Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991 55 HANDKNATTLEIKUR Islandsmótid í hættu? Aðildarfélög HSÍ greiða engin þátttökugjöld vegna keppni á vegum HSÍ, þar sem þau telja að hagnaður af Lottói eigi að standa straum af kostnaði vegna móta, en nú hefur stjóm HSÍ, að sögn Jóns Hjaltalíns, formanns HSÍ, óskað eftir að þau hlaupi undir bagga með sambandinu svo hægt verði að ráða starfsmann til að sjá um mótamál. Stjómin hefur bent á tvær leið- ir í þessu sambandi. Önnur er sú að stjórnin og félögin vinni að því sameiginlega að fá sérstakan styrktaraðila vegna íslandsmóts- ins, sem myndi borga laun starfs- mannsins, en annar kostur er að félögin, sem eiga lið í 1., 2. og 3. deild karla greiði ákveðið gjald á mánuði til að standa straum af kostnaðinum. í því sambandi hef- ur verið rætt um að félög í 1. deild borgi 9.000 krónur á mán- uði, 2. deildar félög greiði 4.500 krónur og félög í 3. deild 2.000 krónur á mánuði. Skipun en ekki ósk Formenn félaganna eru ekki á eitt sáttir með framgang mála, en þeir, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sögðu að ekkert íslands- mót færi fram nema starfsmaður yrði ráðinn í fullt starf og HSÍ hefði kastað boltanum til þeirra. íslandsmótið ætti að hefjast eftir þtjár vikur og þar sem skammur tími væri til stefnu yrðu félögin að leggja sit af mörkum. Bjarni Akason, formaður hand- knattleiksdeildar Vals, sagði að HSI væri að varpa eigin vanda yfir á félögin og stillti þeim upp við vegg. „Annað hvort borgið þið eða það verður ekkert íslands- rnót. Þetta er ekki ósk heldur skipun, sem-kemur á versta tíma. Það er sjálfsagt að biðja um stuðn- ing, en það hefði þá átt að gera það fyrr í sumar, en ekki konta með skipun á síðustu stundu. Ég lít á þetta sem fjárkúgun, sem við verðum að ganga að, en verði samþykkt að borga ákveðið gjald verður séð til þess að peningarnir .fari þangað, sem þeir eiga að fara en ekki í hítina hjá HSI.“ HM á íslandi 1995: IHF óskar HSÍ biður ríkis- eftirstað- _ festingu HSÍ ALÞJÓÐA handknattleikssam- bandið (IHF) sendi Handknatt- leikssambandi íslands simbréf í síðustu viku, þar sem óskað var eftir staðfestingu á að keppnin árið 1995 geti farið fram á íslandi. HSÍ svaraði beiðninni í gær og sagði að ekkert væri að óttast og bauð fulltrúum IHF að koma til landsins við fyrsta hentuga tækifæri til að ræða nánar framkvæmd keppninnar. Fyrirspurn IHF er í þrennu lagi. I fyrsta lagi er spurt um stað- festingu á byggingu sérstakrar URSLIT Knattspyrna Evrópukeppni landsiiða 2. RIÐILL: Bern, Sviss: Sviss - Skotland................2:2 Stephane Chapuisat (30.), Heinz Hermann (39.) - Gordon Durie (47.), Ally McCoist (83.). 48.000 Staðan: Swiss.............7 4 2 1 19: 6 10 Skotland..........6 3 3 0 10: 6 9 Búlgaría..........6 2 2 2 10: 7 6 Rúmenía...........5 2 1 2 10: 6 5 SanMarónó.........6 0 0 6 1:25 0 4. RIÐILL: Landskrona, Svíþjóð: Færeyjar - N-Srland............0:5 - Kevin Wilson (7.), Colin Clarke 3 (12., 50., 67.), Alan McDonald (15.). 1.623 Staðan: Júgóslavía........6 5 0 1 20: 4 10 Danmörk...........5 3 11 9: 6 7 N-írland..........6 1 3 2 8: 8 5 Austurríki........5 113 5: 7 3 Færeyjar..........6 1 1 4 3:20 3 5. RIÐILL: Luxemborg: Luxemborg - Belgía.............0:2 - Enzo Scifo (23.), Marc Degryse (48.) 