Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 208. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Heita borgaralegri stjórn í Tyrklandi 1 Ankara. 15. septemher. AP. HÁTTSETTIR menn í her Tyrklands sögðu í dag að hershöfðingjarnir er færu með völd í landinu gerðu sér vonir um að útnefna borgaralega stjórn snemma í nóvember, en trúlega yrðu völd landsins að meira eða minna leyti í höndum hersins í a.m.k. eitt ár. Sömu heimildir hermdu, að áður en septembermánuður yrði úti, yrði komið á laggirnar sérstökum herdómstólum og yrðu stjórnmála- menn og hryðjuverkamenn, sem handteknir hafa verið í stórum hópum allt frá því á föstudag, leiddir fyrir dómstóla. Skipuð hefur verið fjögurra manna nefnd lögfræðinga og lær- dómsmanna til að vinna að breyt- ingum á stjórnarskrá landsins. Nefndinni er ætlað að gera drög að stjórnarskrá sem gerir ráð fyrir miklum völdum forsetans og gleggri og dreifðari valdskiptingu. Fregnir frá Tyrklandi í dag hermdu, að hermenn hefðu í dag gert mikla húsleit í úthverfum Istanbúl og Ankara í leit að hryðjuverkamönnum og að margir hefðu verið teknir fastir, Einnig var mikið um handtökur í öðrum borgum í dag og gær. Hermt er að a.m.k. eitt hundrað þingmenn hafi verið hnepptir í varðhald frá því á föstudag og allt að fimm þúsund manns sem grunaðir væru um aðild að hryðjuverkum. Borgarstjórar í mörgum helztu Kenan Evren hershöfðingi yfir- maður herafla Tyrklands. Hers- höfðingjarnir hafa nú heitið þvi að mynda borgaralega stjórn i Tyrklandi i nóvember nk. Allsherjarverkfall í breskum höfnum London. 15. sopt. — AP FULLTRIJAR 24 þúsund breskra hafnarverkamanna ákváðu í dag. að efnt yrði til allsherjarverkfalls frá og með næsta mánudegi vegna deilu um uppsagnir 178 hafnarverkamanna i Liverpool. Ef af verkfallinu verður er það í fyrsta sinn síðan 1972 að til allsherjarverkfalls kemur í breskum höfnum. Deilan snýst um það hvernig staðið skuli að uppsögnum 178 manna, sem hafa unnið hjá tveim- ur fyrirtækjum í Liverpool en rekstri þeirra verður hætt 30. sept. nk. Fyrirtækin ætla að skrá mennina á sérstakan lista yfir atvinnulausa hafnarverkamenn en verkamennirnir vilja að þeir verði skráðir á biðlista hjá öðrum fyrir- tækjum. Ef síðari hátturinn er hafður á er atvinnuleysisstyrkur- inn rúmum 20 pundum hærri á viku. Allsherjarverkfallið 1972 olli miklu öngþveiti í breskum höfnum en það stóð í heilan mánuð. 130.000 tonn af útflutningsvörum hlóðust upp í höfnunum á degi hverjum og mikill vöruskortur var orðinn í landinu. Þegar fréttir um verkfallið bárust út féll enska pundið óðara og hækkaði dollar- inn um 2'h cent gagnvart pundi. borgum landsins, þ.á.m. Istanbúl og Ankara, hafa verið settir af og herinn tekið við völdum í þeirra stað. Bönnuð hafa verið verkföll og verkbönn og verkfallsmenn verið reknir til vinnu. Þá var því lýst yfir í gær, að verkamenn með lausa samninga og launafólki er ætti í samningaviðræðum um kaup og kjör væri þegar í stað veittar launahækkanir um 70 af hundraði. Fyrrum forsætisráðherra Sul- eyman Demirel, og Bulent Ecevit fyrrum leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, eru báðir í haldi. Ekki er búist við því að þeir verði dregnir fyrir herrétt, heldur að núverandi ráðamenn ætli fyrst og fremst að leita hjá þeim ráða um stjórnun landsins. Talið er að hvorugur þeirra Demirels eða Ecevits muni hljóta áhrifastöður meðan herinn er við völd. Öflugur hervörður er á götum úti I Istanbul, höfuðborg Tyrklands. Myndin sýnir skriðdreka í nágrenni eins helsta umferðartorgsins í borginni. Símamynd — AP. Muskie varar við of mikiUi bjartsýni Washintfton. Montreal. Teheran. 