera heima
og stunda nám sitt
af kostgæfni.
Hjá okkur er mesta úrval landsins af allskonar húsgögnum í
unglingaherbergi, svefnbekkjum, hirslum, skrifborðum og fleiru og
fleiru.
Og afborgunarkjörin
stæðari en hjá okkur.
Líttu inn, það borgar sig.
eru hvergi hag-
T
BUdshöfða 20 - S (91J81410-81199
Sýningahöllinni - Ártúnshöfða