9.000 Staðan: Wales...............4 3 1 0 6:2 7 Belgia..............5 2 1 2 7:5 5 Þýskaland...........3 2 0 1 4:3 4 Luxemborg...........4 0 0 4 2:9 0 6. RIÐILL: íþróttahallar vegna keppninnar. í annan stað vill IHF fá staðfest hvort HSÍ geti haldið keppni með 24 lið- um í stað 16 eins og verið hefur og í þriðja lagi er óskað eftir upplýsing- um varðandi fjárhagslegu hliðina. ón Hjaltalín Magnússon, formað- ur HSI, sagði við Morgunblaðið að fyrirspurnin væri eðlileg, því IHF vildi fylgjast með áætlunum og framkvæmdum. í svari sínu hefði hann m.a. greint frá því að bæjar- stjórinn í Kópavogi hefði staðfest að bygging íþróttahallarinnar hæf- ist í byrjun næsta árs. Hann hefði einnig bent á að HSÍ hefði alltaf verið fylgjandi 24 liða keppni, ekki síst vegna þess að með slíku fyrir- komulagi væru tekjumöguleikar meiri. Jón Hjaltalín sagði að 24 liða keppni þyrfti ekki að kosta meira en 16 liða keppni ef fyrirkomulagið væri eins og í HM í knattspyrnu, en þetta þyrfti að ræða nánar við IHF eins og fjölmörg önnur atriði varðandi keppnina og því hefði hann boðið fulltrúum IHF hingað til skrafs og ráðagerða. Formaðurinn sagði ennfremur að áætlanir HSÍ varðandi keppnina miðuðust við það að framkvæmdin skilaði 60 milljónum króna í hagn- að. Til að áætlanir stæðust væri mikilvægt að hefjast þegar handa og vegna fyrirspyrnar IHF hefði hann óskað eftir fundi með fulltrú- um Kópavogs og menntamálaráðu- neytisins. KNATTSPYRNA / 1. DEILD * Allt í hnút? stjómina um lán - upp á 20 millj. kr Handknattleikssamband íslands ætlar á næstu dögum að óska eftir 20 milljón króna láni úr ríkis- sjóði, sem sambandið hyggst greiða á fimm árum. „Við þurfum þessa peninga til að komast út úr lausaskuldum," sagði Jón Hjaltalín, formaður HSI. „Þá fyrst getum við farið að vinna af fullum krafti við að undirbúa landsliðið sem best fyrir B-keppn-^ ina, sem verður í Austurríki í mars á næsta ári, en þar er markmiðið að vera í einu af fjórum efstu sæt- unum, sem tryggir farseðilinn á Heimsmeistarakeppnina í Svíþjóð árið 1993.“ Jón sagði að menntamálaráð- herra hefði skoðað allar leiðir til að veita HSI fyrirgreiðslu, en þetta væri ekki forgangsverkefni. „Við bíðum eftir formlegum fundi um málið og vonandi verður af honum í næstu viku.“ Formaðurinn sagði að fjárhags- staðan væri erfíð, en þannig hefði þetta verið í fjögur ár eða síðan ákvörðun var tekin um að halda Heimsmeistarakeppnina hér á lan<Jf' árið 1995. „Frammistaða tuttugu og eins árs liðsins á HM í Grikk- landi er árangur fímm ára undir- búnings og þetta lið verður uppi- staðan í landsliðinu 1995 ásamt yngri mönnunum, sem nú eru í landsliðinu. Það kostar óhemju mikla peninga að halda úti landslið- um í fremstu röð, en við höfum lit- ið á þetta sem fjárfestingu til fram- tíðar.“ Verður bikarinn afhentur í Garðinum eða Reykjavík Oporto, Portúgal: Portúgal - Finnland................1:0 Brito (22.). 