Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1991, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C/D 215. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bretar óánægðir með maka sína Fjórar milljónir giftra einstaklinga i Bretlandi, eða níu af hundraði, myndu ekki velja sama maka aftur ef kostur gæfist á því, voru niðurstöður skoðana- könnunar sem tímaritið Reader’s Digest lét gera og birtar voru á föstudag. Mest bar á þessu á meðal ungs fólks, þar sem einn af hverjum fimm var óánægður með maka sinn. í könnuninni kom einnig fram að af Iista yfir þá þætti sem mikil- vægastir eru góðu hjónabandi metur fólk kynlíf einna minnst og var örugg fjárhagsafkoma talin mikilvægari. Efst á listanum eru samheldni og skilningur. Það kom á óvart að helmingur þeirra sem lentu í úrtakinu, sem í voru 2.075 einstaklingar, hafði rifist við maka sinn vikuna áður. Tíu prósent kvennanna ját- uðu að hafa slegið eiginmanninn og flest- ar virtust hreyknar af því. Eystrasaltsþorsk- ur úr sögunni? Líffræðingar telja nú að þorskstofninn í Eystrasalti sé svo illa á sig kominn að banna beri algerlega veiðar úr honum. Að sögn Eiteau-fréttastofunnar við- urkenna sérfræðingarnir að af stjórn- málaástæðum sé erfitt að hrinda slíku banni í framkvæmd en þeir vilja ekki gera tillögur um neina kvóta til handa löndunum sem liggja að hafinu. Akvörð- un um kvóta verður því að öllu leyti á valdi Baltnesku fiskveiðinefndarinnar en hún fundar nú í Varsjá í Póllandi. Full- trúi Evrópubandalagsins annast hags- muni Danmerkur í nefndinni og leggur hann til að kvótinn verði minnkaður um helming sem merkir að Danir fá að veiða 22.000 tonn. Slík ákvörðun mun hafa gífurleg áhrif á allar fiskveiðar lands- manna en það eru einkum sjómenn frá Borgundarhólmi og Vestur-Jótlandi sem veiða þorsk í Eystrasalti. Grænlendingar sáttir við Dani Formaður landsstjórnarinnar í Græn- landi, Lars Emil Johansen, vísar á bug öllum hugmyndum um að Grænlending- ar slíti sambandinu við Dani. Haft var eftir flokksbróður hans og fulltrúa á danska þinginu, Hans Pavia Rosing, fyr- ir skömmu að hann sæi fyrir sér þá þró- un að inúítar á Grænlandi, í Alaska og í Kanada, mynduðu með sér ríkjasam- band og að Grænlendingar gætu þá rof- ið sambandið við Dani. Johansen segir þessar hugmyndir Rosings fjarstæðu- kenndar og óraunhæfar. Grænlendingar hafi yfir engu að kvarta í viðskiptum við Danmörku. „Þau 11 ár sem við höfum haft sjálfstjórn höfum við fengið allt sem við höfum beðið um, og e.t.v. meira en vænta mátti.“ OLDUROT I ARNARFIRÐI Morgunblaðið/Róbert Schmidt Serbar herða tökin í Júgóslavíu: Neyðarkall berst frá um- setnum borgum Króata Evrópuráðið vill að aðildarríkin íhugi viðurkenningu á Króatíu og Slóveníu ^ Zagreb, Ancona á Ítalíu, Brussel, SÞ. Reuter. ÚTVARPIÐ í króatísku hafnarborginni Split á Adríahafsströndinni sendi í gær frá sér neyðarákall til umheimsins um að stöðva átökin í Júgóslavíu. „Við höfum hvorki vatn né rafmagn. Hafnarborgir, vegir og flugvellir eru lokuð. Hringið í ráðamenn ykkar, stöðvið styijöldina í Króatíu." Að sögn útvarpsins gerir flugher Júgóslavíu stöðugt sprengjuárásir á borgirnar Zadar og Sibenik auk Split og landher og floti gera einnig harða hríð að borgunum. Stjórn Belgíu hvatti í gær til þess að Evr- ópubandalagið fyrirskipaði viðskiptaþvingan- ir gegn-Serbíu, jafnvel hafnbann ef Serbar hygðust leggja undir sig alla Króatíu. Örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna verður boðað til fundar um átökin í Júgóslavíu í vikunni. Heimildarmenn segja að nokkur aðildarríki ráðsins, þ. á m. Rúmenía, Kína og Kúba, séu hikandi við að samþykkja ráðstafanir er skerði fullveldi Júgóslavíu. Króatar hafa einangrað herbúðir sam- bandshersins í landinu og meina þeim um vatn, rafmagn og alta aðdrætti. Forseti Kró- atíu, Franjo Tudjman, bauðst í gær til að aflétta að hluta til umsátrinu um búðimar gegn því að sambandsherinn stöðvaði stór- sókn sína sem hófst fyrir helgi. Varnarmála- ráðherra Júgóslavíu, Veljko Kadijevic, hafn- aði boðinu. Hann virðir einnig að vettugi fyrirskipanir Stipe Mesics, forseta Júgóslav- íu, sem er Króati en lýðveldin skiptast á um forsetaembættið. Sambandsherinn sækir hratt fram í Króatíu og situr um borgina Vukovar. Morgunblaðið ræddi í gær við Björn Bjarnason alþingismann sem situr þing Evr- ópuráðsins í Strassborg þar sem fjallað er um málefni Júgóslavíu. „A miðvikudag voru hér fulltrúar flestra lýðveldanna og svömðu þeir spumingum þingmanna," sagði Björn. „Öllum varð ljóst hvílík gjá er á milli sjónar- miðanna. í morgun voru svo almennar um- ræður um málið og lauk þeim með því að samþykkt var tillaga þar sem aðildarríki ráðs- ins em hvött til að íhuga hvort viðurkenna beri sjálfstæði þeirra sambandsríkja Júgó- slavíu sem þess óska. Einnig var hvatt til þess að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna tæki málið fyrir og athugað yrði hvort ekki gæti verið nauðsynlegt að senda öflugt her- lið á vettvang til að tryggja að vopnahléið verði haldið, og jafnframt að fundin verði skynsamleg og viðunandi lausn á vanda Júgó- slavíu.“ Fulltrúar ræddu hvað skyldi gera varðandi gestafulltrúa Júgóslavíu hjá ráðinu, nú þegar stjórnskipulag landsins vlrðist vera að hrynja og Serbar ráða senn lögum og lofum í því sem eftir er af sambandsstjórninni í Belgrad. UMRfiT Á FJÖLMIÐLA- MARKAÐI SUMIR GRJEDA AÐRIR TAPA ALBANIR FLYJA HUNGURV0FUNA Viðburðarík ævi Eistlend- ingsins og Is- lendingsins Eðvalds Hinr- ikssonar 24 ÚT ÚR C MYRKRI <í' / . Ég gleöst með þjóö minni / * / ;■ SÝKINNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.