15. september. — AP. EDMUND Muskie utanríkisráð- herra Bandarikjanna sagði í kvöld. að þrátt fyrir að mynduð hefði verið ný stjórn i íran hefði enn ekki reynst unnt að fá yfirvöld þar i landi til að hefja beinar viðræður um lausn bandarisku gislanna 52, er verið hafa i haldi i íran i tæpt ár. Hins vegar sagði kanadiska blaðið La Presse i dag, að siðustu þrjá mánuðina hefðu staðið yfir leynilegar þreyfingar i þvi augna- miði að fá gíslana lausa fyrir bandarisku forsetakosningarnar 4. nóvembcr næstkomandi. Blaðið sagði að leynilegar samn- ingaumleitanir hefðu farið fram milli bandaríska utanríkisráðuneyt- isins og Sadeghs Ghotbzadeh, fyrr- um utanríkisráðherra Irans, með milligöngu evrópskra aðila. Segir blaðið að Ghotbzadeh hefði lagt til að gíslarnir yrðu leystir úr haldi innan eins og hálfs mánaðar. Ghotbzadeh sagði í dag, að búið væri að „losa um hnútinn" á gísla- málinu. Hann var þeirrar skoðunar að afgreiðsla málsins í íranska þinginu yrði fljót, þingmenn væru reiðubúnir til að vinna að skjótri „en réttlátri" lausn málsins. Carter Bandaríkjaforseti sagði í dag, að síðustu viðburðir í Iran gætu ef til vill auðveldað lausn gíslamáls- ins. Muskie varaði hins vegar við of mikilli bjartsýni. Hann sagði, að þrátt fyrir að reynt væri að halda málinu á lofti á mörgum vígstöðv- um, og að reynt væri að knýja fram lausn þess á bak við tjöldin hefðu fyrri tilraunir orðið árangurslausar. Forseti þingsins í Teheran sagði í dag, að mál bandarísku gíslanna yrði tekið til umræðu einhvern næstu dagana, en áður hafði útvarp- ið i Teheran skýrt frá því að umræðan hæfist á morgun, þriðju- dag. Tveir áhrifamiklir trúarleið- togar sögðu, að eitt helsta skilyrði yfirvalda fyrir lausn gíslanna væri, að Bandaríkjastjórn bæðist opin- berlega afsökunar á framferði Bandaríkjanna í Iran undanfarin ár, en því hefur verið hafnað af hálfu Hvíta hússins. British Airways undirbýður Laker BRESKA flugfélagið British Airwyas (BA) hefur ákveðið að lækka biðlistafargjald á flugleið- inni London-New York í 77 sterl- ingspund frá og með 1. októbcr næstkomandi og þar með undir- bjóða flugfélag Sir Freddy Lakers. Rússar misstu 1500 menn í Panishirdal Nýju Dehlí, 15. Heptember — AP. FREGNIR frá Kabúl herma, að svo virtist sem sovézku herirnir í Afgan- istan hefðu gefist upp, i bili a.m.k., við að reyna að ná Panjshir-dalnum í norð- austurhluta landsins, sem verið hefur á valdi upp- reisnarmanna frá því 1978, þar sem um 1.500 sovézkir hermenn hafi fallið og fleiri hundruð særst í tveggja vikna löngum bar- dögum við dalsmynnið. Þrátt fyrir miklar loftrárásir og árásir stórskotaliðs, og þrátt fyrir tilstyrk sérstakra víkinga- sveita og sveita afganskra leigu- liða, komust Sovétmenn ekki nema 30 kílómetra inn í Panj- shirdal, sem er 180 km langur. Var sókn þeirra stöðvuð við Rokha er innfæddir komu af stað skriðuföllum með því að sprengja hreinlega niður fjalls- hlíðarnar. Lokuðust heilu sov- ézku herfylkin inni í nokkra daga og varð mesta mannfallið er þau reyndu að brjóta sér leið til baka. Afganskir uppreisnarmenn sögðust í gær hafa ginnt tvo ráðherra úr stjórn landsins og tekið þá af lífi í afskekktu fjallaþorpi. Hefðu þeir einnig komist yfir gilda fjársjóði er nota átti til að múta þjóðflokki þeirra til löghlýðni við stjórn landsins. Laker Airways. Einnig lækkar BA venjulegt fargjald sitt á flugleið- inni niður í 90 sterlingspund. Laker-flugfélagið hafði ákveðið að biðlistafargjaldið frá London til New York yrði 79 sterlingspund frá 15. október næstkomandi, og að venjulegt fargjald yrði 92. Fyrir aðeins þremur vikum ákvað BA að lækka biðlistafargjaldið milli Lond- on og New York frá og með 1. október, er BA og bandaríska flug- félagið TWA skiptust á að undir- bjóða hvort annað á flugleiðinni yfir N-Atlantshaf. BA hefur ákveðið að undirbjóða Laker á fleiri flugleiðum, m.a. til Miami og Los Angeles. Biðiist.i fargjald BA til Miami verður pund og 108 pund til Los Angeles. Venjulegt fargjald til Miami verður 99 pund og 132 til Los Angeles, og er í báðum tilvikum tveimur pundum lægra en fargjöld Lakers. Sir Freddy Laker sagði í dag, að hann hygðist ekki mæta þessu undirboði BA með því að lækka fargjöld sín frekar. Vegna minnkandi farþegafjölda félagsins hefur BA ákveðið að selja margar af eldri Boeing-747-þotum sínum og einnig nokkrar þotur af gerðinni B-707.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.