30.000 Staðan: Holland.............6 4 1 1 14: 2 9 Portúgal............6 4 1 1 10: 3 9 Finnland............6 1 3 2 4: 5 5 Grikkland...........3 2 0 1 7: 4 4 Malta...............7 0 1 6 1:22 1 Vináttulandsleikir: Eindhoven, Hollandi: Holland - Pólland.................1:1 Gyro, Ungverjalandi: Ungverjaland - írland..............1:2 Kalman Kovacs (50.) — David Kelly (51.), Kevin Sheedy (70.). 4.000 Cardiff, Wales: Wales - Brasilía..................1:0 Dean Saunders (58.). 20.000 Wembley, London: ..„„„..u. England - Þýskaland................0:1 - Karlheinz Riedle (45.). 59.493 ENN eitt árið ræðst það ekki fyrr en i' síðustu umferð hvaða félag hampar íslandsmeistar- atitlinum - Víkingur eða Fram. 1986 var tekið upp á því að leika alla leikina í síðustu um- ferð á sama tíma, en þá börð- ust Framarar og Valsmenn um meistaratitilinn. Framarar unnu þá á betri markatölu. Spennan var mikil 1989, en þá áttu tvö félög mestan möguleika á að verða meistari; KA og FH. KA vann Keflavík, 2:0, í Keflavík á sama tíma og FH tapaði óvænt, 1:2, í Hafn- arfirði fyrir Fýlki. Þar rftéð stóðu léík- menn KA uppi sem íslandsmeistarar. Fram og KR háðu sögulega baráttu í fyrra, en þá tryggðu Framarar sér meistaratitilinnm á betri markatölu, á elleftu stundu. Spennan er nú enn einu sinni að ná hámarki. Víkingar og Framarar beijast um meistaratitilinn og eru möguleikar Víkinga vænlegri, þar sem þeir eru með betri markatölu en Fram- arar. Víkingar leika gegn Víði i Graði og Framarar fá Eyjamenn í heimsókn. Ef bæði liðin vinna verða Framarar að skora þremur mörkum meira en Víkingar, til að meistaratitilinn verði þeirra, en annars fagna Víkingar í Garði. Það getur svo farið að Víkingur fái bikarinn þó svo að bæði bæði félög- in beri læri hlut, en það færi þó eftir því hvað liðin töþúðú með miklum mun. Sem sagt; Spennan er geysileg. Báðum leikjum frestað? Mótanefnd KSÍ hefur sent Víkingi, Víði, Fram og ÍBV skeyti þess efnis, að ef annar leikurinn frestast af ein- hveijum ástæðum, verði hinum leikn- um einnig frestað. „Það hefur verið ákveðið að báðir leikimir verða leiknir á sama tíma,“ sagði Snorri Finnlaugs- son, formaður mótanefndar. Þegar hann var spurður um hvort að móta- nefndin hafi farið fram á það við Eyja- menn að þeir komi til Reykjavíkur daginn fyrir leik, eða á föstudaginn, sagði hann: „Við höfum rætt það við Eyjamenn, en þeir tóku dræmt í það.“ Bikarinn með þyrlu? Hvar verður bikarinn staðsettur þegar leikirnir fará fram," er spúrhirtg sém hefur brunnið á vörum- margra. Allt bendir nú til að bikarinn verði geymd- ur um borð í þyrlu, sem væri tilbúin að fara með hann í Garðinn eða Laug- ardalinn. „Þessi hugmynd hefur verið rædd. Við sjáum í fljótu bragði að það verði besta lausnin. Úrslit ráðast kannski ekki fyrr en á lokasekúndun- um. Við verðum að vera við öllu bðír-' - ir og það er fljótast að flytja bikarinn á milli staða með þyrlu. Akstursvega- lengdin á milli Reykjavíkur og Garðs er um sextíu kílómetrar. Það er hátt í klukkutíma akstur. Þyrla þarf ekki nema í mesta lagt tiu mínútur til að komast á milli staðanna," sagði Snorri. Væntanlega mun þyrlan hefja sig á loft með bikarinn stuttu áður en leikirnir verða flautaðir af, sveima um, ' 'ög' véra’ 11160111' Sð "Cáka' 'stéfnúna í Garðinn eða Laugardalinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.