Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 5

Óðinn - 01.05.1908, Blaðsíða 5
1 ÓÐINN 13 l'rú Guðrún Björnsdótlir í því fjelagi og innbyrðis óánægja, livað sem úr því verður, þegar frá líður. ' Frú Guðrún Björnsdóttir er fædd áEyjólfsstöðum á Völlum 27. nóv. 1854, dóttir Björns Skúlasonar umboðsmanns, er lengi bjó þar, og Bergljótar Sig- urðardóltur Guðmundssonar sýslumanns í Krossa- vík. Hún ólst fyrst upp hjá foreldrum sínum á Eyjólfsstöðum, en síðan lijá Bjarna lækni Thorla- cius á Eskifirði um nokkur ár, þar til bún fór, eftir fermingu, lil móðurbróður síns síra Vigtusar Sigurðssonar á Sauðanesi, og giftist bún þar 1885 aðstoðarpresli bans, síra Lárusi Jóhannessyni frá Enni, en misti bann eftir 4 ára sambúð haustið 1889. Einn vetur, nokkrum árum áður en bún giftist, bafði hún dvalið í Khöfn. Þau síra Lárus eignuðust 3 dælur og er ein þeirra nú við kennara- nám í Khöfn. Frú Guðrún flutlist hingað til Rvíkur með dætur sínar árið 1900 og hefur dvalið hjer síðan. Síðari árin hefur hún liaft á hendi mjólkursölu og rekið hana með miklum dugnaði. Nýlega hef- ur hún skrifað um mjólkurverslunina hjer í bæn- um og sýnt fram á, að nauðsynlegt sje, til trygg- ingar hreinlæti og heilbrigði, að koma á hana öðru og betra lagi en verið hefur lijá mörgum til þessa. V or-kyrð. I hálfskugga köfum er hraundranga rit og heiðarbrún dottar i leynum, er húmdrotning breiðirsitt daggtára drif um dali og engi og háfjalla klif og faðmskýlir frumgróða hreinum, en blómgciruð lilíð er við bládaggar traí sem blikfeldur settur með gimsteina vaf. Og lækurinn niðar svo ljúft og svo hægt með líðandi straumöldu sogin, og söngröddin kát er nú þögnuð, en þægt pjóta í laufkrónublöðunum vægt ylstrauma frjóvgandi llogin, er daggeislinn síðasti sólgjdta rós saumar í dimmhláan möttulfald sjós. Og geim-hvelið andar svo mjúkt og svo rnilt, en myrkfald sinn geymir að baki, og fossbúinn hefur nú hörpuna stilt og hljómpýðum niðómi kveldloftið íylt sem vögguljóð vorblómum kvaki, og alt er svo friðrótt, er frumlífið smátt fellur í armlög við daggmjúka nátt. Og svefnguðinn faðmlögum náttúru nær. Ei neitt utan blæsvalinn vakir; sem varðsveinn hann læðist svo Iaðandi og vær um lynggrónar heiðar og skrúðengi kær svo bifast par blómvængir rakir. En draumguðinn svífur um dali og fjöll, sem dvalboði nætur um jarðblómin öll. I einveru-kyrðinni áttu pað grund, sem andvarpsins pnngstunu deyfir; mann dreymir pá gjarnan um feðranna fund og frjálsborna hugprá á velsælu stund, og andinn sjer langflugin leyflr. Því stormvindur lífsíns er horíinn í húm og hefur ei lengur í sálunni rúm. Tob. l'obiasson. IIoidsn*t»ýliö heitir ný saga eftir Jón Trausta, scm nú er verið að prenta og er framhald »Höllu«. »Ul»p vid lossu«, saga Þorgilsar gjallanda, er nýkomin út í pýskri pýðingu eftir H. Erkes, talsvert stytt.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.